Dagur - 09.12.1992, Page 2

Dagur - 09.12.1992, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 9. desember 1992 Fréttir Skattamál til umræðu á formannafundi ÍBA: Samtengja þarf betur t.d. íþróttir, leikhús og útiveru Á formannafundi íþrótta- bandalags Akureyrar, þar sem mættir voru fulltrúar hinna 12 aðildafélaga auk 3 sérráða, voru m.a. til umræðu hinar auknu áherslur sem skattayfir- völd hyggjast leggja á íþrótta- félög og íþróttasambönd landsins. Engar tilkynningar hafa þó borist til stjórnar ÍBA, en á Reykjavíkursvæðinu hafa nokkur íþróttafélög þurft að skila inn bókhaldi til rannsókn- ar á síðasta misseri. íþróttakennarar. Virkja þarf betur ákveðinn aldurshóp sem hefur orðið svolít- ið útundan með frekari viðfangs- efni og er þar um 4. aldursflokk að ræða, þ.e. unglingar 13 til 14 ára. Var þar sérstaklega rætt um knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Stjórn ÍBA skipa: formaður Gunnar Ragnars, gjaldkeri Kristján Valdimarsson, ritari Birgir Styrmisson og fram- kvæmdastjóri í hálfu starfi Þröst- ur Guðjónsson. GG Lionsklúbburinn Hængur afhendir framlag til Mæðrastyrksnefndar. F.v.: Hekla Geirdal, frá Kvenfélaginu Hllf, Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, Gunnlaugur Björnsson, formaður verkefnanefndar Lkl. Hængs, Guðjón H. Sigurðsson formaður og Kristján Kristjánsson, formaður undirbúningsnefndar vegna ASÍ- þingsins. Mynd: Robyn Aðalfundur Ferðamálafélags EyjaQarðar: Framtíðarmöguleikum í ferða- þjónustu teflt í tvísýnu - með efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar Aðalfundur Ferðamálafélags Eyjafjarðar, sem haldinn var Akureyri í síðustu viku, lýsir þungum áhyggjum vegna þeirra efnahagsaðgerða ríkis- stjórnarinnar sem snúa að ferðaþjónustu í landinu en Iækkun tryggingagjalds og niðurfelling aðstöðugjalds mun ekki vega upp á móti álagningu 14% virðisauka- skatts á gistingu og fólksflutn- inga. I ferðaþjónustunni liggja mikl- ir framtíðarmöguleikar og fjöldi nýrra atvinnutækifæra ef rétt er á málum haldið. Þessum möguleik- um er nú stefnt í mikla tvísýnu með efnahagsaðgerðum ríkis- stjórnarinnar. í þessu sambandi er vert að líta til Svíþjóðar en þar fór saman á síðasta ári; ný skatt- lagning á ferðaþjónustu og að þýskum ferðamönnum fækkaði um 300.000. í stað sífellt aukinna álaga á ferðaþjónustu sem hljóta að leiða til fækkunar ferðafólks, ber ríkis- valdinu að styðja og styrkja ferðaþjónustuna með öllum til- tækum ráðum, s.s. með stórauk- inni markaðssókn og landkynn- ingu, eins og segir í ályktun aðal- fundar Ferðamálafélagsins. Starfsmenn Skátabúðarinnar og Sportvörudeildar Vöruhúss KEA við útbúnað frá Skátabúðinni. Samstarf Skátabúðarmnar og Vöruhúss KEA Nú nýlega hófst samstarf milli Sportvörudeildar Vöruhúss KEA og Skátabúðarinnar í Reykjavík. Vöruhús KEA hef- ur hafið sölu á vörum Skátabúð- arinnar og gefst Norðlendingum því kostur á að kaupa þessar vönduðu vörur í heimabyggð. Vöruhúsið mun koma til með að eiga það vinsælasta á hverj- um tíma en einnig getur fólk leitað til okkar með ýmsar sér- óskir og reynt verður að verða við þeim. Skátabúðin hefur á undanförnum árum aflað sér mikillar reynslu í sölu á útilífs- vörum, bæði fatnaði og ýmsum útbúnaði, og vomumst við til þess að þetta samstarf verði til þess að miðla þessari reynslu til viðskiptavina á Norðurlandi. (Fréttatilkynning) Á fundinum var einnig rætt um úthlutun styrkja frá Akureyrarbæ og rætt um að ÍBA tæki að sér að greiða alla tíma aðildarfélaganna í íþróttahúsunum og úthluta síð- an sérstökum ferðastyrkjum eftir þörfum hverju sinni. Allnokkrar umræður urðu um það hvernig það mótshald hér sem dregur að sér flesta aðkomumenn gæti bet- ur tengst bæjarlífinu og var þá helst nefnt til Andrésar Andar- leikarnir á skíðum, Hængs-mótið fyrir fatlaða, Artic-Open golf- mótið, ESSO-mótið í knatt- spyrnu fyrir hina yngri og Polla- mótið fyrir þá knattspyrnufíkla sem eru ekki alveg eins ungir. Beina þarf frekar augum að því að samtengja betur íþróttir, leikhús og útveru og fá þar til samstarfs flugfélög, hótel o.fl. í því sambandi var rætt um sér- staka trimmhelgi þar sem útivist- arsvæðin í Kjarnaskógi og Hlíð- arfjalli skipuðu sérstakan sess auk sundlauganna og skauta- svæðisins. Sérstök trimmnefnd er starfandi á Akureyri og er Edda Hermannsdóttir formaður hennar, en auk hennar sitja í nefndinni tveir læknar og tveir Lionsklúbburinn Hængur afhendir Mæðrastyrksnefnd á Akureyri 500 þúsund krónur: „Þetta er dásamlegt, algjör demantur“ - segir Jóna Berta Jónsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar Lionsklúbburinn Hængur á Akureyri afhenti í gær Mæðra- styrksnefnd á Akureyri 500 þúsund krónur að gjöf til styrktar hjálparstarfi Mæðra- styrksnefndar. Það voru þeir Gunnlaugur Björnsson for- maður verkefnanefndar Hængs, Guðjón H. Sigurðsson for- maður Hængs og Kristján Kristjánsson formaður undir- búningsnefndar v/ASÍ-þings sem afhentu þeim Jónu Bertu Jónsdóttur formanni Mæðra- styrksnefndar og Heklu Geir- dal frá Kvenfélaginu Hlíf þessa höfðinglegu gjöf. Lionsklúbburinn Hængur sá um allan undirbúning og fram- kvæmd ASÍ-þingsins á Akureyri í síðasta mánuði. í framhaldi af þeirri vinnu ákvað klúbburinn að afhenda Mæðrastyrksnefnd á Akureyri 500.000 kr. framlag til starfseminnar. „Þetta er alveg dásamlegt, algjör demantur að fá svona framlag núna þegar mjög hart er í ári hjá mörgum fjölskyldum og veitir okkur ómetanlegan stuðn- ing til að aðstoða þá sem nú virki- lega þurfa á hjálp að halda fyrir jólin af ýmsum ástæðum, þó sér- staklega vegna hins bága atvinnu- ástands," sögðu þær Jóna Berta og Hekla eftir að hafa tekið við þessu rausnarlega framlagi úr hendi Lionsmannanna. Auk þessa framlags fær Mæðrastyrksnefnd m.a. 50 þúsund krónur frá Orlofsnefnd húsmæðra, 100 þús- und frá Akureyrarbæ og 75 þús- und frá Einingu. Auk fatagjafa og fatasölu mun Mæðrastyrksnefnd skömmu fyrir þessi jól gefa jólamat til bág- staddra heimila en það er t.d. hangikjöt, svínakjöt, ávextir og kaffi, auk peningaaðstoðar til margra. Afhending þessara gjafa hefst 18. desember. Ákureyrarbær hefur afhent efri hæð Gránufélags- götu 5 til afnota fyrir starfsemina sem léttir allt starf Mæðrastyrks- nefndar. Þar er einnig tekið við framlögum og fatagjöfum. Ekki er ætlunin að láta alla Stefnt er að því að haldi uppi vinnu milli jóla og nýárs hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar hf., en fyrirtækið á um 60 tonn af þorski úr Barentshafi sem keyptur var nýlega af rússnesk- um togara. Unnið verður á Þorláksmessu og vinna hefst fljótlega á nýju ári. Undanfarin ár hefur tíminn um áramótin verið notaður til við- halds og viðgerða, m.a. málning- arvinnu, en í ágústmánuði sl. var lítil vinna í frystihúsinu og var tíminn þá nýttur til ýmissa við- haldsverkefna. þessa peninga rakna af hendi um þessi jól, því þörfin er einnig fyrir hendi t.d. í vor þegar margir falla út af atvinnuleysisskrá og tími ferminganna gengur í garð. Þá getur verið gott að létta undir með þeim sem hjálpar eru þurfi. í fyrra aðstoðaði Mæðrastyrks- nefnd 57 heimili og þegar er orð- ið ljóst að sú tala verður til muna hærri í ár. GG og nýárs Frystitogarinn Stakfell ÞH-360 er á Akureyri, en hjá Slippstöð- inni hf. verður sett í hann full- komin rækjuverksmiðja. Eftir þær breytingar getur togarinn komið að landi með ísfisk, farið á frystingu eða fryst rækju um borð. Þessum breytingum á Stak- felli lýkur væntanlega fyrri hluta janúarmánaðar. Húnaröst landaði 200 tonnum af loðnu sl. fimmtudag og er það eini loðnufarmurinn sem borist hefur til loðnuverksmiðju Hrað- frystistöðvarinnar um nokkurn tíma. GG Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.: Stefiit að vinnu millijóia

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.