Dagur - 09.12.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 09.12.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 9. desember 1992 Iifsins dóminó - Skúla HaUdórssonar tónskálds Lífsins dóminó, heitir nýútkomin bók, sem hefur að geyma ævi- minningar Skúla Halldórssonar tónskáids og fyrrum skrifstofu- stjóra Strætisvagna Reykjavíkur. Sagan er skráð af Ömólfí Árna- syni, rithöfundi. Skúli Halldórsson varð landsfrægur árið 1952 er franskt dægurlag fór sigurför um heiminn og í Ijós kom að það var nánast alveg eins og valsinn „Dóminó“, sem Skúli samdi 16 árum fyrr og færði til- vonandi konu sinni að gjöf. Deilan um höfundarréttinn snerist upp í hálfgerða milliríkjadeilu milii íslendinga og Frakka og Dan- ir blönduðust einnig inn í þá deilu. Guðmundur Guðmundarson samdi einnig gamanvísur við Iagið og urðu þær mjög vinsælar, enda fjölluðu þær um deiluna. Vísurnar hófust á þessum orðum: „Domino, Domino, ertu frönsk eða fædd hér á landi?...“ í „Lífsins dóminó" greinir Skúli frá fólki og atburðum á æskustöðvum sínum, Flateyri og ísafirði, og heimilsbragnum í húsi ömmu sinnar, Theodóru Thoroddsen, skáldkonu í Reykjavík. Pá segir hann frá eftirminnilegum atvikum úr eigin lífi og starfi og lýsir samferða- fólki sínu. Hér á eftir birtum við einn kafla bókarinnar. Þar segir frá ferð Skúla og Viðars Thorsteins- sonar, síðar heildsala, til Bret- landseyja. I vesturvíking Það er heitt, það er rakt og loftið er mettað súrsætum ilmi af öli, svita og reyk. En þetta venst vel og sömuleiðis hálfrökkrið og kliðurinn í þessari glaðværu, ensku alþýðukrá. Nótumar á hljóðfærinu em sumar svolítið stamar og það mætti stilla það betur. En hvaða máli skiptir það? Hann hefur ekki undan að þamba ölið sem aðdáendur hans færa honum að launum fyrir spila- mennskuna. Nú standa þrjár hálf- pottskrúsir og volgna ofan á píanóinu. Þetta er í fyrsta sinn sem Skúli Haildórsson leikur á píanó fyrir borgun. Viðar fær alltaf sama skammt og Skúli. Honum gengur greiðar að koma ölinu niður, enda hefur hann báðar hendur lausar. Viðar er orðinn rjóður í kinnum og prakkaralegur til augnanna. Skúli heyrir á hlátrasköll- unum að vinur hans er líka farinn að skemmta. Ölið hefur þá hjálpað honum að ná tökum á enskri tungu og brandaramir famir að fljúga. Félagamir höfðu komið til South Shields með togaranum Hilmi sem þar Iagðist í slipp. Þeir unnu sér fyrir fari og fæði með því að hífa öskuna af fýrplássinu 12 klukku- stundir í sólarhring á fjögurra tíma vöktum. Skúli fékk að halia sér á frívöktum í koju fyrsta stýrimanns sem gekk öfuga vakt við hann. Þeir stigu fremur félitlir á enska gmnd og því datt Skúla það snjallræði í hug að kaupa hefti af Strauss-völs- um fyrir 2 shiliinga og finna krá með sæmilegu hljóðfæri. Þar settist hann svo niður og byrjaði að spila. Eftir það þurftu þeir félagar ekki að taka upp veskið og skorti hvorki drykkjarföng né vinsældir. Andlitin eru ekki öll smáfríð og sumir eru lítt eygðir, einkum þegar halla tekur á kvöld. Karlamir eru ölþrútnir í framan og kerlingamar herfilega málaðar með alls konar glingur hangandi á sér til skrauts. En þetta er elskulegasta og gestrisn- asta fólk sem Skúli hefur fyrirhitt og hann leggur sig allan fram að spila sem best fyrir það. Hann finnur að mesta hrifningu vekja þeir valsar sem hann getur leikið sterkt og hratt. Krafturinn fær snögga svörun og stundum ætlar lófatakinu aldrei að linna. Skúli nýtur þess að finna velvildina streyma frá fólkinu og smjúga sér í merg og bein. Tvær ljómandi laglegar stúlkur taka sér stöðu við hliðina á píanóinu. Þær halda áfram að tala saman á meðan hann spilar og horfa aldrei á hann, þó að hann gjói til þeirra augunum. Báðar virðast stúlkumar góðar í laginu og með því að halla sér óþarflega mikið til hiiðar við spilamennskuna tekst honum að sjá að fætumir eru grannir og spengilegir. Önnur er dökkhærð með hlý, brún augu, en hin er með eldrautt hár, þúsund freknur á hvítu andlitinu og einstak- lega kyssilegan munn, sem hún teygir í sífellu fram í totu, eins og til að sýna hvers hann sé megnugur. „The girls must be crazy about you, love“ (Stúlkumar hljóta að vera vitlausar í þér, elskan) segir feitlagin eiginkona veitulasta vinar þeirra þegar lófaklappinu slotar. Sætu stelpumar klappa ekki. Þær standa bara með glösin í höndunum og halda áfram að tala saman. „You are a real sweetie-pie” (Þú ert algjört sætindi) bætir sú feita við og beygir sig fram og klípur hann elskulega í kinnina til að undirstrika orð sín. Við blíðuhótin riðar hún svo á fótunum að það slettist úr ölkrús hennar yfir nótnaborðið á píanóinu. Skúli ætlar að fara að fóma einum af hvítu línvasaklútunum, sem frú Unnur Thoroddsen hefur gert hann út með að heiman, til að þrífa klístrið af nótunum. En þá gerist kraftaverkið. Rauðhærða fegurðardísin birtist með stóra, vota borðtusku. Hún brosir, horfir beint í augun á honum og hreinsar upp ölið og segir: „You play jolly well.“ (Þú spilar býsna vel) Það er eins og eldingu ljósti nið- ur í kollinn á Skúla. Allur áhugi á Jóhanni Strauss er horfinn út í hafs- auga. Viðar er heldur ekki lengi að átta sig á því að lyklar að lífsins paradís kunni að finnast þama í hálfrokknu kófinu, bara ef maður hefur augun hjá sér, og bregður eld- skjótt við um leið og nokkurt færi igefst. Aður en varir em Gladys og jFiona líka komnar á fría drykki, • Skúli leystur undan spilasícyld- unni og ungmennin fjögur farin að krunka og kjást í hombásnum. Gladys hefur skærgræn augun aldrei af „Skoolie" og hann horfir hug- fanginn á tungu hennar væta totuna. Fiona með blíðu augun er farin að skellihlæja að leiftrandi fyndni „Whither’s," sem venjulega er frjó, en fæðist nú svo ört að hann hefur ekki við að koma henni út úr sér. Það er víðar en í Reykjavík sem húsnæðisleysi hrjáir ungdóminn. Verksmiðjustúlkumar tvær í South Shields geta ekki boðið erlendu pil- tunum heim. Þau ganga út með ströndinni í hlýju náttmyrkrinu og nema öðm hverju staðar til að kyss- ast. Totan gefur fyrirheitunum ekkert eftir. Loftið er þungt og kyrrt, þmngið spennu. Skammt utan við hafnargarðinn er baðströnd. Ljósgeisli frá vitanum slær veikum bjarma eitt augnablik öðm hverju á þennan afvikna stað. Þau hnjóta um fjömgrjót og hlæja dátt að ófömm hvers annars. Gladys hallar sér upp að að kletti. Hann leggur til atlögu og veit hvað hann vill. Hún veit hvað hann vill og veit hvað hún vill. Hann finnur þó brátt að það stendur ekki til að ferðast alla leið til himnaríkis. En víkingurinn er bæði atgangsharður og þrautseigur og hún er blóðheit, rauðhærða stúlkan með svo mjólkurhvíta húð að hún lýsir upp niðdimma nóttina. „Oh, you’re so cute. You’re so such a cutie-pie“ (Æ, hvað þú ert sætur. Þú ert algjört sætindi) segir Skúli Halldórsson (t.v.) og Viðar Thorsteinsson að svala þorsta sínum í London 1933. Myndin er tekin í grennd við British Museum. Gladys. Skoolie finnur strax að þetta em lausnarorðin sem tákna að nú séu vamir þrotnar. Hann ætlar að láta til skarar skríða og ryðja síðustu hindrununum úr vegi, fatnaðinum sem hylur dýrasta ástardjásnið. En nú fer heldur í verra. Hann kemst ekkert með þessar buxur. Þær em reyrðar níðfastar um mittið með ein- hverju sem ekki gefur eftir og hann finnur ekki. Loks tekst honum að grafa upp enda. Þetta er þá svert snæri og á því ótal rembihnútar. Honum fallast hendur. Hvem djöf- ulinn er Gladys að gera í þessari rammgerðu skírlífisbrók? „Let me“ (Leyf mér) segir Gladys. Og hún byrjar að leysa hvem hnútinn á fætur öðmm. Henni sækist verkið hræðilega seint, þykir þeim sem búinn bíður, stífur af eftirvæntingu á sæbörðum steini. Loks hefur hún leyst af sér brókina. Það liggur við neistaflugi þegar þau hlaupa saman og þau kútveltast í fjömnni án þess að finna fyrir stein- unum. Þó ekki hefði verið til annars en þessa hefur ferðin til Englands borgað sig strax á fyrsta degi. Næsta morgun halda piltamir tveir með jámbrautarlest frá South Shields til London. Þeir koma á Charing Cross-stöðina og ferðast með neðanjarðarlest síðasta spölinn til Russell Square. Aðalbjörg Sigurðardóttir hefur bent Skúla á Hotel Imperial, gott og ódýrt gisti- hús á þeim stað í bænum sem hún álítur heppilegastan fyrir ungan, andlega þroskaðan son einka- vinkonu sinnar. Og það er auðvitað við hliðina á stærsta og merkasta safni á norðurhveli jarðar, British Museum. Degi er tekið að halla þegar fél- agamir eru búnir að koma sér fyrir á hótelherberginu. „Við látum British Museum bíða til morguns," segir Viðar og dregur upp viskífleyg. „Fáum okkur heldur einn lítinn. Og svo skulum við skipta um föt og sýna þessum kújónum hér að við emm ekki neinir niðursetningar.“ Þó að þeir séu ekki búnir að vera nema tvo daga í Bretlandi, em þeir búnir að átta sig á því að enski spar- ifatnaðurinn sem þeir hafa meðfer- ðis, allur keyptur hjá Haraldi Amasyni í Reykjavík, er yfirstéttar- búningur sem nægir til að skipa þeim á bekk með milljóna- mæringum og lávörðum. Þessum tveimur ungu sósíal-istum þykir gaman að dubba sig þannig upp og það er fjör í tuskunum í herbergi þeirra meðan þeir undirbúa fyrstu kynnisferð sína um heimsborgina. Þeir stefna í átt til Piccadilly Circus. Leiðin liggur um Soho- hverfið, skuggalegt og spennandi með örþröngum strætum þar sem standa glyðrulegar píur í dyragætt- um og gefa þessum prúðbúnu, ungu íslendingum gætur. Snoppufríð telpa, ekki langt yfir fermingaraldri, kallar til þeira: „Wanna come up with me boys? I’ll take both of you for three shillings.” (Viljið þið koma upp með mér, strákar? Eg skal taka ykkur báða fyrir 3 shillinga). Síðan lyftir hún pilsfald- inum og setur klæminn hnykk á mjóslegnar mjaðmimar. „Ég held hún sé ekki af góðu fólki þessi,“ segir Viðar. „ímyndaðu þér hvað amma þín í garðinum segði ef þú mættir með hana upp á arminn til messu í Dómkirkjunni. Hugsaðu nú bara nógu helvíti sterkt um Lenín og Krishnamurti, fóstri. Annars komumst við aldrei klakklaust til Piccadilly.“ Þeir standa allt í einu við torgið fræga og þar er margt um manninn þetta heita sumarkvöld. Við gos- bmnninn nema þeir staðar og Skúli kælir ennið með vatni. „Ætli við þurfum ekki vökvun innvortis líka,“ segir Viðar. Þeir litast um og kringum Piccadilly Circus eru ótal' krár. En inn í hliðargötu sjá þeir bleikt skilti með nafninu Eros Club. Það er eins og við manninn mælt, þeir taka blátt strik þangað. „Ég hef alltaf verið óður í gríska goðafræði,” segir Viðar og skrollar enn meira á err-unum en venjulega. A Eros eru speglar í gylltum römmum, rautt pluss og málaðar konur. Strákamir eru ekki fyrr komnir með í glösin en að þeim drífa gullfallegar stelpur í síðum, flegnum kjólum. Gwendoline og Doris fá rándýrt kampavín. Þetta eru geðfelldar og háttvísar stúlkur. Það kostar fimm shillinga að fara heim með þeim að gera hitt, segja þær. „Iss, það er ekki mikið,” segir Viðar. Við fengum það líka ókeypis í gærkveldi. Það jafnar sig upp.“ Viðar ætlar að verða bisnessmaður og hefur nef fyrir því hvað sé að gera góð kaup. Úr því að hann telur verðið sanngjamt nennir Skúli ekki að kvarta. Brátt skiljast því leiðir fóstbræðra að kanna þessa greiðasölu hvor á sínum stað í bænum. Ekki eru fiottheitin þau sömu heima hjá Gvendólínu og á klúbbn- um Eros. Þar brakar í stigaþrepum og herbergið ekki laust við fuggu- lykt, en gestrisnina skortir ekki, því „Skoolie” fær „a nice cup of tea“ (indælis tesopa) áður en athöfnin hefst. Stúlkan er íturvaxin og sann- arlega ekki að skammast sín fyrir að sýna líkama sinn. Þótt ung sé, er auðséð að hún er enginn byrjandi í bólfömm. Það er unun hversu mikla alúð hún leggur við starf sitt. Þegar allt er komið á fulla ferð, vekur Skúli máls á því að það sé synd að spilla ánægjunni með gúmmíverjunni, sem Gvendólína hefur fært hann í. Hún segir að það kosti aðra fimm shillinga að fjar- lægja smokkinn. Viskídrykkjan hef- ur gert hann langþolinn og hann hægir ekki á ferðinni á meðan hann þrefar um aukaskilmálana sem 'honum tekst loks að prútta niður í þrjá shillinga. Hann verður frelsinu feginn og nýtur sín vel á endaspret- tinum. Á eftir segir stúlkan honum ágrip af ævisögu sinni, hvemig óvandaður maður gerði henni bam og hljóp svo frá henni. Hún segist vera að safna sér fyrir góðri saumavél til að geta séð fyrir sér og baminu með heiðar- legri vinnu. Skúla fellur þungt að heyra raunasögu þessarar ágætu stúlku. En þó er ekki laust við að það særi stolt hans, þegar hún biður hann að skutla sér aftur niður á Eros. Hún fullyrðir að það sé til að hitta stelpu sem eigi afmæli. En Skúli trúir því ekki. Hann veit að hún ætlar að reyna að krækja sér í annan við- skiptavin fyrir lokun. Viðar er kominn á undan honum heim á litla hótelið með stóra nafn- inu og það er hlegið dátt, er félagamir bera saman bækur sínar um ævintýri fyrsta kvöldsins í stór- borginni. Það var hitabylgja í London og maður þurfti að liggja allsber ofan á rúmfötunum til að þola við. Ég var ekki eins iðinn við British Museum og Aðalbjörg hafði reiknað með. Eftir tveggja tíma rölt um safnið var ég kominn með súrrandi hausverk. Og aldrei gleymi ég þorstanum sem við Viðar slökktum með öli á næstu krá. Líkast til er ég með ofnæmi fyrir söfnum. Ég hef alla tíð forðast þau eins og heitan eldinn. Þriðja daginn í London fór mig að klæja aldeilis voðalega á þeim stað sem ekki þykir kurteislegt að klóra sér á almannafæri. Við eftir- grennslan kom í ljós að ég var allur iðandi í kvikindi því sem ég hafði sem læknissonur oft heyrt getið um en aldrei séð áður, nefnilega flatlús. Viðar gerði hroðalegt grín að mér. Miklar bollaleggingar fóru fram um það hvar ég hefði smitast og komu þrír sökudólgar til greina: Gladys á snærisbuxunum, Gvendólína saumakona og síðast en ekki síst fyrsti stýrimaður á Hilmi. Við vis- sum nefnilega að flatlús geíur maður fengið úr rúmi. „En eitt er víst,“ sagði Viðar, „að þú hefðir ekki getað fengið betri manneskju en Gvendólínu á Eros til að annast dreifinguna hér í borginni." Ég fór inn í apótek við Oxford Street að reyna að fá eitthvað til að útrýma vargnum. Við sturtuðum í okkur nokkrum bjórum til að safna kjarki, enda vissi hvorugur okkar hvað flatlús héti á ensku. Stúlkuna sem afgreiddi okkur setti dreyr- , rauða, þegar ég benti með vísifingri á þrautasvæðið á mér og stundi upp: „Louse. Louse.“ (Lús. Lús) Þó virtist stúlkan skilja mig og seldi mér áburð. Lúsin setti nokkum svip á það sem eftir var af Lundúnadvöl okkar Viðars og náttúrlega varð ekki af frekara kvennafari eins og fyrir mér var komið. En við fómm á stór- kostlega tónleika í Albert Hall. Þar spilaði ung kona, sem ég hef aldrei heyrt minnst á síðan, píanókon- sertinn vinsæla í B-moll eftir Tsjakovskí. Annars sprönguðum við mest um stræti og torg að skoða þennan stað, þar sem allt var svo óendanlega miklu stærra en á íslandi. Daginn áður en við tókum lestina aftur norður til að ná togaranum aftur frá South Shields til Reykjavíkur, stóðum við í mannhafi á Trafalgar-torgi undir súlu Nelsons flotaforingja. Þá sagði Viðar: „Hugsaðu þér það, Skúli, að eftir fáeina daga verður allt þetta fólk orðið skríðandi í flatlús af fyrsta stýrimanninum á Hilmi RE 47. Ég ráðlegg þér að forða þér úr borginni, áður en það kemst upp hver á sök á þessu.“ Áburðurinn úr Oxford-stræti dugði ekki á lúsina. Það endaði með því að ég þurfti að fara til föður míns, eftir að ég var kominn heim aftur, og fékk hjá honum ljósbláan vökva til að bera á mig. Þá loksins losnaði ég við þetta skaðræðiskvik- indi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.