Dagur - 09.12.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 09.12.1992, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 9. desember 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Aukið sjálfstæði fram haldsskóla í athugun Nú í haust fóru fimm manns á vegum Menntamálaráðuneytis til Danmerkur og Kanada til að kanna breytingar á þar- lendu menntakerfi. Einn þeirra var Jón F. Hjartarson skólameistari Fjölbrautaskól- ans á Sauðárkróki. í framhaldi af þessari ferð skiluðu fimm- menningarnir skýrslu til mennta- málaráðherra og tillögum um breytingar hérlendis. Nú hefur svar borist frá ráðherra. Pað sem verið var að athuga voru breytingar á fyrirkomulagi fjárveitinga og valddreifingar í stjórnun framhaldsskóla. Niður- staðan var sú að í Danmörku væri verið að breyta áherslum þannig að verið væri að færa vald og ábyrgð frá ráðuneytum til stofnana. Sömu sögu er að segja í Kanada. í skýrslu fimmmenning- anna er vitnað í rannsóknir Dan Brown prófessors á miðstýringu og valddreifingu til skóla. I vald- dreifðu kerfi fá skólarnir ákveðið fjármagn og eru ábyrgir fyrir nýt- ingu þess. „Að ferð lokinni er hópurinn sammála um að þörf sé á breytt- um áherslum við fjárlagagerð og fjármálastjórn hér á landi. Með valddreifingu hafa Danir og Kan- adamenn horfið frá smáatriða- stjórnun til heildarstjórnunar skóla og stofnana," segir í skýrslu hópsins. Ennfremur kemur fram að hópurinn sé sammála um að „aukin valddreifing leiði til auk- inna gæða í skólastarfi.“ í framhaldi af þessu lögðu fjór- ir þessara aðila fram tillögur um valddreifingu og fjárhagslegt sjálfstæði framhaldsskóla, ásamt skýrslunni, til menntamálaráð- herra. Þar er m.a. lagt til að stofnaður verði vinnuhópur til að gera tillögur og áætlun um til- raunir á þessu sviði, að mennta- málaráðherra heimili 5-8 fram- haldsskólum að gerast til- raunaskólar, að stjórnvöld beiti sér fyrir endurskoðun kjarasamn- inga og að stofnuð verði þjón- ustumiðstöð fyrir framhaldsskóla sem heyri undir menntamálaráð- herra. Að sögn Jóns. F. Hjartarsonar skólameistara FNV hefur nú bor- ist svar frá menntamálaráðherra þar sem hann tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í til- lögum fjórmenninganna. Hefur málið verið sett fyrir nefnd sem vinnur að endurskoðun laga um grunn- og framhaldsskóla. „Ég geri ráð fyrir að sjónarmið keim- lík þessum séu uppi á borði hjá þeim,“ sagði Jón og kvað ekki ólíklegt að þess kunni að gæta í þeim lagafrumvörpum sem verði lögð fram sfðar í framhaldi af nefndarstarfinu. sþ Öryggi við notkun greiðslu- korta sé sem mest Neytendasamtökin og Visa ísland lýsa yfir því að gefnu tilefni að það sé hagur jafnt neytenda, verslana og þjón- ustustaða, sem útgefanda greiðslukorta að öryggi við notkun sé sem mest. Eðlilegt er að kortafyrirtækin geri ráðstafanir til að koma í veg fyrir óheimilar úttektir og mis- ferli. Það þjónar hvorki hags- munum bankanna, kortafyrir- tækjanna eða neytenda að kortin séu notuð umfram það sem úttektarmörk eða greiðslugeta leyfir. Neytendasamtökin hafa aldrei hvatt til ólögmæts athæfis, hvorki á þessu sviði né öðrum. Ummæli sem komið hafa fram í fjölmiðl- um og benda til annars eiga ekki við rök að styðjast og eru á mis- skilningi og ónákvæmni byggð. Skák_______________ Sveitakeppni grunnskóla: Sveitir Lundarskóla og GA efstar að vanda Sveitakeppni grunnskóla í skák var haldin á Akureyri um síðustu helgi. Þetta var undan- keppni fyrir íslandsmót grunn- skólasveita sem fram fer næsta vor. Eins og undanfarin ár voru sveitir Lundarskóla og Gagnfræðaskóla Akureyrar sigursælar. í flokki yngri nemenda, 1.-7. bekk, varð röð efstu sveita þessi: 1. A-sveit Lundarskóla 28 vinn- ingar af 28 mögulegum! 2. B- sveit Lundarskóla 19 v. 3. Gler- árskóli 18 v. 4. A-sveit Síðuskóla 16Vi v. 5. B-sveit Síðuskóla 15 v. Þarna vekur mesta athygli ein- stæður árangur A-sveitar Lundarskóla. Sveitin vann allar skákir sínar og þess má geta að ein stúlka var í sveitinni. Alls mættu 11 sveitir til leiks í þessum flokki. Þátttaka var dræmari í flokki eldri nemenda, 8.-10. bekk. Sex sveitir höfðu boðað mætingu en aðeins 4 mættu til leiks og allar frá Gagnfræðaskóla Akureyrar. Sveitirnar skiptu vinningunum þannig á milli sín: 1. A-sveit GA 11 Yi vinningur af 12 mögulegum. 2. B-sveit GA 8 v. 3. D-sveit GA 2Vi v. 4. C-sveit GA 2 v. Það verða því A-sveit Gagn- fræðaskóla Akureyrar og A-sveit Lundarskóla sem fara á íslands- mót grunnskólasveita næsta vor. SS 10 mínútna mót: Rúnar og Þór í efstu sætum Skákfélag Akureyrar hélt 10 mínútna mót síðastliðið föstu- dagskvöld. Þátttaka var þokkaleg og hörð barátta um efstu sætin. Leikar fóru þannig að Rúnar Sigurpálsson varð hlutskarpastur með 6 vinninga af 7 mögulegum. Þór Valtýsson varð í 2. sæti einnig með 6 vinninga og í 3. sæti varð Sigurjón Sigurbjörnsson með 5 vinninga. SS Ks MEÐ NYJUM JÓLA FERNUM MJOLKURSAMLAG * líka ájólunum & Og þegar fernurnar eru tómar má breyta þeim í skemmtilegt I jólaskraut -1- lu tuiiiai iiia uityLa |jtiiii i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.