Dagur - 09.12.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 9. desember 1992
Spurning vikunnar
Hvað er skemmtilegast á
jólunum og hvað langar þig
að fá í jólagjöf?
Spurt á Bestabæ
Linda Sigurðardóttir:
Þá fæ ég að fara í rauðan kjól
með rósum. Mig langar í snyrti-
dót og armband.
Birkir Sveinsson:
Það er gaman að opna pakk-
ana. Mig langar í playmohjóla-
mann og playmomann á
skíðum. Svo langar mig ( bíla-
jeppa, stærsta jeppann í heim-
inum sem þurrkar bílana upp
með svampi á pallinn.
Reynir Hannesson:
Ég ætla í snjókarlaleik á jólun-
um. Mig langar mest í trommur.
Stefán Þórisson:
Ég hlakka bara til. Mig langar í
gítar, kerti handa mömmu
minni og kertastjaka. Og svo
langar mig í verkfæri til að nota
þegar ég verð maður.
Björgvin Friðbjörnsson:
Það er allt gaman. Mig langar í
playmodót og hjólabretti.
Byggir veglega yfir einkaumboð sitt á Akureyri:
Vélsleðarnir mitt líf og yndi
- segir Tómas Eyþórsson umboðsaðili Polaris á íslandi
„Þetta hús er að lang stærstum
hluta byggt fyrir Polaris-
umboðið en við rekum okkar
hjólbarðaþjónustu jafnframt
en einskorðum okkur við minni
bfla. Við vorum ákaflega illa
staðsettir þar sem við vorum
og þurftum á að halda betri
aðstöðu. Við höfðum enga
aðstöðu á gamla staðnum fyrir
Polaris þjónustuna og því varð
eitthvað að gera,“ segir Tómas
Eyþórsson eigandi Hjólbarða-
þjónustunnar - Polarisumboðs-
ins á Akureyri. Síðastliðið
sumar réðst hann í bygginga-
framkvæmdir við Undirhlíð á
Akureyri og hefur nú flutt
starfsemi fyrirtækisins í nýja
húsið en eftir áramót verður
húsið formlega tekið í notkun.
Á sínum tíma voru fram-
kvæmdirnar umdeildar vegna
staðsetningar hússins en vinnu-
lagið við bygginguna var slíkt
að aldrei varð vart við rusl né
annað sem oft vill fylgja bygg-
ingarframkvæmdum. Tómas
sá sjálfur um alla aðdrætti við
bygginguna og lagði þær grunn-
línur að húsið skyldi byggt á
snyrtilegasta hátt sem mögu-
legt var. Enda fór svo að eftir
framkvæmdinni var sérstak-
lega tekið af bæjarbúum vegna
þessa.
Þær raddir heyrðust á sínum
tíma að Tómas hafi ætlað með
fyrirtæki sitt suður yfir heiðar en
fyrir þá sem ekki vita þá er Polar-
is-umboðið á Akureyri aðal-
umboð fyrir þessi tæki hér á
landi. „Það munaði ekki miklu
en eftir viðræður við aðila fyrir
sunnan, hér heima og hjá Polaris-
verksmiðjunum í Bandaríkjun-
um þá var ákveðið að hverfa frá
þessu því við höfum mjög góða
þjónustuaðila fyrir sunnan. Hug-
myndin var að komast nær
stærsta markaðssvæðinu en þetta
er líkast til eina landsumboð fyrir
vélknúin ökutæki utan Reykja-
víkursvæðisins. En þegar ég fór
að skoða málið nánar þá fann ég
líka fyrir því að ég hafði hrein-
lega ekki áhuga á að fara suður,
heimabyggðin togar svo fast í
mig. Bygging á þessu húsi var
hins vegar ekkert komin inn í
myndina þegar þessir flutningar
voru til skoðunar.“
Kostir við staðsetningu
landsumboðs á Akureyri
- Hverjir eru kostir og gallar
þess að reka landsumboð af
þessu tagi úti á landsbyggðinni?
„Kostirnir eru tvímælalaust að
hér er allt miklu einfaldara, mað-
ur þekkist, er treyst og afgreiðsla
í kerfinu gengur hraðar fyrir sig.
Vegalengdirnar eru líka minni og
þó senda verði búnað á markað
fyrir sunnan þá er allt umstang í
kringum þetta auðunnara hér fyr-
ir norðan.
Ég er búinn að reka þetta fyrir-
tæki hér í 24 ár og vera síðastliðin
16 ár með Polaris vélsleðana og
Polaris tækin. Enn er samt svo
með mig að ég fer aldrei suður
nema í bráðanauð,“ segir Tómas
og glottir.
Hann segist ekki sjá galla á
staðsetningu landsumboðs á
Akureyri ef á annað borð séu
sterkir umboðsaðilar á Reykja-
víkursvæðinu, eins og Polaris
hafi. Auk þessa verði að taka
með í reikninginn að víðar séu
vélsleðakaupendur en á Akureyri
og í Reykjvík og þessa dreifbýl-
iskaupendur sé ekki síðra að
þjónusta frá Akureyri. „Við
hljótum að hafa að meginmark-
miði að gera eins við alla hvar
sem þeir búa á landinum. í okkar
augum standa þessir viðskipta-
vinir allir jafnfætis."
Umboðið upp úr
Seríos-pakka
Á þeim 16 árum sem Tómas hef-
ur starfrækt Polaris-umboðið hef-
ur hann selt ýmis tæki af þessari
gerð svo skiptir hundruðum. Vél-
sleðarnir vega þyngst en svo er
komið að þessi þjónusta dreifist á
alla tíma ársins. Háðskt bros fær-
ist yfir andlitið á Tómasi þegar
hann er spurður hvernig þessi
umboðsmennska hafi byrjað á
sínum tíma og hann svarar því til
að fyrir 16 árum hafi bróðir hans
fært honum lítinn miða úr Seríos-
pakka og með honum fylgdi lítill
plastvélsleði merktur Polaris.
Tómas var þá með umboð fyrir
Evenrude-vélsleða og hugsaði
með sér að best væri að verða sér
út um umboðið fyrir þessa Polar-
is-sleða líka. Miðinn úr pakkan-
um var fylltur út og sendur vestur
Séð yfir hluta af sýningarsalnum í nýja húsinu. Nýja húsið breytir miklu í
þjónustunni við ört stækkandi hóp vélsleðamanna.
Hið nýja hús Hjólbarðaþjónústunnar -
þess verði eftir áramót.
Polarisumboðsins við Undirhlíð er komið í fulla notkun þó formleg vígsla
Mynd: Robyn