Dagur - 09.12.1992, Page 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 9. desember 1992
Dagdvelja
Stjörnuspá
* eftir Athenu Lee *
Q
Vatnsberi
(20. Jan.-18. feb.)
J
Dagurinn veröur ánægjulegur og
kannski kynnist þú nýju fólki.
Kannski markar þetta upphaf
varanlegs sambands eða upphaf
á nýju áhugamáli.
m Fiskar
Wí (19. feb.-20. mars)
)
Gættu þín vel í samskiptum við
fólk því þér hættir til að nálgast
það ógætilega og það gæti skipt
sköpum. Hirtu ekki um þótt þú
þurfir að smjaðra.
Hrútur
(21. mars-19. aprfl)
)
Þótt fyrstu viðbrögð við framför-
um verði pirringur eða eitthvað
verra, munu þær að lokum verða
þér í hag. Einkalífið er á við-
kvæmu stigi svo farðu varlega.
Naut
(20. aprfl-20. mal)
Farir þú út með fjölskyldunni
muntu eiga ánægjulegan dag.
Þú færð hól úr óvæntri átt. Svo
virðist sem þú hafir misreiknað
tilfinningar einhvers.
Tvíburar
(21. maí-20. Júnl)
3
Þú gæðir hugmyndir þínar lífi
með því að fá aðra til samvinnu
við þig. Gættu þess að vera ekki
óþolinmóður við aðra því það
gæti dregið úr árangri þinum.
C
Krabbi
(21. Júlfl-22. Júlf)
Þú ferð hjá þér þegar þú finnur
fyrir óvæntri vinsemd sem þú
getur ekki endurgoldið. Þú átt
erfitt með að sætta þig við nýjar
hugmyndir og ert því í minni-
hluta... ekki í fyrsta sinn.
IOÓn
(23. Júll-22. ágúst)
)
Þú átt auðvelt með að koma
skoðunum þinum á framfæri
vegna aukins sjálfstrausts. Nú er
kjörinn tími til að stofna til nýrra
sambanda.
d
Meyja
(23. ágúst-22. sept.)
d
Þú ert óþolinmóður en taktu
samt ekki fljótfærnislegar
ákvarðanir. Gættu þess sérstak-
lega að skuldbinda þig hvergi.
Happatölurnar eru 4, 13 og 27.
Vog
(23. sept.-22. okt.
D
Kraftar þínir eru á þrotum eftir
nýlegar vökur og skemmtanir.
Reyndu að þola endurteknar og
ýktar minningar gamals vinar.
C
SporödrekiD
(23.okt.-21.n6v.) J
Þú ert örlátur og átt ánægjulegan
dag. Haltu samt vöku þinni svo
aðrir lendi ekki í vandræðum
vegna þín.
ŒBogmaður D
(22. nóv.-21. des.) J
Þú verður fyrir ánægjulegri
reynslu fjarri heimili þínu svo þú
skalt fara snemma af stað til að
valda ekki vonbrigðum. Einhver
seinkun er fyrirsjáanleg.
Steingeit D
(22, des-19, Jan.) J
Kjörinn tími til að sinna persónu-
legum samböndum, sérstaklega
ástinni. Venus er ráðandi afl og
hamingjan er allsráðandi.
Sjáðu þennan grínista til
dæmis. Ég var að telja
i. hversu oft karlmenn voru
J berstrípaðir i
i þessum
1 bröndurum.
I
Pabbi hefur verið að þjálfa
Kaffon í að vernda húsið
okkar fyrir ókunnugu fólki.
aitmn
Hann gerir það með því
að fara í dulargervi og svo
fær hann Kaffon til að
ráðast á hann.
Hefur hann
lært eitthvað? j hann hefur.
JL
I hvert skipti sem það kem-
ur ókunnugur maður að
húsinu, bítur hann pabba.
notunum
Dúfan
Tveir léttlyndir náungar sátu inni á kaffihúsi og brutu heilann um það hvernig þeir ættu
að eyða kvöldinu. Við næsta borð sat roskinn karl með ungri stúlku. Strákunum leist
vel á stúlkuna og ákváðu að reyna að ná henni í sinn félagsskap. Með það fyrir aug-
um datt öðrum þeirra í hug að gera það sem þeir síðan framkvæmdu:
Þeir kölluðu á þjón og létu hann fá miða með þessum orðum: „Vér höfum veðjað um
í hvaða skóla þér hafið gengið". Báðu þeir þjóninn að færa karlinum miðann en með
þessu móti ætluðu þeir að vekja samræður.
Stuttu seinna kom þjóninn til baka með miða frá karlinum. Svar hans var svohljóð-
andi: „Ég er prófessor í fuglafræði og þessa dúfu ætla ég mér að reita sjálfur..."
Afmælisbarn
dagsíns
Ef þú ert ekki fyllilega sáttur við að
láta örlögin ráða ferðinni, verður
árið árangursríkt þar sem þú ert
fullur metnaðar. Einkalífið er frekar
stöðugt en samt koma upp erfiðleik-
ar i tengslum við eina manneskju:
sem gæti raskað ró þinni nema þú
takir strax á málunum. Að öðru
leyti verður árið ánægjulegt þar
sem rómantíkin er annars vegar.
Þetta þarftu
Blessað barnalán
Ekki er vitað til þess að nein kona hafi
fætt eins mörg börn og hin fyrri af
tveimur eiginkonum Fyodors Vassilets
bónda, sem bjó í Shuya, 240 km vest-
ur af Moskvu (f. 1707, d. fyrir 1770). i
27 fæðingum fæddi hún af sér tvíbura
16 sinnum, þríbura 7 sinnum og fjór-
bura fjórum sinnum; alls 69 börn! Flest
munu börnin, sem fæddust á árunum
1725-1765, hafa náð fullorðinsaldri.
Orbtakib
Sitja á hakanum
Orðtakið merkir að verða út
undan, vera afskiptur, mæta
afgangi. Orðtakið er kunnugt frá
18. öld. Nokkur afbrigði eru
kunn, svo sem „verða á hakan-
um“ og „búa á hakanum".
Uppruni er óvís en sú skýring á
mestu fylgi að fagna að orðið
HAKI merki „ysta sæti“. Á 17.
öld kemur orðasambandið „á
hakanum yst“ fyrir í merkingunni
„síðastur í röð“.
Hjónabandib
Skylduverk
„Englendingurinn leiðir brúði
sína að altarinu vegna þess að
England væntir þess að hver
maður geri skyldu sína."
Ókunnur höfundur.
Dásamleg
dömubindi
Það er blindur
maður sem
ekki hefur tekið
eftir því að
verulega stór
hluti af auglýs-
ingatíma Ijós-
vakafjölmiðl-
anna hefur
verið lagður
undir auglýsingar sem tíunda
ágæti nýrrar gerðar dömu-
binda. Ungar stúlkur hoppa
um svo léttar og kátar yfir því
að hafa kynnst þessu eina og
sanna dömubindi og dásama
vellíðan sína og öryggi eftir að
þær uppgötvuðu þau.
Nú leika mun allt í lyndi
þó lífsgleði áður ei finndi.
í sjónvarpi sá ég
og síðan þý á ég
svo dásamleg dömubindi.
Þau lofa ég hátt og í hljóði
nú hlotnaðst mér ást og gróði.
Þau vellíðan veita
þú veist hvað þau heita
sem leka ei bláu blóði
Að finna í fjöru
Það er oft stór-
kostlegt að
hlusta á öll
þau nýyrði
fslenskrar
tungu sem
íþróttafrétta-
riturum ákveð-
innar útvarps-
stöðvar hefur
dottið í hug að hnoða saman
svo ekki só taiað um skiining
þeirra á notkun gamalla orða-
sambanda. Nýlega var bein
lýsing á handboltaleik og þar
tókst ágæt samvinna með úti-
leikmanni og línumanni,
m.ö.o. línumaðurinn fékk oft
glæsilegar sendingar inn á lín-
una sem varnarmenn and-
stæðinganna réðu ekki við og
skoraði línumaðurinn mörk við
gífurlegan fögnuð útvarps-
mannsins sem trauðla hefur
verið hlutlaus áhorfandi. En
ritari S&S hélt í' fáfræöi sinni
að þessir tveir leikmenn væru
svarnir óvinir því útvarpsmaö-
urinn talaði sífellt um að skytt-
an heföi fundið línumanninn i
fjöru! Og það var fleira. Aum-
ingja línumaðurinn mátti þola
það að þegar hann skaut bolt-
anum glæsilega ( mark and-
stæðinganna þá var þeirri
athöfn lýst þannig: „Hann
klekkir á honum í netiö!" Á
hverjum hugðist hann klekkja?
Kannski andstæðingnum, en
varia svo heiftarlega að hann
svifi í netið með boltanum,
eða hvað? í sama leik skaut
landsfræg skytta án afláts á
mark andstæðlnganna með
misjöfnum árangri en er bolt-
inn rataði í netið eitt sinn varð
íþróttafréttamanninum að
orði: „Þrumuskotin hans éru
orðin margfræg fyrir löngu síð-
an og þetta var eitt af þeim!“
Já, hún stóð ekki á sér frægð-
in í þaö skiptið.