Dagur - 06.01.1993, Side 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 6. janúar 1993
Fréttir
Sparisjóður Sigluíjarðar 120 ára:
Sterk staða elstu starfandi
peningastofnunar landsins
- segir Björn Jónasson, sparisjóðsstjóri
„Jú, þakka þér fyrir, afmælis-
barnið ber sig bara vel. Sigl-
firðingar hafa staðið vörð um
þessa peningastofnun, sem
þeir eiga auðvitað sjálfir,“
sagði Björn Jónasson, spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Siglu-
Ijarrtar. Á nýársdag voru liðin
120 ár frá stofnun Sparisjóðs-
ins sem er elsta starfandi pen-
ingastofnun landsins.
„Siglfirðingar sýna Sparisjóðn-
um mikla ræktarsemi og þeir gera
sér greinilega grein fyrir að hann
er peningastofnun í þeirra eigu
og er stjórnað af heimamönnum.
Við erum svo heppnir að á
undanförnum árum höfum við
nokkurn veginn getað uppfyllt
allar eðlilegar óskir okkar við-
skiptavina," sagði Björn. Auk
Sparisjóðs Siglufjarðar er
íslandsbanki hf. (áður Útvegs-
banki íslands) með útibú á Siglu-
Bensín hækkaði
um 5,9%-8,3%
Útsöluverð á bensíni hefur
hækkað á bilinu 12,8% til
15,4% eftir styrkleika á eins og
hálfs mánaðar tímabili, þ.e. frá
því bensínverð hækkaði í kjöl-
far gengislækkunarinnar í
nóvember. Auknar tekjur
ríkissjóðs vegna þessa nema
samtals um 830 milljónum
króna á ársgrundvelli.
Vegna álagningar sérstaka
bensíngjaldsins nú um áramótin
og breytingarinnar á almenna
bensíngjaldinu hækkaði útsölu-
verð á 92 og 95 oktana bensíni
um 5 kr. lítrinn, þ.e. um 7,9% og
8,3%. 98 oktana bensín hækkaði
um 4 kr. lítrinn sem er hækkun
5,9%. Nú kostar lítrinn af92okt-
ana bensíni kr. 65,40 hjá Skelj-
ungi og Olís, en 10 aurum minna
hjá Esso. Lítrinn af 95 oktana
bensíni kostar kr. 68,40 hjá Esso
og Olís, en kr. 68,30 hjá Skelj-
ungi. 98 oktana bensínið kostar
kr. 71,60 hjá Esso og Skeljungi,
en kr. 71,50 hjá Olís. ój
Borgarbíó á Akureyri:
Karlakórimi Hekla kveður
- íslandsfhimsýning á nýrri spennumynd
í kvöld verða síðustu sýningar í
Borgarbíói á hinni vinsælu
íslensku kvikmynd Karlakór-
inn Hekla. Síðastliðið sunnu-
dagskvöld höfðu um 2500
manns séð myndina og sýning-
argestir verða því eitthvað um
3000 þegar yfir lýkur. Jóhann
V. Norðfjörð, sýningarstjóri,
sagði að því miður yrði Borg-
arbíó að senda myndina frá sér
vegna mikillar eftirspurnar
víðar á landinu.
Eins og fram hefur komið hafa
Karlakórinn Hekla og Sódóma
Reykjavík dregið að sér marga
áhorfendur á Akureyri og ljóst
að Hekla hefði getað gengið mun
lengur.
A fimmtudagskvöldið býður
Borgarbíó upp á íslandsfrumsýn-
ingu á stórmyndinni Keeper of
the City frá Sambíóunum. Ósk-
arsverðlaunahafinn Louis Gosset
jr. leikur rannsóknarlögreglu-
manninn James Dela sem er falið
að klófesta geðsjúkan morðingja
sem gengur laus í Chicago. Fórn-
arlömb morðingjans eru í fyrstu
þekktir glæpamenn í borginni og
líkin eru hræðilega útleikinn og
verr eftir því sem morðunum
fjölgar.
Að sögn Jóhanns hefur stefna
Borgarbíós verið sú að frumsýna
eina til tvær kvikmyndir á ári hér
á landi og vandað sé til valsins.
Hann segir það alrangt, sem sum-
ir haldi, að kvikmyndir sem
frumsýndar eru á Akureyri séu
eitthvað lakari en þær sem eru
frumsýndar í Reykjavík. Þvert á
móti sé kappkostað að fá þekktar
myndir til íslandsfrumsýningar í
Borgarbíói. SS
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Öldungadeild
Innritun á vorönn stendur yfir dagana 7. og 8.
janúar.
Nemendur sem tóku þátt í forvali þurfa að stað-
festa valið.
Setning og afhending stundaskráa gegn
greiðslum fer fram miðvikudaginn 13. janúar kl.
17.30.
Kennsla hefst sama kvöld samkvæmt stunda-
skrá.
Skólameistari.
firði.
í landinu eru starfandi 35
sparisjóðir og er Sparisjóður
Siglufjarðar í hópi 10 stærstu
sparisjóðanna. Um síðustu ára-
mót voru innistæður um 630
milljónir og eigið fé sjóðsins í
kringum 150 milljónir. Af þess-
um tölum má ljóst vera að staða
hans er mjög sterk.
Björn sagði að ekki hafi þótt
heppilegt að efna til afmælis-
veislu á nýársdag, en afmælisins
verði minnst með fjölbreytilegum
hætti allt afmælisárið. „Við verð-
um með uppákomur á árinu og
reiknum með því að byrja fljót-
lega, en ekki hefur verið tekin
endanleg ákvörðun um hvernig
að þeim verði staðið. Aðalatriðið
í okkar huga er að gera eitthvað
fyrir fólkið í bænum sem á stofn-
unina og starfsfólk hennar,"
sagði Björn. óþh
Hér stendur Bjöm Jónasson, sparisjóðsstjóri, við hlið málverks af frumherja
Sparísjóðs Siglufjarðar, Snorra Pálssyni.
Guðmundur Lárusson, formaður LSK:
Fjögur hundruð miUjón króna
skattlagning á neytendur
- framleiðendur geta ekki tekið á sig kostnað vegna
niðurfellingar endurgreiðslna á matarskattinum
„Að ætla neytendum að greiða
allt að 400 milljónum króna
vegna niðurfellingar endur-
greiðslu á matarskatti af eggj-
um og kjötvörum öðrum en
kindakjöti er ekkert annað en
ein af árásum ríkisstjórnarinn-
ar á almenning í landinu. Eg
tel að stjórnvöld verði að bera
fulla ábyrgð á þeim hækkunum
sem af þessu leiðir. Þetta er
hrein skattlagning af hálfu hins
opinbera,“ sagði Guðmundur
Lárusson, formaður Lands-
sambands kúabænda, þegar
hann var spurður um þá
ákvörðun stjórnvalda að draga
úr endurgreiðslum á eggjum
og kjötvörum öðrum en kinda-
kjöti um 64,7%.
Guðmundur sagði að staða
nautakjötsframleiðenda væri
ekki með þeim hætti að þeir gætu
tekið þessa hækkun á sig eins og
stjórnvöld virtust ætlast til. Hann
sagði að framleiðendur hefðu
gengist fyrir stórfelldum lækkun-
um á nautakjöti á síðastliðnu ári;
um 15% á ungnautakjöti og á bil-
inu 20 til 30% á kýrkjöti. Mikið
af þessari verðlækkun hafi ekki
skilað sér til neytenda því milli-
liðirnir hafi stungið meirihluta
hennar í eiginn vasa allt fram í
nóvember að Verðlagsstofnun
birti niðurstöður verðkönnunar
á nautgripakjöti opinberlega.
Guðmundur Lárusson sagði að
ekki væri nákvæmlega vitað hver
staðan í nautgripakjötsfram-
leiðslunni væri - hversu birgðir
væru miklar. Erfitt væri að átta
sig á hversu margir gripir séu á
fæti hjá bændum og bíði slátrun-
ar. Vitað sé um að nokkurt magn
af kýrkjöti komi á markað vegna
5% skerðingar á framleiðslu
mjólkur. Kúm væri slátrað af því
tilefni og einnig orsaki ný reglu-
gerð um frumutölu í mjólk að
farga verði einhverju af kúm.
Frumureglugerðin komi þannig á
óheppilegum tíma og stuðli að
offramboði á nautgripakjöti. Þá
sagði Guðmundur að þegar bíða
þyrfti með gripi til slátrunar
bættu þeir á sig kílóum og nefndi
sem dæmi að gripur væri ekki
lengi að þyngjast úr 170 í 190 kíló
og því þyrfti ekki marga gripi á
biðlista til að ígildi eins grips
bættist við birgðasöfnun. Því væri
ljóst að ekki væri séð fyrir vanda
vegna offramleiðslu. ÞI
Aðalfundur Sjómannafélags EyjaQarðar:
Mótmælir harðlega að kvótakostnaður
sé dregimi af launum sjómaima
Aðalfundur Sjómannafélags
Eyjafjarðar var haldin 28. des
ember sl. Á fundinum var kos
in ný stjóm en hana skipa: For
martur Konráð Alfreðsson
varaformaður Sveinn Kristins
son, ritari Guðjón Jónsson
gjaldkeri Davíð Haraldsson og
meðstjórnandi Kristinn
Pálsson. Á fundinum voru
samþykktar 12 ályktanir og
skal hér getið þeirra helstu.
Aðalfundur Sjómannafélags
Eyjafjarðar mótmælir harðlega
því siðleysi einstakra útgerðar-
manna að draga kostnað vegna
kvótakaupa frá launum sjó-
manna. Fundurinn minnir á þá
yfirlýsingu sem undirrituð var í
síðustu samningum varðandi
þátttöku sjómanna í kvótakaup-
um útgerðanna.
Fundurinn mótmælti harðlega
fækkun í áhöfnum fiskiskipa en
fækkunin hefur í för með sér auk-
ið vinnuálag og leiðir þar með af
sér stóraukna slysahættu sem er
þó ærin um borð í skipunum.
Fækkanir í áhöfnum gefa tiltölu-
lega lítið af sér í aðra hönd til
undirmanna og valda auk þess
umtalsverðum útgjöldum hjá
útgerðarmönnum. I dæmi af ein-
um togara þar sem fækkað var í
13 menn og aflaverðmæti miðað-
ist við 190 milljónir á einu ári
hækkuðu ráðstöfunartekjur skip-
stjóra um 500 þúsund krónur, 1.
stýrimanns um 400 þúsund en
háseta um 136 þúsund svo sjá má
hverjir hagnist á auknu álagi
undirmanna og áhættu.
Fundurinn skorar á stjórnvöld
að taka að nýju upp hrefnuveiðar
sem og aðrar hvalveiðar á kom-
andi sumri og hafnar verði rann-
sóknir á hvala- og selastofnun-
um.
Aðalfundur Sjómannafélags
Eyjafjarðar styður eindregið þá
stefnu að allur afli sé seldur gegn-
um fiskmarkaði, en þar sem því
verður ekki við komið verði fisk-
verð tengt raunhæfum markaðs-
verðum.
Skorað er á þá sem fást við
útgerð fiskiskipa að gera úttekt á
vinnuaðstöðu skipverja í þá átt
að fækka veikindafjarvistum
vegna rangra vinnuskilyrða. Enn-
fremur var skorað á yfirvöld að
leyfa ekki vinnslu um borð í skip-
um sem ekki hafa kojur og rými
fyrir alla skipverja. GG