Dagur - 06.01.1993, Síða 3
Miðvikudagur 6. janúar 1993 - DAGUR - 3
Fréttir
13% samdráttur í þorsk
afla á síðasta árí
- enn frekari samdráttur fyrir-
sjáanlegur á þessu ári
Hluti starfsmanna Akureyrarhafnar og tveir fyrrverandi starfsmenn við vigtarhúsið. F.v. Gunnar Arason, yfírhafn-
arvörður, Aki Stefánsson, vigtarmaður, Tryggvi Gunnarsson og Jón B. Rögnvaldsson, sem létu af störfum um sl.
áramót og Guömundur Sigurbjörnsson, hafnarstjóri. Mynd: kk
Akureyri:
Tveir aldnir heiðursmenn láta
af störfum á haftiarvoginni
Samkvæmt tölum Fiskifélags
íslands var þorskafli íslend-
inga á síðasta ári sá minnsti í
tonnum frá því fískveiðilögsag-
an var færð út í 200 sjómflur
árið 1975. Samdráttur í þorsk-
afla á síðasta ári var 13% sé lit-
ið til ársins 1991.
í áramótagrein Þorsteins
Gíslasonar fiskimálastjóra í
Morgunblaðinu kemur fram að
þorskafli Iandsmanna er áætlaður
268 þúsund lestir á síðasta ári og
að um samdrátt í veiðum hafi
verið að ræða allt frá 1987, en þá
var veiðin 390 þúsund lestir.
Samdráttur í þorskafla á síðasta
ári var 13% samkvæmt tölum
Fiskifélagsins og á þessu ári er
fyrirsjáanlegur enn frekari sam-
dráttur í þorskveiðum, þ.e. afla-
heimildir í þorski frá síðasta fisk-
veiðiári voru minnkaðar um tæp-
ar 60 þúsund lestir eða í 207 þús-
und lestir.
Arnar Sigurmundsson, formað-
ur Samtaka fiskvinnslustöðva, seg-
ir að miðað við veiðiheimildir í
botnfiski árið 1993, verði veru-
Nýárstrimm í
Kjarnaskógi:
Þátttakan sí-
fellt að aukast
Líkt og undanfarin ár var fólk
hvatt til að mæta í Kjarnaskóg
á nýársdag og ganga þar sér til
ánægju og heilsubótar. Nú
voru það alls 173 sem skráðu
sig í gestabók útivistarsvæðis-
ins og hefur þeim farið fjölg-
andi með hverju ári.
Það er Skógræktarfélag Eyfirð-
inga sem hefur umsjón með svæð-
inu og það hefur undanfarin ár
hvatt almenning til útivistar á ný-
ársdag. Troðnar hafa verið göngu-
brautir fyrir bæði fótgangendur
og skíðamenn. Þeir sem ganga
einn hring eða meira í trimm-
brautinni, skrá sig í gestabók úti-
vistarsvæðisins. Sem fyrr segir
hefur þátttakan aukist með árun-
um. Að þessu sinni var veðrið
ágætt og göngufæri gott, bæði
fyrir skíðafólk og fótgangendur.
legur halli á veiðum og vinnslu og
útreikningar samtakanna sýni að
hallinn geti orðið um 1500 millj-
ónir króna á botnfiskvinnslunni
og annað eins á útgerðinni. ój
Akureyri:
Verslunar- og
skrifstofufólk
segir upp
samningum
Á fundi í Félagi verslunar og
skrifstofufólks á Akureyri 29.
desember sl. var samþykkt að
segja upp gildandi kjarasamn-
ingi og eru samningar lausir frá
og með 1. febrúar nk.
A fundinum var samþykkt
ályktun þar sem skorað var á
ríkisstjórnina að draga nú þegar
til baka hugmyndir um lækkun
skattleysismarka og taka til
endurskoðunar aðrar álögur og
skerðingu á félagslegum réttind-
um láglaunafólks sem nú eru
fyrirhugaðar. Þá er í ályktuninni
mótmælt „aðgerðarleysi stjórn-
valda í atvinnumálum.“ óþh
Nú er þrettándinn runninn upp
og álfar og tröll fara á kreik en
jólasveinarnir huga að heim-
ferð. Hin árlega þrettánda-
gleði Iþróttafélagsins Þórs
verður haldin á svæði félagsins
í Glerárhverfí og hefst kl. 20.
Miðaverð er hið sama og í
fyrra og aðgangur ókeypis fyrir
börn fimm ára og yngri.
Aðalsteinn Sigurgeirsson, for-
maður Þórs, sagði í samtali við
Dag að þrettándagleðin yrði með
hefðbundnu sniði. Hann sagði að
þetta væri sennilega í 57. sinn
sem efnt væri til skemmtunarinn-
Nu um aramótin urðu breyt-
ingar á starfsmannahaldi
Akureyrarhafnar. Tveir aldnir
heiðursmenn, þeir Jón B.
Rögnvaldsson og Tryggvi
Gunnarsson, létu af störfum
eftir áratuga starf. Jón hefur
unnið hjá höfninni í nákvæm-
ar og hún væri alltaf jafn vinsæl.
„Þarna verða tröll, álfar,
púkar, jólasveinar og ýmsar
furðuskepnur á sveimi. Brennan
verður tilkomumikil og flugelda-
sala verður á staðnum. Það verða
ýmsar skemmtilegar uppákomur,
söngur, gleði og grín, og við eig-
uin von á góðum gestum. Síðan
sláum við botninn í þrettánda-
gleðina með glæsilegri flugelda-
sýningu,“ sagði Aðalsteinn.
Á föstudagskvöldið er Þórsur-
um boðið á brennuball í Hamri
og hefst fjörið að loknum leik
Þórs og KA í handknattleik. SS
lega 29 ár en Tryggvi í um 18
ár. Frá árinu 1985 hafa þeir
Jón og Tryggvi skipt með sér
heilli stöðu á hafnarvoginni.
Áki Stefánsson tekur við starfi
þeirra félaga en hann hefur starf-
að sem sem fastur starfsmaður
hjá höfninni frá árinu 1985. Þá er
Gunnar Arason, nýráðinn yfir-
hafnarvörður, sem er nýtt starfs-
heiti hjá Akureyrarhöfn en
Gunnar hefur starfað sem hafn-
arvörður frá 1. mars á síðasta ári.
Jón B. Rögnvaldsson, sem er
orðinn 77 ára gamall, starfaði
sem aðstoðarhafnarvörður og
vatnsmaður hjá höfninni, þar til
hann færði sig yfir á vogina árið
1985. Áður vann Jón sem bíl-
stjóri hjá Vegagerðinni í um 20
ár.
Tryggvi Gunnarsson, sem orð-
inn er 71 árs, hóf störf sem verk-
stjóri hjá höfninni en var síðan
hafnarstjóri á Akureyri í eitt ár, á
árunum 1977-’78. Hann lét af því
starfi vegna veikinda en vann
áfram á skrifstofu hafnarinnar
fram til ársins 1981. Það ár tók
höfnin við rekstri hafnarvogar-
innar og tók Tryggvi við stöðu
þar.
Jón og Tryggvi Iétu vel af starfi
sínu á hafnarvoginni og „ekki síst
nú seinni árin,“ eins og Tryggvi
orðaði það. Tryggvi sagði jafn-
framt að hafnarstjórn og hafnar-
stjóri hefðu reynst sér mjög vel
alla tíð og ekki síst eftir að hann
veiktist og fyrir það vildi hann
þakka sérstaklega.
Á síðasta fundi hafnarstjórnar
þann 30. desember sl., voru þeir
Jón og Tryggvi kvaddir og þeim
þökkuð áratuga þjónusta og trú-
mennska við höfnina.
Áki Stefánsson sem nú tekur
við á hafnarvoginni hefur starfað
lengi hjá Akureyrarhöfn. Hann
byrjaði sem lausamaður árið
1984 en hefur verið fastráðinn frá
árinu 1985. Áður starfaði hann
sem sjómaður hjá ÚA, m.a. sem
skipstjóri í um 30 ár.
Gunnar Arason, yfirhafnar-
vörður, starfaði áður í 12 ár hjá
Slippstöðinni á Akureyri, sem
viðgerðar- og framleiðslustjóri.
Þar áður var hann skipstjóri á
bátum hjá Aðalsteini Loftssyni,
útgerðarmanni á Dalvík, lengst
af á Lofti Baldvinssyni EA. -KK
Þrettándagleði Þórs:
Furðuverur og flugeldar
- jólin kvödd með hefðbundnum hætti
NORDURLAND :
HER GETUR ÞU FENGIÐ VINNINGINN
UPPHÆKKAÐAN
Hæsti vinningurinn íhverjum mdnuði leggst við hæsta vinninginn í næsta mánuði efhann gengur
ekki út. Þannig hleðst spennan upp koll afkolli par til sá heppni hreppir pann stóra... pú?
i
t
HVAMMSTANGI:
Róberta Gunnþórsdóttir, Lækjargötu 6,
sími 95-12468
BLÖNDUÓS:
Kaupfélag Húnvetninga, sími 95-24200
SKAGASTRÖND:
Guörún Pálsdóttir,
Bogabraut 27, sími 95-22772
SAUÐÁRKRÓKUR:
FriörikA. Jónsson, Háuhlíö 14,
sími 95-35115
HOFSÓS:
SIGLUFJÖRÐUR:
Birgir Steindórsson, Aöalgötu 26,
sími 96-71301
GRÍMSEY:
Kristjana Bjarnadóttir, Sæborg,
sími 96-73111
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Valberg hf., sími 96-62208
HRÍSEY:
Erla Siguröardóttir, sími 96-61733
DALVÍK:
Sólveig Antonsdóttir,
Verslunin Sogn, sími 96-61300
Ásdfs Garöarsdóttir, Kirkjugötu 19,
sími 95-37305
Lægsta miðaverð í stórhappdrætti
(óbreyttfrá ífyrra) aðeins kr. 500-
AKUREYRI:
Björg Kristjánsdóttir, Strandgötu 17,
sími 96-23265
SVALBARÐSSTRÖND:
Sigríöur Guömundsdóttir, Svalbaröi,
SÍmi 96-23964
GRENIVÍK:
Brynhildur Friöbjörnsdóttir,
Túngötu 13B, sími 96-33227
LAUGAR REYKDÆLAHREPPI:
Rannveig H. Ólafsdóttir, sími 96-43181
MÝVATNSSVEIT:
Hólmfríöur Pétursdóttir, Víöihlíö,
sími 96-44145
HÚSAVÍK:
Jónas Egilsson, Árholti, sími 96-41405
AÐALDALUR:
Kristjana Helgadóttir, Hraungeröi,
simi 96-43587
KÓPASKER:
Óli Gunnarsson, sími 96-52118
RAUFARHÖFN:
Vilhjálmur Hólmgeirsson, sími 96-51150
ÞÓRSHÖFN:
Sparisjóöur Þórshafnar og
nágrennis, sími 96-81117
Tryggðii þér möguleika
... fyrir lífið sjálft
i
i
i