Dagur - 13.01.1993, Page 2

Dagur - 13.01.1993, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 13. janúar 1993 Fréttir Yfir 40 tillögur bárust í samkeppni um merki fyrir Grýtubakkahrepp: Kaldbakur og kvöldsólin ráðandi í allflestum tiflögunum - tillögurnar til sýnis nk. laugardag Á sl. hausti auglýsti sveitar- stjórn Grýtubakkahrepps eftir merki fyrir hreppinn og rann umsóknarfrestur út 15. októ- ber sl. Alls bárust um Iiðlega 40 tillögur frá 25 aðilum og ákvað nefndin að taka sér góð- an tíma til að fara yfir allar þær' tillögur sem bárust en henni bar að skila niðurstöðum til hreppsnefndar fyrir 1. janúar sl. sem og varð. V I Tillaga Kristjönu F. Arndal. Formaður nefndarinnar er Sveinn Sigurbjörnsson bóndi í Artúni, en aðrir nefndarmenn Björg Sigurbjörnsdóttir tónlistar- kennari og Friðrik Porsteinsson sjómaður og smiður, bæði til heimilis á Grenivík. Fyrstu verðlaun hlaut tillaga Kristjönu F. Arndal listmálara á Akureyri og lýsir hún svo merk- inu: „Mér finnst Kaldbakur vera fallegasta fjallið þarna og því eðlilegt að nota það í merki fyrir Grýtubakkahrepp enda er hann ráðandi í merkinu. Síðan er til- finningin fyrir strandlengjunni og miðnætursólin þarna líka og er Grýtubakkahreppur skrifað í sveig yfir allt saman.“ Önnur verðlaun hlaut tillaga feðganna Gunnlaugs Björnsson- r og Steindórs Gunnlaugssonar á Akureyri en í tillögu þeirra var kvöldsólin og hafaldan ráðandi. Þriðju verðlaun hlaut tillaga Björns Ingólfssonar skólastjóra á Grenivík en hann leggur áherslu á aðalatvinnuvegina í hreppnum, þ.e. landbúnað og sjávarútveg í sinni tillögu. Laugardaginn 16. janúar nk. frá kl. 13 til 18 verður sýning á til- lögunum í Grunnskólanum á Grenivík en kl. 15 verður form- leg afhending á verðlaunum til þeirra sem áttu þrjár bestu tillög- urnar að mati dómnefndarinnar. Fyrir 1. verðlaun verða veittar 110 þúsund krónur, fyrir 2. verð- laun 40 þúsund krónur og fyrir 3. verðlaun 20 þúsund krónur. GG Stofnun samtaka um skynsamlega nýtingu fiskveiðilögsögu íslendinga: Munu berjast með öllum tiltækum ráðum gegn útflutningi óunnins sjávarafla - boðað til stofnfundar í Hafnarfirði á laugardaginn kemur Aö frumkvæði fiskvinnslufólks í Hafnarfiröi er nú unnið að stofnun samtaka áhugafólks um fullvinnslu sjávarafurða hérlendis. Hér er sérstaklega átt við þann afla sem veiddur er innan íslenskrar fískveiði- lögsögu. Undanfarið hefur hópur fólks úr röðum físk- vinnslusfólks í Hafnarfírði haft samband við trúnaðarfólk í fiskvinnslu vítt og breitt um M 3 S ■o c (ð £ L «5 '3 M 3 L s ‘3 £ o j « '0 I W LU «5 V (ð « ‘3 Ml M ^3 LL (4 M « rt (fi M 3 C w *D C rt c i3 c c L s ‘3 M 3 ÍI Áskriftargetraun Dags og Flugleiða • Áskriftargetraun Dags og Flugleiða standa áskrifendum Dags til boðai Þann 12. febrúar næstkomandi verður Dagur 75 ára Af því tilefni efna Dagur og Flugleiðir í samvinnu til ferðagetraunar fyrir áskrifendur Dags í boði eru 24 helgarferðir fyrir tvo til Reykjavíkur - tvær í hverjum mánuði - Innifalið er flug með Flugleiðum, bílaleigubíll frá Bílaleigu Flugleiða og gisting i tvær nætur á Hótel Esju eða Hótel Loftleiðum I desember 1993 hlýtur síðan eínn heppinn áskrifandi Dags helgarferð fyrir tvo til Amsterdam - Tilhögun ferðarinnar verður kynnt síðar -----------------;-------------------------------------------------------------------- J * h<;. ' rrkí V4sL. ■: Þátttakendur í getrauninni í hverjum mánuði eru allir þeir áskrifendur Dags sem staðið hafa í skilum með áskriftargjaldið í boði eru tvenn ferðaverðlaun í hverjum mánuði frá og með janúar til og með nóvember 1993 og þrenn ferðaverðlaun í desember 1993 Síðasta þriðjudag i mánuði - frá og með janúar til og með desember 1993 - verða dregin út hverju sinni nöfn 2ja skuldlausra áskrifenda. Haft verður samband við þessa áskrifendur símleiðis og lagðar fyrir þá tvaer laufléttar spurningar, tengdar fréttum líðandi stundar. Verðlaun verða afhent innan tveggja daga frá útdrætti, á miðvikudegi eða fimmtudegi, og nöfn vinningshafa birt í Degi Miðvikudaginn 29.desember 1993 verður dregið út nafn eins skuldlauss áskrifanda og hlýtur hann ferð fyrir tvo tilAmsterdam, eftir að hafa svarað tveimur laufléttum, fréttatengdum spurningum. Nafn vinningshafa verður birt í Degi fimmtudaginn 30. desember Þeir sem að áskriftargetrauninni standa eru auk Dags: Flugleiðir innanlandsflug, Bílaleiga Flugleiða, Hótel Esja, Hótel Loftleiðir og Flugleiðir millilandaflug Athi Skuldlausir áskrifendur Dags (núverandi og nýir) eru sjálfkrafa þátttakendur í áskriftargetrauninni Áskriftarsíminn er 96-24222 Vertu með! FLUGLEIÐIR Tj C M » S T BU * 3 3 #» 3 Ö 3 a w C M • 0! V © M pj T| c M © 5 e> • Z 0' rf 2. m w T eaa 0' ft © r o * © 5 T* TJ C M © s T 3 3 a c M landið. Tilgangurinn er að kanna grundvöll fyrir stofnun heildarsamtaka þessa fólks og hafa undirtektir verið frábærar hringinn í kringum landið. Því hefur verið ákveðið að boða til stofnfundar í fundarsal íþrótta- hússins við Strandgötu í Hafnarfírði, laugardaginn 16. janúar nk. kl. 14.00. í frétt frá undirbúningsnefnd kemur fram, að samtökin munu með öllum tiltækum ráðum berj- ast gegn útflutningi óunnins sjáv- arafla en aðilar á þeim vettvangi virðast ekkert tillit taka til þess hvort nægjanlegt hráefni er til vinnslu hér heima eða ekki. Hráefnisskortur íslenskra fisk- vinnslufyrirtækja og vaxandi atvinnuleysi hérlendis eru ekki síst þær ástæður sem gera stofnun slíkra samtaka nauðsynlega. Ekki er búið að gefa sam- tökunum nafn en þau gætu allt eins heitið; „Samtök áhugafólks um skynsamlega nýtingu á sjávar- afla úr íslenskri fiskveiðilög- sögu.“ Samtökin mun leggja áherslu á að nýting sjávaraflans komi allri þjóðinni að sem best- um notum og að farið verði sam- kvæmt lögum um stjórn fiskveiða en 1. gr. laganna er svohljóðandi: „Nytjastofnar á íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinn- ar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í land- inu. Úthlutun veiðiheimilda sam- kvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallan- legt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“ Samtökin verða grasrótarsam- tök þar sem allir geta gerst þátt- takendur og verða talsmenn þeirra kosnir á stofnfundinum á laugardag. -KK Maverðmæti togara: Stakfellið veiddi fyrir 304 mifljónir Stakfellið frá Þórshöfn veiddi 2811 tonn af físki að aflaverð- mæti 304 milljónir árið 1992, var það töluvert slakari afkoma en árið áður. Að megninu til var aflinn frystur um borð en tvo mánuði var skipið á ísfískveiðum. Verið er að gera breytingar á Stakfell- inu, setja frystivél fyrir rækju á millidekk og mun skipið halda til rækjuveiða um 20. jan. Rækjufrystitogarinn Júlíus Havsteen frá Húsavík veiddi 856 tonn af rækju á árinu og nam aflaverðmætið 143 milljónum, var mjög svipað og árið áður. Höfði hf. hóf útgerð tveggja rækjubáta á árinu; Kristey aflaði 154 tonn frá því í júlí, að afla- verðmæti 10,2 milljóna og Aldey aflaði 49 tonn frá miðjum nóvember að verðmæti þriggja milljóna. ísfisktogarinn Kolbeinsey veiddi 2488 tonn af fiski að afla- verðmæti 155 milljónir. Var það talsvert lakara en árið áður, eins og á flestum togaranna vegna minnkunar á afla. Á skrifstofu Jökuls á Raufar- höfn var ekki búið að taka saman tölur um aflaverðmæti Rauða- núps, svo upplýsingar þar um lágu ekki fyrir. IM Stakfell ÞH-360. Mynd: ÞB

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.