Dagur - 13.01.1993, Side 5
Miðvikudagur 13. janúar 1993 - DAGUR - 5
EES - Tvíhliða samn-
ingur er rairahæf leið
Nú er lokið umræðum á Alþingi
um samninginn um hið Evrópska
efnahagssvæði. Þjóðin hefur
fylgst mjög náið með umræðunni
og gerir eðlilega kröfu til þess að
Alþingismenn geri grein fyrir
afstöðu sinni í málinu. Þrátt fyrir
að ég, sem sitjandi þingmaður á
þeim tíma, styddi þá ákvörðun
að fara í viðræðurnar um EES,
hafði ég um málið ýmsar efa-
semdir. Þær lét ég koma fram á
þingflokksfundum, á fundum hjá
öðrum stofnunum Framsóknar-
flokksins og á opinberum vett-
vangi.
Hin endanlega afstaða mín,
um að ganga til viðræðnanna,
byggðist hins vegar á því að við
yrðum að ná hagstæðari viðskipta-
samningum við Evrópu og að
þátttaka í EES gæti haldið aftur
af þeim öflum sem vildu ganga
inn í EB.
Ég lét hins vegar strax á fyrstu
starfsmánuðum núverandi ríkis-
stjórnar í ljós þá skoðun mína að
á vinnu hennar að málinu tæki ég
enga ábyrgð. Þegar síðan
snemma á síðasta ári kom í ljós
að allar hinar þjóðirnar í EFTA
ætluðu að sækja um aðild að EB
taldi ég að komin væri upp nýr
flötur á málinu sem gæfi okkur
kost á að þróa málið okkur í hag.
Lesendahornið
Fyrri grein
í dag bendir flest til
þess að samningurinn
um hið Evrópska efna-
hagssvæði verði einung-
is stuttur kafli í við-
skiptasögu Evrópu.
Önnur EFTA ríki hafa
ákveðið að sækja um
aðild að Evrópubanda-
laginu. Það er skoðun
mín að þar með skilji
leiðir okkar Islendinga
með þeim. Inn í EB eig-
um við ekkert erindi.
Hér á eftir fer greinargerð sem .
ég flutti þegar greidd voru
atkvæði eftir aðra umræðu á
Alþingi.
Atkvæðaskýring
„Það mál sem hér er til afgreiðslu
eftir 2. umræðu er eitt það mikil-
vægasta sem Alþingi íslendinga
hefur haft til umfjöllunar. Málið
snýst um það á hvern hátt við
íslendingar tengjumst þeirri við-
skiptaheild sem nú er að myndast
í Evrópu.
Inn á Evrópumarkað fara í dag
milli 70 og 80% af okkar útflutn-
ingi og samskipti okkar við Evr-
ópu á öðrum sviðum fara vaxandi
með hverju ári. Á þessum for-
sendum eru nánast allir sammála
um að við verðum að ná hagstæð-
um viðskiptasamningum við Evr-
ópusamfélagið.
í dag bendir flest til þess að
samningurinn um hið Evrópska
efnahagssvæði verði einungis
stuttur kafli í viðskiptasögu Evr-
ópu. Önnur EFTA ríki hafa
ákveðið að sækja um aðild að
Evrópubandalaginu. Það er
skoðun mín að þar með skilji
leiðir okkar íslendinga með
þeim. Inn í EB eigum við ekkert
erindi.
í dag snýst málið um á hvern
hátt við getum tryggt viðskipta-
hagsmuni okkar við Evrópu sem
best. Ég tel að það verði bestgert
með því að fara nú þegar fram á
að teknar verði upp viðræður um
að breyta viðskiptaþætti EES
samningsins, hvað okkur íslend-
Hefurvanþóknun
á orlofsMða-
hugmyndinni
í Kristnesi
Brynjólfur Brynjólfsson,
hringdi... og vildi lýsa vanþókn-
un sinni á hugmyndum um að
starfsmannahús í Kristnesi í
Eyjafjarðarsveit verði tekið und-
ir orlofsíbúðir. „Ég get ekki til
þess hugsað að Reykvíkingarnir
geti komið og skvett úr klaufun-
um þarna og verið með fyllirís-
læti eins og þeir eru með í orlofs-
íbúðunum hérna á Akureyri. Ég
er ekki hrifinn af málinu, nætur-
göltur, hróp og köll eru reynslan
af orlofsstöðunum víða og ég get
ekki séð að það eigi nokkurt
erindi þarna inn. Þetta er líka
frekt því þessi hús voru á sínum
tíma ekki byggði til þess arna.“
íbúi við Löngumýri, sem er
mjög uggandi um öryggi barna
við götuna hringdi:
og bílarnir keyra meira og minna
eftir gangstéttinni og það er að
verða mjög hættulegt gagnvart
börnum sem eru að leika sér við
„Það hefur ekkert verið átt við
það að hreinsa snjó úr götunni
síðan í stóra snjóskotinu fyrir jól
og aðeins verið stungið í gegn.
Snjórinn er allur að vestanverðu
mörkin milli lóðar og gangstétt-
ar. Mér finnst að við íbúar hér
eigum sama rétt til þess að göt-
urnar séu hreinsaðar og það áður
en slys eiga sér stað.“
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
inga varðar, í tvíhliða samning
við EB. Fyrir því getum við fært
full rök og um slíka málsmeðferð
gæti að mínu mati náðst pólitísk
sátt íþjóðfélaginu. Og ég skora á
hæstvirtan forsætisráðherra að
beita sér fyrir slíkri málsmeðferð.
Það er skoðun mín að það að
fella samninginn á Alþingi ís-
lendinga á þessu stigi geti skaðað
hagsmuni okkarí þeim viðræðum
sem framundan eru auk þess sem
það mundi gefa þeim öflum sem
vilja sækja um aðild að Evrópu-
bandalaginu byr undir báða
vængi. Eg vil hins vegar ekki bera
pólitíska ábyrgð á vinnubrögðum
núverandi ríkisstjórnar, og þá
sérstaklega hæstvirts utanríkis-
ráðherra, við lokafrágang samn-
ingsins og sit því hjá við atkvæða-
greiðslu um málið. “
í seinni grein minni mun ég
gera nánari grein fyrir þeim efnis-
þáttum sem koma fram í atkvæða-
skýringunni.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Höfundur er þingmaður Framsóknar-
flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra.
Síðari greinin birtist í blaðinu á
morgun, fimmtudag.
í KA-höllinni kvöld kl. 20.30
fsiöfnð
Verið hagsýn - Verslið í Nettó
Ódýr markaður
Allra hagur
Kreditkortaþjónusta
Opiö mánudaga-föstudaga kl. 12-18.30.
Laugardaga kl. 10-16. Sunnudaga kl. 13-17.
r r r
UTSALA UTSALA F lltcalan hpfct fimmti iHanir •UTSALA m iá iannar
VlOCXICll 1 llwlOI III1II1IIUUCIUII ★ Mikil verðlækkun III 14. JdllUCXI
★ Komið og gerið l| errobudiin
góð kaup Tl | Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendí), sími 26708.