Dagur - 15.01.1993, Blaðsíða 3

Dagur - 15.01.1993, Blaðsíða 3
Föstudagur 15. janúar 1993 - DAGUR - 3 Fréttir Skagfirðingur hf.: 6256 tonn í ársafla Heildarafli Skagfirðings hf. árið 1992 var 1197 tonnum minni en 1991. Heildarafla- verðmæti var hinsvegar lítið eitt hærra. Aflahæsti togarinn var Skafti SK-3. Ársafli Hegraness SK-2 var 1989 tonn og aflaverðmæti 158,3 milljónir og 289 úthaldsdagar, Skafti SK-3: 2310 tonn í ársafla, 167,4 milljónir og 304 úthalds- dagar, Skagfirðingur SK-4: 1957 tonn, 183,8 milljónir og úthalds- dagar 301. Þar af var gamli Skag- firðingur með 1456 tonn að verð- mæti 118,6 milljónir króna. Heildarafli Skagfirðings hf. á árinu voru 6256 tonn og heildar- aflaverðmæti 509,4 milljónir króna. Til samanburðar má geta þess að heildarafli ársins 1991 voru 7453 tonn og aflaverðmætið var 508 milljónir króna. sþ Húsavík: Vinsamleg samskipti við Rússana „Fyrst héldu þeir að ég væri tollari en þegar þeir skildu að ég var „ratkiller“ þá vildu þeir allt fyrir mig gera,“ sagði Arni Logi Sigurbjömsson, mein- dýraeyðir á Húsavík. Árni Logi hélt vakt við rússneska togarann Udarnik frá Murmansk, sem lá við bryggju á Húsavík frá föstudegi til mið- vikudags. Grunur vaknaði um að rottur gætu leynst um borð. Hingað til hefur tekist að varna því að rott- ur næðu bólfestu á Húsavík, og vann Árni ötullega að því mark- miði áfram, vopnaður byssum, gildrum, límbökkum og eitri. Árni Logi sagði að Húsvíking- ar hefðu haft mikil samskipti við Rússana, fært þeim hljómflutn- ingstæki, heimilistæki, fatnað og leikföng, auk þeirra 15 bíla sem skipverjar keyptu. Árni sagði að margir hefðu ekkert viljað þiggja í staðinn fyrir heimilistæki og fatnað, en sumir hefðu þó þegið vodkalögg eða loðhúfu. Margar myndarlegar loðhúfur skipverja munu hafa orðið eftir á Húsavík, og yfirleitt mun Þingeyingum hafa þótt heimsóknin góð til- breyting í skammdeginu. „Það var ömurlegur aðbúnaður hjá þessum mönnum,“ sagði Árni. IM Yamaha á Akureyri Opið hús frá kl. 13-17 nk. laugardag og sunnudag ★ Reynsluakstur Möldur hf. söludeild, sími 21715, Tryggvabraut 10. Vaktir hafa verið staðnar hjá Slökkviliði Akureyrar í 40 ár: „Slökkviliðið er undirmannað, og óskað hefur verið efdr leyfi til fjölgunar í mörg ár“ I dag eru liðin 40 ár síðan byrj- að var að standa vaktir hjá Slökkviliði Akureyrar allan sólarhringinn. Þá voru fjórir fastráðnir starfsmenn sem skiptu vöktunum á milli sín, einn á vakt í einu. í varaliðinu voru nær 40 menn á þessum tíma og í þá var hringt ef um stærri eldsvoða var að ræða. Árið 1953 var Ásgeir Valdi- segir Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri marsson verkfræðingur slökkvi- maðurinn komið inn á vaktirnar menn á öllum vöktum og hefur sú liðsstjóri á Akureyri. Fjöldi slökkviliðsmanna hefur litlum breytingum tekið allt frá því árið 1918, eða í 75 ár, en þá voru skráðir slökkviliðsmenn á Akureyri 36 en slökkviliðsstjóri Eggert Melstað. Árið 1966 fjölg- ar um einn fastráðinn slökkvi- liðsmann þannig að þá skiptust vaktirnar milli fimm manna, þó ekki jafnt heldur hefur fimmti Húsavík: Byggingu íþróttahúss verður loldð á árinu Töluverðar framkvæmdir eru ráðgerðar við hin ýmsu mann- virki Húsavíkurkaupstaðar á þessu ári. Til að mynda er nú ráðgert að Ijúka byggingu íþróttahússins og felst loka- hnykkurinn í frágangi á tveim- ur baðklefum, loftræstikerfi og öðru auk þess sem sett verður upp stjórntafla í herbergi húsvarðar. Fyrsti áfangi að viðbyggingu við dvalarheimilið Hvamm var boðinn út á síðasta ári, alls 1896 fermetrar. í þessum áfanga eru 16 íbúðir, samkomusalur með eldhúsi, aðalinngangur og lyfta. Vinna er í fullum gangi og næsti verkáfangi verður væntanlega boðinn út um mánaðamótin janúar/febrúar. Áætlað er að vinna fyrir 90 milljónir kr. á þessu ári. Hluti Húsavíkur er rúm 62% af heildarframlagi eign- araðila. Verklok fyrsta áfanga eru áætluð vorið 1994. Vinnu við Borgarhólsskóla verður haldið áfram og er um að ræða hönnunarvinnu fyrir næsta áfanga, en á síðasta ári var mikl- um áfanga náð í skólabyggingum á Húsavík. Þá mun Húsavíkurkaupstaður skila Framhaldsskólanum hlut- deild hans í samningi sem gerður var við ríkið síðsumars 1990, samkvæmt sérstöku samkomu- lagi sem gert var milli bæjarins og stjórnenda skólans. Óvíst er hvort hægt verður að hefja framkvæmdir við Safnahús- ið á þessu ári og er einungis gert ráð fyrir að greiða niður kostnað vegna fyrri framkvæmda. Þá mun Húsavíkurbær standa skil á fram- lögum til heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss. í fjárhagsáætlun er lagt til að ráðstafað verði nokkru fjármagni á árinu til kaupa á fasteignum vegna skipulags. SS með hinum fjórum á mestu álags- tímunum. Það er svo ekki fyrr en árið 1969 að tveir menn eru á hverri vakt, en árið áður tóku slökkviliðsmenn við akstri sjúkrabílanna. Árið 1971 bætast tveir menn við vaktahópinn þannig að þrír menn eru á hverri næturvakt um helgar en tveir á öllum öðrum vöktum. Árið 1976 fjölgar slökkviliðsmönnum enn og með því var hægt að hafa þrjá tala haldist óbreytt allt fram á þennan dag, eða í 17 ár, þrátt fyr- ir mjög aukin umsvif. Árið 1958 tók Sveinn Tóm- asson við starfi slökkviliðsstjóra af Ásgeiri Valdimarssyni og gegndi því til ársins 1974 er núverandi slökkviliðsstjóri, Tómas Búi Böðvarsson, tók við. Það hefur lengi verið á „óskalista“ slökkviliðsstjóra að fjölga mönn- um á vakt, því ef um sjúkraútkall Slökkviliðsmenn á Akureyri að störfum á síðasta ári. er að ræða er aðeins einn maður eftir á vaktinni. Ef annað sjúkrakall kemur strax í kjölfarið þarf að útvega tvo menn á bílinn því í öll útköll þarf tvo menn og eins þarf einn að verða eftir á stöðinni. Lögreglan hefur oft ver- ið liðleg að taka „stöðina“ þegar slíkt ástand hefur komið upp og eins hafa þeir stundum tekið að sér sjúkraflutninga. „Það hefur ekki orðið neitt stórtjón vegna þessarar mann- eklu enn sem komið er, en það er ekki að vita hversu lengi við verðum svo heppnir. Það hefur stundum staðið nærri að við fengjum að fjölga í slökkviliðinu en á þessu ári eru litlar líkur til þess. Við höfum margóskað eftir því, bæði í langtíma- og skamm- tímaáætlunum og ég gerði mér vonir um að það gerðist eigi síðar en þegar við flyttum í nýja stöð. Það verður nú í byrjun júnímán- aðar, en sýnt er að svo verður ekki. Mér finnst að ýmsu leyti að við séum að fljóta sofandi að feigðarósi í þessu máli og það eigi ekki að bíða eftir slysinu,“ segir Tómas Búi Böðvarsson slökkvi- liðsstjóri. GG YAMAHÆ VELSLEÐASÝNING

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.