Dagur - 15.01.1993, Blaðsíða 9
Föstudagur 15. janúar 1993 - DAGUR - 9
Einn hópanna á námskeiðinu önnum kafinn við lærdúminn.
Jón Karlsson formaður Verkamannafélagsins Fram á Sauðárkróki.
félag. Ég tel að félag sé ekki í
stakk búið til að takast á við
svona hluti nema að í því séu
800-1000 félagsmenn.“
- Hvað eru margir í félögun-
um hérna?
„Ætli sé ekki eitthvað tæp 500 í
þessu félagi og um 120 á Hofsósi
og um 400 í Verkakvennafélag-
inu Öldunni. Þarna er komið yfir
1000 manns.“
*
Ur sveit í fisk
Ég tók einn þátttakenda í nám-
skeiðinu tali. Hann heitir Jónas
Rafn Tómasson frá Þormóðsholti
í Blönduhlíð og er tæplega tví-
tugur. Jónas hefur unnið tæp tvö
ár hjá Saltfiskverkuninni á Sauð-
árkróki og er öryggistrúnaðar-
maður á sínum vinnustað.
- í hverju er starf öryggistrún-
aðarmanns fólgið?
„Ég á að sjá um öryggi á vinnu-
stað, að vélar séu í lagi og skapi
ekki hættu. Starfsfólk getur látið
mig vita ef það sér eitthvað sem
skapar hættu og ég tala þá við
vaktstjóra eða yfirmann fyrir-
tækisins. Ég er bundinn þagnar-
skyldu og má ekki segja hver
kvartar við mig. Ég á líka að fara
yfirferðir um húsið og ef að koma
nýjar vélar að fylgjast með
þeim.“
- Sérð þú líka um vinnu-
aðstöðu og aðbúnað?
„Já, ef eitthvað kemur upp á í
sambandi við aðstöðuna þá er
talað við mig. Eins ef það verður
vinnuslys, þá á ég að fylla út
skýrslu í samráði við vaktstjóra
og þann slasaða."
- Heldurðu að launafólk
þekki yfirleitt réttindi sín?
„Nei. Ungt fólk sem er í fyrsta
sinn á vinnumarkaðnum veit í
rauninni ekkert um hvaða rétt
það hefur. Fólk verður eiginlega
að sjá um þetta sjálft, það er
mjög lítið kynnt fyrir því. Trún-
aðarmaður á að kynna sig fyrir
fólki þegar það byrjar á vinnu-
stað. Hann er með alla kjara-
samninga og getur haft samband
við verkalýðsfélagið.“
Gott að vita hvar maður
stendur
- Hafðir þú mikið gagn að þessu
námskeiði?
„Ég veit ekki hvað ég á ac
segja, hlutirnir eru fljótir ac
detta úr manni. En ég hef þessc
möppu og get alltaf flett upp i
henni. Ég held að þetta veki fólk
til umhugsunar, t.d. um mannleg
samskipti, það var einn hluti
námskeiðsins. Maður lærir mikið
um vinnuaðstöðuna og hvernig á
að bera sig að og beita líkaman-
um við vinnuna. Það er mikið um
að fólk geri það vitlaust. Þetta
eru mikið sömu hreyfingarnar í
fiskvinnu og mikilvægt að gera
þær rétt.“
Viðtal:
Sigríður
Þorgrímsdóttir
- Hefurðu áhuga á að fara á
fleiri námskeið?
„Ég veit það ekki. Það væri þá
helst í sambandi við verkalýðs-
mál. Það væri gaman að vita hvar
maður stendur og hvaða rétt
maður á. Þetta eru flókin mál og
hægt að túlka þau á marga vegu.
Það er ekki fyrir venjulegan
mann að koma sér inn í þetta
með öðru starfi.“
- Geturðu hugsað þér fisk-
vinnu sem framtíðarstarf?
„Ég hef nú ekki hugsað mér
það. Ég var búinn að fara í Fjöl-
brautina hér, í grunndeild málm-
iðna sem er grunnurinn fyrir bif-
vélavirkjun og vélsmíðar. Ég
hugsa að ég færi út í eitthvað svo-
leiðis.“
Bújörð til sölu!
Tilboða er leitað I jörðina Staðartungu, Skriðu-
hreppi, sem er ca. 20 km frá Akureyri.
Á jörðinni eru góð hús, stórar girðingar fyrir hross. Einnig
er mjög vel búið vélaviðgerðaverkstæði og skipulagt
sumarhúsasvæði.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma, en hægt er að ákveða
viðræðu- og skoðunartíma í síma 96-26758.
Nýársleikur \]u t
Radíónausts lif, 1
Næsíw sjö viftur verða í gangi sérstök tilboð sem gilda í eina viku fivert.
Þeir sem kaupa þessar tilboðsvörur fara sjdlfkrafa ílukkupottinn.
Úr lukkupottinum verður síðan dregið að loknum sjö vikum og
sá fieppni fœr sín kaup að fullu endurgreidd.
Spennandi leikur um góðar vörur á frábæru tilboðsverði
Philipshave HS 708
Kr. 5.990,-slgr
3 hnífa rakvél með
tvöföldum skuðri
Samsung 20” sjónvarp CX-5013
Kr. 37.900-33.900,-s,er
Fjarstýring • Skart tengi • 40
stöðva minni • Sýnir allar aðgerðir
á skjá • Stílhreint yfirbragð
18 mán.
greiðslu-
kjör
Geislagötu 14 • Sími 21300
Leikhúsgestir
Athugið 25% afslátt
af mat fyrir sýningar
★
Parftu að halda árshátíð
eða þorrablót?
Ef svo er getum vlð hjálpað þér.
Gerum verðtilboð.
Borðapantanir í síma 27100
Fólk í gjafahugleiðingum!
Munið gjafakort FIÐLARANS
Skemmtileg gjöf \ið öll tækif'æri