Dagur


Dagur - 15.01.1993, Qupperneq 7

Dagur - 15.01.1993, Qupperneq 7
Föstudagur 15. janúar 1993 - DAGUR - 7 Hvað er að gerast? Tónleikar í Dyn- heimum Tónleikar verða haldnir í Dyn- heimum á Akureyri annað kvöld, laugardaginn 16. janúar, kl. 21. Fram koma hljómsveitimar Hún andar, Briminnstunga, sem er “litli bróðir” Hún andar, og Dos Pilas. I síðastnefndu sveitinni eru tveir úr Bootlegs og aðrir tveir úr Sérsveitinni. Miðaverð er kr. 300. Tónleikar til styrkt- ar Minningarsjóði Þorgerðar S. Eiríksdóttur Næstkomandi sunnudag, 17. janú- ar, verða haldnir styrktartónleikar í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fyrir Minningarsjóð Þorgerðar S. Eiríksdóttur. Þorgerður fæddist 20. janúar 1954 og lauk burtfarar- prófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri vorið 1971. Hún þótti ntjög efnilegur píanóleikari og var nýkomin til Lundúnaborgar til að hefja framhaldsnám þegar hún lést af slysförum 2. febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þor- gerðar minningarsjóð ásamt Tón- listarfélagi Akureyrar, Tónlistar- skólanum á Akureyri og kennur- um við skólann. Markmið sjóðs- ins er að styrkja efnilega nemend- ur sem lokið hafa burtfararprófi við Tónlistarskólann á Akureyri til framhaldsnáms. Á þeim 20 ár- um sem sjóðurinn hefur verið til hafa um 30 nemendur skólans not- ið styrkja úr honum. Á tónleikun- um á sunnudaginn leika nemendur og kennarar Tónlistarskólans. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda. Aðgangur er ókeypis en tekið verður á móti frjálsum framlögum í sjóðinn. Ástæða er til að minna á minningarkort sjóðsins sem seld eru í bókabúðum og í Tónlistar- skólanum. Rokksveit Fúsa Ótt- ars og Nýdönsk í Sjallanum í kvöld verður Sjallakráin í Sjall- anum opin og er aðgangur ókeyp- is. Rokksveit Fúsa Óttars. leikur fyrir gesti. í hljómsveitinni eru hljómsveitarstjórinn Sigfús Ótt- arsson, sem leikur á trommur, Jón Haukur Brynjólfsson, sem leikur á bassa og gítarleikaramir Jakob Jónsson og Kristján Edelstein. Annað kvöld verða það félagamir í Ný dönsk sem leika en Ný dönsk hefur sjaldan notið jafn mikilla vinsælda og einmitt nú. Hljóm- sveitin sendi frá sér plötu fyrir jól- in sem seldist mjög vel og hafa lög af henni verið mikið spiluð í útvarpi og sjónarpi. Höldur með sýn- ingu á Yamaha vél- sleðum Höldur á Akureyri stendur fyrir sýningu á Yamaha vélsleðum um helgina að Tryggvabraut 10. Sýn- ingin verður opin kl. 13 til 17 á morgun og sunnudag. Boðið verð- ur upp á reynsluakslur. Útlendingurinn um helgina Leikfélag Akureyrar sýnir um helgina Utlendinginn, gamanleik Larrys Shue. Tvær sýningar verða, sú fyrri í kvöld kl. 20.30 og sú síðari á sama tíma annað kvöld. Miðasala er í Samkomuhúsinu alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga fram að sýningu. Símsvari fyrir miðapant- anir allan sólarhringinn. Sími í miðasölu er 96-24073. Harmonikudans- leikur í Lóni Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð stendur annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 22-03 fyrir dansleik í Lóni við Hrísalund á Akureyri Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Fræðslufundur hestamanna í Skeifunni Fræðslunefnd hestamannafélags- ins Léttis á Akureyri heldur fund í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30 í Skeifunni. Rætt verður um hring- skyrfi í hrossum og vamir gegn því. Kynnt verður ný merking á hrossum, örmerki, sem eru tölvu- kubbar sem komið er fyrir undir húð á hálsi hestsins. Herramenn á Hótel KEA Hljómsveitin Herramenn leikur fyrir dansi á Hótel KEA á Akur- eyri annað kvöld, laugardags- kvöld. Á matseðli sunnudagsins á Súlnabergi verður súpa, reykt grísakjöt með rauðvínssósu og eða Roast beef Beamaise og desert- hlaðborð fyrir kr. 1.050. Frítt fyrir böm 0-6 ára og hálft gjald fyrir 7- 12 ára. Kynning hjá Tölvufræðslunni Tölvufræðslan á Akureyri kynnir starfsemi sína á komandi mánuð- um um helgina, þ.m.t. skrifstofu- tækni og bókhaldsnámskeið ásamt fjölda annarra námskeiða. Opið hús verður í húsnæði Tölvufræðsl- unnar að Furuvöllum 5 á morgun, laugardag, kl. 13 til 17 og á sarna tíma á sunnudaginn. Sister Act í Borgarbíói Borgarbíó á Akureyri sýnir um helgina kl. 21 og 23 grínmyndina Sister Act með þeirri fræbæru leikkonu Whoopi Goldberg í aðal- hlutverki. í Reykjavík hafa um 40 þúsund manns séð þessa mynd. Klukkan 21 verður einnig sýnd spennumyndin Háskaleikir með Harrison Ford í aðalhlutverki. Klukkan 23 verður sýnd hin vin- sæla íslenska kvikmynd Sódóma Reykjavík. Á barnasýningum kl. 15 á sunnudag verða sýndar myndimar Tommi og Jenni og Mjallhvít og dvergamir. Bílasalan Bílaval hefur tekið við söluumboði fyrir Þórshamar á Akureyri og um leið flutt aðsetur sitt í húsnæði þar sem bílasala Þórshamars hefur verið til húsa, að Glerárgötu 36. Gerðar hafa verið gagngerar breytingar á húsnæðinu og um leið og opnað var á ný sl. föstudag, var gestum boðið að þiggja veitingar. Mynd: Robyn Dynheimabridds: Sigurbjöm og Skúli efstir Sigurbjörn Þorgeirsson og Skúli Skúlason urðu efstir í Dynheimabridds sl. sunnu- dagskvöld. Urslit urðu annars sem hér segir: 1. Sigurbjörn Þorgeirsson - Skúli Skúlason 137 2. Marinó Steinarsson - Sverrir Haraldsson 131 3. Anton Haraldsson - Sigurbjörn Haraldsson 128 Karl Steingrímsson - Sveinbjörn Sigurðsson 128 Sveitakeppni í bridds - Akureyrarmót: Haukur og félagar efstir Sveit Hauks Jónssonar er með forystu eftir þrjár fyrstu umferðirnar í Akureyrarmót- inu í sveitakeppni í bridds. Haukur og félagar hafa hlotið 60 stig en sveit Páls Pálssonar er í öðru sæti með 56 stig. í þriðja sæti er sveit Kristjáns Guðjónssonar með 53 stig. Sveit Sigurbjörns Þorgeirsson- ar er í fjórða sæti með 51 stig en sveitir Gylfa Pálssonar og Orm- arrs Snæbjörnssonar eru jafnar í fimmta og sjötta sæti með 49 stig. Þessi keppni fer nú þannig fram að spilaðir eru þrír 10 spila leikir á hverju spilakvöldi og spil- uð verður tvöföld umferð. Næstu þrjár umferðir verða spilaðar t' Hamri þriðjudaginn 19. janúar. Sest verður við spilin kl. 19.30 og eru keppendur beðnir að mæta stundvíslega. -KK Bikarkeppni Norðurlands: Sveitir Ormarrs og Stefáns mætast í dag Einum leik er þegar lokið í 16 sveita úrslitum Bikarkeppni Norðurlands. Sveit Hermanns Tómassonar vann sveit Sigurbjörns Þorgeirs- sonar með nokkrum mun. I dag, föstudag, mætast sveitir Ormarrs Snæbjörnssonar og Stefáns Vil- hjálmssonar. LETTIH _ _ _ ,i» Hestafólk! Fræðslunefnd Léttis heldur fund föstudaginn 15. janúar kl. 20.30 í Skeifunni. Rætt verður um hringskyrfi í hrossum og varnir gegn því. Kynnt verður ný merking á hrossum, örmerki, sem eru tölvukubbar sem komið er fyrir undir húð á hálsi hestsins. * Léttar veitingar. Félagar fjölmennið> allir velkomnir. Fræðslunefnd. n\ iSlB I®®®! HOTEL KEA Laugardagskvöldið 16. janúar Herramenn leika fyrir dansi. ★ Glæsilegur matseðill. ★ Sunnudagsveisla á Súlnabergi Súpa, reykt grísakjöt með rauðvínssósu og/eða Roast beef Bearnaise Þú velur meðlætið, salatið og sósurnar og endar þetta á glæsilegu deserthlaðborði. Allt þetta fyrir aðeins kr. 1.050,- Frítt fyrir börn 0-6 ára, Vi gjald fyrir 7-12 ára.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.