Dagur - 15.01.1993, Síða 15

Dagur - 15.01.1993, Síða 15
Föstudagur 15. janúar 1993 - DAGUR - 15 Íþróttir Halldór Arinbjarnarson Bikarkeppnin í körfuknattleik: Stólarnir mæta SnæfeHingum í undanúrslitum á sunnudagmn Tindastólsmenn hafa staðið í ströngu að undanförnu. Eftir mikla svaðilför suður yfir heið- ar nú í vikunni, þar sem liðið lék tvo leiki í úrvalsdeildinni, stendur fyrir dyrum undan- úrslitaleikur í bikarkeppninni. Liðið só Njarðvíkinga út í 8 liða úrslitum á eftirminnilegan hátt og á sunnudaginn verða Snæfellingar heimsóttir til Stykkishólms. Liðinu hefur ekki gengið sem best í deildinni í vetur. Að afloknum 16 leikjum er það með 10 stig og 11 sinnum hefur það beðið lægri hlut. Hverfandi líkur eru á að sæti í úrslitakeppninni náist að þessu sinni, en Tindastóll er 12 stigum á eftir Haukum sem eru í 2. sæti riðilsins. í bikarkeppninni hafa Stólarnir hins vegar verið ósigrandi og nú er stórleikur framundan. „Pessi Ólympíumót ungmenna á skíðum: Norðlendingar með 2 fulltrua sagt frá för þeirra félaga er nær dregur mótinu. Þann 6. febrúar nk. stendur1 fyrir dyrum fyrsta Ólympíumót unglinga á skíðum. Mótið verður haldið á Ítalíu og stend- ur yfir í nokkra daga. Frá íslandi fara 6 keppendur, 4 sem keppa í Alpagreinum og 2 í göngu. Tveir af Alpagreina- mönnunum koma af Norður- landi en það eru þeir Bjarmi Skarphéðinsson frá Dalvík og Ólafsfirðingurinn Gísli Már Helgason. Þeir félagar keppa báðir í sama aldursflokki, 15-16 ára og voru valdir vegna frammistöðu sinnar síðastliðinn vetur þar sem þeir þóttu standa sig best af jafnöldr- um sínum. Bjarmi og Gísli hafa æft af kappi að undanförnu en hér verður um mjög stórt mót að ræða með keppendur allsstaðar að úr heiminum. An efa mun það veita mikla og góða reynslu sem á eftir að nýtast þeim í framtíðinni. Undirbúningur Ólympíufaranna er nú á lokastigi og nánar verður leikur leggst bara vel í mig,“ sagði Valur Ingimundarson þjálfari. „Það er ljóst að við munum leggja allt undir í þessum leik því heiður liðsins er að veði. Okkur hefur ekki gengið sem skyldi í íslandsmótinu og nú leggjum við alla áherslu á bikarinn.“ Ray- mond Forster hefur leikið mjög vel fyrir Tindastól í þeim leikjum sem búnir eru. Valur kvaðst ánægður með frammistöðu hans og að leikmannaskiptin hefðu verið góð. Síðan er að sjá hvort Stólarnir ná sér á strik á sunnu- daginn kl. 16.00 þegar flautað verður til leiks í Stykkishólmi og hvort veðurguðirnir verða í góðu skapi svo leikurinn geti farið fram. Tindastólsmenn ætla að leggja allt undir á sunnudaginn. íþróttamaður Norðurlands 1992: Úrslitin kimngerð á morgun - ljóst hverjir eru í 10 efstu sætunum Á morgun laugardag veröa kunngerð úrslit í valinu á fþróttamanni Norðurlands '1992, en Dagur stendur sem kunnugt er að kjörinu í sam- vinnu við lesendur sína. Þá verða þeim sem höfnuðu í 5 efstu sætunum veittar viður- kenningar og hefur því íþrótta- fólki þegar verið boðið til þeirrar athafnar. Mjög góð þátttaka var af hálfu lesenda og einn þeirra mun á morgun eignast glæsilegt ferða- tæki með geislaspilara, útvarpi og tvöföldu segulbandi frá Radíó- íþróttamaður Norðurlands 1991, Eyjólfur Sverrisson er aftur á listan- Körfubolti, 1. deild karla og kvenna: Þór og UFA leika við ÍS - Tindastólsstelpur leika tvívegis fyrir sunnan Akureyrarliðin Þór og UFA sem bæði taka þátt í 1. deildar keppninni í körfubolta fá Stúdenta í heimsókn nú um helgina. Hið unga kvennalið Tindastóls í körfuknattleik leikur líka við ÍS og einnig við ÍR. Báðir þeir leikir verða fyrir sunnan. í kvöld kl. 20.30 leika Þór og Þessi mynd var tekin þegar Þór og UFA áttust við fyrr í vetur. Liðin fá Stúd- enta í heimsókn um helgina. Mynd: Robyn ÍS í íþróttahöllinni. Þórsarar berjast um efsta sæti riðilsins við Reyni frá Sandgerði og geta komist upp að hlið þeirra með sigri í kvöld. Á morgun kl. 16 mætast síðan UFA og ÍS í Skemmunni og þar má búast við jöfnum og æsispennadi leik því bæði lið hafa án efa hug á að bæta stöðu sína í deildini. Sterkt billiard- mót í Gilinu í dag hefst í knattborðsstof- unni Gilinu á Akureyri stiga- mót í billiard sem er liður í íslandsmótinu. Mótið heldur áfram á morgun og lýkur á sunnudaginn. Til leiks mæta aUir sterkustu spilarar landsins og því er tilvalið að bregða sér í Gilið og sjá billiard eins og hann gerist bestur hérlendis. Þegar hafa nokkur stigamót verið haldin sunna heiða og nú er röðin komin að Norðlendingum. Hörð barátta er um efstu sætin þar sem tveir efstu spilararnir tryggja sér þátttökurétt á Evr- ópumótinu í Finnlandi. Það verð- ur því án efa hart barist og hvergi gefið eftir. nausti. Samkvæmt venju er kunngert hverjir höfnuðu f 10 efstu sætunum en þau eru í staf- rófsröð: 1. Alfreð Gíslason, handknattleikur. 2. Baldur Guðlaugsson, hestaíþróttir. 3. Eyjólfur Sverrisson, knattspyrna. 4. Freyr Gauti Sigmundsson, júdó. 5. Hlynur Birgisson, knattspyrna. 6. Kristinn Björnsson, skíði. 7. Rut Sverrisdóttir, sund. 8. Sigurpáil. Á. Aðalsteinss., handkn. 9. Stefán Thorarensen, frjálsar/boccia. 10. Sveinbjörn Hákonarson, knattspyrna. sem Á morgun verða síðan fyrr segir 5 úr þessum hópi veittar sérstakar viðurkenningar og þá kemur í ljós hver hlýtur sæmdar- heitið íþróttamaður Norðurlands 1992. Greint verður frá úrslitun- um í þriðjudagsblaði Dags. íþróttir helgariimar BILLIARD: Föstud. kl. 15.00 til sunnudags í Gil- inu: Stigamót sem er liður í íslandsmóti. FJRÁLSAR: Laugardagur: Norðurlandsmot í frjálsum íþróttum innanhúss í fþróttahöllinni á Akur- eyri og hefst kl. 13.00 JÍJDÓ: Laugardagur: Afœlismót í júdó hjá yngri tlokkum K.A kl. 13.00 KNATTSPYRNA: fslandsmöt (innanhússknattspyrnu: KÖRFUKNATTLEIKUR: Föstudagur: 1. deild kvenna: IS-Tindastóll kl. 20.00 1. deild karlu: Þór-ÍS kl. 20.30 I.eikið í iþröttahöllinni. Laugardagur: 1. deild karla: UFA-ÍS Leikið í Skemmunni. kl. 16.00 1. deild kvcnna: ÍR-Tindastóll kl. 17.00 Sunnudagur: Bikarkeppni KKÍ: Sníefell-Tindastóll kl. 16.00 SKÍÐI: Laugardagur: KA-mót í svigi kl. 11. tX) Kjarnagangan 1993 kl. 13.00 Kjamaganga - hefst kl. 13.00 Á morgun verður fyrsta skíða- göngumótið fyrir almenning á Akureyri á þessum vetri. Það er Kjarnagangan í Kjarnaskógi og hefst hún kl. 13.00. Kl. 14 verður brautin sfðan opnuð fyrir þá sem vilja trimma án tímatöku. í mótslok verður verðlaunaafhending, boðið verð- ur upp á hressingu og viðurkenn- ingar veittar öllum keppendum. Nánari upplýsingar fást í síma 24047 og 24599. Norðurlandsmót í firjálsíþróttum Á morgun verður Norður- landsmótið í frjálsum íþróttum innanhúss haldið í 2. sinn. Mótið fer fram í íþróttahöll- inni á Akureyri og hefst kl. 13.00. Til leiks eru skráðir 104 keppendur frá 5 félögum og héraðssamböndum. Sigurður Magnússon hjá UFA, sem heldur mótið, sagði greini- legt að þetta mót væri komið til að vera, það sýndi fjöldi kepp- enda og sá áhugi félaganna á þessu móti. Mótið er kærkomin upphitun fyrir íslandsmótið sem hefst í næsta mánuði. Búast má við spennadi keppni og sjálfsagt fyrir fólk að kíkja við í Höllinni. íslandsmót í innanhúss- knattspymu Nú um helgina lýkur íslands- mótinu í innanhússknatt- spyrnu. Þá verður leikið í 1. og 2. deild karla og meistara- flokki kvenna. Alls verða 8 norðlensk lið í eldlínunni um hejgina. í 2. deild karla eru 5 lið af Norðurlandi. HSÞb er í A-riðli, KS í B-riðli, Tindastóll í C-riðli og Dalvík og Leiftur saman í D- riðli. Keppni í 2. deild fer fram á laugardaginn. Akureyrarstúlkur í ÍBA keppa á sunnudaginn í íþróttahúsinu við Austurberg í Reykjavík. Keppni í 1. deild karla fer fram á sunnudaginn í Laugardalshöll. Þar verða KA- menn og Þórsarar í eldlínunni. Núverandi íslansmeistarar í karla- flokki eru Skagamenn en UBK í kvennaflokki, en þetta eru sömu lið og urðu íslandsmeistarar í haust í utanhússknattspyrnunni. Skíði: KA-mót í svigi Fyrsta alpagreinamót vetrarins í Hlíðarfjalli fer fram á morgun laugardag og hefst kl. 11.00. Þetta er svigmót og kallað KA- mót. Keppt verður í eldri aldurs- flokkum, þ.e. flokki 13-14 ára, 15-16 ára og einnig karla- og kvennaflokki. Mótið fer fram upp við Strýtu og er að sjálfsögðu öllum heimil þátttaka. Júdómót Afmælismót yngri flokka KA í júdó fer fram um helgina. Kepp- endur verða um 100 talsins og að keppni lokinn verður boðið upp á kaffi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.