Dagur - 25.02.1993, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 25. febrúar 1993
Fréttir
Mikil ásókn í leikskólapláss á Dalvík:
NýtingarhlutfaJl Krflakots 74%
- en fimmtíu börn á biðlista
Á leikskólanum Krflakoti á
Dalvík eru 72 hálfsdagspláss
en í dag er þar ekki boðið upp
á heilsdagsvistun. Um 50 börn
eru þar nú á biðlista en hug-
myndir hafa verið uppi um
betri nýtingu á húsnæðinu,
þ.e. taka fleiri börn þar inn.
Steinunn Hjartardóttir félags-
málafulltrúi segir að engar við-
miðunartölur séu fyrir hendi og
raunar sé gengið út frá mismun-
andi forsendum í því sambandi.
Algengast er þá að miða við það
hversu mörg börn eru innrituð á
leikskólana og þannig fæst 100%
nýting. Annarrs staðar og m.a. á
Dalvík eru nýtingartölur reikn-
aðar út frá mætingu og verður því
aðeins liðlega 74% og því hafa
bæjarfulltrúar verið mjög hikandi
að fara út í frekari fjárfestingar
meðan nýtingarhlutfallið er ekki
hærra en raun ber vitni og vilja
beita ákveðnum þrýstingi til þess
að fleiri börn fá vist á leikskólan-
um án þess að komi aukið hús-
rými. Stefna bæjaryfirvalda í
þessu máli er því ekki ljós, en þar
er ákveðinn vilji til þess að tekin
verði inn fleiri börn áður en farið
verður út í frekari stækkun á leik-
skólanum en félagsmálaráð hefur
lagt til að byggð verði sérstök
dagdeild fyrir 18 börn og eru
teikningar fyrirliggjandi. I fjár-
hagsáætlun Dalvíkurbæjar fyrir
árið 1993 er gert ráð fyrir 11,3
milljónum króna til leikskóla en
seinni umræða um fjárhagsáætl-
unina fer fram 2. mars nk.
Þessa dagana standa fóstrur
hins vegar í kjarasamningum þar
sem þetta mál er meðal þeirra
atriða sem eru á samningaborð-
inu og fóstrur eru ekki tilbúnar
að Ijá máls á neinni slíkri hagræð-
ingu fyrr en því hefur verið náð
fram í samningum. Hagræðingin
tengist svokölluðu ábatakerfi
sem er bæði hagræðing og endur-
skipulagning innan leikskólanna
og á þeim leikskólum þar sem
það hefur verið reynt hafa verið
tekin inn fleiri börn og opnunar-
tími gerður sveigjanlegri.
Á Krílakoti eru starfandi þrjár
KAðalfundur Þórs
Aðalfundur íþróttafélagsins Þórs fer fram í
Hamri, laugardaginn 27. febrúar nk. kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
HALLO! HALLO!
Vissir þú aö hrásalatiö okkar er.
komið í nýiar dósir sem ekki brotna...
komið í ný
komið í ný
ar dósir sem ekki leka...
ar dósir sem eru hringlaga..
endurbætt, og því mun betra fyrir bragðið...
sælgæti, og ómissandi með öllum mat...
salatið sem óhætt er ab mæla meb...
Kynnum hrásalatiö í HAGKAUP, fimmtud.
föstud. laugard. oa sunnud. 25 - 28. feb.
Komiö og smakkiö frábært salat ásamt
ööru góögæti á frábæru kynningarveröi.
fóstrur en stöðugildi alls átta.
Mjög mikil ásókn er líka eftir
þjónustu dagmæðra en 8 konur
starfa við það á Dalvík og geta
þær ekki tekið við fleiri börnum.
Dagmæður ráða sinni gjaldskrá
sjálfar en þær hafa reyndar fylgt
þeirri gjaldskrá sem verið hefur í
gildi á Akureyri. Á Krílakoti er
daggjaldið, þ.e. fyrir fjóra tíma,
kr. 6.275 en hjá dagmæðrunum
kr. 9.874. GG
Þórður G. Sigurjónsson tók við vinningnum fyrir hönd Stefáns Jóhannsson-
ar á Siglufirði, helgarferð fyrir tvo til Reykjavíkur, en Þórhallur Arnórsson
á Akureyri mætti á staðinn og tók við sínum vinningi. Myndir: kk
Áskriftargetraun Dags og Flugleiða:
Helgarferðir til áskrifenda
á Siglufirði og Akureyri
Dregið var í áskriftargetraun
Dags og Flugleiða sl. miðviku'
dag. Vinningshafar febrúar
mánaðar eru Stefán Jóhanns
son, Grundargötu 20 á Siglu
flrði, og Þórhallur Arnórsson
Jörvabyggð 10 á Akureyri
Þessir áskrifendur voru valdir
með tölvnforriti og fá þeir hvor
um sig helgarferð fyrir tvo til
Reykjavíkur.
Þetta er í annað sinn sem dreg-
ið er í áskriftargetraun Dags og
Flugleiða sem efnt var til í tilefni
af 75 ára afmæli Dags 12. febrúar
sl. í lok hvers mánaðar allt þetta
ár verða dregin út nöfn tveggja
skuldlausra áskrifenda. Með
aðstoð tölvuforrits eru nöfnin
S!'™t -icnAA
Fjölbraut á Sauðárkróki:
Skylmingar og snyrtínámskeið
Nemendur Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðár-
króki standa fyrir opnum dög-
um í skólanum frá miðvikudegi
jfram á laugardag. Boðið
er upp á fjölbreytta dagskrá,
sem er að hluta opin öllum.
Kennsla liggur niðri meðan á
opnum dögum stendur. Nemend-
ur geta hinsvegar tekið þátt í
ýmsum námskeiðum, svo sem í
skylmingum, snyrtinámskeiði,
jóga o.fl. og einnig er boðið upp
á ýmsa fyrirlestra. Daglega sýna
gestakokkar listir sínar. Dag-
skráin er að mestu leyti lokuð,
þ.e. eingöngu ætluð nemendum
skólans. En einnig er boðið upp á
dagskráratriði opin öllum og má
þar ekki síst nefna leikritið
Saumastofuna í uppfærslu
nemenda. Leikstjóri er Jón Orm-
ar Ormsson. Dagskránni lýkur
með árshátíð nemenda á laugar-
dagskvöldið í Miðgarði, þar sem
hljómsveitin Síðan skein sól sér
um fjörið. sþ
valin úr áskrifendaskrá. Þeir
heppnu eru beðnir að svara
tveimur léttum spurningum og
geti þeir það fá þeir helgarferð að
launum.
í hverri helgarferð til Reykja-
víkur felst flug fyrir tvo, gisting í
tvær nætur á Hótel Esju eða
Hótel Loftleiðum og bílaleigubíll
frá Bílaleigu Flugleiða meðan á
dvölinni stendur. f desember
bætum við um betur og veitum
einum áskrifanda ferð fyrir tvo til
Amsterdam. Allir skuldiausir
áskrifendur Dags eru sjálfkrafa
með í pottinum.
Vinningshafarnir brugðust
glaðir við tíðindunum. Stefán
Jóhannsson átti skiljanlega ekki
gott með að koma frá Siglufirði
til að taka formlega við verð-
laununum og sendi því Þórð G.
Sigurjónsson á Akureyri í sinn
stað. Þórhallur Arnórsson mætti
á ritstjórn Dags og fékk í hendur
staðfestingu á því að hann hefði
unnið helgarferð í áskrifenda-
getrauninni. Dagur óskar vinn-
ingshöfunum til hamingju. SS
Rafinagnið ódýrast á Akureyri
Rafmagn til heimilisnota er ódýrast á Akureyri, samkvæmt útreikningum Sambands íslenskra rafveitna
og fram kemur í frétt á forsíðu. Hér fyrir neðan er hægt að sjá hvað rafmagnið kostar hjá einstökum
rafveitum og Rarik, miðað við 3.500 kWst. notkun á ári.
Samband íslenskra rafveitna
Almennur taxti, 3500 kWst./á ári: feb. '93
g
w
>
s
Q5
I
05
AKUREYRI
REYKJAVÍK
AKRANES
HAFNARFJÖRÐUR
VESTMANNAEYJAR
SUÐURNES
VESTFIRÐIR
HÚSAVÍK
BORGARNES
HVERAGERÐI
SAUÐÁRKRÓKUR
SELFOSS
REYÐARFJÖRÐUR
RARIK
0,00 1,00 2,00 3,00 4,00 5,00 6,00 7,00 8,00 9,00
RAFORKUVERÐ Á kWst.
hH
26.545,- Q iS o
26.551,-
27.242,-
28.764,- C/D <-
28.873,- *
28.884,-
29.532,- Ú
30.243,- 1—H
30.527,-
30.708,- ■ Oh
31.010,- D
31.133,- s Q <
32.969,- Z H
33.375,- cn O W
10,00