Dagur - 09.03.1993, Side 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 9. mars 1993
Enska KNATTSPYRNAN
Þorleifur Ananíasson
Úrslit
FA-bikarinn
Fjórðungsúrslit.
Blackbum-Sheflield Utd. 0:0
Ipswich-Arsenal 2:4
Manchester City-Tottenham 2:4
Derby-Sheflield Vcd. mánud.
Úrvalsdeild
Liverpool-Manchester Utd. 1:2
Q.P.R.-Norwich 3:1
Wimbledon-Southampton 1:2
Coventry-Everton 0:1
1. deild
Bamsley-Leicester 2:3
Birmingham-Oxford 1:0
Bristol City-Tranmere 1:3
Millwall-Sunderland 0:0
Newcastle-Brentford 5:1
Notts County-Bristol Rovers 3:0
Peterborough-Grimsby 1:0
Portsmouth-Luton 2:1
Southend-Charlton 0:2
Watford-Swindon 0:4
West Ham-Wolves 3:1
Úrslit í vikunni:
Úrvalsdeild
Chelsea-Arsenal 1:0
Coventry-ShefHeld Wcd. 1:0
Everton-Blackburn 2:1
Ipswich-Middlesbrough 0:1
Norwich-Arsenal 1:1
Nottingham For.-Crystal Palace 1:1
Sheflield Utd.-Tottenham 6:0
1. deild
Derby-Cambridge 0:0
Staðan
Úrvalsdeild
Man. Utd.
Aston Villa
Norwich
QPR
Sheff. Wed.
Coventry
Biackburn
Ipswich
Tottenham
Man. City
Southampton
Arscnal
Chelsea
Leeds
Everton
Liverpool
Wimbledon
Ciystal Palace
Sheff. Utd.
NottinghamForest
Oldham
31 17- 9- 5 49:24 60
31 17- 8- 6 48:31 59
31 15- 8- 8 44:46 53
31 13- 8-10 44:37 47
30 12-10- 8 40:34 46
32 12-10-10 45:41 46
30 12- 9- 9 43:32 45
31 10-14- 7 37:35 44
31 12- 8-1139:47 44
3012- 7-1143:34 43
3211- 9-12 40:40 42
3011- 7-12 27:27 40
3110-10-1133:3840
31 10- 9-12 41:46 39
32 31- 6-15 36:42 39
30 9- 9-12 40:42 36
9- 9-13 36:39 36
8- 11-12 37:47 35
9- 7-15 37:41 34
8- 9-14 38:52 33
30 8- 8-1430:3932
30 7- 7-16 40:55 28
31
31
31
31
1. deild
Ncwcastle
West Ham
Swindon
Millwall
Portsmouth
Tranmere
Leicester
Grimsby
Charlton
Derby
Wolves
Petcrborough
Watford
Bamsley
Oxford United
Sunderland
Brentford
Cambridge United
Notts County
Luton
Bristol City
33 21- 7-
33 18- 9-
31 16- 8-
33 14-12-
33 15- 9-
Southcnd
Bristol Rovers
5 60:27 70
6 59:30 63
7 55:39 56
7 53:35 54
9 56:39 54
31 15- 6-10 53:42 51
32 14- 7-11 45:42 49
32 14- 6-12 47:42 48
3312-11-10 39:32 47
32 13- 6-13 50:41 45
33 11-11-1144:42 44
31 12- 8-1141:44 44
33 11- 9-13 49:59 42
3211- 7-14 42:40 40
32 9-12-1141:39 39
31 10- 9-12 31:39 39
3310- 7-1640:5137
32 8-12-1235:4936
32 8-11-1341:52 35
7- 14-1134:49 35
8- 9-15 36:58 33
8- 8-16 29:52 32
7- 10-15 34:41 31
8- 6-19 38:66 30
32
32
32
32
33
FA-bikarinn:
Nayim með þrennu fyrir Tottenham
sem nú mætir Arsenal í undanúrslitum
Fjóröungsúrslitin í FA-bikarn-1
um fóru fram nú um helgina ef |
frá er talinn leikur Derby gegn
Sheffield Utd. sem var leikinn
á mánudagskvöldið. Arsenal
hefur nú um skeið verið spáð
sigri í keppninni og það breytt-
ist ekki eftir leiki helgarinnar
sem við skulum nú líta aðeins
nánar á.
■ Leikur Ipswich á heimavelli
gegn Arsenal var sýndur í sjón-
varpinu og þar sem þessum liðum
hefur gengið heldur illa að skora
mörk til þessa, spáðu margir 0:0
jafntefli og öðrum leik á High-
bury. En það var annað uppi á
teningnum, leikurinn var mjög
fjörugur og sex mörk sáu dagsins
ljós. Chris Kiwomya náði foryst-
unni fyrir Ipswich á 16. mín. er
hann þrumaði boltanum upp í
þaknetið á marki ArsenaÍ úr
þvögu eftir hornspyrnu og þar
með var Arsenal liðið tilneytt að
sækja, sem það og gerði.
Tony Adams jafnaði fyrir
Arsenal fyrir hlé með skalla eftir
góða aukaspyrnu frá Paul Mer-
son þrátt fyrir að hann væri reyf-
aður um höfuðið eftir síðasta
fyllerí, en þá datt hann niður
stiga á næturklúbbi. Óheppnin
eltir drenginn þegar hann
dettur„íða“, ekki er langt síðan
hann sat inni í nokkra mánuði
fyrir að aka bíl vel mjúkur, en þá
hafði hann ekið á girðingu og ætl-
aði að fá að hringja í næsta húsi
og láta vini sína sækja sig og
koma bílnum undan. Heppnin
var þó ekki með honum því hann
þurfti endilega að banka uppá
hjá eina lögregluþjóninum í
; hverfinu.
Nayim skoraði þrjú af mörkum Tottenham í sögulegum leik gegn Man. City.
Man. Utd. á toppinn, en
Norwich að missa af lestinni
Það var ekki mikið um að vera
í Úrvalsdeildinni um helgina,
en þeir leikir sem fram fóru
voru þó mikilvægir og úrslitin
á laugardag urðu til þess að
Aston Villa féll úr efsta sætinu
í deildinni. Aðeins eitt stig
skilur þó Villa frá Man. Utd.
og nú stefnir í einvígi þessara
tveggja liða þar sem Norwich
virðist vera að gefa eftir í
baráttunni.
■ Man. Utd. heimsótti Liverpool
á Anfield og vann sinn fyrsta sig-
ur þar síðan 1986 og kom fram
hefndum frá því í apríl er Liver-
pool batt enda á vonir Utd. um
meistaratitilinn sem fyrir vikið
fór í hendur Leeds Utd. Yfir
44.000 áhorfendur sáu leikinn
sem Liverpool hóf af miklum
krafti og Paul Parker bakvörður
Man. Utd. þrumaði fyrirgjöf
Mark Walters í þverslá eigin
marks og Peter Schmeichel í
marki Utd. varði mjög vel frá
Don Hutchison. Það var þó Man.
Utd. sem náði forystu í leiknum
rétt fyrir hlé er Paul Stewart mis-
tókst að hreinsa frá marki
Liverpool, Ryan Giggs náði bolt-
anum og Mark Hughes skallaði
inn sendingu hans. Stewart var
Hér kljást þeir um boltann Darren
Peacock Q.P.R. og Ian Butterworth
Norwich en eftir sigur Q.P.R. virð-
ast möguleikar Norwich hverfandi.
tekinn útaf í hálfleik og í hans
stað kom Ian Rush sem ekki
hafði verið lengi inná er hann
hafði jafnað fyrir Liverpool með
viðstöðulausu skoti. Aðeins 5
mín. síðar skoraði þó Brian
McClair sigurmark Man. Utd.
með skalla eftir hornspyrnu Lee
Sharpe. Undir lok leiksins var
síðan Andrei Kanchelski nærri
því að bæta við þriðja marki
Man. Utd., en skot hans fór í
stöng.
■ Norwich tapaði 3:1 á útivelli
gegn Q.P.R. og nú virðist sem
liðið sé að missa af toppliðunum
tveim og geti varla vænst þess að
veita þeim keppni á lokasprettin-
um. Les Ferdinand skoraði tvö
fyrstu mörkin fyrir Q.P.R. og
lagði síðan upp þriðja markið
fyrir Clive Wilson. Mark Robins
skoraði eina mark Norwich í
leiknum er hann lagaði stöðuna í
2:1.
■ Wimbledon tapaði 2:1 á
heimavelli gegn Southampton og
það eftir að hafa komist yfir á 22.
mín. með góðu marki frá Dean
Holdsworth. Matthew Le Tissier
jafnaði fyrir Southampton 11
mín. síðar og Kevin Moore skall-
aði inn sigurmark Southampton
19 mín. fyrir leikslok eftir góðan
undirbúning Le Tissier og Ken
Monkou.
■ Coventry tók á móti Everton
á sunnudag og þar urðu úrslitin
heldur óvænt. Everton sem hefur
verið í fallbaráttu að undanförnu
sigraði með eina marki leiksins
sem Mark Ward skoraði með við-
stöðulausu skoti eftir sendingu
inn í teiginn. Með sigrinum er
staða Everton mun vænlegri í
deildinni. Þ.L.A.
En aftur að leiknum, sem
Arsenal átti í síðari hálfleik, Ian
Wright hefði getað skorað þrennu
á fyrstu 10 mín. hálfleiksins og
bjargað var á línu frá Alan
Smith. En það hlaut að koma að
því að Arsenal skoraði og það.
gerði Wright úr vítaspyrnu sem
hann fékk sjálfur er John Wark
felldi hann eftir að hann var
sloppinn innfyrir. Aftur slapp
Wright innfyrir vörn Ipswich
skömmu síðar eftir sendingu
Smith og Phil Whelan skoraði
sjálfsmark er hann reyndi að pota
boltanum frá Wright.
Leikmenn Ipswich gáfust þó
ekki upp og sóttu stíft og Bontzo
Guentchev náði að laga stöðuna
með marki eftir hornspyrnu, en á
síðustu mín. leiksins skoraði
Kevin Campbell sem komið hafði
inná sem varamaður fjórða mark
Arsenal er hann komst einn í
gegn. Sanngjarn sigur Arsenal
sem stefnir nú á úrslitaleik bæði í
FA og Deildabikarnum.
■ Sheffield Utd. náði að knýja
fram annan leik eftir að hafa
haldið jöfnu á útivelli gegn
Blackburn í markalausum leik.
Jafnteflið var ekki ósanngjarnt
og Blackburn liðið fékk aðeins
tvö marktækifæri sem eitthvað
kvað að. Stuart Ripley átti gott
skot sem fór naumlega framhjá
marki Sheff. Utd. í fyrri hálfleik
og undir lokin varði Alan Kelly
markvörður Sheff. Utd. vel frá
Tim Sherwood. Sheff. Utd. fékk
einnig sín færi þar sem Brian
Deane var oft ágengur upp við
mark Blackburn.
■ Á sunnudag mættust síðan
Man. City og Tottenham í hörku-
leik þar sem áhorfendur ruddust
inná undir lokin og 8 mín. töf
varð á leiknum. Það voru áhorf-
endur Man. City sem hófu lætin
og hafa sennilega ætlað að fá
leiknum aflýst og áhorfendur
Tottenham drógust síðan inn í
slagsmálin.
Mike Sheron náði forystu fyrir
Man. City strax á 10. mín., en
Nayim jafnaði fyrir Tottenham
15 mín. síðar og eftir það hafði
Tottenham undirtökin. Mörk frá
Steve Sedgley rétt fyrir hlé og
isíðan annað mark Nayim rétt eft-
ir hlé var ekkert annað en liðið
átti skilið.
Nayim sem kom inn í Totten-
ham liðið í stað Nick Barby sem
er að leika með unglingalandsliði
Englands í Ástralíu skoraði sitt
þriðja mark 5 mín. fyrir leikslok,
en lokaorðið átti Terry Phelan
fyrir Man. City. Teddy Shering-
ham misnotaði síðan vítapsyrnu
fyrir Tottenham alveg í lokin, en
það skipti ekki máli. Hins vegar
gætu ólætin haft slæm áhrif fyrir
Manchesterborg sem hefur sótt
um að halda stóra íþróttaviðburði
á næstunni.
■ Að loknum sunnudagsleikjun-
um var síðan dregið til undan-
úrslita og þar mætast hinir fornu
féndur Tottenham og Arsenal
annars vegar, og hins vegar
Blackburn eða Sheffield Utd.
gegn Derby eða Sheffield Wed.
sem léku á mánudagskvöldið.
Það er því möguleiki á því að
Sheffield liðin mætist í undan-
úrslitaleik og það yrði ekki síðri
barátta en í leik Lundúnarisanna.
Þ.L.A.