Dagur - 09.03.1993, Síða 16

Dagur - 09.03.1993, Síða 16
Prentum myndina þína á bol ^Feáíomyndir? Skipagata 16 - 600 Akureyri - Sími 96 - 23520 Bjami Bjarnason, skipstjóri á Súlunni EA og skipverjar hans komu með rúm 770 tonn af loðnu í Krossanes á föstu- dag. Mynd: KK Heildarloðnuveiði nálgast 600 þúsund tonn: Norðlensku verksmiðjumar hafa fengið 213 þúsuud tonn Liðlega 20 þúsund tonn veidd- ust af loðnu frá sl. föstudegi til mánudags og voru flestir bát- arnir á Breiðafirðinum en nokkrir fengu ágætan afla vest- ur af Patreksljarðarflóa og hefur loðna sjaldan veiðst svo norðarlega á þessum árstíma. Afli fékkst einnig á Selvogs- banka og austur við Stokksnes en í miklu minna mæli. Hákon ÞH-250 frá Grenivík landaði rúmum 825 tonnum á Siglufirði á sunnudag, en aflann fékk báturinn vestur á Patreks- fjarðarflóa. Ágætis veður var þar í gær en engin veiði. „Loðnan er komin nokkuð langt í hrygningu, svolítið farið að losna í henni hrognin en það geta verið ein- hverjir dagar enn í það. Loðnan hefur alltaf verið að þoka sér norðureftir en óvíst hvað hún veiðist þarna lengi en það er mjög óvanalegt að hún finnist svona norðarlega á þessum árstíma,“ sagði Björgvin Birgis- son stýrimaður á Hákoni ÞH. Tæplega 41 þúsund tonnum af loðnu hefur verið landað á Siglu- firði, 2 þúsund tonnum á Ólafs- firði, 10 þúsund tonnum í Krossa- nesi, 28 þúsund tonnum á Rauf- arhöfn, 14 þúsund tonnum á Þórshöfn og 10 þúsund tonnum á Vopnafirði, en mestu magni hef- ur verið landað í Vestmannaeyj- um, 57 þúsund tonnum, er þar eru starfræktar tvær verksmiðjur, ísfélag Vestmannaeyja og VEÐRIÐ Frost verður fram eftir morgni en síðan fer að hlýna, fyrst vestanlands. Vestan og síðan norðvestanátt verður á Norðurlandi, og sums staðar allhvöss með éljagangi en síðan lægir smám saman og dregur úr úrkomu norðan- lands. Hægviðri og léttskýjað víðast hvar þegar líður á daginn. Vinnslustöðin. Skammt á eftir kemur svo Seyðisfjörður með 56 þúsund tonn, en þar eru einnig starfræktar tvær loðnubræðslur, Hafsilfur og Síldarverksmiðjur ríkisins. Sé hins vegar litið bæði til haust- og vetrarvertíðar er Siglufjörður hæsta löndunarhöfn- in með 82 þúsund tonn, en til Sfcyðisfjarðar hafa komið 81 þús- und tonn. Heildarlandanir hjá öðrum norðlenskum loðnuverk- smiðjum eru 58 þúsund á Raufar- höfn, 30 þúsund tonn á Þórshöfn, 28 þúsund tonn í Krossanesi og 13 þúsund tonn á Vopnafirði en engin löndun var í Ólafsfirði á haustvertíð. Heildarveiði á haust- og vetrarvertíð er 598 þúsund tonn og eru eftirstöðvar loðnukvóta því 222 þúsund tonn. GG Kornrækt: Eyjafjörður kemur vel til greina - að áliti Jónatans Hermannssonar hjá RALA Möguleikar til kornræktar í Eyjafirði eru síst verri en á mörgum stöðum á Suður- og Vesturlandi. Þetta kom meðal annars fram í erindi Jónatans Hermannssonar hjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins á fræðslufundi um kornrækt sem átaksverkefnið Vaki stóð fyrir á Akureyri síðastliðinn föstudag. Jónatan sagði að draga mætti kornræktarlínuna um nyrðri hluta Hörgárdals eða Möðruvallapláss. Norðan þess væri varhugavert að treysta á kornuppskeru vegna þess hversu snjór liggur oft lengi frameftir á vorin og frost fer seint úr jörðu. Jónatan sagði að frumskilyrði til kornræktar væru þau að unnt væri að sá snemma - helst ekki síðar en viku af maí til að kornið fengi nægilega langan vaxtar- tíma. Þá væri aðalhættan að haustinu fólgin í næturfrosti og gætu frostnætur í ágúst hæglega skemmt eða jafnvel eyðilagt kornuppskeru. Slíkt hefði raunar gerst á Suðurlandi á síðastliðnu sumri og uppskera orðið langt undir því sem hún er í meðalári eða allt niður fyrir 10 tunnur á hektara. Korn í Eyjafirði fraus ekki í fyrra og var uppskera þeirra bænda sem stunda korn- rækt í Miðgerði í Eyjafjarðar- sveit um 16 tunnur á hektara. Jónatan benti á að flestir bæir í Eyjafirði væru neðan 100 metra frá sjávarmáli og því nýttist hæsti meðalhiti til ræktunarinnar. Hann sýndi niðurstöður mælinga sem gerðar höfðu verið á Norðurlandi og sýndu 9,3 gráðu meðalhita á Akureyri í júlí. Sam- bærilegur meðalhiti í Torfufelli í Eyjafirði, sem er um 215 metrum fyrir ofan sjávarmál var 8,7 gráð- ur og 7,6 gráður norður á Siglu- nesi. Jónatan kvað hitann skipta miklu máli fyrir kornræktina en þar sem meðalhiti í júlí nái þeim meðaltalsmörkum sem mælst hafa í Eyjafirði þá séu skilyrði til kornræktar ekki verri en víða á Suður- og Vesturlandi. Kornrækt er eitt af því sem hugað hefur verið að á vegum átaksverkefnisins Vaka, sem stendur yfir í Eyjafjarðarsveit og á Svalbarðsströnd. Nokkrir bændur í Eyjafjarðarsveit hafa ræktað korn á undanförnum árum með allgóðum árangri og telja þeir bændur sem nýtt hafa korn til fóðrunar búpenings að um verulega búbót geti verið að ræða. ÞI Vegna samflots verður ekki um verkfall að ræða hjá BSRB: Ekkert norðlensku aðildarfélaganna samþykkti verkfallsboðun Hjá 23 af 34 aðildarfélögum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) fór fram atkvæða- greiðsla dagana 3. og 4. mars sl. og varð heildarniðurstaðan sú að af 12.659 á kjörskrá kusu 8.717 eða 68,86%. Já sögðu 3.607 eða 41,38%, nei sögðu 4.865 eða 55,81% en auðir og ógldir seðlar voru 245 eða 2,81%. Hjá 7 aðildarféiögum var boðun verkfalls samþykkt en vegna samflots aðildar- félaga var samþykkt að boða ekki verkfall hjá þeim sem þó höfðu aflað sér verkfalls- heimildar vegna þess að í þessa atkvæðagreiðslu var farið sam- eiginlega og vegna heildarnið- urstöðu verður hvergi um verk- fall að ræða hjá aðildarfélög- um BSRB. Ekkert norðlenskra aðildarfélaga samþykkti verkfall. Hjá flestum aðildarfélögum var atkvæðagreiðslan í tvennu lagi, þ.e. annars vegar bæjar- starfsmenn og hins vegar ríkis- starfsmenn. Hjá Starfsmanna- félagi Akureyrarbæjar (STAK) var þátttaka bæjarstarfsmanna 56%, 87 sögðu já eða 48,3%, nei sögðu 79 eða 43,8% en 14 seðlar voru auðir eða 7,9%. Hjá kenn- urum Tónlistaskóla Akureyrar sögðu 7 já, 6 nei og 5 seðlar voru auðir. Hjá ríkisstarfsmönnum sögðu 90 já eða 48,1%, nei sögðu 82 eða 43,8% og auðir og ógildir voru 15 eða 8,1%. Þar sem fjöldi þeirra sem sögðu já náði ekki 50% (var 47,8% gegn 43,4% þeirra sem sögðu nei) af heildar- atkvæðamagninu var heimild til verkfallsboðunar ekki samþykkt og þannig var einnig með fleiri félög. Hjá Dalvíkurbæ eru bæjar- starfsmenn 80, og af þeim greiddu 63 atkvæði eða 78,7%. 28 sögðu já eða 44,5%, nei sögðu 27 eða 42,8% og auðir og ógildir voru 8 eða 12,7%. Á Dalvík eru 5 ríkisstarfsmenn og greiddu allir atkvæði, 3 sögðu já en 2 sögðu nei. Á Ólafsfirði voru 62 á kjörskrá og þar af 58 bæjarstarfsmenn. 20 sögðu já, 19 sögðu nei og 1 seðill var auður. 4 ríkisstarfsmenn greiddu atkvæði og sögðu allir nei. Heildarniðurstaða er því sú að 45,5% sögðu já en 52,3% nei. Á Siglufirði voru 20 bæjar- starfsmenn á kjörskrá, 16 kusu og sögðu 8 já og 8 nei, en 10 ríkisstarfsmenn voru á kjörskrá og kusu 5, 3 sögðu já en tveir sögðu nei. Bæjarstarfsmenn felldu því að veita heimild en heildarniðurstaða þar er því sú að 52,4% samþykkti verkfalls- boðun en 47,6% var á móti. Hjá Starfsmannafélagi Sauðár- króks greiddu 55,14% félags- manna atkvæði, já sögðu 26 eða 34,7%, nei sögðu 47 eða 62,7%, tveir seðlar voru auðir. Hjá tveimur landsfélögum voru greidd atkvæði, Fóstrufélag íslands samþykkti verkfallsboð- un (60,7%) en Póstmannafélag íslands felldi (40,6%). Engin atkvæðagreiðsla fór fram á Húsa- vík en áætlað er að hún fari fram síðar. GG Akureyri: Aðstoðarmeim á ftmdi stjómar veitostoftiana í svokallaðri hvítbók ríkis- stjórnarinnar er ákvæði þess efnis að ná skuli meiri jöfn- uði í orkukostnaði lands- manna. í því sambandi er m.a. horft til dýrustu hita- vcitna landsins, en Hitaveita Akureyrar er í þeim hópi. Á fundi veítustjórnar Akur- eyrar í liðinni viku var þetta mál á dagskrá og voru gestir fundarins þeir Steingrímur Ari Arason, aðstoðarmaður fjár- málaráðherra, og Sigfús Jónsson, aðstoðarmaður iðn- aðarráðherra. „Við fórum yfir þessi mál með þeim og enn er stefnt að því að síðar í þesssum mánuði verði tilbúnar einhverjar til- lögur um hvernig hægt sé að ná niður orkuverði hjá dýrustu orkuveitum í Iandinu,“ sagði Sigurður J. Sigurðsson, for- maður veitustjórnar. óþh Lögreglan: Brotist inn á rakarastofu Lögreglan á Akureyri hafði í ýmsu að snúast um helgina. Brotist var inn á rakarastofuna við Strandgötu 6 og litlu stolið en því meira skemmt. Rúða var brotin í verslun í miðbæn- um en sökudólgurinn gaf sig síðar fram við lögregluna. Ekið var utan í þrjá bíla um helgina og í öllum tilfellum hvarf sá sem tjóninu olli burtu án þess að gefa sig fram. Þrír voru teknir ölvaðir við akstur, þrír minni háttar árekstrar voru tilkynntir, fjórir teknir fyrir hraðakstur og númer klippt af 13 bílum. Nokkrar skemmdir urðu á bifreið sem ók utan í vegg Ólafs- fjarðarganga til þess að forða árekstri við bíl úr gagnstæðri átt. GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.