Dagur - 20.04.1993, Page 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 20. apríl 1993
Fréttir_____________________________
Nýr rekstraraðili tekur við rekstri Sæfara:
Iist mjög vel á þetta
- segir Sigurjón Sigurjónsson, skipstjóri
Eyjafjarðarferjan Sæfari fór í
sína fyrstu ferð í gær eftir að
Eysteinn Þ. Yngvason tók
formlega við rekstri hennar sl.
föstudag.
„Mér líst mjög vel á þetta,“
sagði Sigurjón Sigurjónsson,
skipstjóri, þegar haft var sam-
band við hann á Grímseyjarsundi
síðdegis í gær. „Mér fannst mjög
ánægjulegt að taka við skipinu í
þessu ásigkomulagi. Það var í
eins miklu topplagi, yst sem
innst, sem hugsast getur. Um-
gengni hefur verið til mikillar
fyrirmyndar og röð og regla á
öllu,“ sagði Sigurjón.
Árnes, gamli flóabáturinn
Baldur, sem Eysteinn Þ. Yngva-
son gerir út, verður í siglingum á
Eyjafirði í sumar, m.a. í sjó-
stangaveiðiferðum. óþh
Hluti keppenda í yngri flokki ásamt Hjálmari Theodórssyni, Sigurjóni
Benediktssyni, Oddi Orvari Magnússyni og Albert Sigurðssyni mótsstjóra.
Landslið yngri spilara í bridds:
Ólafur og Steinar í liðinu
Bræðurnir Ólafur og Steinar
Jónssynir frá Siglufirði skipa
landslið yngri spilara í bridds
ásamt þeim Sveini R. Eiríks-
syni og Hrannari Erlingssyni
úr Reykjavík. Um helgina
voru haldnar landsliðskeppnir
í flokki yngri spilara og
kvennaflokki og landslið þess-
ara flokka valin að þeim
loknum.
Ólafur og Steinar tóku ekki
þátt um helgina en þeir eru
íslandsmeistarar í bridds í opn-
um flokki sveita og í sveitakeppni
og tvímenningskeppni yngri spil-
ara. Sá árangur hefur örugglega
nægt þeim til landsliðssætis.
Sveinn og Hrannar sigruðu um
helgina og tryggðu sér hin tvö
sætin í liðinu en alls mættu 10 pör
til leiks.
Verkefni yngri spilara á þessu
ári er Norðurlandamót sem hald-
ið er í Árósum í Danmörku í júní
nk.
í kvennaflokki kepptú 16 pör
og sigruðu þær Hjördís Eyþórs-
dóttir og Ljósbrá Baldursdóttir
með 175 stig og tryggðu sér sæti í
landsliði sem fer á Evrópumót í
Menton í Frakklandi í júní í
sumar. -KK
I,
Framkvæmdastjóri
I óskast
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaöra, auglýsir eft-
ir framkvæmdastjóra.
Hlutverk: Hann ber ábyrgð á rekstri skrifstofu samtak-
anna og og starfsmannahaldi. Hefur umsjón meö og ann-
ast framkvæmd félagslegra og fjárhagslegra verkefna, s.s.
með tengslum viö félagsdeildir Sjálfsbjargar, opinbera
aöila, ýmis hagsmunasamtök innanlands sem utan, sam-
skipti við fjölmiöla svo og fjáröflun.
Kröfur: Menntun, reynsla og áhugi á sviöi félagsmála er
mikilvæg ásamt stjórnunarreynslu. Kunnátta í ensku og
einu Noröurlandamáli nauðsynleg og æskileg er kunnátta
í þýsku. Æskilegt er að starfsmaður geti hafiö störf sem
fyrst.
Kynning: Sjálfsbjörg, landssamband fatlaöra er samtök
hreyfihamlaöra á (slandi. Aðildarfélögin eru 16 og félags-
menn um 2.400. Hlutverk Sjálfsbjargar er m.a. aö vinna að
því aö tryggja hreyfihömluðum jafnrétti og sambærileg lífs-
kjör á viö aöra þjóðfélagsþegna.
Skriflegri umsókn ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf ber aö skila á skrifstofu Sjálfsbjargar,
Hátúni 12, 105 Reykjavík fyrir 28. apríl nk. Frekari
upplýsingar veita Jóhann P. Sveinsson formaöur í
síma 91-622012 og Tryggvi Friðjónsson fram-
kvæmdastjóri í síma 91-29133 báöir á skrifstofu-
tíma.
■
Sigurjón Sigurjónsson, skipstjóri, í brú Sæfara í gærmorgun, áður en haldið
var upp í fyrstu ferðina í nafni nýs rekstraraðila. Mynd: Robyn
Skákþing á Húsavík:
Akureyringar sigursælir
Skákþing Norðlendinga var
haldið á Húsavík 16.-18. apríl.
Alls tóku 58 skákmenn þátt í
mótinu. Þátttakendur voru frá
Akureyri, Húsavík, Kópavogi,
Garðabæ og Reykjavík.
Sigurjón Benediktsson, for-
svarsmaður skákmanna á Húsa-
vík, sagði að mótið væri mikil lyfti-
stöng fyrir skáklíf í bænum og að
hann væri þakklátur þeim aðilum
sem stuðluðu að því að mótshald-
ið væri framkvæmanlegt. Um 20
unglingar frá Húsavík mættu til
leiks og fengu Orri Freyr Odds-
son og Benedikt Sigurjónsson
sérstök verðlaun fyrir að vera
efstir Húsvíkinga í eldri og yngri
flokkum unglinga. Yngsti kepp-
andinn var sjö ára Húsvíkingur
og Norðurlandsmeistari Húsvík-
inga, Hjálmar Theódórsson
mætti einnig, elstur þátttakenda.
Sigurjón sagði að mótshaldið
hefði gengið mjög vel og krakk-
arnir staðið sig vel. Mótsstjóri
var Albert Sigurðsson.
Úrslit urðu sem hér segir:
Mótsúrslit:
1. Gylfi Þórhallsson SA
2. Tómas Björnsson TK
3. Þorleifur Karlsson SA
4. Rúnar Sigurpálsson SA
5. Matthías Kjeld TR
allir með 5 vinninga.
Norðurlandsmótið úrslit:
1. Gylfi Þórhallsson SA 5 v.
2. Þorleifur Karlsson SA 5 v.
3. Rúnar Sigurpálsson SA 5 v.
Unglingar: eldri ílokkur
Páll Þórsson SA 7,5 v.
Unglingar: yngri flokkur
Davíð Stefánsson SA 6,5 v.
Kvennaflokkur - unglinga
Þorbjörg Þórsdóttir SA 3 v.
Hraðskákmót - telft á 14 borðum
1. Áskell Öm Kárason SA 12Vi v.
af 16 mögulegum.
Unglingamót í hraðskák:
1. Davíð Stefánsson SA 5 v.
Borgarhólsskóli
á Húsavík:
Lifandi skógur
söngleikur flutt-
urafl30manns
í gær komu 110 Norðmenn,
þar af 70 börn frá skólunum í
Nordfjoreid og Hjelle, til
Húsavíkur. Börnin munu gista
hjá pennavinum sínum í sjö-
unda bekk þar til á föstudag.
Eins og Dagur hefur áður
greint frá munu íslensku og
norsku börnin flytja saman
söngleikinn Lifandi skógur,
verkefni sem sameinar um-
hverfisfræðslu, leiklist, tónlist
og samvinnu milli landa. Tvær
sýningar verða í sal Borgar-
hólsskóla á sumardaginn
fyrsta, kl. 14 og 16,30. Á laug-
ardag verður verkið sýnt á
Akranesi, þar koma norsku
krakkarnir fram, auk nemenda
Brekkulækjarskóla og hljóm-
sveitar Tónlistarskóla Húsa-
víkur.
í dag fara norsku gestirnir í
skoðunarferð að Mývatni, en á
morgun verður farið f skoðunar-
ferð um Húsavíkurbæ og að
Hveravöllum í Reykjahverfi.
Húsgull og Landgræðslan standa
fyrir fræðslufundi fyrir gesti og
gestgjafa. Gestirnir fá að kynnast
íslenska hestinum og Skógrækt
ríkisins býður til grillveislu.
Norsku börnin lærðu söngtext-
ana í Lifandi skógi á íslensku, en
Emilía Baldursdóttir þýddi
verkið. Söngleikurinn varð til í
samvinnu norsku skógræktarinn-
ar og Thor Karseth. Það verða
120 börn frá Noregi og íslandi
sem flytja verkið á Húsavík, auk
12 manna hljómsveitar Tónlistar-
skólans. IM
Norðlenskir hestadagar í Reiðhöllinni í Víðidal:
- segir Baldvin Kr. Baldvinsson, hrossabóndi
bjóða þegar knapar eru annars
vegar. Hestakonan og Ford-
stúlkan, Birna Willardsdóttir frá
Dalvík, var á meðal þátttakenda
og höfðu menn á orði að líklega
væri það bara goðsögn að fegurð-
ardísir væru innpakkaðar í bóm-
ull og hefðu ekki áhyggjur af
öðru en rispaðri fingurnögl.
Söngvarinn Jóhann Már
Jóhannsson tók lagið og norð-
lenskir hagyrðingar létu í sér
heyra annað veifið.
Aðspurður hvað norðlenskir
hrossabændur væru að ferðast
með ferfætlingana suður yfir
heiðar, sagði Baldvin Kr. Bald-
vinsson, bóndi í Torfunesi í S-
Þingeyjarsýslu og einn af fram-
kvæmdamönnum sýningarinnar,
að hér væru menn að reyna að
markaðssetja úrvalsvöru. „Við
erum að kynna okkar fram-
leiðslu, kynbótahross sem önnur
og gefa knöpum færi á að sýna sig
og sína vinnu.“ Hann sagði það
alveg klárt að hesturinn væri aft-
ur að verða þarfasti þjónninn.
Hann væri orðinn mikið afþrey-
ingartæki og því mikilvægt að
kynna hann sem víðast. Af því
tilefni var farið með hross í
Kringluna og á Rás 2.
Að sögn Baldvins heppnuðust
sýningarnar sérlega vel. „Við
erum ekki með nein söluhross
með okkur hér en viljum vekja
athygli á okkar starfi og kynning
af þessu tagi skilar. Menn fengu
hér að sjá úrvalshross og ef við
ætlum okkur að selja þau verðum
við að fara til fjöldans," sagði
Baldvin Kr. Baldvinsson. -SV
Það var sannkölluð veisla fyrir
augað og eyrað sem norðlensk-
ir hestamenn héldu kollegum
sínum á Suðurlandi í Reiðhöll-
inni í Víðidal um sl. helgi.
Höfuðborgarbúar kunnu greini-
iega vel að meta þessa heim-
sókn og fjölmenntu á þær þrjár
sýningar sem í boði voru. Fjór-
ar deildir félags hrossabænda
eru starfandi á Norðurlandi og
tóku þátt. Reikna má með að á
milli 50 og 60 manns hafi stað-
ið að sýningunni og að um 70
hross hafl verið með í för.
Sýningin var mjög fjölbreytt og
ekki var nóg með að margt fag-
urra hrossa hafi verið til sýnis,
heldur var tjaldað til því fegursta
sem Norðlendingar hafa upp á að
Norðlenskir hestadagar í Reiðhöllinni þóttu takast vel.
Mynd: SV
Hesturinn þarfasti þjónninn á ný