Dagur - 20.04.1993, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 20. april 1993 - DAGUR - 7
íslandsmótið í júdó:
Besti árangur KA til þessa
- félagið náði 9 íslandsmeistaratitlum, fleiri en nokkurt annað félag
Rúnar Snæland varð tvöfaldur íslandsmeistari og tryggði sér farseðilinn á
jSmáþjóðaleikana. Mynd: ha
íslandsmótið í júdó í flokki
fullorðinna og undir 21 árs var
haldið í íþróttahúsinu við
Austurberg í Reykjavík sl.
Iaugardag. Þar náðu júdó-
menn frá KA besta árangri
félagsins frá upphafi en alls
unnu þeir til 9 íslandsmeistara-
titla af 12 sem félagið átti
möguleika á. KA var með
flesta titla á mótinu en
Ármenningar komu næstir
með 6. Einna mesta athygli
vakti viðureign Vernharðs
Það voru 20 keppendur mættir
til leiks á Akureyrarmóti í
skíðagöngu í flokki 12 ára og
yngri sem fram fór í Hlíðar-
fjalli á sunnudaginn. Veður
var ágætt og færið mjög gott.
Um næstu helgi verður síðan
keppt í eldri flokkunum.
Keppendur voru flestir í flokki
drengja 8 ára og yngri og þar sigr-
aði Andri Steindórsson. Júlía
Körfubolti:
Hafsteinn og
Ómar áfiram
í landsliðinu
Ómar Sigmarsson úr Tinda-
stóli og Hafsteinn Lúðvíksson
úr Þór halda báðir sætum sín-
um í drengjalandsliði íslands í
körfubolta sem nú á tvö erfið
verkefni fyrir höndum.
í fyrsta lagi er það milliriðill
Evrópumótsins í Litháen síðar í
mánuðinum og sama lið fer síðan
í undankeppni Evrópumóts ungl-
ingalandsliða í Finnlandi 12.-16.
maí.
Þorleifssonar úr KA og Bjarna
Friðrikssonar þar sem Bjarna
var dæmdur sigur á dómara-
úrskurði og voru norðanmenn
mjög ósáttir með þau úrslit.
Yfirburðir KA í U-21 flokkn-
um voru miklir og vannst sigur í 6
þyngdarflokkum af 8, eða öllum
sem félagið átti keppendur í. Rúnar
Snæland og Max Jónsson mættu
tveir til leiks í -60 kg flokki, Sæv-
ar Sigursteinsson vann -65 kg
flokkinn og Atli H. Arnarsson
varð 3. Jónas Jónasson vann sig-
Þrastardóttir sigraði í flokki
stúlkna 9 ára og yngri eftir harða
keppni og Björn Blöndal vann
flokk 9-10 ára. Aðeins ein stúlka
keppti í flokki 10-12 ára, Arna
Pálsdóttir, en Baldur Ingvarsson
var fljótastur hjá strákunum.
Úrslit urðu annars þessi:
Drengir 8 ára o.y., 1 km:
1. Andri Steindórsson 5,11
2. Páll Þór Ingvarsson 5,40
3. Bjarni Árdal 6,16
4. Jóhann Rolfsson 7,13
5. Árni Björn Þórarinsson 7,21
6. Guðni B. Guðmundsson 8,08
7. Börkur Þór Björgvinsson 8,53
Stúlkur 9 ára o.y., 1 km:
1. Júlía Þrastardóttir 7,39
2. Brynja V. Guðmundsdóttir 7,43
3. Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir 8,03
Drengir 9-10 ára, 2 km:
1. Björn Blöndal 8,48
2. Jón Þór Guðmundsson 9,55
3. Einar Páll Egilsson 10,01
Stúlkur 10-12 árá, 2,5 km:
1. Arna Pálsdóttir 13,01
Drengir 10-12 ára, 2,5, km:
1. Baldur Ingvarsson 10,37
2. Rögnvaldur Björnsson 10,44
3. Grétar O. Kristinsson 11.00
4. Hans Hreinsson 11,12
5. Geir Egilsson 11,49
6. Hannes Árdal 12,42
ur í -71 kg flokki og Kristbjörn
Arngrímsson varð 3. í -78 kg
flokki átti KA 2 efstu menn, þá
Friðrik Pálsson og Böðvar Þór
Kárason og Þorvaldur Blöndal
vann -86 kg flokkinn. Enginn
lagði í Vernharð Þorleifsson í
+86 kg flokki.
í fullorðinsflokki komu 3
íslandsmeistaratitlar norður yfir
heiðar. Rúnar Snæland vann -60
kg flokkinn og Max Jónsson varð
2. Árangur beggja er sérlega
glæsilegur og þess má geta að
Max er aðeins 16 ára gamall.
íslandsmeistari síðustu ára,
Höskuldur Einarsson varð 3.
Rúnar var mjög ánægður með
sigurinn. „Þetta er besti árangur
minn í karlaflokki og ég hef
stefnt að því lengi að vinna
Höskuld. Ég er því mjög ánægð-
ur.“
í -65 kg flokki var skarð fyrir
skyldi þar sem íslandsmeistari
síðustu þriggja ára, Baldur
Stefánsson KÁ, meiddist viku
fyrir mót og gat ekki verið með
og til að bæta gráu ofan á svart
meiddist Sævar Sigursteinsson t
undanrásum og sigurvegi varð
Vignir Stefánsson sem varð 2. í
U-21 árs. KA menn náðu ekki að
ógna Ármenninguum í -71 kg
flokki en í -78 kg flokki var aldrei
spurning með úrslit. Þar vann
Freyr Gauti 4. árið í röð og lagði
m.a. „þjóðsagnapersónuna“
Halldór Guðbjörnsson í undan-
úrslitum, en Halldór er nú 46 ára.
Þar með sýndi Freyr Gauti
endanlega hver er kóngurinn í
þessum flokki.
Guðlaugur Halldórsson KA
var yfirburðarmaður í -86 kg
flokki en einna mesta athygli
vakti frammistaða Þorvaldar
Blöndal KA sem náði 3. sæti en
hann varð Islandsmeistari í U-21
árs flokki. Þorvaldur er nýlega
byrjaður að æfa júdó og er eitt
mesta efni sem fram hefur komið
lengi. Bjarni Friðriksson og
Vernharð Þorleifsson glímdu til
úrslita í -95 kg flokki og Venni
skoraði snemma 5 stig. „Dómar-
arnir notuðu hvert tækifæri það
Vernharð Þorleifsson var þungur á
brún eftir að hafa verið dæmdur
ósigur gegn Bjarna Friðrikssyni.
sem eftir lifði glímunnar til að
dæma refsistig á Venna og þannig
náði Bjarni að jafna. Honum var
síðan dæmdur sigur út á að hafa
sótt meira. Við höfum skoðað
glímuna á myndbandi og teljum
að þetta sé tómt kjaftæði," eins
og Jón Óðinn Óðinsson orðaði
það. Vonbrigði Venna voru aug-
ljós og virtust sitja í honum í
keppni í opnum flokki þar sem
hann tapaði í undanúrslitum fyrir
Sigurði Bergmann, aftur á
dómaraúrskurði og náði 3. sæti.
Vernharð getur engu að síður
verið vel sáttur við sinn hlut en
hans tími er greinilega kominn.
Með þessum árangri náðu 3
I Lundarskóla í Öxarfirði hefur
um árabil verið mikill blakáhugi
og lið stúlkna og pilta náð góðum
árangri. Þjálfari er Halldór
Gunnarsson skólastjóri og
íþróttakennari. Blaklið UNÞ 3.
fl. karla er að mestu skipað leik-
mönnum úr Lundarskóla, en
einn er frá Raufarhöfn og annar
frá Húsavík.
í fyrstu umferð yngri flokka
íslandsmótsins sem fram fór á
Akureyri í nóvember vann liðið
alla sína leiki 2:0. í annarri og
þriðju umferð, sem fram fóru á
KA-menn að tryggja sér sæti á
Smáþjóðaleikunum sem verða
síðast í næsta mánuði. Þangað
munu Rúnar Snæland, Freyr
Gauti og Guðlaugur Halldórsson
fara ásamt þremur öðrum og því
á KA helminginn af landsliðinu.
Jón Óðinn sagðist þrátt fyrir ýmis
áföll vera mjög ánægður með
mótið. „Þarna kom í ljós miklu
meiri breidd hjá okkur í fullorð-
insflokki og líka í U-21. Strákar
sem voru að keppa í fyrsta skipti
unnu bæði til brons og silfurverð-
luna. Má þar t.d. benda á Böðvar
Þór Kárason í -78 kg flokki og
fleiri mætti nefna. Breiddin er
því orðin miklu meiri." SV/HA
Neskaupstað og Húsavík, voru
liðsmenn illa haldnir af flensu og
skiluðu árangri eftir því. En á
fjórða og síðasta blakmótinu sem
haldið var í Garðabæ 5. og 6.
apríl spilaði liðið sjö leiki og
vann alla 2:0, þar á meðal
íslandsmeistarana, Þrótt Nes-
kaupstað.
Davíð Búi Halldórsson UNÞ
var valinn besti leikmaður móts-
ins í 3. fl. og jafnframt besti blak-
spilari í 3. fl. á íslandsmótinu í
vetur.
Guðlaugur Halldórsson mætti sterkur til leiks í -86 kg flokki og krækti í ís-
Iandsmeistaratitilinn.
Akureyrarmót í skíðagöngu
Freyr Gauti vann öruggan sigur í -78 kg flokki og hreinlega jarðaði andstæð-
inga sína.
Lundarskóli í Öxarfirði:
Blaklið UNÞ vann alla
leitó á Garðabæjarmótinu