Dagur - 20.04.1993, Blaðsíða 16
Prentum myndina þína á bol
^Pedi'omyndir?
Skipagata 16 • 600 Akureyri • Sími 96 - 23520
Akureyri:
Töluvert um skemmdarverk
Nokkuð bar á ölvun og
skemmdarverkum á Akureyri
um helgina. Skemmdir voru
unnar á ökutækjum og lausleg-
um munum og kæra barst
vegna þess að föt rifnuðu í
slagsmálum.
Tilkynnt var urn skemmdir á
vörulyftara við Stefnishúsið á
föstudag og aðfaranótt laugar-
dags voru ungmenni staðin að því
að brjóta ljós í húsagarði.
Þá var ljóskösturum stolið af
bifreið sem stóð á bílastæði við
Akureyrarflugvöll. Lögreglan
yfirheyrði menn sem voru grun-
aðir um verknaðinn en þeir neit-
uðu sakargiftum. Ljóskastararnir
fundust brotnir utan vegar við
Drottningarbraut. Að sögn lög-
regluvarðstjóra hefur töluvert
borið á því að átt sé við bíla á
flugvellinum og þá aðallega í því,
skyni að stela bensíni.
Aðfaranótt laugardags var
einnig brotin framrúða í bíl og
vélarhlíf dælduð. Ekki er vitað
hverjir voru þar að verki. SS
Sigluflarðarvegur:
Slitlag á 4 km
kafla í sumar
Eftir nokkra daga mun Vega-
gerð ríkisins bjóða út lagningu
slitlags á 4 km kafla á Siglu-
Qarðarvegi, frá Sauðanesi og
inn að Mánárskriðum.
Bæjaryfirvöld á Siglufirði hafa
lengi lagt ríka áherslu á við þing-
menn Norðurlands vestra að ráð-
ist yrði í endurbætur á Siglufjarð-
arvegi. Samkvæmt vegaáætlun
átti ekki að fara í þessa vegagerð
Skagafjörður:
Banaslys á Sauð-
árkróksbraut
- tvítug stúlka lést
Banaslys varð í Skagafirði
aðfaranótt laugardags. Bíll
fór út af Sauðárkróksbraut
og valt og einn farþeganna,
stúlka um tvítugt, kastaðist
út með þeim afleiðingum að
hún lést. Þrír aðrir voru í
bílnum og sluppu þeir
ómeiddir að mestu. Bíllinn
er gjörónýtur.
Slysið var tilkynnt til lög-
reglu á fimmta tímanum
aðfaranótt laugardags. Ung-
mennin voru á leið frá Varma-
hlíð til Sauðárkróks þegar bíll-
inn fór út af veginum á móts
við bæinn Marbæli. Stúlkan
kastaðist út úr bílnum og er
talið að hún hafi látist sam-
stundis. Aðeins einn af fjórum
var í bílbelti. Telur lögregla
líkur á að um hraðakstur hafi
verið að ræða, en litlar líkur
eru taldar á ölvunarakstri.
Stúlkan sem lést hét Hrafn-
hildur Jónsdóttir. Hún var
tvítug að aldri, til heimilis á
Sauðárkróki, en stundaði nám
á Akureyri. sþ
VEÐRIÐ
í dag verður vætusamt um
austanvert landið og fremur
svalt og sömuleiðis á morgun,
samkvæmt spá Veðurstofunn-
ar. Og sumarið ætlar ekki að
byrja mjög vel. Á fimmtudag-
inn verður 1-3 stiga hiti á
Norðaustur- og Austurlandi og
úrkoma. Á föstudag er síðan
gert ráð fyrir nokkuð hvassri
norðaustan átt, takk fyrir.
fyrr en árið 1995, en ákveðið var
að flýta henni um tvö ár.
Fyrst og fremst er um að ræða
lagningu slitlags, en á sumum
stöðum þarf einnig að styrkja
veginn, t.d. í Úlfsdölum um
Máná.
Þessi 4 km langi kafli er aðeins
fyrsti áfangi í endurbótum á
Siglufjarðarvegi inn að Lamba-
nesreykjum. Jónas Snæbjörns-
son, umdæmisverkfræðingur hjá
Vegagerð ríkisins, segir ekki ljóst
hvenær framkvæmdum við þenn-
an veg verði fram haldið, en sam-
kvæmt vegaáætlun, sem þessa
dagana er að potast í gegnum
Alþingi, er gert ráð fyrir að árið
1995 verði þráðurinn tekinn upp
þar sem frá verður horfið í haust.
óþh
Strákarnir í 3. og 4. flokki KA í handknattlcik ásamt þjálfurunum Arna Stcfánssyni og Jóhanni Bjarnasyni komu
heim með gullið. Þeir urðu íslandsmeistarar líkt og drengirnir í 5. flokki. Það er því bjart framundan hjá KA-
mönnum. Mynd: HA
Glæsilegur árangur í júdó og handbolta:
11 Íslandsmeístaratitlar til KA
- 9 titlar í júdó og 2 í handbolta
Síðastliðin helgi var svo sann-
arlega helgi KA-manna. ís-
landsmótið í júdó var haldið í
íþróttahúsinu við Austurberg
og þar náðust 9 Islandsmeist-1
aratitlar í höfn, fleiri en
nokkru sinni fyrr. Einnig fór
fram úrslitakeppni yngri
flokka í handknattleik og þar
náðu KA menn í 2 íslands-
meistaratitla, í 3. og 4. flokki
stráka og bættust þeir við
íslandsmeistaratitil 5. flokks
sem vannst fyrir hálfum mán-
uði.
Árangur KA í handboltanum
er afrek sem fróðir menn telja að
ekkert félag hafi leikið eftir áður
og ekki líklegt að verði endurtek-
ið í bráð. Það þarf vissulega
margt að ganga upp ef svo glæsi-
iegur árangur á að nást en hér er
þó ekki um neina tilviljun að
ræða. íslandsmeistaraflokkar
félagsins eru einfaldlega þeir
bestu á landinu.
Leiðin á tindinn hefur verið erfið
og leikmenn lagt á sig mikið erfiði
við æfingar og keppnisferðir. Að
baki þessum árangri liggja þrot-
. lausar æfingar og margir eru á því
lað þjálfunin sé einmitt það atriði
sem fleytt hefur KA alla þessa
leið. Auk þeirra flokka sem urðu
meistarar var árangur 2. flokks
eftirtektarverður, en þar höfn-
uðu strákarnir í 4. sæti íslands-
mótsins eftir harða keppni. HA
Sjá allt um íþróttir helgarinnar á
bls. 7-10.
Lyftistöng fyrir Háskólann á Akureyri:
Fær að ráða prófessor í öldrunarhjúkrun
- fyrsta prófessorsstaðan í hjúkrunarfræði á landinu
Menntamálaráðuneytið hefur
veitt Háskólanum á Akureyri
heimild til að auglýsa stöðu
prófessors í öldrunarhjúkrun
lausa til umsóknar. Þetta verð-
ur fyrsta prófcssorsstaðan í
hjúkrunarfræði hér á landi og
því mikil lyftistöng fyrir
Háskólann á Akureyri og öldr-
unarhjúkrunina yfirhöfuð.
Heimildin barst síðastliðinn
föstudag og að sögn Sigríðar
Halldórsdóttur, forstöðu-
manns Heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri, ríkir
mikil gleði í skólanum.
„Þetta breytir mjög miklu,
bæði fyrir nemendur og kennara í
heilbrigðisdeildinni en ekki síður
fyrir öldrunarþjónustu í landinu.
Við munura leyfa Háskóla ís-
lands að njóta góðs af prófessom-
um og þetta mun hafa mikið gildi
fyrir rannsóknir á þessu sviði hér
á landi,“ sagði Sigríður.
Hún sagði að öldrunarþjónust-
an hefði verið hálfgert olnboga-
barn í íslenskri heilbrigðisþjón-
Nýr vegur í Bólstaðarhlíðarbrekku
- frestur til að gera athugasemdir rennur út 14. maí
Jónas Snæbjömsson, umdæmis-
verkfræðingur Vegagerðarinn-
ar á Sauðárkróki, segir óvíst
hvenær hægt verði að bjóða út
gerð nýs vegar í Bólstaðarhlíð-
arbrekku í Húnaþingi. Þessa
dagana hangir uppi á skrifstofu
Bólstaðarhlíðarhrepps í Húna-
veri tillaga Vegagerðarinnar
um lagningu vegarins og er
óskað eftir athugasemdum, ef
einhverjar eru, við hana.
Frestur til að skila athuga-
semdum til sveitarstjórnar Ból-
staðarhlíðarhrepps rennur út 14.
maí nk. Að þeim tíma liðnum
mun sveitarstjórn fara yfir þær og
skila síðan sinni álitsgerð til
Skipulags ríkisins. „Við eigum
því í fyrsta lagi von á því að
niðurstaða liggi fyrir í júní,“
sagði Jónas. Þá á eftir að bjóða
verkið út og því þykir ljóst að
það verk þokast lítt áleiðs á þessu
ári, sem aftur þýðir að væntan-
lega verður þessi kafli sá síðasti
án slitlags á leiðinni Akureyri-
Reykjavík.
Jónas segir að ekki sé ágrein-
ingur um legu vegarins í sjálfri
Bólstaðarhlíðarbrekkunni, sem
verður um 2,5 km langur, en
gert er ráð fyrir að halli hans,
verði um 6,5%. Skiptar skoðanir
séu hins vegar um legu nýs vegar
skammt frá Húnaveri og afleggj-
ara af honum inn í Svartárdal.
Samkvæmt tillögu Vegagerðar-
innar mun vegurinn liggja fyrir
ofan fjárrétt, sem þarna er, en
margir heimamenn telja það
óásættanlegt og vilja veginn nið-
ur fyrir réttina. Jónas segir að
verði tillaga heimamanna ofan á
sé óhjákvæmilegt að vegurinn í
sjálfri Bólstaðarhlíðarbrekkunni
verði um hálfu prósenti brattari,
en það vilji vegagerðarmenn
forðast.
Ef Skipulagsstjórn ríkisins og
sveitarstjórn Bólstaðarhlíðar-
hrepps komast ekki að sömu
niðurstöðu liggur fyrir að Eiður
Guðnason, umhverfisráðherra, á
síðasta orðið. óþh
ustu. Hins vegar væru íslending-
ar sífellt að verða eldri og því
væri aukin þörf fyrir sérmenntun
á þessu sviði innan hjúkrunar-
fræðinnar.
„Við erum að fara yfir það
núna hvernig við eigum að standa
að því að auglýsa stöðuna. Við
munum fara fram á það við ráðu-
neytið að fá að auglýsa hana ekki
aðeins hér á landi heldur líka á
Norðurlöndunum og í Norður-
Ameríku, enda erum við að
sækjast eftir manneskju sem hef-
ur djúpt innsæi í sambandi við
rannsóknir, þekkir vel til öldrun-
arhjúkrunar og er góður kennari.
Þess vegna gætum við þurft að
leita út fyrir landsteinana,“ sagði
Sigríður.
Að hennar mati þarf að leggja
áherslu á hvað hægt er að gera
fyrir gamla fólkið til að bæta lífi
við árin, ekki bara árum við lífið,
og fær sérfræðingur í öldrunar-
hjúkrun með víðtæka reynslu
gæti breytt miklu fyrir öldrunar-
þjónustu hér á landi.
1 Heimildin er gefin frá og með
næsta hausti en Sigríður var ekki
viss um hvort tækist að manna
stöðuna svo fljótt en þá yrði
stefnt að því að ráða í stöðu
prófessors frá næstu áramótum.
SS