Dagur - 06.05.1993, Page 5

Dagur - 06.05.1993, Page 5
Fimmtudagur 6. maí 1993 - DAGUR - 5 Fréttir Er Evrópubandalagíð að útbreiða búfjársjúkdóma? - Sigurður Sigurðarson, rannsóknarlæknir í húsdýrasjúkdómum á Keldum telur okkur í verulegri hættu taki EES-samningurinn gildi Samkvæmt núgildandi reglum er bannað að flytja lifandi bú- fénað hingað til lands og hefur svo verið um langan tíma. Með gildistöku samningsins um Evr- ópska efnahagssvæðið kunna að verða breytingar í þessu efni. Samkvæmt samningnum hvílir sönnunarbyrði á hverju því landi sem vill varast smithættu- legan innflutning fyrir búfé. ís- land verður því á eigin kostnað að sanna með rannsóknum á sýnum úr búfé, að hér séu engir smitsjúkdómar sem hættulegir eru í öðrum löndum, jafnvel þótt sjúkdómanna hafl ekki orð- ið vart hér á landi svo þekkt sé frá því sögur hófust. Þetta sagði Sigurður Sigurðarson, rann- sóknarlæknir í húsdýrasjúk- dómum á Keldum, í samtali við Dag. Sigurður kvaðst telja skyldu sína að greina frá þeim upplýsing- um sem hann hafi fengið um gang mála varðandi samninga einstakra ríkja við Evrópubandalagið um takmarkanir á innflutningi búfjár. Hann kvaöst nýlega hafa sótt ráð- stefnu um dýrasjúkdóma sem haldin var í Lettlandi og meðal annars flutt þar erindi um 50 ára baráttu Islendinga við að uppræta smitsjúkdóma er hingað bárust vegna þess að slakað var á reglum um innflutning í von um hagnað. Hann sagði að sá árangur, sem við höfum náð á þessu sviði þyki ntjög athyglisveróur erlendis og fræðimenn hafi meðal annars dvalið hér til að kynna sér aðferðir okkar. Á ráðstefnunni kvaðst Sigurður hafa átt tal við nokkra starfsbræð- ur sína. I máli dönsku dýralækn- anna hafi komið fram gremja þeirra vegna hins mikla skrifræðis er þeir þyrftu að glíma við í þess- um málum. Þeir sögðu að Danir byggju nú við betra heilsufar bú- fjár en flest önnur ríki Evrópu- bandalagsins og vildu því eðlilega verjast sjúkdómum sem þar séu til staðar en Danmörk er laus við. „Mér var tjáð aó Danir hafi sótt um leyfi til að verjast fleiri sjúk- dómum en þeim er skæðastir eru og óumdeilt að verjast megi með innflutningsbanni. Eftir langt samningaþóf um marga sjúkdóma hafi niðurstaðan orðið sú að þeir fengu samþykkt að verjast tveim- ur sjúkdómum í þessu sambandi; annars vegar skaðlegum veiru- sjúkdómi, sem leggst á öndunar- og kynfæri nautgripa og hins veg- ar veirukláða í svínum," sagói Sigurður Sigurðarson og kvaðst telja furðulegt að semja þyrfti með eftirgangsmunum um hvaða smit- sjúkdómum megi verjast. Hann kvaóst einnig hafa rætt við Svía, en þeir hafi sótt um að mega verj- ast 20 smitsjúkdómum. Þeir hafi haft sömu sögu að segja og Danir, að eftir strangt samningaþóf hafi þeir fengið sömu niðurstöðu - að aðeins mætti verjast tveimur bú- fjársjúkdómum með sama hætti. Sigurður sagði að Norðmenn heföu harðari afstöðu gagnvart innflutningi búfjár og hefóu sett 30 sjúkdóma á þann lista er þeir kröfóust aö fá að verjast. Nú sé að renna upp fyrir þeim að engir samningar muni nást aðrir en þeir sem Danir og Svíar hafi orðiö að gera sér að góðu. Islendingar eiga aó hefja samn- inga við Evrópubandalagið um vamir gegn búfjársjúkdómum árið 1995. Sigurður Sigurðarson segir að við. séum vanbúnir að mæta þessari hættu, bæði hvað varðar tæki, uppbyggingu á aðstöðu og þjálfaðan mannafla. ÞI Kammerhljómsveit Akureyrar: Lokatónleikar í Akur- eyrarkirkju á suunudag Kammerhljómsveit Akureyrar heldur tónleika í Akureyrar- kirkju næstkomandi sunnudag kl. 17.00. Með tónleikunum lýk- ur sveitin starfsári sínu að þessu sinni, en hún hefur nú starfað í fimm ár og haldið 26 tónleika. Á efnisskrá tónleikanna er m.a. sálumessan „Requiem“ eftir franska tónskáldið Gabriel Fauré, sem sveitin flytur ásamt Kór Akureyrarkirkju og ein- söngvurunum Margréti Bóas- dóttur og Michael Jóni Clarke. Tónleikarnir verða lokaatriði á Kirkjulistaviku sem nú stendur yfir í Akureyrarkirkju. Stjórn- andi á tónleikunum verður Guðmundur Oli Gunnarsson. Auk sálumessunnar verða flutt Vorsýning Stóðhesta- stöðvarinnar að Gunnarsholti Árleg vorsýning Stóðhestastöðvar ríkisins aö Gunnarsholti á Rangár- völlum fer fram laugardaginn 8. maí nk. og hefst kl. 14.00. Á sýn- ingunni verða sýndir í reið þeir 26 stóðhestar tjögurra og fímm vetra gamlir sem hafa verið í tamningu og þjálfun í vetur. I fréttatilkynn- ingu kemur fram að hrossaræktar- ráðunautarnir, Þorkell Bjarnason og Kristinn Hugason, munu lýsa sýningunni á útvarpsrás, sem er þeim til hægðarauka er vilja horfa á sýninguna úr bifreiðum sínum. oj verkin Prélude et Mélisande, sem einnig er eftir Gabriel Fauré, og Barnaleikir ,Jeux D enfants“ eftir franska tónskáld- ið Georges Bizet. Kammerhljómsveit Akureyrar er að jafnaði skipuó um 30 hljóð- færaleikurum en flestir hafa þeir verið 50. Sveitin starfar í nánum tengslum við Tónlistarskólann á Akureyri og hefur einkum leikið klassísk og rómantísk verk, en á síðastliðnu vori efndi hún til hljómleika með nútímaverkum á fyrstu íslensku píanóhátíðinni. Á þessu ári hefur Kammerhljóm- sveitin tekið þátt í skosk-íslensk- um menningardögum á Myrkum músíkdögum. Stjómendur sveitar- innar hafa ýmist verið heimamenn eða sóttir lengra að, en aðalstjóm- andi hennar nú er Guömundur Oli Gunnarsson, skólastjóri Tónlistar- skólans á Akureyri. ÞI Nýr veghefíll til Sauðárkróks Ingvar Helgason hf. afhenti Vegagerð ríksins nýlega fyrstu vegheflana sem keyptir hafa verið. Þetta cru tveir Dresser vcgheflar frá Galion Ohio í Bandaríkjunum, en Ingvar Helgason hf. er nú með umboð fyrir Dresser þungavinnuvélar. Þessir vegheflar eru mikil tæki sem vega um 15 tonn og cru vel útbúnir samkvæmt nútíma kröfum. Vél cr af Cummins gerð, 190 hestöfl og Rylind RW 12 H hliðarsnjótönnum. Þessir fyrstu tveir vegheflar verða staðscttir á Sauðárkróki og Hvolsvelli. Tilboð vikunnar eru: Borgarnes þurrkryddaðar grillsneiðar Verð áður 969 kr. Tilboðsverð 699 kr. kg Emmess ávaxtastangir 10 stk. í pakka Verð áður 251 kr. pr. pk. Tilboðsverð 149,- kr. pr. pk. Mónu lakkríspopp 8 stk. í pakka Verð áður 195 kr. pr. pk. Tilboðsverð 139,- kr. pr. pk. Mazola matarolía 950 ml Verð áður 296 kr Tilboðsverð 179 kr. Jonagold epli Verð áður 89 kr. kg Tilboðsverð 49,- kr. kg HAGKAUP Gæði • Úrval • Þjónusta

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.