Dagur


Dagur - 06.05.1993, Qupperneq 9

Dagur - 06.05.1993, Qupperneq 9
Fimmtudagur 6. maí 1993 - DAGUR - 9 Stéttarfélögin í Suður-Þingeyjarsýslu: Hátíðarsamkoma á Húsavík 1. maí Fjölmenni var við 1. maí hátíðar- höldin á Húsavík. Kári Arnór Kárason, formaður Verkalýðsfé- lags Húsavíkur og Alþýöusam- bands Norðurlands, setti samkom- una en aðalræðu dagsins flutti Sigurður Ingvarsson formaður Al- þýðusambands Austurlands. Lúðrasveit Tónlistarskólans lék er hátíðargestir gengu í salinn. Berg- þór Pálsson, mikið glæsimenni með góða rödd, söng við undirleik Þóru Fríðu Sæmundsdóttur og mikla hrifningu hátíðargesta. Flutt var atriði úr óperettunni Mikadó, sem Natalia Chow stjómaði og vakti söngurinn hrifningu. Natalia setti óperettuna á svið með söng- nemum sínum og fór sýningin fram daginn eftir. Þar kom fjöl- menni á sérlega skemmtilega nemendatónleika sem óvenju mik- ið var í lagt, en það eru hæfileika- miklir nemendur sem stunda söngnámið hjá Nataliu. Friðrik Steingrímsson hagyrð- ingur úr Mývatnssveit flutti nokkrar frábærar vísur og Jóhann- es Sigurjónsson, ritstjóri, sonar- sonur hins virta Jóhannesar, sem starfaði sem kennari á Húsavík, fór með gamanmál og fjallaði um þriðju kynslóðar vandann. Jó- hannes flutti í raun tvær ræður, fyrst eina og svo aðra, og var bara skemmtilegur. Að lokum var hátíðargestum boðin víðáttumikil terta frá Brauð- gerð KÞ með kaffinu. Smám sam- an léttist brúnin á launþegum, en hún var býsna þung á mörgum í upphafi samkomunnar. IM Fjölmenni var við hátíðarhöldin. Kári Arnór Kárason, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, tekur við borð- fána frá Sigurði Ingvarssyni, formanni Alþýðusambands Austurlands, en Sigurður var aðalræðumaður dagsins. Islenski stúlknahópurinn eftir sigur í „Group runaway“ fyrirsætukcppninni, sem fram fór á Waldorf Astoria hótel- inu í New York í síðasta mánuði Nýtt fyrirsætunámskeið að heQast í Dynheimum: Akureyrskar stúlkur á leið í fyrirsætustörf á Ítaiíu Flestum er í fersku minni glæsi- legur árangur íslensku kepp- endanna í módelkeppninni í New York í síðasta mánuði og þá kannski ekki síst þáttur ak- ureyrsku ungmennanna í þeim árangri. Áhugi á fyrirsætu- störfum er mikill og segir Kol- brún Aðalsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri íslenskra módel- mynda, sem hafði veg og vanda af kepnninni bæði hérlendis og erlendis, að árangur akureyrsku ungmennanna hafl vakiö mik- inn áhuga hér og því sé ákveðið að halda annað námskeið sem hefst í Dynheimum nk. fostu- dag kl. 20 en skráning hefst kl. 17 þann sama dag. Sérstaklega er nú sjónum beint að ungmennum sem búa utan Ak- ureyrar, en þeir sem verða valdir til áframhaldandi æfinga og síðan keppni munu fara til New York að ári til keppni, þannig aó hér er eftir verulega spennandi vcrkefni að slægjast. Með þeim sem stan- da fyrir námskeiðinu í Dynheim- um verður „make up artistant“ sem fylgir keppendum eftir og undirbýr þá fyrir myndatökur og „myndapósur". Þær Asdís Franklín og Elva Ei- ríksdóttir frá Akureyri ásamt fleiri stúlkum úr Reykjavík munu fara út til Mílanó á Italíu í byrjun næsta mánaðar eftir að skóla lýk- ur og m.a. munu þær ásamst fleiri íslenskum ungmennum ræða við fulltrúa ítalskra umboðsskrifstofa. Ásdís Franklín segir að þar bíði hennar líklega tveggja mánaða samningur við myndatökur o.fl. sem tengist fyrirsætustörfum. GG Natalia Chow, söngkennari, mætti með nemendur sína, sem sungu lag úr óperettunni Mikadó. Víðáttumikil terta frá Brauðgerð KÞ rann ljúflega niður um kverkar laun- besa. Myndir IM ER SKEMMTILEGIIR TÍMI FR\MIM)A\? Ekki nema í góðum télagsskap. Hringdu og prótaóu Símastefnumótið þar sem fjöldi fólks ó öllum aldri hefur fundió sér félaga. Þetta er spennandi og skemmtileg leiS til aó kynnast nýju fólki. Þetta er spennandi, þetta er rómantískt, þetta er öruggt. Mínútan kostar 39,90 kr. SÍMASTEF\LMÓT NORÐURLANDS 99/15/16 Teleworld ÚTSALA LOPI - BAND Teppi * Peysur ★ Jakkar Verksmiðjuverslun Gleráreyrum, sími 11167

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.