Dagur - 15.05.1993, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 15. maí 1993
Háskólinn á Akureyri.
HJÚKRUN:
Áfram veginn
Ráðstefna heilbrigðisdeildar Háskólans á Ak-
ureyri, 14.-15. júní 1993 í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju.
DAGSKRÁ:
Mánudaginn 14. júní.
Kl. 11.30 Afhending ráðstefnugagna hefst.
Kl. 13.00-13.05 Setning ráðstefnunnar. Sigríður Halldórsdóttir,
forstöðumaður heilbrigðisdeildar.
HJÚKRUN - SIÐFRÆÐI - GUÐFRÆÐI.
Kl. 13.05-14.00 Caring or Nursing Theology. (Umhyggja eða
hjúkrunarguðfræði.) Dr. Katie Eriksson, prófessor
við Ábo Akademi, Finnlandi.
Kl. 14.15-15.00 Hver á að ráða? - Forræðishyggja í umönnun og
lækningu. Dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson,
heimspekingur, sérfræðingur við Háskólann á Ak.
Kl. 15.00-15.30 Heilsuhlé.
HJÚKRUN - VÖLD - SAMFÉLAG.
Kl. 15.30-16.00 Mótun hjúkrunarstarfsins: Orðræða, völd og
athafnir. Dr. Kristin Björnsdóttir, hjúkrunarfræðing-
ur og iektor við Háskóla Islands.
Kl. 16.00-16.30 Völd, forræði og áhrif hjúkrunar innan heilbrigð-
iskerfisins. Magna Birnir, hjúkrunarfræðingur,
hjúkrunarforstjóri FSA. Kynning á lokaverkefni.
Kl. 16.30-17.00 Breytt samfélag - fjölskyldulff og félagstengsl.
Hermann Óskarsson, félagsfræðingur, lektor við
Háskólann á Akureyri.
Þriðjudaginn 15. júní.
KONUR - HEILBRIGÐI - FORVARNIR.
Kl. 09.00-09.30 Upplifun kvenna á umhyggju og umhyggjuleysi
í fæðingu. Sigfríður Inga Karlsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og Ijósmóðir, lektor við Háskólann á Akur-
eyri. Rannsóknarkynning.
Kl. 09.30-10.00 Heilbrigði kvenna. Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og lektor við Háskóla íslands.
Kl. 10.00-10.30 Heilsuhlé.
Kl. 10.30-11.00 Upplifun kvenna á því áð verða mæður á ungl-
ingsaldri og á stuðningi á þeim tíma. Elín Hanna
Jónsdóttir, Harpa Hrönn Zophanlasdóttir, Ragn-
heiður Ósk Erlendsdóttir, Sigrún L. Sigurðardóttir og
Þóra Ester Bragadóttir hjúkrunarfræðingar frá
Háskólanum á Akureyri. Rannsóknarkynning.
Kl. 11.00-11.30 Upplifun ungra kvenna á líkama sínum.
Margrét Árnadóttir, hjúkrunarfræðingur, lektor við
Háskólann á Akureyri. Rannsóknarkynning.
Kl. 11.30-13.30 Matarhlé.
ALNÆMI - HJÚKRUN - LÍKN.
Kl. 13.30-14.00 Að vera HlV-jákvæður á íslandi. Edda Baldurs-
dóttir, Emelía Bára Jónsdóttir, Emilia Petra Jó-
hannsdóttir, Hallveig Friðþjófsdóttir, Sigríður Ein-
arsdóttir og Sigrún Tryggvadóttir, hjúkrunarfræðing-
ar frá Háskólanum á Akureyri. Rannsóknarkynning.
Kl. 14.00-14.30 Upplifun aðstandenda alnæmissjúkra á atnæmi.
Gróa M. Þórðardóttir, Hugrún Ásta Halldórsdóttir,
Hulda Gestsdóttir, Inga Ingólfsdóttir og Sólveig
Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingar frá Háskólan-
um á Akureyri. Rannsóknarkynning.
Kl. 14.30-15.00 Heilsuhlé.
Kl. 15.00-15.30 Alnæmi og Ifknarmeðferð.
Hildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur.
Kl. 15.30-16.00 Að vera HlV-Jákvæður. NN.
Kl. 16.00 Ráðstefnuslit.
Skráning á ráðstefnuna er á skrifstofu heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri, sími 96-11770 alla virka daga fram til 4.
júní. Ráðstefnugjald er kr. 4.000,- fyrir báða daga en kr. 2.500,- fyrir
annan daginn og greiðist það við afhendingu ráðstefnugagna. í
tengslum við ráðstefnuna verður sýning á bókum og hjúkrunargögn-
um i salarkynnum Safnaðarheimilisins. Þar verður einnig listsýning á
verkum hjúkrunarfræðinga.
Verndari ráðstefnunnar er frú María Pétursdóttir.
Fréttir
Akureyri:
Bæjarráð
samþykkti
reglur um
torgsölu
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
á fundi sínum sl. fimmtudag
starfsreglur fyrir torgsölu í mið-
bæ Akureyrar í sumar.
„Þessar reglur eru mjög ein-
faldar. Viö ætlum aö heimila sölu
úr sölutjöldum á miðbæjarsvæð-
inu, ekki ósvipaö því sem hefur
verið í miöbænum fyrir jólin.
Teiknaðir hafa verið inn á mið-
bæjarskipulagið ákveðnir reitir
þar sem menn geta fengið að vera
með sölutjöld eins og þeim sýnist
alla daga vikunnar frá níu á
morgnana til sjö á kvöldin. Sölu-
aðilar þurfa ekki að sækja sér-
staklega um leyfi til torgsölu, þeir
mæta bara með sín sölutjöld og
setja þau upp án endurgjalds.
Hugmyndin er að gera þessa til-
raun á Ráóhústorgi og í göngu-
götunni," sagði Sigurður J. Sig-
urðsson, formaður bæjarráðs. Þá
sagði hann aó gert væri ráð fyrir
tveim pylsuvögnum á miðbæjar-
svæðinu, en sækja þyrfti um leyfi
fyrir þá og greiða leyfisgjald.
Vitað er um áhuga margra aðila
á torgsölu í miðbænum í sumar
og m.a. er hugmyndin að Bólu-
markaðurinn, sem verið hefur
starfræktur á laugardögum í vetur
í húsnæði við Eiðsvallagötu,
verði í sumar í sölutjöldum í mið-
bænum. óþh
Síðastliðinn flmmtudag afhjúpaði Halldór Blöndal, samgönguráðherra,
minnisvarða um landpósta að Stað í Hrútaflrði. Póst- og símamáiastjórnin
lét reisa varðann. Staður var um langt árabil stærsta póstmiðstöð í sveit á
íslandi. Þangað komu saman ekki færri en sex landpóstar um 15. hvers
mánaðar allt árið um kring. Þessir póstar voru: Sunnanpóstur, Akurcyr-
arpóstur, Stykkishólmspóstur, Króksfjarðarnesspóstur, Strandapóstur og
Núpsdalstungupóstur. Minnisvarðann gerði Grímur Marinó Steindórsson,
myndhöggvari, en smíði merkisins annaðist vélsmiðjan Orri og steinsmiðjan
S. Helgason. Mynd: ój
Aðalfundur Hagfélagsins hf. á Hvammstanga:
ígulkeravinnsla og hagkvæmni
hítaveitu í dreifbýli meðal verkefna
Hagfélagið hf. á Hvammstanga,
sem starfar sem eins konar at-
vinnuþróunarfélag í V.-Húna-
vatnssýslu, hélt aðalfund sinn
sl. fimmtudag. Félagið er í eigu
Héraðsnefndar V.-Húnvetninga,
atvinnulífsins og einstaklinga í
héraðinu ásamt Byggðastofnun.
Karl Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Hagfélagsins hf.,
segir að þrátt fyrir nokkurt at-
vinnuleysi í héraðinu hafi á
fundinum ríkt nokkur bjartsýni
um framtíðina í atvinnumálum
Allir vegir voru færir í Suður-
Þingeyjarsýslu á fóstudags-
Q HELGARVEÐRIÐ
Ekki er það gæfulegt. Veður-
stofan gerir ráð fyrir að norð-
an hretið standi allt fram á
þriðjudag. Horfurnar um helg-
ina og á mánudag hljóða upp
á allhvassa norðaustan og
norðan átt, snjókoma eða
slydda verður á Austfjöróum
og éljagangur á Norðurlandi
og Vestfjörðum. Búist er við
að hiti verði um eða undir
frostmarki um landið norðan-
vert og líklegt að færð spillist
á fjallvegum.
í héraðinu og í vændum er
ákveðin stefnumörkun, sem
snýr að beinni uppbyggingu
atvinnufyrirtækja, leit að mörk-
uðum og hvaða vörur væri hag-
kvæmast að selja.
Á Hvammstanga er unnið aó
því að koma upp ígulkeravinnslu
í samvinnu við Sauðkrækinga í
kringum útgerðir tveggja smærri
báta og liggur fyrir vilyrði um
húsnæði en vinnslan hefst ekki
fyrr en með haustinu. Gert er ráð
morgun, samkvæmt upplýsing-
um Vegagerðar ríkisins á Húsa-
vík. Veður var vont, snjóað
hafði í uppsveitum og slydda
var við ströndina. Það gránaði
og hvítnaði í rót á túnum og
grasflötum. Víða var snjór í
„mið læri á lóunum,“ eins og
maðurinn sagði.
Ekki var ákveðið hvort mokað
yrði um helgina ef ófært gerði
vegna snjóa en svarað verður til
um færóina í símsvara.
Vegagerðarmenn voru byrjaðir
lagfæringar á vegum eftir vetur-
inn, en engar teljandi skemmdir
höfðu orðið í vatnavöxtum í leys-
ingunum í vor. IM
fyrir aö ígulkeravinnslan geti
skapaó a.m.k. 10 störf, aö vísu
nokkuð tímabundin og ræðst það
af því hvenær ígulkerin fara í
hrygningarlegt ástand. Hagfélagið
hefur undanfarna mánuði kannað
hagkvæmni þess að leggja hita-
veitur í dreifbýli og beinast þær
athuganir bæði að nýtingu heita
vatnsins við Reykjaskóla í Hrúta-
firði fyrir Staðarhrepp og jafnvel
víðar og einnig að frekari nýtingu
á hitaveitunni aó Laugarbakka
með lagningu inn Miðfjörð í huga.
Hér er um 20 bæi að ræða á hvor-
um stað en ljóst að þessar fram-
kvæmdir mega ekki kosta of mik-
ið því rafmagn til húshitunnar er
niðurgreitt. Húnvetningar horfa
m.a. til hitaveitunnar í Borgarfirði,
sem byggist fullt eins mikið á
annarri nýtingu á heita vatninu á
jörðunum en til húsahitunar.
Ljóst þykir að V.-Húnavatns-
sýsla mun lenda í verulegri
kreppu þegar samdrátturinn í
sauðfjárræktinni kemur til fullra
framkvæmda og er því í auknum
mæli horft til annarra hlunninda
eins og silungsveiði, ekki síst í
vötnum, og í framhaldi af því
fiskeldi og er þá bleikjueldi fyrst á
dagskrá.
Hagfélagið hefur tekið að sér
ákveðna vinnu fyrir Stranda-
menn, sem felst í skoðun á mögu-
leikum á aukinni vinnu til sveita
en verkefninu á að ljúka um
næstu áramót. Allt að 90% af tekj-
um bænda þar er af sauðfjárrækt-
inni. Stjómarformaður Hagfélags-
ins hf. er Bjami Þór Einarsson,
sveitarstjóri á Hvammstanga. GG
Suður-Þingeyj arsýsla:
Allir vegir færir
- „en snjór í mið læri á lóunum“