Dagur - 15.05.1993, Page 23
Laugardagur 15. maí 1993 - DAGUR - 23
í UPPÁHALDI
„Væri gaman að eiga Viking Brugg“
- segir Þórhallur Hinriksson
Þórhallur Hinriksson
er cinn af hinum
ungu og efnilegu
kpattspyrnumönn-
um sem munu
skipa meistaraflokk KA í 2.
deildinni í sumar, reyndar í
bland viö nokkra gamla refi.
Þórhallur er 16 ára gamall og
hefur spilað með íslenska
drengjalandsliðinu, U-16, og
hann skoraði mark með liðinu
á móti Norður-írum á dögun-
um. Hann á ckki langt að
sækja hæfileikana en faðir
hans er Hinrik Þórhallsson,
gamalkunnur bragðarefur á
knattspyrnusviðinu. En nú
ætlar drengurinn að sýna
brögð sín í yfirhcyrslunni okk-
ar léttvægu.
Hvaðgerírðu helst ífrístundum?
„Ég þýði hebreskar bókmennt-
ir yfir á íslensku. Þetta vanda-
sama starf tckur megnið af
mínum frístundum.“
Hvaða matur cr í niestu uppálialdi
lijá þér?
„Kjarnafæðishangikjötið,
hvemig spyrðu?“
Uppáhaldsdrykkur?
„Blanda.“
Þórhallur Hinrlksson.
Ertu hamhleypa til allra verka á
heim'Hinu?
„Að sjálfsögðu." (Blm. á eftir
að fá þetta staðfest).
Spáirðu mikið í heilsusamlegt líf-
emi?
„Já, já.“
Hvaða blöð og tímarit kaupirðu?
„Prjónablaðið Tinnu og auð-
vitað Dag.“
Hvaða bók erá náttborðinu hjá
þér?
„Heljarslóðarorrusta
Bcnedikt Gröndal.“
eftir
Hvaða hljómsveit/tónlistarmaður
er í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Bandaríska hljómsveitin
REM.“
Uppálialdsíþróttamaður?
„Jordan er alltaf ágætur."
Hvað horfirðu helst á í sjórtvarpi?
„Sintpson-fjölskylduna."
A hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mestálit?
„ítölsku Ijóskunni Chicciol-
inu.“
Hvar á landinu vildirðu helst búa
fyrír utan heimahagana?
„I Reykjavík.“
Hvaða hlut eða fasteign langar þig
mest til að eignast um þessar
mundir?
„Það væri gaman að eiga Vik-
ing Brugg bjórverksmiðjuna."
Hvernig hyggstu verja sumarleyf-
inu?
„Vinna í Kjamafæði og spila
fótbolta."
Hvað cetlarðu aðgera um helgina?
„Liggja í leti.“
SS
Efst íhuga
Kristján Kristjánsson
Sumaríð er minn
uppáhalds árstími
Vorið er komið og erfiður vetur að baki.
Skammdegið er sá tími sem fer hvað
mest í taugarnar á mér. Veðrið oftast
frekar leiðinlegt og maður spyr sig hvað
eftir annað yfir köldustu mánuði ársins,
af hverju maður er ekki löngu fluttur
sunnar á jarðarkringluna. En eins og
jafnan áður, vorar á ný og í framhaldi af
því kemur §umar, sem er einmitt sá tími
sem ég held mest upp á, eins og margir
fleiri. Þótt ég þykist nokkuð góður með
að geta stundað mína vinnu innandyra,
ekki síst yfir vetrartímann, er ekki laust
við að ég öfundi þá sem eiga þess kost
að vinna úti við yfir sumartímann. Það
getur oft verið erfitt að halda sér að
verki þegar sólin skín hvað skærast og
hitinn á skrifstofunni ætlar mann lifandi
að drepa. En það er ekki á allt kosið og
það verður hver og einn að taka því sem
að höndum ber.
Ein er sú stétt manna sem getur haft
þetta nákvæmlega eins og ég gæti hugs-
að mér sjálfur en það eru alþingismenn-
irnir okkar. Davíð forsætisráðherra sendi
þá heim í sumarfrí um sl. helgi og þeir
geta því notið þess að dvelja heima í
héraði fram á haust og þá ráðið því
hvort þeir eru útivið á góðviðrisdögum
eða ekki. Ég ætti kannski að fara að skrá
mig í einhvern stjórnmálaflokk og setja
stefnuna á Alþingi.
íslandsmótinu í handknattleik er lokið
með glæsilegum sigri Valsmanna, sem
hirtu alla þá fjóra bikara sem þeir áttu
möguleika á. Framundan er íslandsmót-
ið í knattspyrnu og er ég einn þeirra fjöl-
mörgu sem bíð spenntur eftir því að
komast á völlinn. Þór Akureyri er eina fé-
lagið á Norðurlandi sem á lið í 1. deild
karla að þessu sinni. Þór náði áætum ár-
angri á síðasta keppnistímabili, án þess
þó að það hafi skilað miklu, þar sem Evr-
ópusætið rann úr greipum þess á loka-
sprettinum. En eins og maðurinn sagði,
„það gengur bara betur næst." Þór varð
Islandsmeistari innanhúss í vetur og lið-
ið hefur alla burði til þess að vinna titil-
inn í sumar líka. - Og ekki væri verra að
fá Mjólkurbikarinn norður líka.
Þó ég hafi trú á að liðið geti gert góða
hluti, er það ekki nóg, leikmennirnir
sjálfir verða einnig að trúa því. En sum-
arið er komið, þó það sjáist ekki á hita-
mælunum ennþá og vonandi leika veð-
urguðirnir við okkur Norðlendinga
næstu mánuði.
Tímaritið Þroska-
hjálp komið út
Tímaritið Þorskahjálp, fyrsta
tölublað fimmtánda árgangs, er
komið út. Að venju eru fjöl-
margar áhugaverðar greinar í
ritinu.
Sjöfn Guómundsdóttir og Hall-
gerður Gísladóttir, sem báðar eru
rnæður einhverfa bama, rita grein
sem þær kalla Einhverfu og fag-
fólk. Þar er leitast við að skil-
greina cinhverfu og rætt um við-
horf samfélagsins til einhverfra og
foreldra þeirra fyrr og nú.
Sagt er frá tilurð og starfscmi
Listasmiðju í sambýlinu aö
Stuðlaseli 2 í Reykjavík og greint
frá myndlistarsýningu sem þar var
haldin nýlega.
Rannveig Traustadóttir
sérfóstra hjá Greiningar- og ráó-
gjafastöö ríkisins greinir frá nýj-
um bókum fyrir blind börn á for-
skólaaldri.
Gunnar Þormar, tannlæknir og
stjórnarmaður í húsbyggingarsjóði
Landssamtakanna Þroskahjálpar,
segir frá nýbyggingu Félagsmála-
ráðuneytisins að Hólabergi 86 í
Reykjavík og bendir á að „rauna-
legt sé til þess að vita aó ennþá
skuli stuðst við löngu úrelta hug-
myndafræði þegar byggt er hús-
næði fyrir fatlaða hér á landi“.
Sagt er frá þeim tímamótum
þegar þroskaheftir fengu orðið á
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna í fyrsta skipti og fyrsta ræða
þroskahefts einstaklings þar birt í
heild sinni ásamt ávarpi forseta
Alþjóðasamtaka þroskaheftra.
Jan Agnar Ingimundarson
minnist í grein sinni á nokkra
frumherja í uppbyggingarstarfinu
á Sólheimum, greinir frá starfi
þeirra og lífshlaupi.
Guðrún Agústa Guðmundsdótt-
ir bókmenntafræóingur á sérstak-
lega áhugaverða grein í tímaritinu
sem hún kýs að nel'na Fötlun, bók-
menntir og samfélag og fjallar þar
um ímyndir fatlaðra í bókmennt-
um.
Þá eru í ritinu pistlar frá Um-
ræðuhópum Þroskahjálpar og frí-
stundanefnd samtakanna auk þess
sem greint er frá starfi Landssam-
takanna Þroskahjálpar síðustu
misserin.
Tímaritið Þroskahjálp er gefið
út af Landssamtökunum Þroska-
hjálp. Ritstjóri er Bjöm Hróars-
son.
Ðújörð til sölu!
Til sölu bújörð í 26 km fjarlægð frá Akureyri.
Jörðin er vel sett með kvóta og landmikil.
Upplýsingar á kvöldin í síma 96-26758 eða 96-12093.
Bólumarkaður
Nú er rétt aö bregöa sér á Bólumarkaöinn,
bæÖi til aö skoöa og kaupa varninginn,
ganga á milli boröanna og góssiö líta á,
en geysi marga vöruflokka þarna líta má.
Bólumarkaðurinn verður opinn laugardaginn
15. maí kl. 11.00-15.00, að Eiðsvallagötu 6.
Líttu inn, þú sérð ekki eftir því!
Almennt
kennaranám
KENNARA-
ISLANDS til B.Ed.-prófs
Umsóknarfrestur um þriggja ára almennt kennara-
nám við Kennaraháskóla íslands er til 5. júní nk.
Umsókn skal fylgja staðfest afrit af prófskírteinum og
meðmæli frá kennara eða vinnuveitanda. Inntöku-
skilyrði eru stúdentspróf eða önnur próf við lok fram-
haldsskólastigs, svo og náms- og starfsreynsla sem
tryggir jafngildan undirbúning. Stúdentsefni á vori
komanda, sem ekki hafa hlotið prófskírteini, láti
fylgja umsókninni staðfestingu viðkomandi fram-
haldsskóla um rétt þeirra til að þreyta lokapróf í vor.
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum
fást á skrifstofu skólans, Stakkahlíð, 105 Reykjavík,
sími 91-688700.
Rektor.