Dagur - 25.05.1993, Síða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 25. maí 1993
/^RFNy^ Rafvirkjaféíag NorðurGmds
Félagsfundur
Rafvirkjafélags Norðurlands
verður í Alþýðuhúsinu III. hæð, kl. 20.00 í kvöld.
1. Kjarasamningar.
2. 12. þing RSÍ.
3. Önnur mál.
Kaffi eftir fundinn.
Stjórnin.
Áburðar-
kaupendur
Frá og með 1. júní nk. verður Áburðarsala KEA
v/Glerárósa lokuð.
Opið verður fyrir afgreiðslu til bænda föstudagana 4.
og 11. júní.
Frá 1. júní verður smásala á áburði í Fóðurvöru-
deild KEA að Strandgötu 63, símar 30352 og
30350. Opið er frá kl. 8.00-12.15 og 12.45-16.00.
Kaupfélag Eyfirðinga
MENNTUN OG
GÆÐASTJÓRNUN
Ráðstefna haldin í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju og Hótel KEA á Akureyri 4. júní 1993
Dagskrá ráðstefnunnar:
08:30-09:15
09:15-09:25
09:25-09:45
09:45-10:45
10:45-11:15
11:15-11:45
11:45-12:15
12:15-12:35
12:35-13:50
13:50-16:50
13:50-15:00 A)
13:50-15:00 B)
13:50-15:00 C)
13:50-15:00 D)
15:20-16:30 E)
15:20-16:30 F)
15:20-16:30 G)
15:20-16:30 H)
16:30-16:50
16:50-17:50
17:50-18:15
Skráning
Ráðstefnan sett
Dr. Stefán G. Jónsson forstöðumaður rekstrar-
deildar Háskólans á Akureyri
Framtíðarsýn
Ásmundur Stefánsson framkvæmdastjóri rekstrar-
deildar og fjárfestingalána íslandsbanka
Þróun gæðastjórnunar
lan Hannah, Directorof Programmes, Scottish
Quality Management Centre, University of Stirling,
Skotlandi.
Kaffihlé
Menntun og viðhorf til þekkingar
Dr. Kristján Kristjánsson lektor við Háskólann á
Akureyri
Þörf fyrir menntun í gæðafræðum
Dr. Pétur Maack prófessor við Háskóla Islands
Gæðastjórnun og námsbraut Háskólans á Ak-
ureyri
Smári S. Sigurðsson lektor við Háskólann á Akur-
eyri
Matarhlé
Kynning á lokaverkefnum
Innleiðing gæðastjórnunar með Quality Function
Deployment (QFD) aðferðinni
Stefnumótun með aðferðum gæðastjórnunar
Lítil iðnfyrirtæki, ISO 9000 og krafa um vottun
Áhrif gæðastjórnunar á stjórnkerfi fyrirtækja
Gæðastjórnun í ferðaþjónustu
Sjö þrepa umbótaferli um borð í togurum
Innleiðsla gæðastjórnunar í byggingariðnaði
Umbótaverkefni í þjónustufyrirtækjum
Kaffihlé
Samstarf háskóla og fyrirtækja um þróun
gæðafræða
Dr. John G. Roche Director, Quality Assurance
Reserch Unit, University College Galway, Irlandi
Samantekt um efni ráðstefnunnar og umræður
Davíð Lúðvíksson formaður Gæðastjórnunarfé-
lags íslands
Ráðstefnugjald er kr. 9.500 á mann. Innifalið í því er
hádegisverður, kaffiveitingar og ráðstefnugögn
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Háskólans á Akur-
eyri í síma 96-11770
REKSTRARDEILD HÁSKÓLANS Á AKUREYRI
Tónlist
Sönggleði
15. maí var efnt til móts kóra
aldraðra í Akureyrarkirkju. Til
leiks voru mættir þrír kórar.
Kór Húsavíkur, Kór Egilsstaða
og Kór Akureyrar. Söngstjórar
í sömu röð eru Sigurður Sigur-
jónsson, Arni ísieifsson og Sig-
ríður Schiöth. Undirleikari með
Kór Húsavíkur var Björg Frið-
riksdóttir, en Guðjón Pálsson
lék undir með hinum tveim.
Hver kór flutti fjögur lög og
reið Kór Húsavíkur fyrstur á vað-
ið. Kórinn gerði almennt vel. Sér-
lega skemmtilega innilegt var lag-
ió Ljúfi aftanblærinn, lag eftir
Ahlström en ljóð í þýðingu Þ.
Gíslasonar, og skemmtilegur
hressileiki var í flutningi síðasta
lagsins: Við göngum svo léttir í
lundu, lag F. Körlings við ljóð
Freysteins Gunnarssonar. Kórinn
á það lítillega til að lækka á tón-
um, svo sem í laginu Töframynd
við Atlantsál eftir Sveinbjöm
Sveinbjömsson við ljóð eftir Frey-
stein Gunnarsson.
Næstur kom Kór Egilsstaóa.
Kórinn gerði nokkuð vel. Gott
„tempó“ náðist í Inn milli
fjallanna, finnskt lag við ljóð eftir
Guðmund Magnússon, og var það
skemmtilega fjörlegt. Kórinn á
þaó til að renna nokkuð á tóna og
af þeim og lýtir það flutning hans.
Kór Akureyrar rak lestina. Best
tókst honum flutningur laganna
Nú birtir yfir, lag og ljóð eftir Sig-
urö Sigurjónsson, sem flutt var
fjörlega og ákveðið, og Góða
tungl, þýskt þjóðlag við ljóð í
þýðingu Steingríms Thorsteins-
sonar, þar sem ljúft lagið naut sín
skemmtilega. Kórinn er fjölmenn-
ur og nær talsvert góðum hljómi
og þrótti, en nokkurs óróa vill
gæta svo sem í laginu Alparós og
Gleym mér ei.
Loks sameinuðust kóramir og
fluttu fimm lög vió undirleik Guð-
jóns Pálssonar. Söngstjóramir
skiptu stjóm laganna með sér.
Hinn sameinaði kór er verulegt
hljóðfæri og skilaði gjaman
skemmtilegum söng. Sem dæmi
má nefna lögin Island, Island, ég
vil syngja eftir Sigurð Þórðarson
við ljóð Huldu, sem Sigríður Schi-
öth stjómaði, Blærinn í laufi eftir
S. Foster við ljóð Jóns frá Ljár-
skógum undir stjóm Ama Isleifs-
sonar og Island ögrum skorió eftir
Sigvalda Kaldalóns við ljóð Egg-
erts Olafssonar, sem stjómað var
af Sigurði Sigurjónssyni. I öllum
þessum lögum náðist góður
hljómur, jafnvægi og hlýja.
Sagt er, aó sönglistin veki gleói
í hjarta og funa í sál. Svo var að
sjá að rétt sé, ef marka má tón-
leika kóra aldraðra 15. maí í Ak-
ureyrarkirkju. Aldurinn virtist
ekki ýkja mikið há hinum fjöl-
Kaupfélag Eyfirðinga stendur
þessa dagana fyrir átaki sem kall-
ast „Garðurinn og grillið.“ Þetta
átak er aðallega hugsað til þess að
minna okkur á að sumarið er kom-
ió og það er ýmislegt skemmtilegt
sem því tengist, eins og bæði
garóurinn og grillið.
Fjölmargar uppákomur og
kynningar frá ýmsum framleið-
endum verða í verslunum KEA í
tilefni þessa átaks. Þar verða
kynntar vörur sem tengjast sumar-
komunni, eins og garó- og sólhús-
gögn, hleðslusteinar og ýmsar
gerðir af hellusteinum, blóm og
plöntur og margt fleira.
Einnig verður grillað og grill-
kjötió kynnt, því það er nauðsyn-
legur þáttur á sólríkum sumardög-
um. Kynningar verða í matvöru-
verslunum KEA og átakinu lýkur
þann 29. maí, þegar vígð verður
útiaðstaða við Byggingavörudeild
KEA. Þar verða til sýnis garðhús-
mörgu kórfélögum, sem þar komu
fram. Reyndar er ekki unnt að
neita því, að nokkuð skorti á hinn
heiða tón ekki síst í kvennarödd-
um, en vitanlega verður ekki held-
ur fram hjá því litið, að aldur segir
vissulega til sín í ýmsu í hvers
manns fari. Hitt var ekki síður
greinilegt, að sönggleðin bjó í
hvers manns hjarta. Til þess er
leikurinn gerður. Það að vekja
gleði og þrótt er markmið starfs-
ins. Sá þáttur hefur vissulega
náðst, en jafnframt, sem ekki er
lítils virði, tónlistarflutningur, sem
í heild tekinn er engum þeim, sem
að standa, til skammar heldur
miklu fremur hins gagnstæða.
Haukur Ágústsson.
gögn, garðverkfæri, sólpallar og
hellur og margt fleira sem tengist
garðinum eða grillinu.
Fréttatilkynning
Bridgefélag Akureyrar:
Sumarbridds
í Hamri
- Jórnna Pálsdóttir, kjör-
in formaður félagsins
Vetrarstarfi Bridgefélags Akur-
eyrar er lokið og framundan er
sumarbridds á vegum félagsins í
Hamri á þriðjudagskvöldum.
Fyrsta spilakvöldið er í kvöld en
þá verður spilaður tvímenning-
ur og hefst spilamennskan kl.
19.30.
Allir áhugasamir briddsspilar-
ar, bæði byrjendur og þeir sem
lengra eru komnir, eru hvattir til
þess að^ mæta í skemmtilega
keppni. Á staðnum verður leið-
beinandi og mun hann liðsinna
byrjendum í keppni sem þessari.
Á aðalfundi Bridgefélags Ak-
ureyrar fyrir skömmu, var Jónína
Pálsdóttir, kjörin formaður, í stað
Hermanns Tómassonar, sem í
staðinn tók við starfi ritara félags-
ins. Aðrir í stjóm eru; Stefán G.
Stefánsson, varaformaður, Ævar
Ármannsson, gjaldkeri, Jakob
Kristinsson, áhalda- og tækjavöró-
ur og þeir Kristján Guðjónsson og
Skúli Skúlason til vara. KK
Vlnningt laugard. Í2)( "T2I í*0.1^ 22. maí ’93 1
: VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 2 2.726.729,-
2. 4*6« tnr 273.896,-
Q O. 4at5 167 5.658.-
4. 3af5 4.875 452,-
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 9.149.636.-
■ M BIRGIR
upplýsingar:sImsvari91 -681511 lukkulIna991002
Kvennareið
1993
Allar hressar hestakonur velkomnar í
árlega skemmtireið sem farin verður frá
Skeifunni, föstudaginn 28. maí kl. 19.00.
Léttar veitingar, grill og skemmtun í Skeifunni á
eftir. Miðaverð kr. 1.000.
Mœtum allar kátar og hressar!
Munið reiðhjálmana.
Nefndin.
ÚTBOÐ
Grýtubakkahreppur óskar eftir tilboðum í að
byggja og gera fokhelt íþróttahús við Barnaskól-
ann á Grenivík.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Grýtubakka-
hrepps og á Arkítekta- og verkfræðistofu Hauks hf.,
Kaupangi, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Áætluð
verklok eru 30. október 1993.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Grýtubakkahrepps,
mánudaginn 7. júní 1993, kl. 16.00.
Grýtubakkahreppur.
„Garðurinn og grillið“:
KEA kynnir vörur sem
tengjast sumarkomunni