Dagur - 25.05.1993, Qupperneq 11
Þriðjudagur 25. maí 1993 - DAGUR - 11
Minning
Látin er á Akureyri, langt um ald-
ur fram, góð vinkona, Odda
Margrét Júlíusdóttir. Þrátt fyrir að
viö værum jafnaldrar og bæði inn-
fæddir Akureyringar, lágu leiðir
okkar ekki saman fyrr en við sett-
umst í 1. bekk Gagnfræðaskólans.
Odda kom úr Oddeyrarskólanum,
en flest okkar hinna af Brekkunni.
Þaö kom fljótt á daginn að Odda
var vösk og ákveðin í framgöngu.
Þannig tók hún fullum fetum á
móti okkur strákagemlingunum og
gaf sig hvergi. Það leið því ekki á
löngu þar til Odda vann sér virð-
ingu okkar og við vinskap hennar.
Það varð raunar svo að í bekknum
værum einhverjir englar, heldur
hitt að við vorum okkur sjálfum
nóg og ef til vill dálítió eigingjöm.
Eftir að Odda lauk stúdents-
prófi hóf hún nám í Fósturskólan-
um og lauk þaðan prófi. A þessum
árum dró nokkuð úr samskiptum
okkar félaganna, eins og títt er á
þessum aldri, enda viðfangsefni
okkar ólík um margt. Það fór þó
svo að tvö úr hópnum þau Odda
og Jónsi, Jón Laxdal, skáld og
myndlistarmaður, rugluðu saman
reytum sínum og gengu í hjóna-
band.
Starfsvettvangur þeirra varð
síðar hér á Akureyri þar sem Odda
starfaði á leikskólum bæjarins og
hóf síðar kennslu við Lundar-
skóla. Þar starfaði Odda þar til
krafta þraut. Það þarf engum að
koma á óvart sem kynntist Oddu
Margréti að hún varð fljótt vinsæll
og eftirsóttur kennari, bæði meðal
nemenda og samkennara.
Það er engum gleðiefni að sjá á
bak góðum vini. Ekkert er hins
vegar mikilvægara nokkrum
manni en að eignast góða vini,
sem maður veit og fmnur að halda
og treysta vinskap, þótt úr daglegu
samneyti dragi. Þannig vinur var
Odda Margrét Júlíusdóttir.
I brjóstum okkar býr söknuður
á kveðjustund. Ástvinimir, Jónsi
og einkadóttirin Valgerður Dögg
eiga um sárt að binda. Þau sjá á
bak yndislegri eiginkonu og móó-
ur, sem hrifsuð er á brott á besta
aldri. Orð mega sín lítils. Það er
þó huggun harmi gegn að fagrar
minningar um indæla konu lifa.
Sigbjörn Gunnarsson.
okkar myndaóist sterk samkennd
og traustur vinskapur, sem enn
heldur, þó svo við höfum haldið
sitt í hverja áttina.
Á menntaskólaárunum vorum
við nokkur sem héldum afar vel
saman, vorum í klíku, eins og það
var kallað. Viö fórum saman í úti-
legur, einkum í Vaglaskóg, þar
sem við „áttum“ okkar eigió rjóð-
ur fjarri mesta skarkalanum. Það
var þó ekki vegna þess að við
ferð um nýjar slóðir. Öllum t>eim,
sem henni unnu, votta ég mína
innilegustu samúð. Megi guð vera
með þeim.
Sigríður Eiríksdóttir.
Reykjahverfr.
Sumarstarfseiiii
í Heiðarbæ
Sumarstarfsemi að Heiðarbæ í
Reykjahverfi er hafin og verður
með svipuðu sniði og undanfar-
in sumur.
Það eru Aóalheióur Þorgríms-
dóttir og Katrín Eiðsdóttir sem
reka Heiðarbæ í sumar, en þær
hófu starfsemina sl. laugardag.
Sundlaug er í Heiðarbæ. Þar er fá-
anleg gisting í herbergjum og á
tjaldstæði. Veitingasala er á staðn-
um. Hann er sérlega aðgengilegur
fyrir fatlaða. Boðið er upp á kaffi-
hlaðborð á sunnudögum. IM
Kvennakórinn Lissý:
Pilsaþytur og
söngiu* í júní
Kór Kvenfélagasambands Suð-
ur-Þingeyinga, Lissý, hyggur á
tónleika með blönduðu efni,
pilsaþyt og söng í júnímánuði.
Kórinn hefur æft af kappi und-
anfarið, þó æfingar liggi aó mestu
leyti niðri í maí. Kórinn áætlar
síðan að halda tónleika í Skúla-
garði í Kelduhverfi 12. júní nk. og
að Breióumýri í Reykjadal á kven-
réttindadaginn 19. júní.
Stjómandi kórsins er Ragnar L.
Þorgrímsson.
Söfnum fyrir sundlaug
handa fötluðum börnum
- og leggjum skógrækt lið um leið
Átak til
Eitt mikilvægasta hjálpartækið í þjálfun og uppbyggingu fatlaðra
bama er sundlaug. í Reykjadal við Mosfellsbæ starfrækir
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra bamaheimili. Það hefur lengi
verið draumur félagsins að koma upp góðri sundlaug á staðnum.
Nú leitum við til landsmanna eftir smðningi með söfnunarátakinu
Græðum land og þjóð til að láta drauminn rætast.
Söfhunarátak Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra er í samvinnu við
Stöð 2 og Bylgjuna, Kiwanisfélaga víðsvegar um land, Olís og
Islandsbanka sem einnig er fjárgæsluaðili átaksins.
Söfnunin stendur yfir vikuna 24. - 29. maí.
Fyrir hverjar 500 krónur sem safnast verður jafnframt lögð ein
trjáplanta til skógræktar. Hægt er að fá plöntuna afhenta eða hún
verður gróðursett í nafni gefanda.
Tekið er á móti fjárframlögum á eftirtöldum stöðum:
Útibúum íslandsbanka • Bensínstöðvum Olís • Kringlunni
Einnig er tekið á móti ffamlögum alla vikuna í síma 91-811250.
Jafhframt er hægt að leggja inn á tékkareikning félagsins númer 10 í íslandsbanka Mosfellsbæ.
Á þessum stöðvum OLÍS er tekið við fjárframlögum,
afhentar piöntur eða ávísanir á plöntur
Ánanaustum Akranesi Sauðárkróki Homafirði Bankastræti 5 Garðabæ, Hörgatúni 2
Álfheimum Hvítárvöllum Siglufirði Vestmannaeyjum Dalbraut 3 Hafnarfirði, Reykjavíkurv. 60
Álfabakka Borgamesi Ólafsftrði Skarðshlíð Eyjafj. Háaleitisbraut 58 Hafnarfirði, Strandgötu 1
Háaleitisbraut Baulu, Borgarf. Dalvík Hellu Kringlunni 7 Kópavogi, Hamraborg 14a
Gullinbrú Ólafsvík Hauganesi Vegamótum Laugavegi 105 Kópavogi, Smiðjuvegi 1
Klöpp Stykkishólmi Akureyri Flúðum Laugavegi 172 Mosfellsbæ, Þverholti 6
Hamraborg Búðardal Steinhólaskála Minni-Borg Lóuhólum 2-6 Seltjamamesi, Eiðistorgi 17
Garðabæ Bæ, Reykh.sveit Húsavík Eyrarbakka Lækjargötu 12
Hafnarfirði Reykhólum Reynihlíð Selfossi Réttarholtsvegi 3
Mosfellsbæ Innri-Múla Þórshöfn Hveragerði Stórhöfða 17
Laugabakka Fellabæ Litlu kaffistofunni Suðurlandsbraut 30
Kjalamesi Blönduskálanum Neskaupsstað Grindavík Þarabakka 3
Ferstiklu Skagaströnd Reyðarfirði Keflavík
Keflavík, Hafnargötu 60
Akranesi, Kirkjubraut 40
fsafirði, Hafnarstræti 1,
Akureyri, Hrísalundi la
Akureyri, Skipagötu 14
Blönduósi, Húnabraut 13
Húsavík, Stóragarði 1
Siglufirði, Aðalgötu 34
Selfossi, Áusturvegi 38
Vestmannaeyjum
Kirkjuvegi 23
Á þessum gróðrar- og ~......
ríkisins fást plöntur afhentar gegn ávísun
Reykjavík • Suðurhlíð 38
Mógilsá • Kjalamesi
Hvammur • Skorradal
Hreðavatn • Borgarfirði
Reykjarhóll • Varmahlíð, Skfj.
Vaglir • S-Þingeyjarsýslu
Hallormsstaður • S-Múlasýslu
Egilsstaðir • S-Múlasýslu
Tumastaðir • Fljótshlíð, Rang
Selfoss • Gagnheiði 11
GRÆÐUM
LANDIÐ MEÐ
ÍSLANDSBANKI
Fjárgæsluaðiti og aðai styrktaraðili átaksins