Dagur - 02.06.1993, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 2. júní 1993
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Illa komið fyrir
lýðræðinu
Ríkisstjórnir landsins hafa oft haft þann háttinn
á undanfarna áratugi að setja bráðabirgðalög
um ýmis mál sem þeim hefur þótt aðkallandi að
leysa.Til dæmis hefur gjarnan verið gripið til
setningar bráðabirgðalaga til að koma í veg fyrir
eða binda endi á verkföll. Þessi stjórnunaraðferð
hefur löngum sætt harðri gagnrýni og þótt vafa-
söm. Af þeim sökum meðal annars var stjórnar-
skránni breytt eftir síðustu alþingiskosningar.
Með þeim breytingum voru reglur um setningu
bráðabirgðalaga þrengdar til muna. Jafnframt
var starfsháttum Alþingis breytt þannig að það
situr nú allt árið um kring. Þingi var ekki slitið í
vor eins og jafnan áður á þeim árstíma, heldur
var því frestað. Þannig er ekkert því til fyrir-
stöðu að Alþingi sé kallað saman með örskömm-
um fyrirvara.
Hugmyndin að baki þessum breytingum var
sú að koma í veg fyrir að ríkisstjórnir beittu
bráðabirgðalögum í því óhófi sem áður tíðkaðist
og gripu eftirleiðis ekki til þess ráðs að setja
bráðabirgðalög nema í ítrustu neyð. Þrátt fyrir
framangreindar stjórnarskrárbreytingar kom rík-
isstjórnin saman í síðustu viku til að setja
bráðabirgðalög. Lögin - sem tóku reyndar gildi í
gær - setti hún til að staðfesta ýmis þau atriði
sem hún hét við undirskrift kjarasamninganna
fyrir skemmstu.
Það er í hæsta máta gagnrýnisvert að ríkis-
stjórnin skuli hafa valið þessa leið til að lögfesta
loforð, sem hún hafði þegar gefið. Bráðabirgða-
lög ríkisstjórnarinnar fjalla um nokkur stór og
afar mikilvæg mál. í þeim er t.d. kveðið á um
með hvaða hætti eigi að úthluta óráðstöfuðum
kvóta Hagræðingarsjóðs. í þeim er einnig lög-
fest heimild til fjármálaráðherra til að verja ein-
um milljarði króna til að efla atvinnuhfið í land-
inu og 300 milljónum króna til að auka niður-
greiðslur á kjöt- og mjólkurafurðum. Um öll
þessi mál þarf að ná fullkominni samstöðu, bæði
inni á þingi og meðal almennings. Þess vegna
átti ríkisstjórnin skilyrðislaust að kalla Alþingi
saman.
Tillögur Hafrannsóknastofnunar um allt að 80
þúsund tonna niðurskurð á þorskafla íslendinga
á næsta fiskveiðiári er önnur mjög veigamikil
ástæða fyrir því að Alþingi komi saman án tafar.
Lífshagsmunir þjóðarinnar eru að veði í því máli.
Ef sú ástæða nægir ekki til að forsætisráðherra
sjái ástæðu til að kalla Alþingi saman er illa
komið fyrir lýðræðinu í landinu. BB.
Lundúnapistill
Þórir Jóhannsson skrifar
Af pólitík, tíjám
og fymun sykunnola
Hrókeringar í stjórn
Majors
Þar kom að því. Norman var lát-
inn fjúka. Tæknilega sagði hann
af sér og vék úr ríkisstjóminni þó
honum hafi verið boðið annað
embætti. Karl var greinilega sár
því afsögnin var óformleg. Þegar
heim var komið var hún hripuð
niður á blað og send á faxi. Hvort
afsögnin var send úr Downing-
stræti 11 yfir í nr. 10 eða frá
heimili Lamonts, veit ég ekki.
Þá er komið að Kennth þætti
Clarke’ s. Ólíkt Norman er Kenn-
eth hrokagikkur og nýtur þess aó
vera í sviðsljósinu. Eitt sinn svar-
aði hann gagnrýni frjálslynds
demókrata í þinginu: „Farðu heim
til þín, sestu niður í dimmu her-
bergi, taktu pillumar þínar og
hugsaðu um hvort eitthvað sé til í
þínum flokki sem heitir stefnu-
rnörkun." Hann hræðist ekki að
ögra andstæðingum sínum og er
sjálfstraustið uppmálað. Hann
hefur lýst því yfír að hann vilji
verða forsætisráóherra og ef Bret-
land er í raun aó ná sér upp úr
öldudal efnahagskreppu er líklegt
að hann fái þakkir fyrir og
kannski forsætisráðherraembættið
að launum. Hitt er annað mál að
þó stólaskipti hafi orðið er stefnu-
breytingin engin, Kenneth Clarke
lítur bara betur út sem fjármála-
ráðherra en Norman Lamont.
Skógur, stál og steinsteypa
Að búa og vinna í stórborg getur
orðið til þess að maður missi
snertingu vió náttúmna þar sem
maður sér lítið annað en stál og
steinsteypu daginn út og daginn
inn. Lundúnabúar búa reyndar svo
vel að eiga fallega garða eins og
St. James’ s, Regent’ s Park og
Hyde Park. Allir eru þetta skipu-
lagðir garðar, en sunnan við á,
austarlega, vex lundur sem er
sönn náttúruperla í borginni.
Oxleas skógur heitir hann, 8000
ára gamall og er þar villtur gróður.
Framtíð þessa skógar er alls
óviss þar sem ríkisstjómin vill
leggja veg þar í gegn og yfir
Thamesána. Náttúruvemdarsam-
tök mótmæltu hraustlega svo og
Verkamannaflokkurinn. Evrópu-
bandalagió kærir Bretland fyrir að
virða ekki tilmæli þess um nátt-
úruvemd og bæjarstjóm Green-
wich Village kærir ríkisstjórnina
fyrir að sjá bænum ekki fyrir
landssvæði sem kæmi í staðinn
fyrir skóginn. Nú er svo komið að
samtökum um vegamál í Bret-
landi (British Road Federation),
sem hafa stutt ríkisstjómina hing-
að til, hefur snúist hugur og vilja
að aðrir möguleikar verði kannað-
ir. Ríkisstjómin er því einangmð í
sinni afstöðu. Þaö er von mín að
Oxleas skógur fái að lifa svo að
Lundúnabúar geti enn haft nasa-
sjón af ósnortinni náttúm, nokkm
sem við Islendingar erum svo for-
rík af.
Stebbi myndasmiður
I lokin ætla ég að nefna frásögn úr
Evening Standard af Stephen
nokkrum Meisel. Sá hefur unnið
sér það til frægðar að mynda
Madonnu í bak og fyrir og prýða
þær myndir bók hennar „Sex“ sem
kom út ekki alls fyrir löngu.
Stebbi þessi eltir nú Björk Guð-
mundsdóttur, fyrmrn Sykurmola, í
þeirri von að hún opinberi sig á
svipaðan hátt og Madonna áður.
Hingað til hefur Björk þakkað
pent fyrir sig og ráðlagt honum
að beina myndavélinni eitthvað
annaó.
Kær kveðja frá Lundúnum.
Þórir
Björk Guðmundsdóttir er heldur betur í sviðsljósi ijölmiðla í Bretlandi þessa dagana og óhætt er að segja að lög af
væntanlegri breiðskífu hcnnar hafi nú þegar slegið í gegn þar í landi. Eins og venja er með fræga fólkið eltast Ijós-
myndarar við Björk og einn þcirra er Stephen nokkur Meisel.
Matar- og vínklúbbur AB:
Áskriftarverðlaun afhent
Nýlega afhenti Siguróur L. Hall,
umsjónarmaður Matar- og vín-
klúbbs AB, ferðaverðlaun sem í
boði voru í áskriftasöfnun klúbbs-
ins. Dregió var úr nöfnum rúm-
lega 4.000 félaga sem skráðu sig í
klúbbinn á meðan inngöngutilboð
var í gildi.
Dregió var í beinni útsendingu
á Bylgjunni föstudaginn 30. apríl
og reyndist hinn heppni vera
Hrefna B. Jóhannesdóttir. Hrefna
fær ókeypis ferð fyrir 2 til Mexí-
kó, í beinu leiguflugi með Heims-
ferðum hf., að verðmæti 160.000
krónur.
Hrefna B. Jóhannesdóttir tekur við vinningi sínum.