Dagur - 02.06.1993, Side 5
Miðvikudagur 2. júní 1993 - DAGUR - 5
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Einingar:
Vinnubúðir til sölu
Námskeið fyrir
starfsfólk í
þjónustu-
störfum
Námskeið fyrir stjórnendur og
starfsfólk í þjónustustörfum verð-
ur haldið víða um land á næstu
dögum. Fyrsta námskeiðið verður
á Blönduósi, þriðjudaginn 1. júní
og hið síðasta í borgarnesi 15.
júní.
A námskeiðinu er m.a. fjallað
um framkomu, viðmót og hvernig
ná má meiri árangri í sölu á þjón-
ustu. Þá er rætt um hreinlæti,
klæðnað og öll mikilvægu smáat-
riðin.
Leiðbeinandi á námskeiðunum
er Gísli Blöndal markaðs- og
þjónusturáðgjafi en hann er marg-
reyndur leiðbeinandi og þekktur
fyrir að setja námsefni fram á
hressilegan hátt.
A Akureyri verða námskeiðin
laugardaginn 5. júní, hið fyrra sem
hefst kl. 09.30 er sérstaklega ætlað
starfsfólki í ferðaþjónustu en hið
síðara hefst kl. 15.00 og er það
fyrir starfsfóik verslana. Fjöldi
þátttakenda er takmarkaóur en
skráning á námskeiðið er hjá
Hótel Norðurlandi.
Landsvirkjun áformar að selja, ef viðunandi til-
boð fást, vinnubúðir á eftirfarandi stöðum til
brottflutnings:
Við Blöndustöð í Austur-Húna-
vatnssýslu:
6 sjálfstæð svefnhús, stærð 2,5x3,9 m
2 sjálfstæðar húseiningar, stærð 2,5x5,1 m
1 íbúðarhús (4 húseiningar 2,5x7,5 m), stærð
10,5x7,5 m
1 íbúðarhús (5 húseiningar 2,5x7,5 m), stærð
12,5x7,5 m
2 parhús, 4 íbúðir (2x5 húseiningar 2,5x7,4 m),
stærð 12,5x7,4 m
1 mötuneytis- og svefnherbergjasamstæða. í sam-
stæðunni er samtals 46 húseiningar af stærðinni
2,5x7,4 m = 851 m2, 80 manna matsalur, eldhús,
frystir, kæiir, hreinlætiseiningar og 44 einstaklings-
herbergi.
Við Búrfellsstöð í Árnessýslu:
8 sjálfstæð svefnhús, stærð 2,5x3,9 m
2 sjálfstæðar húseiningar, stærð 2,5x5,1 m
1 frystir, stærð 2,6x4,1 m
1 inngangur og snyrting, stærð 2,0x4,2 m
Dagana 4.-5. júní 1993 munu starfsmenn Lands-
virkjunar sýna væntanlegum bjóðendum húsin, en
aðeins frá kl. 10.00-18.00.
Nánari upplýsingar veitir innkaupastjóri Landsvirkj-
unar.
Tilboð þurfa að berast Landsvirkjun, innkaupadeild,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, eigi síðar en 9.
júní 1993.
LANDSVIRKJUN
2.-5. júní
Félagið rekið með 600 þús-
und króna halla í fyrra
35% afsláttur af öllum
Mustang vörum, bolir, gallabuxur
og gallajakkar í mörgum litum.
Frír Mustang bolur fylgir með
jökkum og buxum.
- bætur úr sjúkrasjóði félagsins namu 23
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins
Einingar var haldinn í Alþýðu-
húsinu á Akureyri 27. maí. Var
fundurinn allvel sóttur miðað
við það, að fyrr í vikunni höfðu
verið haldnir fundir í öllum
deildum félagsins vegna af-
greiðslu á nýjum kjarasamn-
ingi, sem samþykktur var með
verulegum atkvæðamun en þó
við litla hrifningu félagsmanna.
Það kom hins vegar fram, bæði
á þeim fundum og aðalfundin-
um, að betra hefði verið að gera
slíkan varnarsamning heldur en
eiga það yfir höfði sér að þurfa
að gera annan lakari síðar á ár-
inu.
A aðalfundinum var lýst kjöri
stjórnar, en hún varð sjálfkjörin
þegar auglýst var eftir framboðs-
listum í vetur, og er aðalstjóm
þannig skipuð: Bjöm Snæbjöms-
son formaður, Þórir Snorrason
varaformaður, Sigríður Rut Páls-
dóttir ritari, Ema Magnúsdóttir
gjaldkeri, Guðrún Helgadóttir,
Hilmir Helgason og Ólöf Guð-
mundsdóttir meðstjórnendur.
Félagsmenn í Verkalýðsfélag-
inu Einingu eru nú 4685 talsins,
þar af aðalfélagar 3789, en auka-
félagar 896. Aðalfélagar skiptast
þannig milli deilda félagsins, að í
Akureyrardeild eru 2846, Dalvík-
urdeild 401, Ólafsfjarðardeild
255, Grenivíkurdeild 121, Hrís-
eyjardeild 105 og Bílstjóradeild
61. Aðalfélagar skiptast þannig
eftir kyni, að konur eru 2427 en
karlar 1362.
Fjárhagsafkoma félagsins var á
síðasta ári nokkru lakari en verið
hefur mörg undanfarin ár. Segir
þar til sín sá samdráttur, sem orðið
hefur í atvinnulífinu, en þegar
vinnutekjur dragast saman minnk-
ar líka það sem til félagsins rennur
í félagsgjöldum, og gjöldum at-
vinnurekenda til sjúkrasjóðs, or-
Björn Snæbjörnsson var endur-
kjörinn formaður Einingar.
lofssjóðs og fræðslusjóðs. Halli á
rekstri sjúkrasjóðs varð á þriðju
milljón króna, en á rekstri félagins
í heild 600 þúsund krónur. Vegna
lélegrar aíkomu sjúkrasjóðsins
samþykkti aðalfundurinn breyt-
ingar á reglugerð hans, sem fela í
sér nokkra lækkun á bótagreiðsl-
um. Bótagreiðslur sjóðsins á síð-
asta ári námu alls 23,2 millj. kr.
A árinu keypti félagið eitt or-
lofshús að Illugastöðum til viðbót-
ar þeim, sem það átti þar fyrir.
Hús félagsins á Illugastöðum eru
nú 7, en auk þess á félagið hús í
Flókalundi, í Tjarnargerði í félagi
við Bílstjórafélag Akureyrar og
tvær orlofsíbúðir í Reykjavík.
Einnig hefur félagið orlofshús á
,2 milljónum króna
leigu yfir sumariö á nokkrum
stöðum, en mikið skortir þó á, að
unnt sé að fullnægja eftirspum fé-
lagsmanna eftir orlofshúsum um
háannatímann að sumrinu.
Verkalýðsfélagið Eining varð
30 ára þann 10. febrúar síðastlið-
inn, og í tilefni þeirra tímamóta
ákvað stjórn félagsins að láta hefja
ritun á sögu félagsins og þeirrar
félaga, sem voru fyrirrennarar
þess eða hafa sameinast því í tím-
ans rás. Er þama alls um 18
verkalýðsfélög að ræða, sem
starfað hafa lengri eða skemmri
tíma. Hefur Þorsteinn Jónatansson
verið ráðinn til að annast þetta
verk.
í tilefni afmælisins ákvað fé-
lagsstjómin einnig að bjóða til
þessa aðalfundar þeim tveimur,
sem á lífi em, af þeim, sem sæti
áttu í fyrstu stjórn félagsins, en
það eru Vilborg Guðjónsdóttir,
Munkaþverárstræti 14 á Akureyri,
sem var kosin gjaldkeri á stofn-
fundinum og sat í stjóminni í 11
ár, og Þórir Daníelsson, sem nú er
búsettur í Reykjavík og hefur ver-
ið framkvæmdastjóri Verka-
mannasambands Islands frá stofn-
un þess. Hann var varaformaður
félagsins fyrstu tvö árin. Þau
mættu bæði til fundarins og Þórir
flutti þar ávarp, þar sem hann
minntist liðinna tíma í starfi fé-
lagsins.