Dagur - 02.06.1993, Qupperneq 11
Miðvikudagur 2. júni 1993 - DAGUR - 11
Her og þar
Sjór - en
ekki snjor
Patrick Degayardon setur sér himinhá takmörk enda
þarf hann ekki neinn snjó og engin fjöll til aö sýna
listir sínar á skíðum. Patrick er reyndar meö alvöru
snjóskíói spennt við fætuma þegar hann stekkur úr
flugvél yfir Tahiti og sýnir bestu bruntakta og
svigsenur á leiðinni til yfirborðs jarðar - eða sjávar.
Síðam opnar hann fallhlífina og sekkur í sæ; þar
plumar hann sig vel eins og sjá má á
neðansjávarmyndinni.
Á þcssum tónleikum flytur Kór Akureyrarkirkju verk af kirkjulegum toga eftir íslenska og erlenda höfunda.
Kór-, einsöngs- og orgel-
tónleikar í Akureyrarkirkju
Þjónustuskrá KA
Nú hefur verið ákveðið að gefa út þjónustu-
skrá fyrir 96 svæðið á vegum Knattspyrnu-
deildar KA. Þjónustuskráin kemur út um
mánaðamótin júní/júlí.
Fyrirtæki og auglýsendur eru hvattir til að
hafa samband við útgefendur sem allra
fyrst til að tryggja sér pláss.
Þeir auglýsendur sem eiga staðfestar auglýs-
ingar í Þjónustuskrá Knattspyrnudeildar KA
eru beðnir að hafa samband í síma 96-11208,
fyrir föstudaginn 4. júní 1993 ef einhverra
breytinga er þörf.
Knattspyrnudeild KA
Kór Akureyrarkirkju undir stjóm
Bjöms Steinars Sólbergssonar,
Óskar Pétursson, tenór og Anton-
ia Hevesi, orgel, halda tónleika í
Akureyrarkirkju annaó kvöld,
fimmtudaginn 3. júní, kl. 20.30. Á
efnisskránni eru orgelverk, ein-
söngs- og kórverk.
Tónleikamir hefjast með flutn-
ingi Antoniu Hevesi á tveim org-
elverkum, annars vegar Prelúdíu
og fúgu í c-moll op. 37 eftir
Mendelssohn og hins vegar Tokk-
ötu um „Ave Maris Stella“ eftir
Floor Peters. Síðan syngur Óskar
Pétursson, tenór, annars vegar
Maríuvers eftir Áskel Jónsson og
hins vegar Agnus Dei eftir Ge-
orge Bizet.
Á efnisskrá tónleikanna eftir
hlé er söngur Kórs Akureyrar-
kirkju. Kórinn flytur verk eftir
Róbert A. Ottósson, Jakob
Tryggvason, Pál ísólfsson, Jón
Óskar Pétursson, tenór, syngur tvö einsöngslög og einnig syngur hann ein-
söng meðkórnum.
Hlöðver Áskelsson, Mendelsso;
hn, G. Fauré og Cesar Franck. í
einu verkanna, Panis angelicus,
syngur Óskar Pétursson einsöng
með kómum.
Þessa sömu efiiisskrá flytur
Kór Akureyrarkirkju nk. laugar-
dag kl. 17 í Fella- og Hólakirkjii í
Reykjavík og em þeir tónleikar
liður í Kirkjulistahátíð í Reykja-
VÍk. (Fiéttatilkynning)
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
»»
Áskriftar® 96-24222
j
Garðyrkjustöðin á Grísará
Simi
96-31129.
Dalvík:
Verðum með plöntusölu við útibú KEA
Dalvík, miðvikudaginn . júní kl. 20.30.
Grenivík:
Verðum með plöntusölu við útibú KEA
Grenivlk, fimmtudaginn 3. júní kl. 20.30.
Garðyrkjustöðin Grísará
sími 96-31129, fax 96-31322