Dagur - 03.07.1993, Síða 7
Laugardagur 3. júlí 1993 - DAGUR - 7
Sumarbúðir í Hrísey:
Hér verðum við örugglega næstu árin
Eins og Dagur greindi frá fyrir
sköniniu eru í sumar starfrækt-
ar sumarbúðir fyrir þroska-
hefta í Hrísey. Nú þegar Qórar
vikur eru liðnar ákvað undirrit-
aður að bregða undir sig betri
sundfætinum og heimsækja
fólkið sem þar býr. Viðtökurnar
voru ekki amalegar, tertur og
kaffi, því einmitt þennan dag
var verið að halda upp á eins
árs afmæli heimasætunnar Val-
gerðar, dóttur Björns Eiríksson-
ar og Ástu Guðbrandsdóttur,
eigenda og umsjónarmanna
sumarbúðanna.
„Þetta hefur farið hreint ótrú-
lega vel al’ stað. Nú hafa þrír hóp-
ar verió hjá okkur og ekki er ann-
aó að sjá en að öllunt hafi liðið vel
og sumir meira að scgja framlengt
dvölina. Einn er ákveðinn í aó
vera í allt sumar,“ sagði Björn Ei-
ríksson þcgar hann var spurður
um hvernig gengið hefði hingað
til. Hann sagði heimantenn hafa
brugóist mjög vel við og vera
spennta fyrir því sem er að gerast.
„Við erum mjög ánægð. Þetta er
mikil vinna og það auðveldar ekki
- segir Björn Eiríksson, sumarbúðastjóri í Hrísey
að vera með bam. Það er ekki nóg
með að þurfa að hafa ofan af fyrir
þeim á daginn því næturnar geta
verið erfiðar líka. Einn getur ekki
sofið og annar vill hafa meira ljós.
Þctta er auðvitað bara hluti af
þessu og þegar krakkarnir eru
svona ánægóir og jákvæóir getur
maður ekki kvartað.“ Björn segir
að einna erfiðast sé aö fá krakkana
til þess að eiga frumkvæói að
vinnu. Þeir séu vanir því að fá
ekki að taka þátt í heintilisverkun-
um t.d. en geri þaó glaðir og
ánægðir séu þeir beðnir. „Við get-
um lært margt af þcssu fólki því
það er svo nægjusamt. I hundleið-
inlegu veðri sem var hér einn dag-
inn sátum vió inni og spiluðum og
spjölluðum, borðuöum síðan góð-
an kvöldmat og það nægði þeim
þann daginn. Dagurinn virtist allt
aó því fullkominn, slík var ánægj-
an um kvöldið.“
Ásta og Björn réðust í að kaupa
húsnæðið sem þau hafa tekið und-
ir sumarbúðirnar og eru ákveðin í
að koma úr Reykjavík á hverju
vori í sæluna í Hrísey. Hafnarvík,
svo nefnist húsió, hefur staóið
Allir ánægðir með gang máli. Valgerður, ný orðin eins árs, er í fangi móður sinnar, Ástu Guðrúnar Guðbrandsdótt-
ur, þá Björn Eiríksson, sumarbúðastjóri, Guðmundur, Hreinn, Sigfús, Hildur og Gunnar, kærastinn hennar og
Hlynur.
Hafnarvíkurhúsið á aðcins fimm ár í að verða aldar gamalt. Það skemmtilega við það er að langömmubróðir Ástu,
sem býr þar núna, byggði það á sínum tíma.
99
Kalla Ástu alltaf mönimu“
- segir Hlynur Steinarsson alsæll með dvölina í Hrísey
Hlynur Steinarsson kom upp-
haflega til Hríseyjar til þess að
dvelja í sumarbúðunum eina
viku. Honum leist strax ákaflega
vel á sig, ákvað að vera aðra
viku og er nú staðráðinn í að
vera í allt sumar. Þegar blaða-
niaður Dags hitti hann að máli
var hann í hörkuvinnu við að
grafa holu sem hann ætlaði að
nota fyrir sundlaug.
„Eg er búinn að vera rúma viku
og þaó er rosalega gaman. Eg hef
vcrið í sumarbúðum í Hafralækj-
arskóla en nú ákvað ég að korna
hingað frekar," sagði Hlynur.
Hann er yngstur gcsta í sumarbúð-
unum því í raun voru þær ekki
hugsaðar fyrir fólk yngra en 18
ára. „Ég ætla að vera hér í allt
sumar og ég mun aldrei gleyma
Ástu og Bjössa. Þau eru mjög góð
Hlynur Steinarsson mundar hér
skófluna og segist ákveðinn í að kaf-
færa Bjössa í sundiauginni scm
hann er að búa til. Myndir: SV
viö mig og ég kalla Ástu alltaf
mömmu,“ sagði kappinn og brosti
út undir eyru. Aðspurður hvaó
væri skemmtilegast að gera sagói
hann það vera aö skoða endurnar.
„Vió förum oft í sund og það er
mjög skemmtilegt. Síðast þegar
við fórum í sund þá vorum vió
strákarnir að kaffæra Bjössa og ég
er ákveóinn í aö stríóa honum
þegar ég er búinn meó þessa sund-
laug. Ég ætla örugglega að kaf-
færa hann hér.“
Hlynur kemur úr Reykjavík,
sagðist búa í Árbænum og fara í
Öskjuhlíðarskóla í haust. Hann
sagðist hlusta mikið á tónlist og
aó Rokklingarnir væru í miklu
uppáhaldi. Meiri tími gafst ekki til
spjalls því Hlynur varð að halda
áfram með sundlaugarbygging-
una. Hana átti aó opna seinna um
daginn. SV
þarna í cyjunni í nær hundraö ár
og það skemmtilega við það er aó
langömmubróðir Ástu byggði það
á sínum tíma. Síðan þá hefur það
verið í eigu margra, m.a. átti Haf-
skip þaö um tíma, en er nú aftur
komið í eigu sömu fjölskyldu og
byggði það á sínurn tíma, aðeins
nokkrum ættliðum síðar.
„Það er nokkuð Ijóst aö hér
verðum viö næstu sumrin. Okkur
hefur verið hjálpað mjög mikið af
stað og Ásbjörn Ólafsson, heild-
verslun og KEA eiga ntiklar þakk-
ir skildar fyrir frábæran stuðning.
Allar dcildir Kaupfélagsins hafa
verið boðnar og búnar að aðstoða
okkur," sagói Björn, ánægður
sumarbúðastjóri í Hrísey.
SV
„Aílinn ekkert
rosalega góður“
- segir Guðmundur Ottó Þorsteinsson
úr Garðabæ
Einn þeirra sem nýtur dvalar í
sumarbúðununi í Hrísey þessa
dagana er Guðmundur Ottó
Þorsteinsson, 27 ára Garðbæ-
ingur. Þetta er fyrsta heimsókn
hans til eyjarinnar og hann seg-
ir gott að komast úr stressinu á
höfuðborgarsvæðinu í kyrrðina
og rólegheitin í Hrísey.
Guðmundur segist hafa verið í
sumarbúóum í Hveragerði í fyrra
en fundist ágætt að breyta til þetta
árið. „Hér er margt skemmtilegt
hægt að gera. Við höfum farið út á
bátnum og rennt fyrir fisk. Aflinn
var ekkert rosalega góður en það
var samt gaman. Við fengum þrjár
lúður og einn grákola," segir Guö-
mundur. Hann segir mikið vera
lagt upp úr útiveru og t.d. hafi
hann verið að stinga upp gras í
kálgarðinum við bæinn, farið í
göngutúr, sund og ýmislcgt ficira.
„Bjössi lcs alltaf um fugl dagsins
fyrir okkur og við rcynum að gcta
okkur til um hvcr fuglinn sé. Ætli
ég vcrði ekki bara búinn að læra
öll fuglanöfnin þegar ég fer héð-
an.“
Guðmundur segist vera í sum-
arfríi þcssa dagana; hann vinni í
Kassagerðinni í Reykjavík og taki
sér tvcggja vikna frí núna. „Ég fæ
24 daga í sumarfrí og ætla að taka
það smám saman. Það er ckkert
varió í að taka það allt í einu.
Hver veit nema ég eigi cftir að
koma til Hríseyjar í sumarfríinu
rnínu á næstu árum,“ segir Guð-
mundur Ottó Þorsteinsson. SV
Guðmundur segir skemmíilcgast að fara út á bátnum og rcnna fyrir fisk.