Dagur - 03.07.1993, Blaðsíða 24
Eyjafjörður:
Gott ástand
bifreiða
Lögreglan á Dalvík og lög-
reglan í Ólafsfirði gerðu um-
ferðarkönnun fyrír Umferð-
arráð á miðvikudag og
stöðvuðu um 50 bifreiðar. Al-
mennt var ástand bifreiða
gott að sögn lögreglunnar á
Dalvík. „Enginn var tekinn
fyrir of hraðan akstur -
menn eru svo spakir í dag.“
„Umferðarkönnunin kom
ágætlega út og ástand bíla var
almcnnt gott; við könnuðum
ljósanotkun, beltanotkun far-
þega og ökumanna og hvort
skráningarskírteini og ökuskír-
teini væru með,“ sagöi lög-
reglan á Dalvík í samtali við
Dag.
„Við sektum ckkcrt í könn-
unum - nema fyrir ölv-
unarakstur, hraðakstur og svo-
leiðis,“ sagði iögreglan, að-
spuró um hvort refsivendinum
hcfði verið sveiflað duglega.
„Fólk virðist þó voðalega
seint aó vakna eftir vorið og
eitt svarið sem við fengum
þegar ég bað ökumann um
ökuskírteini van „Nei, ég er
ekki með það - ég cr í vinn-
unni!,“ sagði lögreglan um
einn ökumann. „Eg þarf ekk-
ert ökuskírteini því ég er
nefnilega að vinna.“ GT
Húsavík:
Rætt um uppbygg-
inguíþróttavalla
Ástand íþróttavalla á Húsa-
vík var til umræðu hjá
Æskulýðs - og iþróttanefnd
bæjarins fyrir skömmu.
Grasvöllurinn kom mjög illa
undan vetri og hefur aðeins
verið leikinn einn leikur á
honum til þessa. Hann er nú
eitthvað að koma til.
Bæjarráð Húsavíkur hefur
falið tæknideild bæjarins að
gcra kostnaðaráætlun varðandi
uppbyggingu íþróttavalla. í
fyrsta lagi var þeim gert að
skoða þann möguleika að nú-
verandi malarvöllur verði gerð-
ur að grasvelli, í öðru lagi að
gera malarvöll í Reitnum, í
tengslum við íþróttahöllina og
með nýtingu af búningsklefum
í huga, sem hægt verói að nota
sem bílastæði fyrir skíðamann-
virki í Skálamelnum á veturna.
í þriðja lagi er svo hugmyndin
aó komið verði upp gervigrasi
á núverandi malarvelli bæjar-
ins.
Aó sögn Pálma Þorsteins-
sonar, bæjartæknifræóings, er
enn ekkcrt farið aó æfa á gras-
vellinum en síðustu daga hafi
hann tekið talsveróan lit og
menn voni aó hann sé að koma
til. SV
O HELGARVEÐRIÐ
-Get ég fengið stutta veðurlýsingu
fyrir Norðurland um helgina? „Já,
rigning!sagði Haraldur Ólafs-
son, veðurfræðingur á Veðurstofu
íslands, aðspurður í gær. Nánar
tiltekið sagði Haraldur að einhver
væta yrði en ekki samfelld rign-
ing. „Það verður sem sagt suddi
og frekar svalt eins og núna, þ.e.
um 6 gráður. Áttin verður eitt-
hvað rokkandi en það er rétt að
við tölum um norðanátt."
Með lögum skal land byggja !
Myndir: Robyn
Héraðsnefnd Eyjaijarðar:
Flutninga-
málin rædd
Á síðasta ári lét Héraðsráð
Eyjafjarðar taka saman ítar-
lega skýrslu um flutninga í
Eyjafirði. Skýrslan var rædd á
vorfundi Héraðsnefndar Eyja-
fjarðar sl. þriðjudag.
Á fundinum var samþykkt til-
laga um málið þar sem lagt er til
að Héraðsráö Eyjafjarðar „skipi
nefnd til þess að skoða nánar og
hrinda í framkvæmd tillögu
nefndar um flutningamál í Eyja-
firði. Jafnframt er tillögum nefnd-
arinnar vísaó til viðkomandi
sveitarstjórna og héraðsráðs til
skoðunar og úrlausnar.“
Guóný Sverrisdóttir, oddviti
Héraðsnefndar Eyjafjarðar, segir
að í þcssu sambandi sé verið að
hugsa um flutninga á leióinni Ak-
ureyri-Olafsfjörður og einnig
llutninga frá Akureyri fram í
Eyjafjarðarsveit.
Guðný sagði aó í nefndri
skýrslu hafi einnig verið fjallað
um nauðsyn skoðunar á ónýttu
heimavistarrými í héraðinu. óþh
Flugfélag Norðurlands:
Uppsagnir og ein Twin-Otter
flugvél félagsins til sölu
Fimm starfsmenn Flugfélags
Norðurlands fengu uppsagnar-
bréf í lok síðasta mánaðar þar
sem þeim er sagt upp störfum
frá og með 1. júlí. Uppsagnanna
gætir í öllum deildum félagsins
að sögn Sigurðar Aðalsteins-
sonar framkvæmdastjóra og er
ástæðunnar að Ieita í samdrætti
í þjóðfélaginu. Ákveðið hefur
verið að selja eina af Twin-Otter
flugvélum félagsins en Sigurður
segir að það taki töluverðan
tíma.
I undirbúningi er hjá félaginu
áætlun fyrir komandi vetur og
svo kann að fara aó nióurstaða
þeirrar skoðunar leiði til þcss að
einhverjar af uppsögnunum gangi
til baka en raunhæfar áætlanir eru
forsenda þessa rekstrar og nauð-
synlegt að keyra ekki áfram með
of mörg segl uppi.
„Við erum að skoða möguleika
á nýjum flugleiðum fyrir kom-
andi vetur en þess ber aö gæta að
flugleiðin Akureyri - Keflavík fór
mjög hægt af stað, en þetta sumar
lofar góðu mióað við sumarið í
fyrra. Þetta er þriðja sumarið sem
flogið cr á þessari flugleið. Sæta-
nýtingin hefur verið um 30%, en
það eru mörg teikn á lofti um það
að úr þessu sé að rætast, en við
fljúgum daglega á þessari flugleið
í sumar. Við erum einnig tilbúnir
að skoða það að fara inn á flug til
Reykjavíkur, en samgönguráð-
herra hefur ekki auglýst þessa
leið þótt hann hafi heimild til
þess. Ákveði yfirvöld hins vegar
að opna þá flugleið þá tökum við
fullan þátt í þeirri samkeppni.
Okkur finnst það hins vegar bara
til vandræða að veita samkeppn-
isaóilum Flugleiða 10% af sæta-
framboðinu eins og gerist hjá Is-
landsflugi á flugleiðinni Egils-
staðir -Reykjavík, rétt eins og vcra
með hendur bundnar fyrir aftan
bak.
Hlutur okkar í fluginu til Húsa-
víkur er 20% en er að verða meiri
vegna þess að Flugleiðir eru aó
draga saman seglin þar og erum
við nú með um 50% af sætafram-
boðinu á þeirri flugleið," segir
Sigurður Aóalstcinsson.
„Við erum auðvitaö tilbúnir aö
skoða alla hluti og þar með flug á
Sauðárkrók en staðsetning okkar á
Akureyri cr ekki til þæginda, en ef
lljúga ætti að cinhverju ráði til
Húsavíkur og Sauðárkróks þá
yrðum vió að staósetja flugvél í
Reykjavík en það er ekkert að því
að hal'a útibú í Reykjavík með
flugmönnum og llugvirkjum. Þaó
kostar kannski meira en það gefur
að deila sér svo víða og við verð-
um að hafa hagkvæmnina að leið-
arljósi.“ GG
Landamerkjagirðing í Kelduhverfi
„Leysir fjailskilavandamáT
- segir Jón Sigurðsson í Garði, allskilastjóri Kelduneshrepps
Bændur í Kelduhverfi eru nú að
girða af land sitt í þeim tilgangi
að vera óháðir öðrum um
gangnaskil enda er beitarland
þeirra að sögn mjög gott og
mikið. „Landamerkjagirðingin
kemur til með að leysa
Qallskilavandamál hvað okkur
varðar,“ segir fjallskilastjóri
Kelduneshrepps en girðingunni
verður að hans sögn lokað um
eða eftir miðjan júlí. Girðingin
kemur hins vegar illa við bænd-
ur í Reykjahreppi.
„Aðaldælahreppur, Keldunes-
hreppur og Reykdælahreppur
geröu meó sér samkomulag um
að girða á mörkum Þeistareykjar-
lands og landa í Kelduhverfi. Það
verk hófst í síðustu viku,“ segir
Jón Sigurðsson í Garði en hann er
fjallskilastjóri Kelduneshrepps.
Framkvæmdin er í höndum Land-
græðslu ríkisins.
Aó sögn Jóns stefna Tjörncs-
ingar og Húsvíkingar aó því aó
girða á næsta ári vestur í Skjálf-
anda úr girðingunni í Kelduhverfi
- á mörkum Húsavíkurlands og
Tjömess - og því var haft samráó
við þá um girðinguna.
„Þetta er fyrst og fremst landa-
merkjagiróing á milli landanna til
þess að við getum verið óháóir
hver öðrum um beitarrétt og
gangnaskil,“ segir Jón en Aðal-
dælir sleppa fé ekki á afrétt fyrr en
um þessar mundir og sækja þaó
snemma.
„Þaö hefur verið svolítió
vandamál á milli Aðaldælinga og
Keldhverfinga um gangnaskil
vegna kröfu Landgræóslunnar um
aó þeir taki fé úr Þeistareykjar-
landinu í byrjun september.
Vió höfum svo gott og mikið
bcitarland fyrir okkar sauðfé hér í
Kclduneshreppi og höfum því
ekki verið alveg tilbúnir til þess
að taka allt okkar fé hér heim svo
snemma - í byrjun september - og
eiga ekki að slátra fyrr en í lok
september,“ segir Jón um ástæðu
þess að bændur vilja vera óháðir
öðrum í smalamcnnsku á haustin.
Að sögn Þorgríms J. Sigurðs-
sonar, oddvita Reykjahrepps, búa
bændur í Rcykjahreppi við land-
þrengsli og slakara land en í
Kclduneshrcppi. „Fé hefur í tölu-
vcrðu mæli gengið í Kelduhverfi
og giröingin kemur illa við bænd-
ur hér,“ segir Þorgrímur í samtali
við Dag, „cn landeigendur ráða
auóvitað hvernig þeir nýta sitt
land.“ GT