Dagur - 03.07.1993, Page 12
12 - DAGUR - Laugardagur 3. júlí 1993
Sagnabrunnur
Landnám Svía á Siglufirði og
húmoristinn Albert Engström
Norðmenn voru stór-
virkastir við að efla
atvinnulíf Siglufjarð-
ar á fyrsta fjórðungi
þessarar aldar. Þeir riðu á
vaðið. Þeir komu með hið nýja,
stórvirka veiðitæki, herpinót-
ina til Siglufjarðar árið 1903,
en tilraunir til veiða misheppn-
uðust. Þeir komu aftur 1904,
og þá var heppnin með þeim.
Þeir veiddu ágætiega, herpi-
nótin gaf góða raun. Það var
undravert, hvað hægt var að
veiða af vaðandi síld í þetta
nýja veiðitæki.
Þótt Norðmenn séu upphafs-
menn herpinótaveiða hér við land,
svo og frumherjar að söltun og
bræðslu síldar á Siglufirði, þá hafa
fleiri þjóóir, útlendar, komið þar
við sögu. Má þar nefna Dani og
Svía. En þótt hlutdeild þeirra síð-
ast nefndu sé mjög lítil, miðað við
brautryðjendastarf Norðmanna við
að gera Siglufjörð að stórfelldum
síldarbæ, þá er ekki ástæða til, að
framtak þeirra gleymist meó öllu.
Telja má sennilegt, aó eftirtaldar
upplýsingar um hina fyrstu
sænsku síldarútgeró frá Siglufirði
séu í fárra höndum nú oróið, og
því ætla ég að fara nokkrum orð-
um um hinn fyrsta leiðangur, er
Svíar sendu til Siglufjaróar árið
1905. Og sú vióleitni, er nokkrir
Svíar sýndu til að ná fótfestu á
Siglufirði, varð orsök þess, að
kímniteiknarinn og húmoristinn
Albert Engström kom þangað árið
1911.
En það var reyndar Norðmað-
ur, sem átti frumkvæðið að þess-
um fyrsta síldarleiðangri Svía til
íslands. Maður þessi var Edvin
Jacobsen, útgerðarmaður frá
Fosnavaag í Noregi. Jacobsen var
í hópi hinna fyrstu Norðmanna, er
komu til Siglufjarðar árið 1904
með hið nýja veiðitæki þeirra
tíma, herpinótina. Þetta veióarfæri
olli byltingu í síldveiðinni.
Vaðandi síld veidd í herpinót
Áður er herpinótin kom til sög-
unnar, voru síldveiðar takmarkað-
ar viö veiðar í lagnet og landnætur
inni á fjöróum og víkum, og rek-
netin voru þá lítt þekkt og reynd
og þóttu misfiskin. Ymist sukku
þau vegna ofveiði eða glötuðust,
ef veður spilltust.
En hið nýja tæki, herpinótin,
var heppileg til að veiða vaðandi
síld á opnu hafi, hvar sem var,
þegar veðurskilyrði leyfðu. Og
aflinn gat oft skipt hundruðum
tunna eða mála í hverju einstöku
kasti. Svo afkastamikið veiðarfæri
hafði aldrei þekkst fyrr.
Norðmenn komu með herpinót-
ina til Siglufjarðar árið 1903, sem
fyrr segir, en veióitilraunirnar
mistókust. En þeir uróu reynslunni
ríkari, og árið eftir komu þeir aft-
ur, og þá heppnaðist veiðin í þetta
nýja tæki; nýtt tímabil hófst á
Siglufiröi, Norðmenn tóku sjávar-
lóðir á leigu og byggðu hin fyrstu
plön og bryggjur. En fyrstu árin
söltuðu þeir þó mikið af síld um
borð í birgðaskipunum, er lágu í
höfninni sumarlangt. Þetta voru
stórar skonnortur eða barkar, svo-
nefndir „lektarar". Þar fengu hinar
siglfirsku stúlkur hina fyrstu æf-
ingu í að kverka síld á skipsfjöl.
Þar um borð var oft glatt á hjalla.
Hinn góði árangur, er herpinót-
in gaf árið 1904, varð til þess, að
þeir höfðu mikinn viðbúnað árið
eftir, og hver af öðrum tóku Noró-
mennimir sjávarlóðir á leigu á
Hvanneyrinni og undir Hafnar-
bökkum og hófust handa um að
byggja síldarplön, bryggjur og
síldarhús, en söltun um borð í
bryggskipunum hélt þó áfram
næstu árin sökum aðstöðuskorts í
landi.
Hér varð að byggja allt frá
grunni.
Vel heppnuð tilraun Svíans
Jacobsen var í hópi þeirra fyrstu,
er fékk aðstöðu í landi, og hann
reisti svonefnda Jacobsensstöð.
Hann rak útgerð og síldarsöltun á
Siglufirði í áratugi og var vel mef
inn af öllum, er hann þekktu. I
byrjun ársins 1905 vann Jacobsen
að því, að kynna Svía nokkrum, er
hann þekkti, hina góðu aðstöðu,
sem hann taldi vera á Siglufirði,
til að stunda síldveiðar með herpi-
nót, m.a. benti hann á hina sér-
stæðu og afbragðsgóðu höfn og
ágætu legu staðarins yst fyrir
miðju Norðurlandi. Þessi viðleitni
hans varð til þess, að Adolph J.
Solbu, forstjóri í Gautaborg,
ákvað að gera út leiðangur til Is-
lands sumarið 1905.
Solbu leigði skonnortuna „Pi-
len“ frá Stavanger, er skyldi vera
birgðaskip og verkunarstöó, enn-
fremur kútterinn „Orion“ til síld-
veiðanna. Utgerðin heppnaðist
ágætlega, og þótt skipin væru
norsk, höfðu þau sænskan fáim
meóferðis til að undirstrika, að hér
væri sænskt fyrirtæki á ferð.
Þessi fyrsta, vel heppnaða til-
raun Svíans varð til þess, að Solbu
fékk tvo aðra landa sína í félag
við sig á næsta ári, og sendu þeir
þá stærri leiðangur til Siglufjarð-
ar. Þessir félagar hans hétu H.H.
Kristensen og Erik Bolin. Þeir
sendu sumarið 1906 gufuskipið
„Serla“ frá Gautaborg til síldveióa
við Island. Skipstjóri var Carl
Kock frá Gautaborg og er „Serla“
óefað fyrsta sænska gufuskipió, er
siglir inn í Siglufjarðarhöfn.
Solbu ætlaói árið áður, 1905,
að leigja gufuskip í hinn fyrsta
leiðangur, cn leigan strandaði á
því, að ekkert sænskt sjótrygg-
ingafélag fékkst til að tryggja
farm og útbúnað á hinum fjarlægu
miðum vió Norður-ísland.
Jacobsen mjög áreiðanlegur
Hinir tveir leiðangrar Solbu og fé-
lags hans heppnuóust vel og fram-
ar vonum, og þetta framtak þeirra
varó til þess, að árið 1907 komu
hingað leiðangrar frá Smögen og
Lysekil, og upp frá því tóku Svíar
á ári hverju þátt í síldveiðinni fyrir
Norðurlandi.
Edvin Jacobsen hafði yfirum-
sjón með síldarleióangrum þeirra
Solbu, Kristensens og Bolin þau
14 ár, er þeir gerðu skip sín út til
síldveiða hingað, og er ekki að
efa, aó Svíarnir hafa notið dugn-
aðar hans og fyrirhyggju, þar sem
Jacobsen var maður mjög áreiðan-
legur í öllum viðskiptum.
Traust það, er hann ávann sér
hjá Svíum, má marka á því, að í
fyrri heimsstyrjöldinni löggilti
matvælanefnd Svía hann sem
trúnaðarmann sinn varðandi yfir-
töku á saltsíld frá íslandi. Það var
vissulega ábyrgðarstarf, eins og
verkun síldar var háttaó á þeim
dögum.
Jacobsen geymdi í fórum sín-
um sænska fánann er blakti á
Siglufjarðarhöfn á skonnortunni
„Pilen“ sumarið 1905. Hann varð-
veitti fánann sem minjagrip, og
þegar síðari heimsstyrjöldin var
að hefjast 1939, afhenti hann aðal-
ræðismanni Svía á Islandi, hr. O.
Johansen, fánann, meó tilmælum
um að hann fengi samastað á Sjö-
farsmuseum í Gautaborg.
Svíar voru frá upphafi síld-
veiða fyrir Noróurlandi helstu
kaupendur saltaðrar síldar, og þeir
voru jafnan langstærstu kaupend-
urnir fram að árinu 1940. Um
skeið voru þeir því nær einráðir á
saltsíldarmarkaðnum, og má
segja, að þeir hafi - á vissu tíma-
bili - verið raunverulegir eigendur
margra síldarstöðvanna á Siglu-
firöi. En svo koma nýir aðilar, ný-
ir markaðir, og síldin seldist til
fleiri landa. Það var því ekki nema
eðlilegt, að þegnar helsta síldar-
neyslulandsins hefðu hug á aó
taka þátt í hinu mikla kapphlaupi
um Norðurlandssíldina, sem hófst
með tilkomu herpinótarinnar
1904.
ísland fjarlægt og óþekkt
Og sú staðreynd, að Solbu for-
stjóri fékk ekki sænsk trygginga-
félög til að tryggja farm og útbún-
að hins fyrsta sænska síldarleið-
angurs, sýnir, hve Island var um
þetta leyti fjarlægt og óþekkt meó-
al Svía. En Norðurlandssíldin
kynnti Island þar ytra. Hún þótti
afbragðs ljúffeng fæða á matborði
Svía, sem fóru að gefa gaum
þessu norðlæga, og í þeirra aug-
um, mjög fjarlæga landi.
Sænskir síldarkaupmenn,
skipamiðlarar, fiskimcnn og for-
vitnir ferðalangar og ævintýra-
menn lögðu á hafið og leituðu til
Siglufjarðar á sumrin. En það var
aðeins einn Svíi, er reisti stóra
síldarstöð í landareign Siglutjarð-
ar. Það var John Wedin frá Stokk-
hólmi. Hann eignaðist sjávarlóó
þá, sem frumherjinn Mannes hinn
norski, hafði tekið á leigu árið
1903, og sem landar hans, Hareide
og Garshoe, urðu eigcndur að ári
síðar, cn seldu svo Wedin. Lóð
þessi var á austanveróri Hvann-
eyrareyri, á milli Gránubryggju og
Henriksensstöðvar. Þar reisti
Wedin síldarstöð og síldarhús.
Síðar reisti hann snoturt íbúóarhús
í brekkunni lyrir ofan eyrina, og
var hús hans ýmist nefnt Wedins-
hús eða Wedinsvilla.
Engström kallar Wedin
„sænska landnámsmanninn á
Siglufirði“, og er það réttnefni,
þótt ekki ætti hann fyrstu sænsku
síldarútgerðina, er þangað sótti
veiöar, sbr. það sem áður segir.
Wedin var dugmikill athafna-
maður og vænn höfðingi, og það
var hann, sem bauð nokkrum
sænskum kunningjum sínum til
Siglufjarðar sumarió 1911, og
þekktastur þeirra mun hafa verið
teiknarinn og húmoristinn Albert
Engström. íslandsferð á þeim dög-
um þótti mikið ævintýri.
Tuttugu og þrjár ölknæpur í
síldarbænum
Engström skrifaði nokkuð um
dvöl sína í þessum norðlæga síld-
arbæ, er þá var í bernsku og allur
hálfkaraður. En hvort það, sem úr
penna hans flaut, gaf rétta og
sanngjarna mynd af staónum, skal
ósagt látið, því að fyrir Engström
vakti fyrst og fremst að skapa
húmor, sem krassaði á við vel
Til sölu húseignin
að Háalundi 6 Akureyri
Upplýsingar í síma 96-11857.
Happdrætti
Blindrafélagsins 1993
Dregið 23. júní.
Vinningsnúmer eru:
4385 5667
8147 19595 22167
5521 8669 19991
500 4517 10288 13823 19416
1004 5917 10401 14691 19533
2163 7126 11547 14829 19581
2705 7793 11721 15941 20872
3553 8321 12598 16043 21695
3859 8901 12658 16728 21995
4239 9170 13698 18347 22916
4375 9477 13763 19283 24043
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra,
Hamrahlíð 17.
Símsvarinn er 38181.
Hér birtist einn af mörgum þáttum sem Björn Dúason á í fórum sínum og tengjast sögu Siglufjarðar. Tilvalið þykir
að birta hann núna þar sem 8. júlí nk. eru 90 ár liðin frá því fyrsta hafsíldin barst til Siglufjarðar og verður tíma-
mótanna m.a. minnst með síldarsöitun á vinabæjamótinu svo og um verslunarmannahelgina þegar Síldarævintýrið
brestur á.
!■