Dagur - 03.07.1993, Síða 17
Laugardagur 3. júlí 1993 - DAGUR - 17
BÖRNIN OKKAR Kristín Linda Jónsdóttir
Að koma með bömin sín heil heim
Það er skemmtilegt og uppbyggjandi að
víkka sjóndeildarhringinn, með því að
ferðast um áður óþekktar slóðir, hvort
sem um er að ræða í næsta byggðarlagi
eða á erlendri grund. Við nýtum frí-
stundir sumarsins örðum tímum fremur
til slíkra ferðalaga og leggjum land und-
ir fót, hvert með sínu lagi, ásamt fjöl-
skyldu okkar. Hvort sem við ferðumst
langt eða skammt skiptir það mestu að
okkur auðnist að koma heil heim. Að við
og börnin okkar komumst klakklaust í
gegnum ferðalög sumarsins.
Um drukknanir barna hefur vcrið rætt töluvert á síöustu árum og mánuð-
um en hver cinasta drukknun cr einni of mikið. Nýtum björgunarvesti og
glcymum okkur ekki andartak.
Erum við hugsanlega öruggust
í því umhverfi sem við þekkjum,
vegna þess að við þekkjum það og
þar leynast ekki óvæntar hættur
við næsta fótmál ? Ef svo er er þá
ekki sérstaklega nauðsynlegt að
hafa augun opin þegar við ferð-
umst um ókunnar slóðir?
Fyrir börn sem búa í þéttbýli er
heimsókn á sveitabæ ævintýraleg
og spennandi. Þar þarf ekki að
gæta sín á bílunum á götunum og
víðátta túna, holta og móa heillar.
Því miður verða of mörg slys þcg-
ar börn sækja bændur heim.
Kramdist undir áburðar-
pokum!
Á síðustu árum hafa til dæmis
orðið slys þegar börn hafa klifrað
upp á áburðarpoka-stafla ýmist
heima á sveitabæjum eða þar sem
þeir standa viö vegkantinn. Eldri
börnin komast upp á cn þau yngri
ekki og þegar minnst varir hrynur
staflinn undan eldri börnum og
þau yngri verða undir. Einnig cru
rúllubaggarnir freistandi til að
klifra á en stórhættulegir. Flestum
eru Ijósar hætturnar sem fylgja
vélum og tækjum á búum en
aldrei er of varlega farió í því
Krakkar eru mikið í fótboita cn cins og reynslan sýnir geta laus fótboltamörk verið hættuleg. Á síðustu sex árum
hafa að minnsta kosti 30 börn slasast þegar mörk hafa fallið ofan á þau.
sambandi. Sveitabæir verða
tæknivæddari með hverju árinu og
um leið aukast hætturnar. Til
dæmis hafa rafmagnsgirðingar
margfaldast að lengd og umfangi
á síðustu árum. Þó svo þær séu
ekki lífshættulegar er hvorki æski-
legt eða þægilegt fyrir barnið okk-
ar, sem ætlar að troða sér í gegn-
um girðinguna, að fá stuð í höfuð-
ið.
Það var mark
Börnin okkar þekkja leiktækin í
sínu nánast umhverfi en ný leik-
tæki cru spennandi og skemmti-
leg. Er fótboltamarkið á lóð sum-
arbústaðarins fast eða l'ellur það á
andlitió á barninu þínu ? Á síöustu
sex árum hafa að minnsta kosti 30
„Slys eru ekki yf irnáttú ru leg u r
hlutur. Þau eiga sér alltaf eðlilega skýringu
og færustu sérfræðingar segja að það sé hægt
að fyrirbyggja 97% allra slysa,“
segir Herdís Storgaar verkefnisstjóri
hjá Slysavarnafélagi íslands.
Eg vil að mamma og
pabbi passi mig vel;
- svo vel að ég þurfi ekki
að vera hrædd
- svo vel að ég meiði mig ekki neitt
- svo vel aðmig hendi ekkert illt
- svo vel - svo vel - svo vel
börn slasast alvarlega þegar mörk
hafa fallið ofan á þau. Hver er
ábyrgó þeirra sem setja mörkin
upp? Mörg leiktæki eru of veik-
byggð, illa við haldið og illa fest.
Leggjum það á okkur að skoóa
leiktækin áður en barniö okkar fer
að leika sér í þeirn og meta öryggi
þeirra. Það eru dæmi um að leik-
tæki fyrir börn hafi verið sett
þannig upp að þau geti fallið 4
metra úr þeim og niður á steypt
undirlag! Hvað eru þeir að hugsa
sem hanna og setja upp slíkar
slysagildrur?
*
Eg er að sökkva!
Skurðir ýmist grafnir af mönnum
eða fen og dý sem náttúran hefur
mótað eru hættur sem víða leynast
oft ótrúlega nærri ferðamanna-
stöðum og bæjum. Einnig er rétt
aó minnast þess að Island er land
jarðhita og heitir lækir, uppsprett-
ur og hverir eru víóa. Sjóðandi
lækur í nokkurra metra fjarlægö
frá tjaldstæði sem vinsælt er til
ættarmóta er stórhættulegur og of
mörg börn brennast á heitu vatni.
Vatn, heitt eða kalt, getur dulist
undir grænu grasi, vió, sinu, eða
öðrum gróðri. Það er ckki langt
síðan barn var hætt komið í síki
eða for í Reykjavík, þær leynast á
ólíklegustu stöóum hætturnar.
Við veiðar
Um drukknanir barna hefur verið
rætt tölvert á síðustu árum og
mánuðum en hver einasta drukkn-
un eða nær drukknun er einni of
mikið. Fjöldi íslendingar leggur
leið sína að ám og vötnum á sumr-
in, sofnum ekki á veróinum. Nýt-
um björgunarvesti og gleymum
okkur ekki andartak því að þau
eru fá andartökin sem það tekur
barnið okkar að drukkna.
Jafnvel drullupollar geta
valdið dauða
Því miður eiga sér stað drukknanir
í sundlaugum og heitum pottum,
jafnvel uppblásnum litlum buslu-
laugum, gosbrunnum og tjörnum í
görðum. Sjaldan eru þessi mann-
virki eins mikið notuð og yfir
sumarið þcgar sólin skín. Gætum
aö því að vatn er hvikull vinur,
smábörn hafa drukknað í smá
pollum, þau falla á andlitið, bera
ekki fyrir sig hendurnar, draga að
sér andann og lungun fyllast af
vatni.
Þcgar fjölskyldan er í sundi
verður að vera ljóst hver ber
ábyrgð á þeim sem eru ósyntir,
ekki synda burt og tclja að stóri
bróðir sé aó gæta litlu systur án
þess að oróa það við hann. Ef til
vill er hann aðeins að leika sér við
hana og áttar sig ekki á að þú crt
ekki til staðar þegar hann sjálfur
syndir burt, slíkur misskilningur
cr oft dýru verðir keyptur.
Það er aldrei óþarfi eða
móðursýki að gæta
barnanna sinna
Alltol' oft hef ég hlustað á mcnn,
ávíta konur fyrir áhyggjur þcirra
af öryggi barna. Ég veit að þið
hafið heyrt það líka. Sem bctur fer
cru flcstir forcldrar, afar og ömm-
ur og aðrir þeirra sem gæta barna
samhentir í því að vaka yilr vel-
fcrö þeirra og öryggi. En hvc oft
cr það mamman sem fer af staó til
að gæta að börnunum? Hve oft
fær hún þau svör að þaó sé algjör
óþarfi að hafa allar þessar áhyggj-
ur það sé allt í lagi með börnin!
Skyldi hún hafa fcngið slík svör
móðir barnsins sem drukknaði ör-
skammt frá bænum? Eða móðir
barnsins sem brenndist þegar það
steig ofan í sjóóandi kolin í hol-
unni scm gómsætt lærió hafði ver-
ið grafið í?
Það er ekki töff að hafa eng-
ar áhyggjur
Auðvitað verða börn að fá visst
svigrúm til leikja, til að kanna
heiminn og til að kljást við það
scm ögrar cn aðcins ef fyllsta ör-
yggis er gætt.
Þaó er notalcgt að sitja inni í
sumarbústaðnum, tjaldinu eða
gististaðnum mcð rjúkandi kaffi í
krús eða svalandi drykk á meðan
börnin fara í fjallgöngu eða leika
sér skammt undan. En hvar eru
þau og hvað nákvæmlega eru þau
að gera?
Láturn ekki eigin leti verða
slysagildru barnanna okkar. Gæt-
um þcss einnig að vímucfnaneysla
slævi ckki dómgreind okkar þegar
öryggi barnanna á í hlut. Það cr
mikilvægt að það sé ávallt einhver
fulloróinn með í barnahópnum
þegar dvalið cr fjarri daglegu um-
hverfi barnanna. Stöndum upp og
fylgjum þeim eftir, frumkvæðið
og könnun óþekkts umhverfisins
getur eftir sem áöur veriö þeirra,
við erum aðeins öryggisnet og fá-
um um leið að njóta ævintýrisins
með þeirn.
Næsti þáttur: Þaö eru börn í bílnum