Dagur


Dagur - 06.07.1993, Qupperneq 2

Dagur - 06.07.1993, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 6. júlí 1993 Fréttir Viðbyggingvið heimili aldraðra boðin út Á fundi bæjarráðs Dalvíkur 1. júlí sl. lá m.a. fyrir fundargerð stjórnar Dalbæjar, heimili aldr- aðra á Dalvík, sem ályktaði ný- lega að væntanleg viðbygging við heimilið verði boðin út en útboðið miðast við fokhelt hús, þ.e. uppsteypt og frágengið að utan, sem yrði tilbúið 1. júlí 1994. Viðbyggingin kemur norðan við núverandi byggingu og verður á tveimur hæðum, 428 fermetrar að grunnfleti, 1486 rúmmetrar. Á efri hæð hússins verður eld- hús og borósalur en á neðri hæó skrifstofur og starfsmannaaöstaða en viö breytingarnar losnar hús- næði sem hefur verið notað undir borösal. Það húsnæði veróur nýtt undir félagsaðstöðu fyrir vist- menn og einnig fyrir þá sem þiggja dagvistun af heimilinu. Næsta ár verður síðan boðinn út frágangur að innan og stefnt að því að taka viðbygginguna í notk- un 1. júlí 1995. Hestamannafélagió Hringur hefur fcngió staðfest frá skipu- lagsnefnd umsókn um skeiðvöll við hesthús félagsins að Ytra- Holti. Ungmennafélag Svarfdæla hef- ur óskaó eftir því að yfirtaka rekstur íþróttahússins eftir aö kennslu lýkur í húsinu á daginn og lýsti bæjarráó yfir jákvæðri af- stöðu til málsins en vísaði því til íþrótta- og æskulýðsráðs. Forseti bæjarstjómar, bæjar- stjóri, tveir bæjarfulltrúar og bæj- artæknifræðingur ásamt mökum eru staddir í bænum Hamar í Nor- egi á vinabæjamóti en ein hjónin eru á vegum Norræna félagsins, hin á vegum Dalvíkurbæjar. Dag- skrá mótsins markast mjög af væntanlegum vetrarólympíuleik- um sem haldnir verða í Lille- hammer í febrúar á næsta ári en Hamar er í nágrenni hans. Auk þess fer fram í Hamri mjög stórt Íúðrasveitarmót þessa dagana en Kirkjukór Dalvíkurkirkju var með vangaveltur um að fara á vinabæjamótió en varð að hætta við vegna þess að ekki voru möguleikar á því að taka við kóm- um í gistingu. GG Akureyri: Byggmgaframkvæmdir að hefjast hjá Slysavarnafélaginu I dag, þriðjudag, hefjast fram- kvæmdir við nýbyggingu kvennadeildar Slysavarnafélags íslands og sjósveitarinnar Súla við Strandgötu á Akureyri. Fyrsta skóflustungan var tekin sl. laugardag en vonir standa til þess að húsið verið fokhelt í haust. Bergljót Jónsdóttir, formaður kvennadeildarinnar, tók fyrstu skóflustunguna aó hinu 400 fer- metra húsi sem teiknað er af Svani Eiríkssyni arkitckt á Akureyri. Húsinu er skipt í tvennt, í öðrum helmingnum verður félagsaðstaða en í hinum kemur sjósveitin Súlur til með að hafa aðstöðu. í milli- byggingu verða sameiginlegar snyrtingar og skrifstofur. Að sögn Svölu Halldórsdóttur hjá kvennadeildinni er reiknað með að mest allar framkvæmdir verði unnar í sjálfboðavinnu og segist hún vona að Akureyringar verði duglegir að leggja þeim lió. „Það veröur að ráðast hvenær hægt veróur að taka húsið í notk- un. Sennilega verður það fokhelt í haust og um leið og þaö veróur getur sjósveitin flutt inn.“ Um endanleg verklok segir hún erfió- ara að spá þar sem það fari eftir því hversu vel gangi að fá sjálf- boðaliöa til starfa. KR Mynd: Halldór Gamli Sólbakur dregrnn til írlands Síódegis á laugardag hélt Sólbakurinn gamli í sína síðustu sjóferð en hann hefur verið hjá Utgcrðarfélagi Ak- ureyringa síðan 1987. Skipið er 743 brúttórúmlestir og var áður skráó sem Dagstjarnan í Keflavík en nú er hann á leið til írlands þar sem hann veróur seldur til niðurrifs. Skipið er smíóaó 1969, var eitt frægasta afla- skip Breta á sínum tíma og sögufrægt fyrir aö hafa lent í skothríó íslensku Landhelgisgæzlunnar og fengið á sig gat í þorskastríðinu. Þá hét skipið CS Forrester og sigldi undir stjórn hins alræmda landhelgisbrjóts Tayl- ors sem eitt sinn strauk með íslenska löggæslumenn um borð. Fallið frá kæru á hendur Sælandskaupmanninum í „hvalamálinu“: Ekki líklegt að sannað yrði brot gegn lögum um hvalveiðar Fallið hefur verið frá kæru á hendur Þorvaldi Baldvinssyni kaupmanni í versluninni Sæ- landi á Akureyri, en hann var kærður fyrir að hafa drepið (veitt) hrefnur og höfrunga og haft kjötið af þeim til sölu í verslun sinni. Jón Ellertsson, lögmaður hjá ríkissaksóknara, segir að kæran hafl verið felld niður vegna þess að ekki var talið líklegt að sannað yrði á hann brot gegn lögum um hval- veiðar og reglugerð um sama efni. Eyþór Þorbergsson, fulltrúi sýslumanns á Akureyri, segir að Þorvaldi verði nú gefinn kostur á að sækja kjötið til lögreglunnar ef hann hafi áhuga á því en það sé nú orðið nokkuð gamalt. „Mér finnst mjög ólíklegt að Þorvaldur fái bætur þótt hann sæktist eftir því, en maðurinn hefur hreykt sér af því í sjónvarpi að hafa kjötið til sölu og lætur liggja að því að Skapti Áskelsson látiim Skapti Áskelsson, sem gjarnan var kenndur við Slippstöðina hf. á Akureyri, lést t Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 3. júlí síðastlið- inn, 85 ára að aldri. Skapti var fæddur 20. júní 1908 í Austari-Krókum í Háls- hreppi, Suður-Þingeyjarsýslu. Hann kynntist ungur sjó- mennsku og stundaði m.a. nám og störf hjá Antoni Jónssyni í smíðum en lauk ekki formlega iðnnámi. Hann stundaði útgerö frá Grenivík ásamt Þorbirni bróóursínum 1930-38. Um áramótin 1938-39 fluttist Skapti til Akureyrar með eigin- konu sinni, Guðfinnu Hallgríms- dóttur frá Glúmsstöóum í Fljóts- dal, sem hann kvæntist 1936, og syni þeirra Hallgrími. Auk hans eignuðust þau soninn Brynjar Inga. Skapti setti æ síðan mikinn svip á athafnalífið í höfuðstað Norðurlands. Hann vann sem smiður hjá Skipasmíóastöð Kaupfélags Eyfirðinga árin 1940-51 og árið 1952 stofnaði hann ásamt öórum Slippstöðina hf. Hann var framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar 1952-1970 og var mikill kraftur í skipasmíóa- iðnaðinum á Akureyri á þessum tíma. Nokkrum árum eftir starfslok í Slippstöðinni stofnaði Skapti byggingavöruverslunina Skapta hf. og var þar við störf allt fram í árslok 1983, en þá settist hann í helgan stein nær hálfáttræður. Bragi Sigurjónsson skráói sögu athafnamannsins Skapta Áskelssonar í bókinni Skapti í Slippnum scm komútl985. Dagur sendir fjölskyldu Skapta samúðarkveðjur við frá- fall hans. SS hann hafi veitt skepnurnar," sagði Eyþór Þorbergsson. „Það er mjög ánægjulegt að fallið hefur verið frá kæru á hend- ur mér enda ekki stætt á öðru. Nú get ég sótt kjötið til þeirra aftur en þeir tóku hér 9 kg þegar rann- sókn málsins stóð yfir. Það er bráðnauósynlegt að veiða þessar skepnur og ég skil ekki af hverju við eigum að láta einhvcrjar gras- ætur úti í heimi skikka okkur til að henda þessu frá okkur. Á vorin er það óhjákvæmilegt að þessar skepnur þvælist í netin og einnig í línufærin en þær þvæla þessu ut- an um sig og hafa það ekki upp, springa hreinlega á því eða drukkna. Á línuveiðaranum Lísu Maríu frá Ólafsfirði fékkst höfr- ungur á línu nú í vor en hann beit á línuna. Eg hef raunar ekki heyrt að þaó hafi gerst áður,“ sagði Þor- valdur Baldvinsson. GG Vopnfirðingar og Þórshafnarbúar taka höndum saman: Júpíter keyptur norður Sl. föstudag var gengið frá kaupum á loðnuveiðiskipinu Júpíter RE-161 en það var eign þrotabús Hóla hf. í Bolungar- vík. Kaupandi er nýtt hlutafé- lag, Skálar hf. á Þórshöfn, en fé- lagið er stofnað af Hraðfrysti- stöð Þórshafnar hf., Tanga hf. á Vopnafirði, Fiskiðjunni Bjargi hf. á Bakkafirði og sveitarfélög- um á svæðinu en einnig eiga viðskiptaaðilar hlut í fyrirtæk- inu. Skipið er í Reykjavík, en verió er að gera það klárt á loðnuvertíó- ina og heldur það væntanlega norður í vikunni. Júpíter er 747 brúttólestir að stærð og eitt af- kastamesta loónuveiðiskip fiotans. Fulllestaður ber hann um 1300 lestir af loðnu. Veiðiheimildir skipsins verða 3% af útgefnum loðnukvóta eöa rúmlcga 21 þús- und tonn mióað við þann byrjun- arkvóta sem gefinn hefur verið út fyrir nýbyrjaða vertíð sem er 900 þúsund tonn, þar af 702 þúsund í hlut íslendinga. Auk þess fylgir skipinu 320 tonna rækjukvóti og 60 tonn af öórum fiski Jóhann A. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf., segir að útgcró skipsins muni styrkja verulega hráefnisöfiun loðnuverksmiðj- anna á Þórshöfn og Vopnafirði og bæta afkomumöguleika þeirra. Þá mun útgerð skipsins cinnig styrkja atvinnulíf byggðarlaganna, bæði útgerð skipsins beint og með þjónustu við útgerðina. Skipstjóri vcrður Lárus Gríms- son en í áhöfn skipsins 15 manns. GG Virðisaukaskattur settur á íjölmiðla Þrátt fyrir talsverða verðhækkun á pappír, prentlitum og flutn- ingsgjöldum í kjölfar tveggja gengisfellinga á undanförnum mánuðum mun áskriftarverð Dags haldast óbreytt, kr. 1200 á mánuði fyrir fulla áskrift. Hins vegar er Degi, cins og öðrum fjölmiðlum, gert að innheimta 14% virðisaukaskatt fyrir ríkis- sjóð frá 1. júlí. Skattur þessi nemur 168 krónum af fullu áskriftargjaldi og verður hann innheimtur frá og með næstu mánaðamótum. SS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.