Dagur


Dagur - 06.07.1993, Qupperneq 6

Dagur - 06.07.1993, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 6. júlí 1993 Lúðvíg Eggertsson: Láta sér annars víti að vamaði verða Ég kynntist fyrir nokkru manni, sem haföi ráöið sig til náms og starfs í „landi austan tjalds“, svo sem alræðisríki þar um slóóir voru þá kölluð. Slík þótti mér saga hans, að cg vil gefa íslenskum les- endum kost á aó heyra hana. Hún er á þessa leið: Lent í nýju landi „Þegar flugvélin hafði lent og vió farþegarnir gengum nióur land- ganginn, mátti sjá lögreglubifreið nokkra metra frá. Tveir laganna verðir sátu í framsætum og fylgd- ust grannt með fólksstraumnum. Aó lokinni tollskoðun og vega- bréfsáritun var ekið með áætlunar- vagni frá flugvelli til borgar, lið- lega klukkustund. Lögreglubifreið fylgdi, en ekki varð séð, hvort hún var hin sama og beið viö land- ganginn. Ibúð fékkst ekki í borginni, en hins vegar í nálægu bæjarfélagi. Hún var í sambýlishúsi um 100 metra frá aðalbraut, sem lá til borgar. Sparneytinn smábíl hafði ég til afnota. I fyrstu ferð minni til vinnu- staðar mætti ég lögreglubifreið, þegar ég beygði inn á aðalbraut- ina. Sú bifreið kom frá kaupstaðn- um og bar merki bæjarfélagsins. Fór hún á eftir mér spölkorn, en sneri svo inn á hliðargötu. Var þetta raunar ekkert til að fást um, að mér fannst. Skoðun mín breytt- ist þó, þegar hið sama endurtók sig í hvert sinn sem ég ók til borg- ar - vikum og mánuðum saman á ýmsum tímum dags. Einn starfsfé- laga minna taldi þetta eiga að láta mig vita, aó fylgst væri með mér.“ I Bein áreitni „Að nokkrum tíma liðnum bauðst mér íbúó innan borgarmarka. Fluttist ég þangað með eiginkon- unni, sem var miklum mun yngri en ég. Um 15 mínútna akstur var milli heimilis og vinnustaðar. Ekki leið á löngu áður en fyrra látæði lögreglumanna hófst að nýju. Morgun hvern lagði ég bíln- um á afmarkað bifreiðastæði við umferðargötu gegnt skrifstofu- byggingunni, þar sem ég vann. Ævinlega og án undantekningar bar lögreglubifreið að í sama mund. Gekk svo um langa hríð. Loks hugkvæmdist mér að bregða venju einu sinni. Notaði ég bif- reiðastæði á baklóð í hvarfi frá umferðargötunni. Ekki var lag- anna verði þar að sjá. Þeir voru hins vegar mættir, jsegar ég sneri heim að verki loknu. Meðan ég gekk eftir gangstétt með bíllykl- ana í hendinni, stefndi lögreglu- bifreió skyndilega í átt til mín með hraóa. Hún snarbeygöi rétt áður en hún snart gangstéttarbrún- ina. Var verió að ógna mér eöa kúga til hlýðni? Brátt varð ég þess var, að sími minn var hleraður. Auðvelt var að gera sér grein fyrir því. Mér var ávallt fylgt eftir af lögreglubifreið, hvert sem ég fór og hvenær, ef ég hafði áður látið vita um ferðir mínar í síma, jafnvel þótt með margra daga fyrirvara væri.“ Óvænt heimsókn „Vetur var kaldur og þungfær. Tók liðagigt aó þjá mig. Að lækn- isráði gekk ég til hjúkrunarkonu, sem gaf mér stungulyf og nudd. Nú bar svo til, meöan ég var í vinnunni, að hringt var dyrabjöllu heima hjá konu minni. Þar var kominn lögregluþjónn, sem bað hana að opna fyrir sér. Það gerði hún. Gesturinn kvaðst vita, að hún væri heiðarleg, en hið sama yrði ekki sagt um „gamla manninn“, og átti hann þar vió mig. Hefði hann orðið var við vikulegar ferðir mínar til ástkonu, er byggi nokkr- um blokkum fjær. Eiginkona mín, sem vissi betur, bað hann að hafa sig á burtu.“ Dæmigerður dagur „Þegar frá leið, fluttum við hjónin í annan borgarhluta. En daglega lífið breyttist ekki, og löggan var söm við sig. Sími hjúkrunarkon- unnar var nú hleraður líka. Þegar venjulegur vinnutími að morgni nálgaðist, mátti sjá ómerkta lögreglubifreið, eina eða fleiri, rölta eftir umferðargötunni gegnt íbúðinni eða taka sér biö- stöðu í nágrenninu. Sjaldan var um að ræða hina hefðbundnu vagna, heldur minni senditíkur löggunar, t.d. Lada-druslur nær samlitar götunni eða í sterkari lit- um. Kvensnift var gjarnan við stýrið. Stundum hímdi lögreglu- bifhjól þarna tímunum saman, jafnvel í slæmu veðri. En slíkar hrellingar lögreglumanna voru úr sögunni meó tilkomu myndupp- tökutækja. Svo oft hafði ég séð þessi ökutæki, að ég þekkti hvcrt þeirra tilsýndar og þurfti ekki aó sjá númerið. Um leið og ég lagöi af staó í bifreió minni (eða strætisvagni), íþrótta- vorur fyrir a\\a st óra 00 smáa fylgdi einn úr hersingunni mér eft- ir, meðan unnt var vegna umferð- arinnar. Svo kallaði hann annan upp eða aðra, og tóku þeir þá til við eltingarleikinn. Fyrir kom, t.d. í miklu annríki eóa á óvenjulegum tíma, að notast var við „félagslegu ökutækin", sjúkrabíl eóa bíl fatl- aðra og lamaðra, jafnvel póstbíl, sem var þó sjaldan. Síðast kom lögreglubíllinn sjálfur í veg fyrir mig, og var það ávallt svo. Sömu tilburðir voru viðhafóir á heim- leið. - Ef þeir misstu af mér á leió til borgar, var leitað á bifreiöa- stæðunum. Ef þaö gerðist á heim- leið, var bíll settur á vakt við hús mitt. Fróðlegt væri að reikna kostn- aðinn fyrir samfélagið af kerfi sem þessu eöa meta áhrif þess á mannfólkið, ekki síst á lögreglu- og njósnaliðió sjálft, en þaó leiói ég hjá mér,“ mælti sögumaður að lokum. Lúðvíg Eggertsson. Höfundur er fyrrverandi kaupmaóur. Krabbameinsfélag íslands: Fékk ágóða af sölu Frejjusagna Krabbameinsfélagi íslands voru nýlega færðar aó gjöf 150 þúsund krónur, sem er ágóði af sölu barnabókarinnar „Freyjusögur“ sem kom út fyrir tæpum tveimur árum. Höfundur „Freyjusagna" var Kristín Finnbogadóttir frá Hít- ardal sem lést fyrir rúmum tveim- ur árum en hún hefði orðió 65 ára þann 30. júní 1993. Kristín, eða „Lalla“ eins og hún var ætíð kölluó, fæddist í Hít- ardal í Mýrasýslu árið 1928, langyngst og eina systirin í hópi 10 bræðra. Kristín hlaut það upp- eldi og þá menntun sem ungum stúlkum í sveit stóó til boða á fyrri hluta aldarinnar. - Um 1950 hélt hún til Englands til leiklistarnáms. Þar giftist hún og bjó allt til ævi- loka, fyrst í London og nágrenni og síóar í Norwich þar scm hún lést hinn 15. júní 1991, tæpra 63 ára að aldri. Aður en Kristín lést hafði hún gengið frá fimmtán frumsömdum söguköflum af kettinum Freyju, en kettir og önnur dýr voru jafnan í miklum metum á heimili hennar. Sögurnar eru af því tagi sem for- eldrar segja börnum sínum eftir að þau cru komin upp í rúm á kvöld- in. Ragnhciður Stcindórsdóttir leikkona las sögurnar í útvarp fyr- ir fáeinum árum. Börn Kristínar og eiginmaður, sem öll búa í Englandi, höfðu forgöngu um að gel'a út bókina „Freyjusögur" til að heiðra minn- ingu hcnnar. Að hennar ósk cr Krabbameinsfélaginu færóur sá ágóði sem af sölunni hlýst. fslenski kiljuklúbburinn: Þijár nýjar kiljur gefnar út íslcnski kiljuklúbburinn hefur scnt frá sér þrjár nýjar bækur: Meistarinn og Margaríta eftir rússneska höfundinn Mikhaíl Búlgakov var skrifuð á 4. áratugn: um, en kom l'yrst út árið 1967. I bókinni segir frá því þegar Djöf- ullinn kemur til Moskvu ásamt ár- um sínum, ekki í því hefðbundna hlutverki að leiða fólk á glapstigu, heldur til að freista þeirra manna sem eru þegar sekir og refsa þeim. Eins og Arni Bergmann segir í formála sínum er „svo illa komið heimi Rúlgakovs að andskotinn er velkominn framkvæmdastjóri rétt- lætisins, sem flettir ofan af lcigu- pcnnum, mútuþegum, rógberum og forréttindahyski“. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina sem er 367 blaðsíður. Seld! - Sönn saga konu í ánauö eftir Zönu Muhsen og Andrew Crofts er sannsöguleg frásögn af tveimur enskum unglingsstúlkum sem seldar voru í hjónaband til Yemen. Dvölin þar varó skellilcg martröð. Auðmýkingar, olbcldi og nauðganir urðu daglcgt brauð. Guðrún Finnbogadóttir þýddi bók- ina sem er 267 blaðsíóur. Leyniskyttan er spennusaga elt- ir bandaríska höfundinn Ed McBain. Leyniskytta leikur laus- um hala í stórborginni. Nokkrar manneskjur sem ekki ciga sér neins ills von eru skotnar til bana úti á götu um miðjan dag. Lög- reglumennirnir Stevc Carella og Meycr Meyer fá málið til rann- sóknar og komast um síðir að því hvaó þaö er í fortíðinni sem fórn- arlömbin eiga sameiginlcgt. Illugi Jökulsson þýddi bókina scm cr 201 blaðsíóa. Skákfélag Akureyrar: Unglingar og öldungar tefla Nýverið hélt Skákfélag Akur- eyrar 10 mínútna mót í öld- ungaflokki, fyrir skákmenn 45 ára og eldri, og í kvöld verður mót fyrir börn og unglinga. Þrír efstu á öldungamótinu uröu Sveinbjörn Sigurðsson sem fékk 7 vinninga af 10 möguleg- um, Jón Björgvinsson með 6 vinn- inga og Karl Steingrímsson mcð 5'A vinning. í kvöld klukkan 20 verður mót l'yrir börn og unglinga 15 ára og yngri í skákheimilinu viö Þing- vallastræti og á næstunni ætlar Skákfélagið að halda útiskákmót í göngugötunni. Það verður cin- hvern föstudaginn í júlí þcgar vel viðrar. SS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.