Dagur - 06.07.1993, Side 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 6. júlí 1993
Sjöunda Esso mót KA 30. júní-3. júlí 1993
Sjöunda ESSO móti KA, knatt-
spyrnumóti fyrir 5. flokk, lauk
með formlegum hætti á laugar-
dagskvöldið með verðlaunaaf-
hendingum og lokahófi í KA
húsinu. Mótshaldarar voru sátt-
ir í mótslok og ekki er annað
vitað en gestir hafi verið ánægð-
ir með framkvæmd mótsins.
Kalt var í veðri alla helgina en
að mestu þurrt og veðrið setti
því óverulegt strik í reikning-
inn. Það eina sem breyta þurfti
voru Kjarnaleikarnir sem færð-
ir voru inn í KA húsið þar sem
grillað var á föstudagskvöldið
og liðin reyndu með sér í
skemmtilegri þrautakeppni.
Það var á fimmtudagsmorgun
sem flautað var til leiks í fyrstu
viðureignunum en keppt var á 5
völlum samtímis. Riðlakeppninni
lauk á föstudag og þá höföu verið
spilaðir 140 leikir og ljóst orðið
hvaða 4 lið kæmu til greina sem
sigurvegarar. Alls tóku 70 lió þátt
í mótinu, 20 í flokki A-, B- og C-
liða og 10 í flokki D-liða. Innan
Lið IBK bar sigur úr býtum í flokki A-liða á sjöunda ESSO móti KA scm fram fór um helgina.
Keflvíkingar sigurvegarar ESS0 mótsins
- félagið með lið í verðlaunasæti í öllum ílokkum
hvers flokks var skipt í 4 riðla
með 5 liðum í hverjum, nema hjá
D-liðum þar sem riðlarnir voru 2.
Efstu lið hvers rióils kepptu síðan
um 1.-4. sæti og þannig koll af
kolli.
Heimamenn í úrslit
Heimamenn í KA komust alla leið
í úrslitaleikinn í flokki D-lióa. I
fjögurra liöa úrslitum voru Vals-
menn lagðir á frækilegan hátt og
andstæóingarnir í úrslitaleiknum
voru leikmenn Breiðabliks. Hart
var barist í sjálfum úrslitaleiknum
og hvergi gefið eftir. Báðum lið-
um gekk þó erfiðlega að finna
leiðina að marki andstæðinganna
og í leikslok hafði hvorugu lióinu
tekist aó koma boltanum í netið.
Það þurfti því að fá fram úrslit
með vítaspyrnukeppni og þar
reyndust leikmenn UBK skotviss-
ari og hömpuðu því ESSO meist-
aratitlinum.
Víkingar meistarar C-Iiða
Keppni í flokki C-liða var æsi-
spennandi. Þar voru það IBK,
Haukar, Víkingur og IR sem urðu
efst, hvert í sínum riðli og að
loknum fjögurra liða úrslitum
stóðu Víkingar og IR-ingar einir
uppi og léku því til úrslita. Leikur-
inn var markalaus lengi vel og allt
leit út fyrir að útkljá þyrfti viður-
eignina með vítaspyrnukeppni en
skömmu fyrir leikslok skoruðu
Víkingar og tryggðu sér þar með
sigur í flokki C-lióa.
ÍR-ingar sigruöu í flokki B-liða.
[ u Í-v. - ■RlJ s ■ i^ll. |
i “ : * .‘"sJh ■ ■
Eftir spcnnandi úrslitaleik við ÍR stóðu Víkingar uppi sem sigurvegarar C
liða.
ÍR-ingar mættu grimmir
til leiks
Eftir að IR hafói naumlega misst
af ESSO mótstitlinum í flokki C-
liða voru félagar þeirra í B-liðinu
ákveðnir í að gefa hvergi eftir en
þeir léku til úrslita gegn Keflvík-
ingum. Strákamir í IR komust í
2:0 en IBK náði að minnka mun-
inn í 2:1 áður en flautað var til
leiksloka. Urslitin voru því nokkur
sárabót eftir naumt tap hjá C-lið-
inu.
Keflvíkingar meistarar
Augu flestra beindust af skiljan-
legum ástæðum að úrslitaleiknum
í flokki A-liða en þar mættust
Valsmenn og Keflvíkingar. Bæði
lið voru taplaus til þessa í mótinu,
Valsmenn höfðu unnið alla sína
leiki en IBK gert eitt jafntefli.
Viðureign þessara tveggja frábæru
liða var glæsilegur lokapunktur á
vel heppnuðu móti og hafði upp á
allt það aö bjóöa sem prýða má
einn knattspyrnuleik.
Fyrri hálfleikur var markalaus
en oft skall hurð nærri hælum og
markveróirnir voru svo sannarlega
í stuði. Það voru síðan Keflvíking-
ar sem komust yfir í leiknum með
góðu marki en Valsmenn voru
ekki á því að gefast upp og náðu
að jafna metin. Bæði lið léku
grimman sóknarleik gerðu haróa
hríð að marki hvors annars hvað
eftir annað. En leiktíminn rann út
án þess að fleiri mörk væru skor-
uð.
Það var því ljóst að úrslit leiks-
ins yrði að fá fram mcð víta-
spyrnukeppni. Keflvíkingar sýndu
fádæma öryggi og skoruðu úr öll-
um sínum spyrnum en einu sinni
brást Valsmönnum bogalistin og
það réði úrslitum. Keflvíkingar
stóðu uppi sem sigurvegarar og
fögnuðu ákaft í leikslok.
Það sem gerói sigur IBK enn
sætari var aö fyrir tveimur árum
Iéku þessi sömu lið til úrslita á
Shell mótinu í Vestmannaeyjum.
Þá sigruðu Valsmenn 1:0 og því
náðu Keflvíkingar að hefna ófar-
anna frá því þá.
Það er varla á neinn hallað þeg-
ar sagt er að ÍBK sé sigurvegari
Fyrirliði A-liðs ÍBK, Kristinn Ólafs-
son, í kröppum dansi.
ESSO mótsins 1993. Auk þess að
vinna sigur í flokki A-liða krækti
félagið í verðlaunasæti í öllum
hinum flokkunum og léku tvívegis
til úrslita. IR-ingar léku einnig tví-
vegis til úrslita og urðu í 3. sæti í
flokki A-liða. Valsmenn og Vík-
ingar áttu einnig lið í fremstu röð í
flestum flokkum. Þessi félög geta
því verið vel sátt viö sinn hlut.
D-Iið UBK keppti til úrslita við KA og vann sigur eftir vítaspyrnukeppni.
Myndir: HA
■ ESS0 mót:
Úrslitaleikir
A-lið
1.-4. IBK-Víkingur 6:2
1.-4. Valur-ÍR 1:0
1. ÍBK-Valur 4:3 (V)
3. Víkingur-ÍR 2:3
5.-8. KA-Fjölnir 1:2
5.-8. Haukar-Afture. 0-2
5. Fjölnir-Afture. 0:1
7. KA-Haukar 2:1
9. Týr-Stjarnan 3:2
11. Grindavík-KR 1:0
17.-20. Leiknir-Þróttur 3:1 (V)
17.-20. Lei/Dal-BÍ 0:6
17. Leiknir-BÍ 0:3
19. Þróttur-Lei/Dal 3:1
B-lið:
1.-4. ÍBK-Víkingur 3:0
1.-4. Valur-ÍR 0.2
1. ÍBK-ÍR 1:2
3. Víkingur-Valur 1:4
5.-8. Fylkir-Fjölnir 3:1
5.-8. Þór-KR 4-6 (V)
5. Fylkir-KR 1:3
7. Fjölnir-Þór 5:4 (V)
9.-12. Leiknir-Völsungur 0:3
9.-12. Haukar-Afture. 0:1
9. Völsungur-Afturelding 0:1
11. Leiknir-IIaukar 0:2
13.-16. KA-Þróttur 4:1
13.-16. Stjarnan-UBK 1:3
13. KA-UBK 5:4 (V)
15. Þróttur-Stjarnan 1:0
17.-20. Týr-Grindavík 0:1
17.-20. Huginn-BÍ 3:2
17. Grindavík-Huginn 2:5
19. BÍ-Týr 1:0
C-lið:
1.-4. ÍBK-Víkingur 4:5 (V)
1.-4. Haukar-ÍR 0:4
1. Víkingur-ÍR 1:0
3. ÍBK-Haukar 3:2
5.-8. Fylkir-Fjölnir 2:5
5.-8. Stjarnan-KR 1:3
5. Fjölnir-KR 2:1
7. Fylkir-Stjarnan 2:1
9.-12. KA-Þróttur 1:2 (V)
9.-12. Valur-UBK 3:5 (V)
9. Þróttur-UBK 6:5 (V)
11. KA-Valur 4:3 (V)
13.-16. Týr-Völsungur 3:0
13.-16. I>ór-Afturelding 1:3
13. Týr-Afturelding 1:0
15. Völsungur-Þór 4:2 (V)
17.-20. Vík.C2-ÍBKC2 1:2
17.-20. Lei/Dal.-BÍ 1:3
17. ÍBKC2-BÍ 2:0
19. Vík.C2-Lei/Dal. 1:2
D-Iið:
1.-4. KA-Valur 2:1
1.-4. ÍBK-UBK 1:2
1. KA-UBK 1:2 (V)
3. Valur-ÍBK 1:0
5.-8. Fjölnir-ÍR 2:4
5.-8. Fylkir-Þór 6:0
5. ÍR-Fylkir 4:3 (V)
7. Fjölnir-Þór 0:1
9. Víkingur-KR 3:2
9. KR-Víkingur 3:0
Lokastaða
A-lið B-Iið C-Iið D-Iið:
1. ÍBK ÍR Víkingur UBK
2. Valur ÍBK ÍR KA
3. ÍR Valur ÍBK ÍBK
4. Vík. Vík. Hauk. Valur
5. Afture. KR Fjöln. ÍR
6. Fjölnir Fylkir, KR Fylkir
7. KA Fjölnir Fylkir Þór
8. Haukar Þór Stjarn. Fjöln.
9. Týr Afture. Þróttur KR
10. Stjarnan Völs. UBK Vík.
11. Grindav. Haukar, KA
12. KR Leiknir Valur
13. Völsungur KA Týr
14. UBK UBK Afturelding
15. Fylkir Þróttur Völsungur
16. Þór Starnan Þór
17. BÍ Huginn ÍBK-C2 #
18. Leiknir Grindavík BÍ
19. Þróttur BÍ Leiftur/Dalvík
20. Leifur/Dalvík Týr Vík.-C2