Dagur - 22.12.1993, Qupperneq 9
Bókablað IV
22. desember
Miðvikudagur
1993
Nýti mér ævmtýrið
til að skapa spennu
- segir Lárus Hinriksson á Akureyri, sem gefið hefur út
sína fyrstu skáldsögu
„Já - óg nota frásögn ævintýrisins
til að koma efni mínu til skila,‘‘
sagði Lárus Hinriksson, athafna-
maður á Akureyri, en hann sendi
nýlega frá sér sína fyrstu skáld-
sögu. Nefnist sagan Gátuhjólið
og fjallar um ungt fólk í byggð-
arlagi á landsbyggðinni, líf þcss
og ástir, en inn í söguna blandast
einnig þættir úr fortíðinni og þar
bregóur höfundurinn heimi ævin-
týrisins fyrir sig - þegar hann
leióir sögupersónur sínar I gcgn-
um margvíslegar raunir sem þær
verða að ganga í gegnum.
Lárus kvaðst ekki hafa reynt
fyrir sér við ritstörf fyrr - þetta
væri frumraunin á því sviði. „Ég
valdi að nota umhveríl sem ég
þekki og sögusviðið í landlræði-
Iegum skilningi er Oxarfjöröur
en ég bjó þar í nokkur ár. Svió
bókarinnar er þó engu að síóur
víðara þar sem ég nýti mér ævin-
týrið til að skapa þá spcnnu sem
ég taldi að þyrfti að vera í verk-
inu.“ Lárus kvaóst fyrst og
fremst höfða til þeirrar kynslóðar
sem alist hafi upp við sjónvarp
og spennumyndir, þar sem sögu-
þræði væri iðulega kippt út úr
raunverulcikanum og færóur yfir
í ímyndaðan hugarheim - hugar-
heim ævintýris. „Þótt ég hafi val-
ió mér íslenska sveitabyggð sem
söguslóðir þá yfirfæri ég heim
spennunnar á persónumar sem
búa í hinu íslcnska landslagi -
aðlaga hann íslcnskum staðhátt-
um þar sem frarn fcr tilfinninga-
leg barátta á milli einstaklinga en
trúin á lífió er þó hvarvetna í
bakgrunni.“
Lárus kvaðst líta á bókina sem
hvcrja aðra markaðsvöru; ekki
cins og myndlistarmaðurinn sem
rnálar aðeins fyrir sjállan sig eða
rithölundurinn sem skrifar
eingöngu af innri þörf. „Ég er
búinn aó fást við ýmiskonar
framlciðslustörf og fannst tími
komin til að reyna mig á þessu
sviði - að skril'a skáldsögu.“ Lár-
us vann að eigin sögn um hálft ár
aö samningu bókarinnar. „Ég
vann þetta eins og hverja aóra
skipulagða vinnu í ákveðinn tíma
á dag.“
„Nei - ég er ekki með aöra
bók í smíðum, ekki enn að
minnsta kosti en engu að síður
hef ég áhuga á að halda áfram á
þessari braut. Ef ég skrifa aðra
bók þá myndi ég vclja mér að-
þjóðlegra sögusvið - svió sem
náð gæti til fólks óháð ákveðnu
umhverfi eða þjóóemi,“ sagði
Lárus Hinriksson að lokum. ÞI
Lifandi
eftirmyndir
Ut er komin bókin „Lifandi eftir-
myndir - saga teiknimiðils", eftir
Coral Polge og Kay Hunter í ís-
lenskri þýóingu Esterar Vagns-
dóttur.
I kynningu frá útgefanda segir
m.a.: „Coral Polge hefur óvenju-
lega náðargáfu. Þar sem flestir
hefóbundnir skyggnilýsingamiðlar
lýsa gestum sínum að handan stíg-
ur hún í raun einu skrefi framar og
teiknar á pappír eftirmyndir af
þeim sem hún er í þannig sam-
bandi við, ættingjum hinna brott-
íluttu til mikillar undrunar.
Coral Polge er mörgum Islend-
ingum aó góöu kunn og eiga þeir
margir slíkar miðilsmyndir eftir
hana í fórum sínum en Coral hefur
heimsótt Island nokkrum sinnum
við góðan orðstír. Fyrir þá, og alla
aóra scm áhuga hafa á að kynnast
ferli cinstaks miðils og sérstakri
og áhrifamikilli aóferð hans til
sönnunar á lífi eftir dauðann, er
mikill fengur aö þcssari bók.“
Bókin er 279 blaðsíður og kost-
ar 2.995 kr.
Utgcfandi er Skjaldborg hf.
Milli sterkra
stafna
Ut er komin hjá Almenna bókafé-
laginu bókin Milli sterkra stafna.
I bókinni segja sögu sína tólf
manns úr mismunandi starfsgrein-
um, sem eiga það sameiginlegt að
hafa starfað í áratugi hjá Eim-
skipafélagi Islands eða í tengslum
við það.
Brugðið er upp myndum af
starfi þess, en þó cinkum myndum
af fólkinu sjálfu. Sögusvió eru
meðal annars mcnningarpláss
vestur á fjöróum á öndvcrðri öld-
inni, London á stríðsárunum, far-
þegaskipið Gullfoss og ævintýrin
þar, Palestína meðan Suezdcilan
stóð sem hæst og Reykjavík frá
aldamótum til dagsins í dag.
Þeir sem rætt er við í bókinni
eru Kristján Aðalsteinsson skip-
stjóri, Gísli Hafliðason vélstjóri,
Helgi Gíslason bryti, Viggó Einar
Maack skipaverkfræðingur, Jón
Kristjánsson verkstjóri, Trausti
Kristinsson, Sigríður Guðmunds-
dóttir, bókari, Guðni Egill Guðna-
son aðalbókari, Sigurlaugur Þor-
kelsson deildarstjóri, Valtýr Há-
konarson framkvæmdastjóri, Jack
D. Wright umboðsmaður og
Jorgen Holm skipahöndlari.
Höfundur bókarinnar er Jónína
Michaclsdóttir.
Vegabréf til
Palestínu
Nóbelsskáldið
Isaac Bashevis Singer
hýðing: Hjörtur Pálsson
Bókaútgáfan Setbcrg hefur sent
frá sér bókina „Vegabréf til Pal-
estínu", eltir nóbclsskáldið Isaac
Bashevis Singer.
I frétt frá útgefanda scgir m.a.:
„Davíð Bendinger er staddur í
Varsjá árió 1922 - allslaus ungl-
ingur sem er nýkominn þangaó og
getur ekki hugsað sér að feta í fót-
spor forfeðra sinna, gyóinganna,
en dreymir um að verða rithöfund-
ur. Hann á hvergi höfói sínu að
halla. Aldrei veit hann hvað morg-
undagurinn ber í skauti sínu, cn
hrekkvísi örlaganna lætur ekki að
sér hæða og fyrr cn varir sogast
hann inn í hringiðu atburða sem
hann virðist einatt hala lítió vald á
sjálfur..
Þessi bók er sú cllefta scm Set-
berg gelur út eftir nóbelsskáldið í
þýóingu Hjartar Pálssonar. Bókin
er 208 bls. að stærð og kostar kr.
2.580.
í smyglara-
höndum
Ut er komin bókin „I smyglara-
höndum", eftir Kristján Jónsson.
Hér er um að ræða nýja bók um
ævintýri Jóa Jóns, Péturs, Kiddý-
ar, Mundu skátaforingja og Krist-
ínar.
„Þrír af smyglurunum voru á
sjúkrahúsinu undir lögreglucftirliti
en sá hættulegasti komst undan á
smyglarabátnum..." Bókin gcrist í
rammíslensku umhverfi og cr ætl-
uð drengjum og stúlkum á öllum
aldri.
Bókin er 108 blaðsíóur að
stærð og kostar 994 krónur. Ut-
gefandi er Skjaldborg hf.
Maggi mörgæs
oglabbakútur
Ut er komin barnabók í bóka-
llokknum um Magga mörgæs og
vini hans. Nýja bókin ncfnist
„Maggi mörgæs og labbakútur".
I frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Bækurnar um Magga mörgæs
eru nú orðnar fjórar. Aðdáendum
Magga fjölgar stöðugt enda er
Maggi skemmtilcgur labbakútur
sem lendir í margvíslegum ævin-
týrum."
Bókin er 48 blaósíóur og kostar
898 kr.
Utgefandi er Skjaldborg hf.
Á háskaslóð
- ný unglingasaga
eftir Eyvind P. Eiríksson
A háskaslóð heitir ný unglinga-
saga eltir Eyvind P. Eiríksson.
I bókinni segir frá tveimur
bræðrum sem sigla með pabba
sínum á skútu um sænska skcrja-
garðinn. Á rannsóknarskipi á
sama róli er Tína, sæt stelpa sem
verður vinkona unglingsins í
hópnum og um tíma leikur allt í
lyndi. En feðganna bíður ckki
bara áhyggjulaust sumarfrí hcldur
horfa þeir upp á harðvítug átök
um mengunarmál, þeir lenda í
sjávarháska og þurfa að bera vitni
í réttarhöldum, svo óhætt cr aó
segja að sumarleyfiö vcrður við-
burðaríkt.
Eyvindur P. Eiríksson hefur
skrifaó skáldsögur, Ijóðabækur og
elni fyrir útvarp. Hann er vanur
siglingamaöur eins og glöggt
kemur fram í sögunni Á háska-
slóð. Bókin er 127 blaðsíður,
skreytt myndum eftir Önnu Cynt-
hiu Leplar. Oddi hf. prentaöi.
í feluleik um
víðan völl
Bókaútgáfan Skjaldborg hefur
sent frá sér spennusöguna „I felu-
lcik um víðan völl", eftir Mary
Higgins Clark.
I kynningu frá útgefanda segir
m.a.: „Laurie Kenyon, tuttugu og
eins árs háskólanemi, er ákærð
fyrir morðið á Allan Grant, pró-
fcssor og kennara hennar vió há-
skólann. Þegar hann finnst stung-
inn til bana eru fingraför hcnnar
alls staðar, á huróinni, á glugga-
tjöldunum og ... á hnífnum...
Þegar Laurie var fjögurra ára
var henni rænt og haldið í gislingu
í tvö ár. Atleiðing þess kemur
fram í allri hegðun hennar og
vcrður til þess að hún veit ekki
lengur hvort hún hefur framið
morðió eða ekki... cn þaó cr vak-
að yfir hverju skrcll hcnnar án
þess aö hún viti...“
Bókin er 225 blaðsíður að
stærö og kostar 1.995 kr.
Fleiri athugaiúr
Berts
Ut cr komin barna- og unglinga-
bókin „Flciri athuganir Berts".
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Bækurnar um Bert cru nú orónar
þrjár. Fyrstu tvær uröu metsölu-
bækur og kcmur það cngum á
óvart. Bcrt er ótrúlegur.
„Hjarta mitt hoppar og hamast
og er vatlð inn í fíkjublöó. Ég er
ástfanginn." Svona hálleygur
verður Bert þcgar hann trúir dag-
bókinni sinni l'yrir hugsunum sín-
um um Pálínu. En Pálína er ekki
auóveld bráð. Þaó fær Bert aó
reyna þcgar hann missir hana í
gólfið eins og kartöllupoka í dans-
skólanum..."
Bókin er 251 blaðsíða og kost-
ar 994 kr.
Utgefandi er Skjaldborg hf.
Sunnudagsmorð
Bókaútgáfan Skjaldborg helur
sent frá sér spennusöguna
„Sunnudagsmorð", cftir drottn-
ingu lcynilögrcglusagnanna, Ag-
öthu Christie.
I kynningu útgefanda segir
m.a.: „Hercule Poirot líkaói ekki
aö fá sér fordrykkinn utanhúss á
köldum haustdegi. Því síður líkaði
honum sú leiksýning scm fram fór
á laugarbarminum, þar sem ungur
maður lá við endann á sundlaug-
inni í leikrænum stellingum og
miðaldra kona hélt á marghleypu
og rauðir málningardropar lituðu
vatnið.
Þetta var ekki afþreying fyrir
hádegismatinn á enska sveitasctr-
inu, þetta var ekki lcikþáttur, þetta
var alvara. Poirot var að horfa á
mann sem var dauður, eóa í það
minnsta að deyja...“
Bókin er 229 blaðsíður og kost-
ar 1.995 kr.
Fjalla-Bensi
Ut er komin bamabókin „Fjalla-
Bensi“, eftir Jóhönnu Á. Stein-
grímsdóttur.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Þessi saga er að mestu leyti sönn.
Benedikt Sigurjónsson hét hann
og var fæddur árið 1876 í Mý-
vatnssveit í Suður-Þingeyjarsýslu.
Nafnið Fjalla-Bensi hlaut hann
vcgna afreka sinna við að bjarga
lömbum og kindum úr klóm öræf-
anna vetur og vor. Hann vann
hctjudáðir vegna ástar og virðing-
ar á lífinu, lífi dýranna sem mönn-
unum er trúað fyrir.“
Bókin er 80 blaðsíður og kostar
994 kr.
Utgefandi er Skjaldborg hf.
Pelíkanaskjalið
Hjá Iðunni er komin út spennu-
sagan Pelíkanaskjaliö eftir John
Grisham. Áður hefur komið út eft-
ir hann á íslensku spennusagan
Fyrirtcekið.
Tveir bandarískir hæstaréttar-
dómarar eru myrtir sama kvöldið.
Lögregluyfirvöld eru ráðþrota.
Hvcr stendur að baki morðunum?
Hver er orsök þeirra? Og hvernig
á að finna hina seku? Engar vís-
bendingar finnast, enginn eygir
lausnina - en þegar laganeminn
Darby Shaw setur fram langsótta
tilgátu veldur hún miklum tauga-
titringi á æðstu stöðum. Darby
kemst brátt að því að hún á í
höggi við hættulega óvini.
Hryðjuverkamenn og illvirkjar eru
á hælum hennar - og hún veit ekki
hverjum má treysta. Hún verður
að snúa vörn í sókn ef hún vill
halda líll.
Nanna Rögnvaldardóttir þýddi
bókina, sem er prentuð í Prentbæ
hf. Bókin kostar kr. 2.480.
Ennþá fleiri sögur
úr sveitinni
Bókaútgáfan Skjaldborg hefur
sent frá sér bókina „Ennþá fleiri
sögur úr sveitinni", eftir Heather
Amery og Stephen Cartwright.
I frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Þessar skemmtilegu smásögur
voru skrifaðar sérstaklega fyrir
byrjendur í lestri. Teikningar
Stephcns Cartwrights leggja
áhcrslu á kátínu og spennu sagn-
anna og skýra merkingu orðanna.
Meö aöstoð og hvatningu getur
barnió fljótlega notið þeirrar
ánægju að lesa heila sögu sjálft."
Bókin er 64 blaðsíður og kostar
898 kr.
Utgefandi er Skjaldborg hf.
Sagan af
Tuma litla
Ut cr komin bókin „Sagan af
Tuma litla".
I frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Á síóastliönu ári kom út ný út-
gála af sögunni um Stikilsberja-
Finn og hlaut hún frábærar viðtök-
ur. Vegna eindreginna óska
margra þeirra sem lásu þá bók var
ákveðið að gefa út „Söguna af
Tuma litla". Þessi heimsfræga
saga hefur aftur og aftur farið sig-
urför um heiminn. Ævintýri þeirra
Tuma og Stikilsberja-Finns hafa
skemmt mörgum kynslóðum
ungra lesenda. Bækur Mark Twa-
in um þá félaga eru sannkallaðar
bókmenntaperlur."
Bókin er 285 blaðsíður og kost-
ar 994 kr.
Utgefandi er Skjaldborg hf.