Dagur - 22.12.1993, Síða 18

Dagur - 22.12.1993, Síða 18
18 - DAGUR - Miðvikudagur 22. desember 1993 MINNINO Sigurpúll cr 19 ára ou býr með afa sinum á stóru kiiulmi liaas. En nú kt'inur vofa fortíðarinnar og heimtar uppujör við uamla manninu. Lff uamla maiinsíns cr að vcði. ilann hafði mcð lífsvilja ou krafti sinum scm unuur maður snúið á dauðaáliiuin. Nú þarf hann mcíra cn kraftar hans mcuna. Hvað gcla ást ou kraftar uujja manasins áorkað miklu, þcuar allt cr laut tindir ( baráltu upp á líf ou dauða. I»cs.si bók cr fyrir unut fólk á öllum aldri. scm hcfur Uaman af átakanlcuum. spcnnandiou a'vintýraiqgum söuuþncði. í flóknu samspili sem uerist í hcimi iiianna »u álfa. Baráttu-, spennu- og ísev utqafan Símar 985-34078 & 96-23445 Bókin er uppseld hjá útgefanda Félagsmálaráðuneytið auglýsir lausar til umsóknar eftirgreindar stöður í vinnumáladeild ráðuneytisins: Stöðu deildarstjóra sem annast ýmis vinnumarkaðsmál á vegum ráðuneytisins, sér um atvinnuleysisskráningu, vinnumiölun og tengda starfsþætti. Stöóu deildarsérfræðings sem hefur umsjón meó vinnumiðlunarskyldum ráðuneytisins innan hins evr- ópska efnahagssvæðis og með þróun og rekstri tölvu- kerfa vegna vinnumálastarfs á vegum ráðuneytisins. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í hagfræöi, viðskiptafræði eða öðrum skyldum greinum. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist félagsmálaráöuneytinu fyrir 7. janúar nk. Félagsmálaráðuneytið, 20. desember 1993. fln Ólöf Kiistjana Ingimarsdóttir Fædd 12. júní 1918 - Dáin 15. desember 1993 Þó að Ólöf tengdamóóir mín hafi ekki verið heilsuhraust að undan- förnu og farið inn á sjúkrahús til rannsóknar 14. desember sVþá ór- aði engan fyrir því að hún væri öll aóeins hálfum sólarhring síðar. Lolla, eins og hún var jafnan köll- uð, varó fyrir áfalli fyrir hálfu sjötta ári en þrátt fyrir það átti hún góöa daga með manni sínum, Jó- hanni Guðmundssyni, þar til hann lést 10. febrúar 1989. Þau gátu í félagi séð um sig sjálf í litlu nota- legu íbúðinni sinni að Skarðshlíó 13 á Akureyri. Eftir lát Jóhanns naut hún aðstoðar Guðlaugar dótt- ur sinnar, Rutar systur sinnar og manns hennar Gests Magnússonar svo og nágrannans Ingva. Þó tengdamóóir mín væri stolt kona og vildi sjá um sig sjálf, þá var það hjálpsemi og velvild þessa ágæta fólks sem geröi henni kleift að halda heimili og sjá um sig sjálf, eftir því sem heilsa hennar leyfði, til síðasta dags. Ólöf Kristjana Ingimarsdóttir, en svo hét tengdamóðir mín fullu nafni, fæddist á Akureyri 12. júní 1918. Foreldrar hennar voru Ingi- mar Jónsson, f. 18. júlí 1882, d. 31. júlí 1945, og kona hans María Kristjánsdóttir, f. 8. ágúst 1887, d. 19. apríl 1979. Þeim fæddust níu börn en eitt þeirra dó í vöggu. Ólöf var fimmta barn þeirra hjóna, hin voru Hulda, Jón Kristján Hólm, Adólf, Sigríður Ingibjörg og Hermann Hólm, sem öll eru látin og Sigurlína Hólmfríður og Rut Sigurrós, sem lifa systur sína. 5. apríl 1941 giftist Ólöf Jó- Jólatréssala í Hamri Normannsþinur Opið virka daga kl. 13-21 Laugardaga kl. 10-22 Sunnudaga kl. 10-17 Sækjum og sendum Sama verð og í fyrra hanni Guðmundssyni, f. 22. nóv- ember 1915, d. 10. febrúar 1989. Foreldrar Jóhanns voru Guðmund- ur Hafliðason, f. 5. maí 1873 og kona hans Stefanía Tryggvadóttir, f. 10. mars 1872. Ólöf og Jóhann eignuðust þrjár dætur og einn son, er lést í fæðingu. Dæturnar eru Hulda Róselía, ræstingastjóri í Rcykjavík, f. 23. janúar 1941 gift Jóhannesi Óla Garðarssyni vallarstjóra í Reykja- vík og eiga þau þrjá syni. Jóhann Garðar, Brynjar og Ólaf Hrein og barnabörnin Huldu Björk Brynj- arsdóttur, Arnar Ólafsson, Viktor Braga Brynjarsson og Hönnu Ósk Ólafsdóttur. Guðlaug Kristjana, verslunarmær á Akureyri, f. 6. október 1947, fráskilin, en maður hennar var Sæmundur Hrólfsson, rafvélavirki á Akureyri, og áttu þau saman synina Ólaf Jóhann og Björn Sæberg. Stefanía Hallfríður, húsfreyja i Reykjavík, f. 14. desember 1951, gift Vöggi Magnússyni, vakt- manni í Reykjavík, börn þeirra eru Magnús Viktor er lést af slysför- um aóeins 5 ára, Ólöf Huld, Zanny og Marteinn. Æska og uppvöxtur Ólafar mun hafa mótast af tíðaranda krepp- unnar og litlum efnum enda systk- inahópurinn stór, en um það var hún fáorð og ekki hcnnar stíll að kvarta og sagðist hún hafa átt góða æsku í hópi fjörmikilla og glaðra systkina undir verndarvæng ástríkra foreldra. Hún fór snemma aó hjálpa til á heimilinu og gætti gjarnan yngri systkina sinna og létti undir með móður sinni á ýmsa lund. Arió 1934, þá aðeins 16 ára gömul, hóf I hún vinnu á Ullarverksmiðjunni Gefjunni og starfaði þar um 50 ár meó hléum vegna fæðingar dætr- anna og umönnunar þeirra fyrstu æviárin. Hún bjó manni sínum og dætr- um ávallt fallegt heimili, sem ein- kenndist af hreinleika og notalegri hlýju, sem við tengdasynirnir og barnabörnin og loks barnabarna- bömin fengum síðar aó kynnast og njóta. Hún var ávallt boðin og búin að koma dætrum sínum og fjöl- skyldum þeirra til hjálpar ef þann- ig stóð á hvort heldur var sunnan eða norðan heióa. Ólöf var hin sanna íslenska húsmóðir, sem allt- af hugsar fyrst um aóra og seinast um sjálfa sig. Að leióarlokum kemur margt upp í hugann, ferðalög á fyrri ár- um og margvíslegar ánægjustund- ir með fjölskyldunni í Brekkugötu 43 og síóar Skarðshlíð 13 en mig brestur orð. Dætur hennar vilja að lokum þakka þeim, sem léttu henni lífið seinust árin. Elsku mamma viö Hulda, Lauga og Bebba og fjölskyldur þökkum þér og pabba allt sem þið voruð okkur og fyrir það veganesti og þá fyrir- mynd, sem þió voruð börnum okkar og barnabörnum. Megi minningin um ykkur verma okkur um ókomin ár. Blessun Guðs fylgi ykkur. Jóhannes ÓIi Garðarsson. Eg trúi á guð, þó titri hjartað veika. Og tárin blindi augna minna Ijós. Eg trúi, þótt mér trúin fmnist reika. Og titra líkt og stormi slegin rós. Eg trúi, því að allt er annars farið. Og ekkert, sem er mitt er lengur til. Og lífið sjálft er orðið eins og skarið. Svo ég sé varla handa minna skil. Matth. Jochumsson. Hún amma er dáin. Hún fór upp á spítala á afmælisdaginn hennar mömmu og hálfum sólar- hring seinna var hún dáin. Hún amma var svo sterk og dugleg að engan grunaði hversu veik hún var og aldrei kvartaði hún. Það verður skrýtið aö koma til Akureyrar þegar hvorki afi né amma eru þar. En nú er amma hjá afa og henni líður vel. Elsku amma hal’ðu hjartans þökk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Ólöf Huld, Zanný og Marteinn. ^KOHFEKT í&lenskt Sími 53466

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.