Dagur - 28.12.1993, Page 6

Dagur - 28.12.1993, Page 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 28.. desember 1993 Hvað þýða GATT og EES? - viðtal við Húsvíkinginn Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðarmann landbúnaðarráðherra Skrifstofan hans er full af pappír. Ekki kemst meira í hillur, svo borð og stólar hafa tekið við. Skjalataskan er opin og þar eru pappírar og í einu hólfinu bunki af nafnspjöldum. Ljóst er að maðurinn þarf mikið að lesa. Sigurgeir Þor- geirsson er greinilega ekki Sunnlendingur. Það má ráða annars vegar af rödduðum framburðinum og hins vegar af hljómfallinu, tóninum. Hjá honum bregður fyrir þessum krefjandi spurnartón sem er einkennandi fyrir fólk á Norð- austurlandi, kannski bara í Þingeyjarsýslu. Sigurgeir er ákaflega þægilegur viðræðu og skýr I svörum. Hann kann landbúnaðarmálin utanað. ínumenn, Ástralir og Nýsjálend- ingar. Þetta eru allt þjóðir sem geta flutt út mikiö af landbúnaðar- afurðum. Hin blokkin er íhalds- samari og vill fara hægar í sakirn- ar. I þessum hópi eru Evrópulönd- in flest og Japanir. Hinir síðast- nefndu vilja með öllum ráðum koma í veg fyrir hrísgrjónainn- flutning, svo sjá má aö hagsntunir eru margvíslegir.“ - En hvað er verið að tala um og hvernig snertir þetta okkur? „Það veit enginn hvort eða hve- vörum, ostum, smjöri og fleiru.“ - Þurfum við endilega að vera með í þessu? „Eg held að þaö sé almennt viðurkennt að við eigum ekki margra kosta völ. Við erum aðilar að GATT og höfum ekki efni á aö hætta því vegna annarra hags- muna. Hins vegar höfum við sett fram ýmsa fyrirvara, en vió verð- um auðvitað að hlíta endanlegum niðurstöðum.“ „Kvótakerfið er meingallað. í því felst cnginn hvati til að nýta t.d. betri jarðir. Auk þess óttast ég að það éti sig upp innan frá, vegna sölu framhjá kvótanum," segir Sigurgeir Þorgeirsson, aðtoðarmaður landbúnaðarráðhcrra m.a.. Hann er doktor í sauófjárrækt og hefur verið aðstoðarmaður landbúnaðarráóherra í rúm tvö ár. Sigurgeir starfaði áður á Rann- sóknastofnun landbúnaóarins og sem ráðunautur hjá Búnaðarfélag- inu. Hann neitar því ekki að þaó hafi verið mikil viðbrigði aó koma úr rannsóknarstarfi í stjómsýslu. Sér hann eftir aó hafa tekið þetta að sér? „Eg sé aldrei eftir neinu,“ segir hann. „Það tekur því ekki.“ „Engill dauðans“ - Hvers vegna kaus Sigurgeir að sérhæfa sig í sauðfjárrækt? Var hann kannski í sveit öll sumur? „Eg var aldrei í sveit. Hins vegar voru faðir minn og afi með tómstundabúskap á Húsavík þar sem ég ólst upp. Við höfðum ntilli 50 og 70 kindur, sem við rákum á Mývatnsafrétt á vorin. Á haustin var farió í gpngur og réttað í Mý- vatnssveit. Á Grænavatni rak föð- urafi minn áður kynbótabú, en hann var mikill áhugamaður um sauðfjárrækt. Halldór Pálsson búnaóarmálastjóri var vinur afa ntíns og auk þess giftur frænku minni í móðurætt. Hann kom því oft heim til okkar og þegar ég var 10 ára lýsti ég því yfir að ég ætl- aði að verða doktor í sauðfjárrækt eins og Halldór Pálsson. Þegar ég var í Menntaskólanum á Akureyri runnu á mig tvær grímur og þá fannst mér lögfræðin álitlegur kostur. Af því varð ekki og ég hélt til Edinborgar til náms í búvísind- um.“ - Að því loknu tók við doktors- verkefni á sviói sauófjárræktar. Það fjallaói um kjötgæði sauðfjár, vöxt og þroska með tilliti til kyn- bóta. Verkefnið var tvíþætt, ann- ars vegar unnið á Islandi undir leiðsögn Halldórs Pálssonar og hins vegar í Edinborg þar sem fimm leiðbeinendur komu vió sögu. „Eg var um tíma kallaður eng- ill dauðans, því að þrír fyrstu leið- beinendur ntínir, allt miðaldra menn, létust hver á fætur öðrum, nánast jafnskjótt og þeir höfóu tekið við mér. Þá voru fengnir tveir menn saman mér til leió- sagnar, sem báðir lifðu og lifa enn!“ Hækkandi heimsmarkaðs- verð með GATT - Svo vikið sé að öóru, þá lýsti landbúnaóarráðherra því nýlega yfir að stuðningur vió landbúnað- inn væri á milli 10 og 11 milljarð- ar á ári. Nú í sumar kom hins veg- ar út norræn skýrsla þar sem stað- hæft er að stuóningurinn sé tæpir 17 milljarðar. Hvemig stendur á þessum mikla mun? „Hann má skýra fyrst og fremst meó tvennu: Annars vegar ósam- bærilegum aðferðum, t.d. mis- munandi talnagrunni og hins veg- ar minnkandi stuóningi við land- búnað, en norræna skýrslan er byggð á eldri gögnum en okkar niðurstöður. Við getum heldur ekki fallist á að telja nteð framlög til bændaskóla, skógræktar og landgræðslu eins og gert er í nor- rænu skýrslunni.“ - Núna þegar komin er fram ákveöin tala, þ.e. þessir 10 millj- arðar, eru þá einhver áform um að skera niður á næstunni? Hvernig verður t.d. staðan eftir tvö ár? Veróur stuöningurinn sá sami? „Stuðningur við landbúnaðinn er samsettur af tvennu, en það eru bein ríkisframlög og markaðs- stuðningur. Hvað varðar bein rík- isframlög þá hafa þau verið skorin verulega niður að undanförnu og ég sé ekki svigrúm til frekari nið- urskurðar í bráð. Markaðsstuðn- ingur ræöst á hinn bóginn af tveimur þáttum, sem eru innlent afuróaverð og heimsmarkaðsveró. Þetta er svokallaður reiknaður stuóningur. Ef heimsmarkaðsverð landbúnaöarafurða hækkar eða innlenda veróið lækkar, þá lækkar þessi reiknaói stuðningur. Um þessa hluti er ákaflega erfitt að spá fram í tímann, en margir telja aó verð á heimsmarkaði muni hækka vió GATT-samninga.“ Full tollvernd í fyrstu - Hvað eru þessir GATT-samn- ingar - svona á mannamáli? „GATT hefur verió þýtt á ís- lensku sem: Almenna samkomu- lagið um tolla og vióskipti. GATT er sem sagt ekki stofnun heldur samningar um afnám viðskipta- hindrana. GATT var stofnað á 5. áratugnum og íslendingar uröu þátttakendur 1968. GATT-samn- ingaloturnar eru orðnar a.m.k. þrjár og hver um sig hefur tekið nokkur ár. Síðasta lotan er kennd við Uruguay og felur meðal ann- ars í sér landbúnaó - í fyrsta skipti. Það eru tvær meginblokkir í GATT núna. Önnur vill ótakmark- að frelsi í viðskiptum með land- búnaðarvörur og þar eru fremstir í flokki Bandaríkjamenn, Argent- nær samningar nást, en nú er verið að tala um að samningar taki gildi 1. janúar 1995. (Athugasemd ritstj.: Viðtalió var tekið í nóvem- ber síðastliðnum, áður en endan- legt samkomulag var undirritað). Þetta er þannig byggt upp að árin 1986-1988 eru notuó sem viðmið- un. Um er að ræða þrjú meginat- riói. Grundvallaratrióið er að banna bein innflutningshöft á bú- vörum, önnur en þau sem hægt er aó rökstyója með sjúkdómahættu. Ríki munu hafa heimild til að leggja á verndartolla, sem síðan þurfa að lækka eftir ákveönum reglum. Hér myndu tollarnir veita fulla vcrnd í fyrstu eða rúmlega það.“ Sérstaða íslands „I öóru lagi á að lækka fram- leiðslustyrki unt 20% á sex árum. Við erum þegar búin aó draga svo mikió úr styrkjum frá viðmiðunar- árunum sem tiltekin eru, að GATT gerir líklega ekki frekari kröfur til okkar á þessu tímabili. Loks skulu útflutningsbætur lækkaðar um rúman þriðjung á sex árum. Þetta er það ákvæói sem hvað fastast sat í Evrópubandalag- inu og Danir voru ákaflega mikið á móti og Frakkar sömuleiðis. Hér á landi eru útflutningsbætur af- lagðar, svo þetta ákvæði breytir engu í raun fyrir okkur. Þá fylgja þessu heilbrigðisregl- ur, sem vió túlkum þannig aö vió getum haldið hér óbreyttu ástandi frá því sem nú er. Sömu kröfur má gera til innfluttra og innlendra af- urða. Lögð hefur verið áhersla á sérstöðu Islands, því hér hefur ríkt þúsund ára einangrun og búfé mjög viókvæmt fyrir smitsjúk- dómum. Við reiknum því ekki með að heimila innflutning á hráu kjöti eða ógerilsneyddri mjólk. Aftur á móti gerum við ráð fyrir að leyfa innflutning á unnum kjöt- Myndir: Skúli Björn Gunnarsson. „Alþjóðasamningar skapa ramma fyrir landbúnaðinn“. Tollfrjáls innflutningur á grænmeti - Ef GATT þýðir að opnað er fyr- ir innflutning, hvað hefur þá EES- samningurinn að segja fyrir okk- ur? „Þar eru nú fyrst og fremst ákvæði um frjálsan innflutning á fáum, afmörkuðum, unnunt afurð- um. Þetta eru smjörlíki, jógúrt og sýrðar mjólkurafurðir. Heimilt er aó verðjafna fyrir mismunandi af- urðaverói bænda hér og erlendis. EES fylgir svokallaður tvíhliða samningur. Sá tjallar eingöngu urn tilteknar garðyrkjuafurðir. Tví- hliða samningurinn er gerður milli einstakra EFTA-ríkja og Evrópu- bandalagsins. Þetta er einhvers konar friðþæging við S.-Evrópu- lönd og á að veita afurðum þeirra aukinn markaðsaðgang. Gert er ráð fyrir tollalausum innflutningi á ýmsum ávöxtum, sem er ekki breyting frá því sem nú er. Þá er líka kveðið á um tollfrjálsan inn- flutning á grænmeti og blómum 5- 6 mánuði yfir veturinn. Þetta þrengir auóvitað kost garðyrkju- bænda.“ íslensk sauðfjárrækt gæti blómstrað - Hvað með framtíðina? Hvaða þróun þykjast menn sjá aö verði? „Alþjóðasamningamir skapa auðvitað ramma fyrir landbúnað- inn. Stefnumörkunin hlýtur því að felast í því að gera íslenskan land- búnaó samkeppnishæfan. Við ger- um ekki ráð fyrir að geta haldið uppi innflutningsvemd, heldur að þurfa aó keppa á forsendum verðs og gæóa. Ríkið ætlar að binda stuóning sinn við framleiðslu fyrir innanlandsmarkað. Þetta kallar á grisjun í stéttinni. Þegar búvöru- samningurinn var gerður vonuöu menn að miklu fleiri hættu og seldu allan sinn kvóta en raun varð á. Niðurstaðan varð hins veg- ar sú að fáir seldu, en flestir voru skertir. Surnir illilega. Þetta leiðir til þess að á allra næstu árum hætta menn og framleiðslan þjappast á færri hendur. Kvótakerfið er nteingallað. I því felst enginn hvati til aó nýta t.d. betri jarðir. Auk þess óttast ég að það éti sig upp innan frá, vegna sölu framhjá kvótanum." - Það er oft talað um styrkja- kerl’i Evrópubandalagsins. Fylgir eitthvaö slíkt EES-samningnum? „Nei, ekkert. Ef við á hinn bóg- inn gengjunt í EB, myndunt vió fá styrki til sauðfjárræktar, líkt og t.d. Skotar og Irar njóta. Eg er sannfærður um að íslensk sauð- fjárrækt gæti blómstraó ef við yrð- um aðilar aó EB. En það er nú kannski eina grein landbúnaóar- ins, sem ntyndi lifa það af.“ Islenskar vörur hreinni en erlendar - Vistvænar vörur eru nú tískuorð. Getur aukinn áhugi á umhverfis- málum orðið okkur til framdrátt- ar? „Á þeint forsendum verðurn viö að byggja upp útflutning og ættum að geta fengið 15-25% hærra verð fyrir lambakjöt en gengur og gerist. Þaö er trúlega engin önnur kjöttegund sem við eigum raunhæfa möguleika á að flytja út, nema hrossakjöt, sem vió flytjum nú þegar út bótalaust til Japan. EB er til dæmis ekki sjálfu sér nægt meó lambakjöt, en fram- leiðir of mikið af öllum öðrurn kjöttegundum, sem aftur leiðir til lágs verðs. I þessu sambandi er líka rétt að gera sér grein fyrir því að íslensk- ar landbúnaðarafurðir eru almennt „hreinni“ en almennt gerist er- lendis. Hér eru t.d. ekki gefin lyf í fóórinu. Þetta hefur verió of lítið rætt þegar talaó er um innflutning á landbúnaðarvörum.” Frekari frami í pólitík? - Sigurgeir Þorgeirsson hefur ver- ið formaður landbúnaðarnefndar Sjálfstæðisflokksins frá 1987 og er núna aðstoðarmaður Halldórs Blöndal, landbúnaðarrðherra. Ætl- ar Sigurgeir sér frekari frama í stjórnmálum? „Nei, alls ekki,“ svarar hann ákveöió og án nokkurrar umhugs- unar. Kirstín Þ. Flygenring. Höfundur er nemi í hagnýtri fjölmiðlun viö Há- skóla íslands og vinnur við orðasafn I hagfræði meðfram náminu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.