Dagur - 28.12.1993, Page 14

Dagur - 28.12.1993, Page 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 28. desember 1993 n MINNINC Briddsfélag Akureyrar Sveitakeppni B.A. Akureyrarmót hefst þriðjudaginn 4. janúar. Sveitaforingjar eru beðnir að tilkynna þátttöku til Páls Jónssonar í síma 21695 fyrir áramót. í> Þórgimnur Þorleifsdóttir Reykholti, Dalvík Fædd 7. október 1916 - Dáin 19. desember 1993 L VIÐSKIPTAMANNA IANKA OG SPARISJÓÐA Lokun 3. janúar og eindagar víxla. Afgreiðslur banka og sparisjóða verða lokaðar mánudaginn 3. janúar 1994. Leiðbeiningar um eindaga víxla um jól og áramót c liggja frammi í afgreiðslum. \ X, p Reykjavík, desember 1993 Samvinnunefnd banka og sparisjóða Þórgunnur í Reykholti er farin til nýrra heimkynna. Við erum glöð fyrir hennar hönd því nú er hún búin aó hitta fyrir vinina sína sem beðið hafa eftir henni og hún hefur saknað svo lengi. Okkur er líka tregi og söknuóur í huga sem stafar af eigingimi eftirlif- andans, sem vill hafa umhverfi sitt óháð forgengileikanum. En svo lengi sem við munum hefur Þórgunnur ver- ió tengd lífi okkar. Fyrst sem þátttak- andi í uppeldi okkar og síðar sem vin- kona sem gott var aó koma til og þiggja hjá andlega uppörvun sem veitt var af hlýju og léttleika, einkennandi fyrir stórbrotna konu. Okkur sem eftir sitjum og berumst meó tímans straumi, sýnist sem sjálf Karlsbrautin hafi misst lit. Þórgunnur var ein af máttarstólp- unum sem mótaði og setti svip sinn á fjölskylduumhverfið í Karlsbrautinni þegar við, sem nú emm á miðjum aldri, vomm að alast upp. Hún var gift Áma Guðlaugssyni föðurbróður okkar og er Reykholt gegnt Lundi þar sem við áttum heima. Auk pabba og Árna bjuggu tvö systkini þeirra líka við Karlsbrautina og út og upp við rætur Bæjarfjallsins í Miðkoti vom föður- amma og tveir föðurbræður okkar með sínar fjölskyldur. Það er því ekki ofsagt að við höfum alist upp í sann- kölluðu fjölskylduumhverfi sem ein- kenndist af samkennd og samábyrgð fullorðna fólksins fyrir bömum og búi. Og í raun var eins og allt full- oróna fólkið í götunni okkar axlaði þessa ábyrgð, a.m.k. var því ljúft og skylt aó hlutast til um athafnir og samskipti okkar krakkanna. Því geng- um við ekkert aó þvi gruflandi að þótt pabbi og mamma væru ekki viðlátin þá var eftirlitið og aginn í góöum höndum. í þessari andrá er vert að minnast þess að Karlsbraut heitir eftir land- námsmanninum Karli rauða. Sú kyn- slóð sem nam land við götuna á sínum tíma var að mörgu leyti fmmherjar. Margt af því fólki sem þar bjó byggði sín hús sjálft og þar í hópi vom Þór- gunnur og Ámi í Reykholti. Það sem einkennir fmmherjabyggðir öðmm fremur er samtrygging. Þaó á ekki síst við í sjávarþorpum þar sem fjöl- skyldufeður eru tímunum saman fjar- verandi. Ef einhvers staðar er þörf fyr- ir slíkt er það í sjómannasamfélagi. Konumar í Karlsbrautinni voru trúar sínu og samkvæmt tíóarandanum var hlutskiptið fyrst og fremst að vera til staóar og hlúa að nánasta umhverfi. Þórgunnur stóð sína plikt. Hún sá til með bömum frænda, vina og ná- granna líkt og hennar eigin böm væm. Og það var tekió mark á henni, því það sópaói að Þórgunni hvar sem hún fór. Hún var glæsileg á velli og höfð- ingleg í framkomu. Hispursleysi ein- kenndi Þórgunni alla tíó og hún sagði skoðanir sínar umbúðalaust. Og oft var stutt í húmorinn. Þórgunnur Amalía Þorleifsdóttir fæddist 7. október 1916 á Hóli, Upsa- strönd, dóttir sæmdarhjónanna Svan- hildar Bjömsdóttur frá Selaklöpp, Hrísey, og Þorleifs Þorleifssonar frá Hóli. Hún var næstelst átta systkina, en látin eru nú auk hennar Guðrún, Dagmann og Karl. Hún ólst upp á Hóli. Veturinn 1933-34 stundaói hún nám við Húsmæóraskólann að Hall- ormsstað. Þórgunnur giftist Áma Guðlaugssyni frá Miðkoti 5. nóvem- ber 1937. Ungu hjónin bjuggu fyrst í Víkurhóli á Dalvík en síðan í Reyk- holti, því húsi sem þau byggðu sér. En þar bjó Þórgunnur fram til síðasta dags. Þórgunnur og Ámi eignuðust þrjú böm; Snorra Guðlaug, f. 17. janúar 1943, Þorleif Kristinn f. 11. október 1946 og Svanhildi f. 18. júní 1948. Synina sína misstu þau báða af slys- förum Þorleif þann 5. október 1974 og Snorra þann 7. mars 1985. Sonarmiss- irinn var hjónunum í Reykholti afar þungbær. Sumum er þaó gefiö að vaxa með sinni sorg og Þórgunnur var cin af þeim. Hún sneri kröftum sínum aó bamabömunum sem áttu um sárt aö binda og hennar heimili var þeirra qfji Steingrímur Aðalsteinsson IJ fyrrverandi alþingismaður Við fráfall Steingríms Aóalsteins- sonar, fósturföður míns, streyma CRÉME fra\che er íslensk hágæöa mjólkurafurð sem gefur ótal möguleika við matargerð. Sýrður hentar vel m.a. í salöt, sósur, ídýfur og með ávöxtum og tertum Betra bragð með 11ICU Sýrðum - líka á jólunum Mjólkursamlag KEA wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmum minningarnar fram í hugann eins og raóir af skyggnum á sýningar- tjaldi. Liðin atvik birtast mér aftur og aftur, doka við, hverfa, koma á ný og þaó er eins og yfir þau bregði birtu sínýrra ljósa. Stein- grímur var mér elskulegur pabbi, innilegur, ljúfur og kær, og ég á honum mikið að þakka. - Og þótt samband okkar hafi nánast slitnað um eitt skeið ævinnar, þá endur- nýjaóist það í ást og innileik og varð eins og best getur orðið í nánu sambandi feðgina. Eg var aðeins örfárra mánaóa þegar ég kom til þeirra Steingríms og Ingibjargar Eiríksdóttur, fyrri konu hans, og því kann ég lítið aó segja frá þessu fyrsta ferðalagi mínu, sjóferðinni vestan frá Isa- firði til Akureyrar í umsjá ungs sjómanns. Eitt er þó víst að þegar til Akureyrar kom tóku fósturfor- eldrarnir vel og innilega á móti mér og hjá þeim ólst ég upp í kær- leiksríkri umsjá beggja öll mín bernskuár - allt þar til leiðir þeirra skildu og pabbi flutti burt, en við mamma urðum eftir. Atvik eins og hjónaskilnaðir skilja oftast eftir sig sárindi, en geta líka orðið báóum aðilum til heilla - allt eftir atvikum og að- stæðum hverju sinni. En hvort heldur er þá græóir tíminn sárin smátt og smátt þar til allt er um garð gengið og gróið er yfir allt. Steingrímur og Ingibjörg voru ólíkrar geróar. Hún var örlynd og ákaflynd og vildi koma hlutunum á hreyfingu. Sterkur vilji hennar hreif oft aðra með sér svo að það sem virtist nær óyfirstíganlegt varó í hennar forsjá leikur einn. Aó þessu leyti var mamma lík El- ísabetu systur sinni sem var verka- lýðsleiðtogi, formaður Einingar í áratugi, og bæjarfulltrúi. Stein- grímur var aftur á móti gjörhugull, fálátur og fámæltur og bar ekki tilfínningar sínar utan á sér. Sum- um þótti þessi stóri og myndarlegi maður drumbslegur og jafnvel frá- hrindandi þótt þeir kynntust öóru ef þeir náðu honum út úr skelinni. Hann var sílesandi á þessum árum og aflaði sér áreiöanlega mikillar þekkingar með lestri og sjálfsnámi enda komu menn sjaldan að tóm- um kofanum hjá honum, a.m.k. ekki þeir sem rökræddu stjórnmál við hann, enda held ég að and- stæðingar hans í stjómmáium hafi yfirleitt virt hann mikils. Hann var í eðli sínu ákaflega hlédrægur maður og tranaói sér aldrei fram, en í honum bjuggu hæfileikar for- ingjans og atvikin urðu á þá leió aó þessir hæfileikar fengu útrás og nýttust. Þrátt fyrir hófsemi hans til orðs og æðis eru þó til dæmi um að ausió væri yfir hann óhróðri, en ekki var það til ávinnings l'yrir þá sem það gerðu heldur kom þeim sjálfum í koll. Hann hefði áreióan- lega þegið langskólanám mennta- vegarins hefði honum staðió það til boða, en það hlotnaðist honum ekki, mest vegna aðstöðuleysis og fátæktar. Hann var þó maður bóka, fróðleiks og skrifta. Mér fannst hann njóta þess að vera heima, ýmist lesandi eða skrif- andi, hafandi mig prílandi og dundandi sér við hlið. Á þessum árum hafði pabbi enga fasta vinnu, enda var atvinn- an knöpp og menn veigruðu sér við að taka bolsa í vinnu. Það gat haft slæmar afleiðingar fyrir þá sem vinnu höfðu að miðla. Á tímabili var þetta svona þótt á því yrði breyting þegar eftirspurn eftir vinnuafli jókst. En pabbi lét þetta ekki á sig fá. Hann var hugsjóna- maóur í pólitík eins og margh samherjar hans og þeim mun meira vann hann ótrauóur fyrir flokkinn. Hann annaðist m.a. rit- stjórn Verkamannsins og hand- skrifaði oftast greinar sínar þótt hann ætti ritvél. Minnisstæður er mér penninn lians, breiður og gljá- andi, og formföst og sterkleg

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.