Dagur - 05.01.1994, Síða 1

Dagur - 05.01.1994, Síða 1
Akureyri, miðvikudagur 5. janúar 1994 2. tölublað 1 k \ ■ í 1 J Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI gær voru brautskráðir sex sjávarútvegsfræðingar og fjórir rekstrarfræðingar frá Háskólanum á Akureyri. A myndinni eru fjórir af sex nýbrautskráðum sjávarútvegsfræðingum. Tveir þeirra gátu ekki verið viðstaddir braut- skráninguna, Jón Þórðarson upplýsti að þeir væru önnum kafnir í nýjum störfum hjá Söiumiðstöð hraðfrystihús- anna. A myndinni eru Vignir Þór Jónsson, Gunnlaugur Sighvatsson, Erlingur Arnarson og Jón Hermann Óskars- son. Fjarstaddir voru Astmar L. Þorkelsson og Skarphéðinn Jóscpsson. Mynd: Robyn. Héraðsdómur Norðurlands eystra: 112 gjaldþrotabeiðnir á síðasta ári - flölgaði um 64% milli ára Á árinu 1993 bárust Héraðs- dómi Norðurlands eystra 112 gjaldþrotabeiðnir en um ára- mótin voru óafgreidd 9 gjald- þrotamál frá árinu 1992 hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra og því komu alls 121 gjaldþrota- mál til mcðferðar. Af þeim hafa 97 gjaldþrotabeiðnir verið afgreiddar en 24 beiðnir bíða af- greiðslu nú í byrjun þessa árs. Þessi fjöldi mála er svipaður og á árinu 1992 en Héraðsdómur Norðurlands eystra tók til starfa 1. júlí þ.á. er lög um aðskilnað dómsvalds og framkvæmdavalds ööluðust gildi. Frá 1. júlí 1992 til áramóta 1992/93 voru afgreiddar 53 gjaldþrotabeiðnir cn á tímabil- Brautskráning fyrstu sjávarútvegsfræðinganna frá Háskólanum á Akureyri: Þurfum ad vera stolt af sjávanítveginum - sagði Jón Þórðarson, forstöðumaður sjávarútvegsdeildar Enginn vaíl leikur á því að þeg- ar saga Háskólans á Akureyri verður rituð, mun þriðjudagur- inn 4. janúar 1994 verða skráð- ur með stóru letri. Ástæðan er einföld; þann dag voru fyrstu sjávarútvegsfræðingarnir brautskráðir frá sjávarútvegs- deild skólans, sem jafnframt eru fyrstu sjávarútvegsfræðingarnir sem útskrifast hér á landi. Fjölmenni var við brautskrán- ingu sex sjávarútvegsfræóinga og fjögurra rekstrarfræöinga í húsa- kynnum Háskólans á Akureyri við Glcrárgötu í gær. Fram kom í ávörpum forsvarsmanna skólans og gesta aó brautskráning fyrstu sjávarútvegsfræðinganna markaði tímamót í sögu sjávarútvegs- menntunar á Islandi og nienn veltu þcirri spurningu fyrir sér af hverju fyrstu sjávarútvegsfræóing- arnir hafi ekki vcrið útskrifaðir fyrir áratugum síðan. Jón Þórðarson, forstöðumaður sjávarútvegsdeildar, sagði í braut- skráningarræðu að á þeim fjórum árum sem lióin eru frá stofnun deildarinnar, cn hún tók til starfa 4. janúar 1990, hafi starfsmönnum Starfsemi á skíðasvæðunum að komast í gang: Mikill snjór í Hlíðar- fjalli miðað við árstíma fjölgað úr 2 í 12, þar af væru 5 starfsmenn útibúa Hafrannsókna- stofnunar og Rannsóknastofnunar fiskiönaðarins kennarar við sjáv- arútvegsdcild. Jón lagöi áherslu á cfiingu menntunar á sviði matvælafram- leiðslu og hann brýndi raustina þegar talið barst að neikvæðu við- horfi alntennings til sjávarútvegs- ins. „Það cr kominn tími til að þessi viðhorf brcytist og þau veröa aö breytast cf við ætlum að ná ár- angri í alþjóðlegri samkcppni. Vió þurfum aó vera stolt af sjávarút- vcginum og matvælaframleiðsl- unni og menntakerfið þarf að taka þannig á málum að þeir bestu hugsi sem svo „þetta gengur nú vel, kannski ég eigi jafnvel mögu- leika á starfi við sjávarútvcginn.“ Samvinna HÍ og HA Sveinbjörn Björnsson, rektor Há- skóla Islands, sagði að boriö hafi á ríg milli háskólanna tveggja, en ástæða væri til aö leggja áherslu á mikilvægi þess að skólarnir tækju höndum saman. Sveinbjörn sagði það „kappsntál að efna ekki til samkeppni milli skólanna“ og varpaöi því fram að skólarnir gætu t.d. unnið saman varðandi bóka- söfn, sjónvarpsfræðslu og útgáfu vísinda- og rannsóknaefnis. Sveinbjörn kynnti stofnun sjóðs scm verður ætlað að efla sam- skipti og samstarf Háskólans á Akureyri og Háskóla Islands. Til þessa sjóðs leggur Háskóli Islands 1 milljón króna sem stofnframlag. Auk rcktora bcggja háskóla og forstöðumanna sjávarútvegsfræði- deildar og rekstrardcildar fiuttu ávörp vió brautskráninguna í gær þcir Stefán Baldursson, fulltrúi menntamálaráðuneytisins, Halldór Árnason, aðstoðarmaður sjávarút- vegsráðherra, sem við þetta tæki- færi færði Háskólanum á Akureyri styrk frá sjávarútvegsráðuneytinu til tækjakaupa, Svavar Gestsson, fyrrv. mcnntamálaráðherra, og Er- lingur Arnarson, einn sex nýbraut- skráðra sjávarútvegsfræðinga. óþh inu I. janúar til 31. júní 1992 voru afgreiddar 19 beiðnir hjá sýslu- mannsembættinu. Alls eru þetta því 72 gjaldþrotabeiðnir á árinu 1992 eða 40 færri en á árinu 1993. I ársbyrjun 1992 hækkaði trygg- ingargjald þaö sem leggja þarf með gjaldþrotabciönum úr 12 þús- und krónum í 150 þúsund krónur og skýrir þaó að hluta hversu fáar beiðnir bárust fyrri hluta árs 1992. Á árinu 1991 bárust sýslumanns- embættinu á Akureyri 156 beiðnir. Óafgreidd voru 98 einkamál hjá Héraðsdóminum um sl. áramót og voru það að mestu leyti mál, sem voru óafgreidd hjá sýslu- mannsembættunum á Akureyri, Húsavík og Ólafsfirði við stofnun embættisins um mitt ár 1992. Sá listi hcfur nokkuð styst, en í árs- byrjun 1994 var málafjöldinn 89. Enn eru þó óafgreidd 4 mál sem eru frá því fyrir 1. júli 1992 og eru þaö mál þar sem ekki hefur náðst í viðkomandi, aðallega vegna þess að þeir dvelja erlendis. Stysti fyrningartími sakamála er tvö ár en einnij* eru til önnur sem fyrnast aldrei. Oafgreidd rnál eru því nán- ast eingöngu frá sl. ári sem telja verður viðunandi ástand. Stefnt er að því að koma málatíma niöur í 6 ntánuói, þ.e. sá tími sem líóur þar til mál eru tilbúin af hálfu lög- ntanna og eru allar líkur á að því markmiði verði náð á þessu ári. Af tæknilegunt ástæðum getur sá tími ckki orðið styttri. 1144 mál bárust Héraðsdómin- um á sl. ári en afgreidd voru 1151 mál þannig að fjöldi þeirra mála sem bíða afgreiðslu styttist heldur. Á sl. ári kontu 1309 mál til með- feróar, þar af 190 sakamál en 201 sakamál var afgrcitt á árinu og er afgreiðslutími þeirra orðinn mjög stuttur. Segja má að sakamál séu nú nánast afgrcidd eftir hendinni svo framarlega sem næst í þá sem ntálið varöar. Réttarhlé er hjá Héraðsdómin- unt frá 20. desember til 6. janúar og hefst málflutningur ekki að nýju l’yrr en í fyrsta lagi 10. janúar nk. GG Meiri snjór er nú í Hlíöarfjalli í byrjun árs en mörg undanfarin ár og á mánudag voru opnaöar tvær skíðalyftur í Illíöarfjalli og segir Ivar Sigmundsson, for- stöðumaður Skíðastaða, að stefnt sé að því að allar lyftur verði komnir í notkun um næstu helgi. Lyfturnar verða opnaóar klukk- an 15.00 og er opið til 18.45 og er skyggni mjög gott eftir aó kvcikt hefur verið á ljósunum þrátt fyrir að fremur dimmt sé yfir þessa dagana. Spáö er norðaustanátt, frosti og snjókomu l'ram á laugar- dag en þá snýst í suðaustan átt og vætu en þurrt veóur verður fyrir noróan. Lyfturnar í Ólafsfirói hafa ver- ið opnar í nokkra daga en þaó er alveg á mörkununt aó hægt sé að halda opnu vegna snjóleysis. Skíóalyftan á Dalvík hefur verið biluð en vonir standa til að við- gerð ljúki í vikunni þannig að hægt verði að opna um næstu helgi. Þar er sæmilegur snjór en mætti vera meiri. Nógur snjór er á skíðasvæði Siglfirðinga í Skaróinu og er þar opið daglega frá klukkan 13.00 til 17.00. Til stóð að opna lyfturnar í Húsavíkurfjalli milli jóla og nýárs en snjóleysið haml- aði því. Þær verða opnaðar um næstu helgi ef nægilega snjóár í vikunni. Skíðaáhugafólk getur því séö fram á góða daga í skíðabrekkun- um í Hlíðarfjalli, Böggvisstaða- fjalli, Ólafsfiröi og Siglufirói á næstunni og cinnig á Húsavík ef bætir á snjóinn í Húsavíkurfjalli. GG Akureyri: Umtalsverð fækkun útkalla milli ara hjá Slökkviliðinu Á Iiðnu ári voru 67 útköll hjá Slökkviliði Akureyrar, þar af 5 utanbæjar, en voru 90 árið áð- ur, þar af 4 utanbæjar. Enginn stórbruni varð á árinu og ekkert manntjón. Samkvæmt upplýsingum Tóm- asar Búa Böðvarssonar, slökkvi- liðsstjóra á Akureyri, var einn al- varlegasti atburður ársins 15. febrúar þegar gerð var tilraun til aö kveikja í skemmtistaðnum Sjallanum á meðan dansleikur stóð yfir. Slökkviliðsmenn annast einnig sjúkraflutninga og á þcim vett- vangi var að vanda nóg að gera í fyrra. Sjúktaútköll vour 1086, þar af 196 utanbæjar, en árið 1992 voru þau 1987, þar af 165 utan- bæjar. Af 1086 sjúkraútköllum á liðnu ári voru 174 bráðatilfelli. Frumskoóanir og endurskoðan- ir Eldvarnaeftirlitsins voru samtals 595 á sl. ári, þar af 54 Iokaskoðan- ir, þ.e. þegar búið er að ganga að fullu frá eldvörnum hússins eða húshlutans eins og gerö hefur ver- ið krafa um í sérstakri skoðunar- skýrslu frá Brunamálastofnun. Af þessunt 54 lokaskoðunum voru 50 skoðanir á húsum í eigu einkaað- ila eóa fyrirtækja en aðeins 4 í eigu þcss opinbera. óþh

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.