Dagur - 11.01.1994, Qupperneq 1
r
77. árg.
Akureyri, þriðjudagur 11. janúar 1994
Síðir
ullarjakkar
Verð 14.900
6. tölublað
V.
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri ■ Sími 23599
Hrikalegur veðurofsi á Siglufirði í gær:
Þök sviptust af mörgum húsum og
neyðarástand skapaðist í bænum
Stórfelldar hamfarir riðu yfir
Siglufjörð í óveðrinu í gær. Sigl-
firðingar eru ýmsu vanir þegar
veðurfar er annars vegar en ógn-
arkraftur ofsans og eyðilegging-
armáttur var hrikalegri en menn
áttu von á þar sem norðan bálið
var frekar austanstætt og öllu
jöfnu veita fjöllin nokkurt skjól.
Síðdegis höfðu lögreglu borist
tilkynningar um tjón á 22 húsum
og þök af fjórum húsum höfðu
sópast burt.
Vindhraði á Sauðanesi mældist
Akureyrarbær:
Styrkur úr Atvinnu-
leysistryggingasj óði
Stjórn Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs hefur samþykkt að veita
Akureyrarbæ styrk til að ráða
120 manns til vinnu í tvo mán-
uöi. Vilyrði hafði fengist fyrir
þessum styrk og hann hefur nú
verið formlega afgreiddur.
Þar með getur Akureyrabær
hrint af stað nýjum átaksverkefn-
um, cn eins og Heimir Ingimars-
son, formaður atvinnumálanefnd-
ar, hefur bent á í samtali vió Dag
er vandamálið nú að finna mann-
sæmandi störf handa þessu fólki.
Ekki er um auðugan garð að
gresja yfir vetrarmánuðina en
vonast cr til hægt vcrði að l'inna
verkcfni við hæfi. SS
Frystihús KEA í Hrísey:
Tóbaksreykur
á bak og burt
Starfsfólk frystihúss KEA í
Hrísey samþykkti sl. föstudag
að þegar það kæmi aftur til
vinnu eftir það vinnsluhlé sem
nú stendur yfir, verði frystihús-
ið reyklaust.
Eins og Dagur greindi frá sl.
laugardag hefur Hraðfrystihús Ól-
afsfjarðar hf. fengið viðurkenn-
ingu Tóbaksvarnanefndar scm
reyklaust frystihús frá og mcð 1.
janúar sl. Ólafsfirðingar riðu á
vaðið og frystihúsið þar cr fyrsta
reyklausa frystihús landsins. Með
ákvörðun frystihússfólks í Hrísey
er líklegt að frystihús KEA í eynni
verði næst í röðinni sem rcyklaust
frystihús.
Ari Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri frystihússins í Hrís-
ey, segir að Halldóra Bjarnadóttir,
framkvæmdastjóri Krabbameins-
félags Akureyrar og nágrennis,
hafi átt fund með starfsfólki sl.
föstudag þar sem hún greindi því
frá ýmsu varðandi skaðsemi reyk-
inga. I kjölfar framsögu Halldóru
hafi 48 af 49 starfsmönnum sam-
þykkt að gera frystihúsið að reyk-
íausum vinnustað.
Ari sagðist vera mjög ánægður
með þessa niðurstöðu, þessi af-
staða starfsfólksins hafi komið sér
skemmtilega á óvart, ekki síst
þegar þess sé gætt aö margir
starfsmanna reyki. óþh
að jafnaði 11-12 vindstig og slydda
fylgdi ósköpunum þannig að krap
hlóðst á raflínur. Rafmagn datt
tvisvar út en komst strax á aftur
með varafli. Neyðarástand skapað-
ist í bænum. Þakplötur voru á ferð
og flugi, þök l’uku og gaflar gáfu
sig. Almannavarnir komu saman.
Allir tiltækir hjálparsveitarmenn
voru á þönum svo og lögreglu-
menn, slökkviliðsmenn, iðnaðar-
menn og allir sem vettlingi gátu
valdiö.
„Fjögur þök eru farin og mörg í
hættu. Til dæmis er komin sprunga
í þakið á nýja íþróttahúsinu og
gaflinn farinn að losna. Ljóst er að
eignatjón er verulegt. Astandið er
slíkt að við höfum verið að reka
fólk heim og aðeins leyft þeim að
vera á ferli sem eiga krefjandi er-
indi. Þakplötur eru á fljúgandi ferð
um bæinn eins og við urðum
áþreifanlega varir við í lögreglu-
bílnum. Hjálparsveitarmenn ráða
ckki viö ástandið, það er svo alvar-
legt. Þeir geta aðeins sinnt brýn-
ustu verkefnum," sagði Kolbcinn
Engilbertsson, lögregluþjónn, í
samtali við Dag síðdegis í gær.
Ekki höfðu orðið slys á fólki cn
kona ein fékk þó áfall er þak húss-
ins sviptist af og loftið gekk niður
yfir hana þar sem hún var stödd
heima í stofu. Lögreglan flutti fjöl-
skylduna í annað hús og innan-
stokksmunir voru fjarlægöir. Alls
fóru þrjú þök af í heilu lagi svo
ekkert stóð eftir, en sem fyrr segir
voru fjögur þök farin síðdegis og
alls tuttugu og tvö hús skemmd.
„Okkur hrýs hugur við að vera
úti í veórinu, það er svo ógurlegt.
Hlutir skella á bílnum og það er
r.ánast glapræði að vera á ferli.
Þetta eru einstök heljarmenni sem
eru úti vió hjálparstörf," sagði Kol-
beinn.
Hann óttaðist jafnvel enn frek-
ari áföll er líða tæki á kvöldið.
Vindur var farinn aö snua ser
meira til norðurs og skjólió ekki
lengur til staðar. Þá var mikil hætta
á ísingu á raflínum. Ogerlegt var
að segja til um það í gær hve mikið
tjón hafði orðið á Siglufirði enda
veðrið ekki gengið niður og engan
veginn hægt að mcta skemmdir á
húsum. Lögreglan telur þó víst að
tjónió sé verulegt.
„Þær eru alls ekki frýnilegar til-
kynningarnar sem við fáum frá
Veðurstofunni,-4 sagöi Kolbeinn
þegar Dagur hafði aftur samband
við hann um kvöldmatarleytið.
„Það eru að nálgast skil sem menn
þurfa aó hafa virkilegar áhyggjur
af en viö vonum það besta. Nú eru
um 50 manns að störfum við að
bjarga því sem mögulegt er að
bjarga og við á lögreglustöðinni
stöndum í ströngu vió að stjóma
aógeróum í samvinnu við Björgun-
arsveitina Stráka,“ sagði Kolbeinn.
SS
Mikil hálka var á götum Akureyrar í gær og allnokkrir árekstrar í umferðinni. Þessi lenti í kröppum dansi í Gilinu.
A þjóðvegum var mikil ófærð og kolvitlaust veður. Mynd: Robyn.
Norðurland:
MM ófærð og afleitt veður
Norðaustan áhlaupið í gær gerði
það að verkum að margir vegir
tepptust. Um miðjan dag var
Öxnadalsheiðin orðin ófær, veðr-
ið var kolbrjálað og öllum
mokstri aflýst. Þar með varð
ófært milli Akureyrar og Reykja-
víkur.
Fært var frá Akureyri til Dalvík-
ur og Ólafsfjarðar en skafrenning-
ur. Ófært var til Grenivíkur og Vík-
urskarðið var ófært vegna illviðris.
Austan Víkurskarðs var fært í
Fnjóskadal og til Húsavíkur en
austan Húsavíkur var mjög slæmt
veður og víða þungfært. Ófært var
um Kísilveg, Fljótsheiði, Mývatns-
og Möðrudalsöræfi. SS
Húsavík:
Þakplötur fuku
Nokkrar járnplötur fúku af
húsi við Höfðaveg á Húsavík
rétt fyrir kl. 15 í gær, en
hvassa bylji gerði í bænum
eftir hádegið.
Lögregla og smiðir aðstoð-
uðu húseigandann við að hefta
fokið af þakinu. Lögreglu var
ekki tilkynnt um að annað
hefði farið úrskeiðis í veður-
hamnum.
Hclgin var rólcg, að sögn
lögreglu. IM
Akureyri:
Flugsamgöngur
lömuðustígær
Síðdegis í gær hafði ekkert
verið flogið til eða frá Akur-
eyri og varla útlit fyrir nein-
ar flugsamgöngur vegna
óveðurs.
Flugfélag Noróurlands af-
lýsti öllu flugi en Rugleiðir
ætluðu að athuga með flug frá
Reykjavík kl. 19. Útlitið var þó
mjög slæmt. Um 80 manns áttu
bókað far frá Akureyri með
Flugleiðum. SS
Nýja íþróttahúsið
í Ólafsfirði:
Haukur verði
ráðinn um-
sjónarmaður
Á fundi bæjarstjórnar Ólafs-
fjarðar í dag verður væntan-
lega afgreidd ráðning starfs-
fólks nýs íþróttahúss í bæn-
um, sem gert er ráð fyrir að
verði tekið formlega í notkun
1. maí í vor.
Fastlega er gert ráð fyrir að
Haukur Sigurðsson, trésmiður
og varabæjarfulltrúi, verði ráð-
inn í starf umsjónarmanns
íþróttamannvirkja; íþróttahúss-
ins og sundlaugarinnar. Bæjar-
ráð mælir meó því við bæjar-
stjóm að Haukur vcrði ráðinn.
Hálfdán Kristjánsson, bæj-
arstjóri í Ólafsfirói, segir að
vinna við nýja íþróttahúsið sé á
góðu skriði og áætlanir stand-
ist. Allt bendi til þess aó húsið
verði tilbúið til notkunar um
mánaðamótin apríl-maí.
Næsta skref er að leggja
góllefni á íþróttahúsið og auk
þess verkáfanga er eftir minni-
háttar frágangur og áhalda-
kaup. óþh
Danir, Bretar og Portúgalir yfirbjóða Rússafiskinn:
Um 70 tonn af ýsu verið seld til Sauðárkróks
Ásgeir Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmiðlunar
Norðurlands hf. á Dalvík, telur
að töluvert framboð verði af
fiski af rússneskum togurum á
þessu ári, sem eru á veiðum í
Barentshafi, þ.e. ef tíð helst þar
sæmileg. Á þessu ári hefur Fisk-
miðlunin selt 70 tonn af ýsu úr
Barentshafi, sem fór til vinnslu
hjá Fiskiðjunni hf. á Sauðár-
króki, en uppistaða afla rúss-
neska togarans fór til Græn-
lands.
„Fiskvinnslufyrirtæki á Islandi
verða að byggja töluvert á aö-
keyptum fiski á þessu ári, sérstak-
lega í ljósi þeirrar staðreyndar aö
margir eru langt komnir með fisk-
veióikvótann og hjá mörgum
verður hann búinn í mars eða apr-
ílmánuði. Fiskveiðikvóti Rússa og
Norómanna í Barentshafi hefur
verið stóraukinn, og byggist það á
nióurstöðum rannsókna, sem
fiskifræðingar þeirra hafa gert á
þessum slóðum. Ef Norómennirn-
ir veiða mun meira en á sl. ári
þurfa þeir minna að kaupa af
Rússum og þá eykst væntanlega
framboðið til íslands.
Mikið hefur verið spurt eftir
fiski á þessu ári vegna sjómanna-
verkfallsins en afuróaverð hefur
heldur farið lækkandi og við höf-
um misst nokkra farma því við
höfum ekki getað boóið sama verð
og t.d. Danir, Bretar og Portúgal-
ir,“ segir Ásgeir Arngrímsson. GG