Dagur - 11.01.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 11. janúar 1994
FRÉTTIR
Fjárhagsáætlun Ólafsíjarðarbæjar 1994 lögð fram í dag:
íþróttahúsið „stóri bitinn“ á árinu
Fjárhagsáætlun Ólafsfjarðar-
bæjar fyrir árið 1994 verður
lögð fram til fyrri umræðu á
fundi bæjarstjórnar í dag. Hálf-
dán Kristjánsson, bæjarstjóri í
Ólafsfirði, segir að fjárhags-
áætlunin sé ekki dæmigerð
Ferðamálaráð íslands:
Opnar skrif-
stofu á
Akureyri
í aprfl
- þrír starfsmenn munu
starfa á skrifstofunni
Undanfarna mánuði hcfur verið
unnið að undirbúningi þess að
færa nokkur af verkefnum
Ferðamálaráðs til Akureyrar.
Nú hefur verið ákveðið að opna
skrifstofu á Akureyri þann 8.
apríl nk. og er gert ráð fyrir að í
byrjun muni 3 starfsmenn
starfa á skrifstofunni.
Verkefni skrifstofunnar á Ak-
ureyri verða þau lögbundnu verk-
efni ráósins, sem fyrst og fremst
snúa aó eftirfarandi þáttum: Ráð-
gjöf og aóstoð viö þróun og upp-
byggingu ferðaþjónustu á lands-
byggðinni, innlend markaðssetn-
ing og upplýsingaöflun og dreif-
ing upplýsinga til feróaþjónustu-
aóila. Þá mun skrifstofan einnig
sinna samstarfi við samtök og
hagsmunaaðila vegna umhverfis-
mála á ferðamannastöðum, eins
og segir í fréttatilkynningu frá
Ferðamálaráði.
Verkefni ráösins, samkvæmt
lögum um ferðamál, eru margvís-
leg og til að sinna þcim starfrækir
stofnunin ein sér eða í samvinnu
vió aðra hagsmunaaðila alls sex
skrifstofur. Þrjár þessara skrifstofa
eru erlendis, í Frankfurt, New
York og Tokyo og þrjár hérlendis.
Til lögbundinna verkefna og
reksturs Ferðamálaráðs koma 95
milljónir kr. úr ríkissjóói og hags-
munaaðilar leggja fram um 35
milljónir kr. Til verkefna og rekst-
urs skrifstofu er því varið um 130
milljónum kr. á árinu. KK
kosningaáætlun.
Gert er ráð fyrir svipuðum
skatttekjum Ólafsfjarðarbæjar á
þessu ári og því síóasta.
Ef litið er á framkvæmdahlið
fjárhagsáætlunarinnar kemur í ljós
aó eins og undanfarin ár verður
mestu fjármagni, tæpum 50 millj-
ónum króna, varið til nýja íþrótta-
hússins og breytinga á þrekmið-
stöðinni. Af þessri upphæð fara 11
milljónir til kaupa á gólfefni í
íþróttahúsið og 7-8 milljónir til
kaupa á áhöldum í húsið.
íslensk matvæli eiga góða
möguleika á mörkuðum með líf-
rænar og vistvænar landbúnað-
arvörur í heiminum. Það er álit
Carls Heast, ráðgjafa um mark-
aðssetningu lífrænna og vist-
Til fræðslumála verður varió
samtals 7,4 milljónum króna og
þar vega þyngst breytingar á nú-
verandi íþróttasal viö Bamaskól-
ann í tvær kennslustofur og endur-
nýjun tölvukerfis í Gagnfræða-
skólanum.
Til gatnamála fara 7 milljónir
króna, þar af 5 milljónir til gang-
stétta. Undir liðnum „almennings-
garðar og útivist" eru 10 milljónir
króna. Hálfdán Kristjánsson segir
að áhersla verði lögð á hellulögn
og frágang svæðis sunnan félags-
vænna afurða, en hann ræddi
um möguleika Islendinga til
framleiðslu og sölu slíkra afurða
á kynningarfundi er haldinn var
á vegum samstarfshóps bænda-
samtakanna síðastliðinn laugar-
dag. Heast er Hollendingur en
búsettur í Belgíu og hefur meðal
annars veitt forstöðu fyrirtækj-
um er framleitt hafa lífrænar og
vistvænar landbúnaðarvörur og
er nú í forystusveit þeirra er
standa fyrir framleiðslu líf-
rænna matvæla í heiminum.
Samstarfshópur um framleiðslu
á vistvænum landbúnaðarvörum
var stofnaður í nóvember síðast-
liðnum af samtökum bænda, ýms-
um stofnunum landbúnaðarins og
landbúnaðarráðuneytinu. Hópur-
inn hefur ráðið Baldvin Jónsson til
tímabundinna starfa en hann hafði
þá þegar sett sig í samband við
IFOAM, sem eru alþjóðleg sam-
tök framleiðenda lífrænna afuróa.
Formaður samstarfshópsins er
Arnaldur Bjarnason frá Stéttar-
sambandi bænda.
Arnaldur sagði í sanitali vió
Dag að fundurinn með Carli Heast
hcfði tekist mjög vel. Hann telji
okkur eiga góóa möguleika á aó
framleiða vistvænar landbúnaðar-
vörur og koma þeim á erlcnda
markaði. Hann telji einnig frani-
leiðslukerfi matvælaiönaðarins
rnjög fullkomið og Islendinga
bera gott skynbragð á vöruvöndun
heimilisins Tjarnarborgar. „Viö
viljum gera átak í umhverfismál-
um fyrir 50 ára afmæli bæjarins á
næsta ári,“ sagði Hálfdán. Reynd-
ar fagnar Hitaveita Olafsfjarðar og
sundlaug bæjarins 50 ára afmæli á
þessu ári, að sögn Hálfdáns.
Framkvæmt verður hjá Hita-
veitunni fyrir samtals 7 milljónir
króna. Þeirri upphæó veróur að
stórum hluta varió til endurnýjun-
ar síðasta áfanga aðalæðar veit-
unnar til bæjarins og rannsókna
og tilraunaborana.
og gæói. Hér sé bæði að finna gott
hráefni og einnig grundvöll góórar
framlcióslu. Hann viðurkenni að
vió getum ekki orðið samkeppnis-
fær um verð við landbúnaðarfram-
leiðslu annarra landa og verðum
af þeim sökum að kcppa meó
gæðin að leiðarljósi. Heast viður-
kennir einnig að Iöng leió sé að
því marki aó ísland hljóti alþjóð-
lega viðurkenningu sem framleið-
andi lífrænna og vistvænna afurða
en telur þá lcið þó mun skemmri
fyrir Islendinga en nokkra aðra
þjóð er hann þekki til. Hann gat
þess aó framleiðendum lífræns
ræktaós grænmetis hafi gengið illa
að anna eftirspum allan ársins
hring en með þeim jaróhita sem til
staðar sé hér á iandi eigi að vera
auðvelt að annast slíka ræktun.
í máli Carls Heasts kom fram
aó þótt áætlað sé að lífrænar af-
urðir nemi nú aðeins um \% af
matvörumarkaði Evrópu þá velti
þær samt yfir 300 milljörðum ís-
lenskra króna á hverju ári og þar
sé vissulega eftir nokkru að sækj-
ast. Þá telur Heast einnig raunhæft
að gera ráð fyrir aö lífræn mat-
vælaframleiðsla nái um 5% af al-
þjóðlegum matvörumarkaði á
næstu árum og geti markaðshlut-
deild jafnvel orðið hærri hvað ein-
stakar vörutegundir varðar og
nefndi grænmeti og lífrænt rækt-
aðar mjólkurvörur sérstaklega sem
dæmi um slíka framlciðslu.
ÞI
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ A fundi skipulagsnefndar
20. des. sl. voru kynntar tillög-
ur aó íbúðaþyrpingu austan
Krossanesbrautar gegnt Undir-
hlíð. Tillögurnar voru unnar
fyrir lóðarhafann, A. Finnsson
hf.
■ Hafnarstjóm og bæjarráð
hafa samþykkt aö ganga til
sanrninga við Björgun hf. um
flutninga á 11 þús. rúmmetrum
úr Fiskihöfninni aó Krossanesi.
Tvö tilboð bárust í vcrkið, frá
Hagvirki-Kletti og Björgun hf.
og var tilboð Björgunar mun
lægra.
■ íþrótta- og tómstundaráó og
bæjarráð hafa samþykkt til-
löguteikningar aó breytingum á
Sundlaug Akureyrar svo og
samstarfssamning milli Akur-
eyrarbæjar annars vegar og
Forms hf„ H.J.-tciknistofu,
Verkfræðistofu Norðurlands
og Raftákns hf. hins vegar, en
þessir aðilar munu annast
hönnun endurbþta og nýfram-
kvænida á sundlaugarsvæðinu.
■ Á fundi íþrótta- og tóm-
stundaráös 4. janúar sl. var
samþykkt veróskrá fyrir sund-
laugar Akureyrarbæjar á yfir-
standandi ári. Eftirtaldar breyt-
ingar hafa oróið á verðskránni
frá síðasta ári: Verð fullorðin-
smiða hækkar úr 140 kr. í 150
kr„ leiga á handklæði hækkar
úr 120 kr. í 150 kr, leiga á
sundfötum hækkar úr 120 kr. í
150 kr„ vcrð á 10 miða korti
fullorðinna hækkar úr 1000 kr.
í 1100 kr„ verð á 30 miða korti
fullorðinna hækkar úr 2800 kr.
í 2900 kr. og árskort hækkar úr
17300 í 17700 krónur.
■ íþrótta- og tómstundaráð
hefur falið framkvæmdastjóra
ráösins að gera pöntun á nýjum
lyftuvír í stólalyftuna í Hlíðar-
fjalli.
■ Á fundi atvinnumálanefndar
30. des. sl. var tekin fyrir
styrkbeióni Siguróar Ringsted
og Þórhalls Bjarnasonar til að
vinna aó stofnun ráðgjafajfyr-
irtækis á alþjóðamarkaði, Útrás
hf. Atvinnumálanefnd sam-
þykkti að verja kr. 400 þús. í
þessu skyni. I bókun atvinnu-
málanefndar kemur fram að
meirihluti nefndarinnar (Heim-
ir Ingimarsson (G), Guðmund-
ur Stefánsson (B) og Kolbrún
Þormóðsdóttir (B)j leggur til
við bæjarráð að gengið verði til
viðræöna við félagið um að
þessari upphæó verói varið til
hlutafjárkaupa í því. Birna Sig-
urbjömsdóttir (D) og G. Omar
Pétursson (D) telja að veita
beri féð í formi styrks. Bæjar-
ráð samþykkti á fundi sínum 6.
janúar sl. aó vísa þessum lið til
bæjarstjórnar.
■ Jafnréttisnefnd samþykkti 5.
janúar að auglýst verði eftir
verkefnisfreyju Menntasmiðju
á Akureyri. Einnig er þaó ósk
nefndarinnar að skipuð verði
stjórn Mcnntasmiðjunnar scm
fyrst.
»»>
IITIiWilil
Eftirfarandi útboð eru til sölu á skrifstofu Ríkiskaupa, Borg-
artúni 7, Reykjavík:
1. Útboð 4041/93 stálbitar fyrir vegagerð. Opnun
12.01.1994 kl. 11.00 f.h.
2. Fyrirspurn 2799/94 prentun handbókar. Um er að ræða
u.þ.b. 600 eintök. Opnun 18.01.1994 kl. 11.00 f.h.
3. Útboð 4047/94 staðarnet fyrir sýslumannsembætti.
Gögn seld á kr. 1000 m/vsk. Opnun 21.01.1994 kl. 11.00
f.h.
4. Útboð 4044/93 stálræsi fyrir vegagerð. Opnun
25.01.1994 kl. 11.00 f.h.
5. Útboð 4040/93 Þjóðarbókhlaða, innréttingar og búnað-
ur fyrir eldhús. Gögn seld á kr. 6226, m/vsk. Opnun
01.02.1994 kl. 11.00 f.h.
6. Útboð 4043/93 Þjóðarbókhlaða, forval húsbúnaður.
Gögn seld á kr. 1000, m/vsk. Opnun 02.02. 1994 kl.
11.30 f.h.
#RÍKISKAUP
Ú t b o & s k i I a árangril
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 9 1-26844,
BRÉFASÍMI 91-626739
Stórar sem smáar vinnuvélar hafa óspart verið notaðar við snjómokstur að undanfornu cnda vetrarríki á Akureyri
sem og annars staðar á Norðuriandi. Mynd: Robyn.
Verða lífrænt ræktaðar landbún-
aðarafurðir að útflutningsvörum?
- evrópskur sérfræðingur telur okkur eiga góða möguleika