Dagur - 11.01.1994, Side 3
Þriójudagur 11. janúar 1994 - DAGUR - 3
Samið við Flug-
leiðir um sæti
fyrir launþega-
hreyfinguna
Síðastliöinn föstudag gerðu
Samvinnuferðir-Landsýn og
fulltrúar aðildarfélaga ferða-
skrifstofunnar, sem eru öll
stærstu launþegafélög landins,
samning við Flugieiðir um ráð-
stöfun á um 5.000 sætum til
nokkurra helstu áfangastaða fé-
lagsins. Um er að ræða flug á
tímabilinu frá 25. maí til 15.
september til Kaupmannahafn-
ar, Osló, Glasgow, Stokkhólms,
London, Luxemborgar, Amster-
dam, Parísar, Baltimore og
Hamborgar.
Sölu þessara farmiða verður
lokið fyrir 10. maí næstkomandi
og verður veittur sérstakur afslátt-
ur á llugi innanlands í tengslum
við (lug á vegum aðildarféiag-
anna.
Þetta er í fjórða sinn sern Sam-
vinnufcrðir Landsýn og Flugleiöir
gera með sér samning af þcssu
tagi fyrir launþegahrcyfinguna.
Fram kcmur í upplýsingum ferða-
skrifstofunnar að eftir tilkomu
samninganna hafi verð á flugi til
Kaupmannahafnar lækkað um
5,8% og verð á flugi til Glasgow
lækkað um 21%.
Þrátt fyrir gengisfcllingu og
óhagstæöa gengisþróun frá síðasta
ári verða fargjöld nánast óbreytt
milli ára. Sé farmiði keyptur fyrir
9. rnars kostar far fyrir fulloróinn
til Kaupmannahafnar 18.620 kr.
niiðað við staðgreiðslu, 20.235 kr.
til London og 36.290 kr. til Balti-
more.
Aðilar að þessum fargjalda-
samningi eru öll félög innan Al-
þýóusambands íslands, Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, Banda-
Iags háskólamanna, Sambands ís-
lenskra bankamanna, Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, Lands-
sambands aldraðra, Farmanna- og
fiskimannasambands Islands og
Hjúkrunarfélags íslands. JÓH
Kvenfélag Húsavíkur:
Þjófstartað
með
þorrablótin
„Þorrablótin í sýslunni komast
ekki öll fyrir um helgarnar á
þorranum, svo það er orðin hefð
á að við þjófstörtum. Þetta hef-
ur gefist vel og ég vona að við
fáum góða aðsókn, eins og verið
hefur undanfarin ár,“ sagði
Þórhalla Sigurðardóttir, sem er
í þorrablótsnefnd Kvenfélags
Húsavíkur.
Kvenlélagið hel’ur samkvæmt
venju ákveðið aö halda þorrablót
sitt viku l'yrr en aórir landsmenn
byrja að blóta þorra. Þátttaka er
ekki bundin vió félaga heldur er
ölluni velkomið að panta borð hjá
nefndinni l’yrir 13. janúar og mæta
síðan mcö trogið undir hendinni
fvrir kl. 20 laucardasinn 15. jan.
Líkumar á að þú
hljótir vinning, em
hvergi eins miklar
og í Happdrætti
Háskóla Islands!
Flestir spila í happdrætti til að hljóta vinning,
en oft ræður kapp frekar en forsjá því hvar menn
spila. í HHÍ getur annar hver miði hlotið vinning*
það eru mestu vinningslíkur í happdrætti á íslandi.
Á 60 ára afmælisári býður HHÍ m.a upp á glæsilegan
afmælisvinning samtals að upphæð 54 milljónir. EINGÖNGU
VERÐUR DREGIÐ ÚR SELDUM MIÐUM. Slíkir möguleikar
finnast ekki i öðru happdrætti hérlendis.
Nú hefur enginn efni á að vera ekki með í HHÍ og eins gott að
tryggja sér númer tímanlega áður en miðar seljast upp.
* CE) [Z3 Miðaverð er óbreytt, 600 kr.
Spilar þú ekki í besta happdrœttinu?
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til virmings
' Á árinu 1993 voru greiddir út 52.768 vinningar á samtals 105.470 selda miöa. Vinningur féll því á meira en annan hvern miða.
Verð miðað við siaðgreiðslu er 1.100
03 hver endurtehning 400 Hrónur.
00 smáauglýsingar í kró
AUGLYSINGAR - RITSTJ0RN • DREIFING
m Á AKUREYRI 96-24222
Á HÚSAVÍK 96-4IS8S
ARGUS / SÍA