Dagur - 11.01.1994, Síða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 11. janúar 1994
þar sem geisladískar eru gersemi
Hafnarstræti 98 • 600 Akureyri • Sími 12241
Púkarnir létu öilum illum látum á þrcttándagleðinni og skemmtu sér greinilega vei, eins og reyndar þeir fjöimörgu
scm komu á gieðina.
SVÆÐISSKRIFSTOFA
MÁLEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Við Plastiðjuna Bjarg er laus til umsóknar staóa verk-
stjóra. í starfinu felst dagleg verkstjórn vió framleiðslu
og leiðsögn til starfsmanna.
Æskilegt er að umsækjandi hafi starfsréttindi sem iðn-
aðarmaður og /eða menntun á uppeldissviði. Verk-
stjórnarreynsla er æskileg. Staðan veitist frá 1. feb.
1994.
Skriflegum umsóknum skal komið á Svæðisskrifstof-
una, Stórholti 1, Akureyri. Umsókn fylgi upplýsingar
um menntun og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 20. jan n.k.
Svæðisskrifstofa fatlaðra.
AKUREYRARBÆR
Ætla konur að hafa
áhrif á stjórnmál
framtíðarinnar?
Jafnréttisnefnd Akureyrar mun standa fyrir
opnum fundi um konur og stjórnmál á Hótel
KEA, fimmtudaginn 13. janúar 1994, kl.
20.00.
Auk almennra umræðna munu fulltrúar þeirra stjórn-
málaafla sem nú eiga sæti á Alþingi flytja erindi:
Frá Alþýðubandalaginu:
Sigríóur Stefánsdóttir, formaður bæjarráðs Akureyrar
og Sigrún Sveinbjörnsdóttir, varabæjarfulltrúi á Akur-
eyri.
Frá Alþýðuflokki:
Jónína Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi í Ólafsfirði.
Frá Framsóknarflokki:
Ingibjörg Pálmadóttir, alþingiskona.
Frá Kvennalista:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, alþingiskona.
Frá Sjálfstæðisflokki:
Birna Sigurbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi og
Valgerður Hrólfsdóttir, varabæjarfulltrúi á Akureyri.
Á fundinum verður einnig kynnt
„Námskeið um konur
og sveitastjórnarmál",
s? sem haldið verður í samvinnu
Jafnréttisnefndar Akureyrar og
/fÁT Endurmenntunarnefndar Há-
(![( skólans á Akureyri, og hefst 25.
ian-nk-
a akureyri Jafnréttisfulltrúi Akureyrar.
Akureyri:
f /p •• /
Lít og qor a
þrettándagleði Þórs
Það var ekki bara álfakóngurinn scm söng að þessu sinni, hcldur tóku álfa-
drottningin og álfamærin cinnig þátt í söngum.
Jóhann Már Jóhannsson lét sig ekki vanta á þrcttándaglcðina og söng af
sinni alkunnu snilld. Pálmi Gunnarsson lét heldur ekki sitt eftir liggja og
söng nokkur þekkt lög.
íþróttafélagið Þór á Akureyri
hélt sína árlegu þrettándagleði á
félagssvæði sínu við Hamar á
þrettándanum. Um 1500 manns
mættu á svæðið og tóku þátt í
gleðinni en þetta var í 58. sinn
sem félagið stendur fyrir þessari
uppákomu. Dagskráin að þessu
sinni var óvenju fjölbreytt og
kunnu börnin sérstaklega vel að
meta hana.
Auk þess sem hinir hefðbundnu
jólasveinar komu í heimsókn,
mættu þeir Völustakkur og Lang-
leggur, synir Grýlu, sem ekki fengu
að vera jólasveinar, einnig á svæð-
ið og höfðu sig mikið í frammi.
Þarna voru að venju púkar, álfar,
tröll og hin ýmsu dýr. Skralli trúður
mætti í heimsókn og má segja að
hann hafi stolið senunni, með
skemmtilegri framkomu.
Þá var sá háttur hafður á að
þessu sinni að álfadrottningin söng
jal'nt á við mann sinn og einnig tók
dóttir þeirra þátt í söngnum. Tveir
aðrir stórsöngvarar tóku lagið, þeir
Jóhann Már Jóhannsson, sem hefur
tekið þátt í gleðinni til fjölda ára og
Pálmi Gunnarsson, sem kom sér-
staklega til að syngja l'yrir þau
yngri.
Hátíðarhöldunum lauk svo meö
stórglæsilegri flugeldsýningu, sem
félagsmenn í Þór sáu urn.
ý ;Á:y
Skralli trúður var eitt aðalnúmerið og hér er hann að ræða við hátíðargesti, ásamt þeim Völustakk og Langlegg, son-
um Grýlu, sem sluppu í bæinn og mættu tii leiks. Myndjr: Robyn