Dagur - 03.03.1994, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 3. mars 1994
FRÉTTIR
Norðlenskir hestadagar í Reiðhöllinni:
Glæsileg hross og
hróðugir knapar
- metnaðarfull sýning á sögu hestsins
Það er orðinn árviss viðburður
að norðlenskir hrossabændur
fjölmenni suður yfir heiðar og
haldi sýningu í Reiðhöllinni. Ein
slík fór af stað sl. þriðjudag eft-
ir að riðið hafði verið norðan
úr Iandi með handrit að sýning-
unni. Að þessu sinni er áhersla
lögð á að sýna fólki sögu ís-
lenska hestsins, allt frá því að
hann var eina samgöngutækið
og þarfasti þjónninn. Hátt í eitt
hundrað manns kemur nálægt
sýningunni og mikill fjöldi gull-
fallegra hrossa. Næstu sýningar
verða 4. og 5. mars og er fyllsta
ástæða til þess að hvetja hesta-
áhugamenn til þess að fjöl-
menna.
„Undirbúningurinn hófst í nóv-
ember og hingað erum við komnir
í þriðja sinn. Við höfðum sett
stefnuna á aprílsýningu en fannst
svo kjörið að slá þessu saman vió
landbúnaðarsýningu Ingvars
Helgasonar. Þetta er liður í því að
nota dauða tímann og koma okk-
ur, og því sem vió erum aó gera, á
framfæri,“ sagði Baldvin Kr.
Baldvinsson, formaður fram-
kvæmdanefndar sýningarinnar.
Hann sagói íþróttamann ársins,
Sigurbjörn Bárðarson, taka þátt í
sýningunni og hafa verió norðan-
mönnum innan handar. Þaó vildi
hann þakka. „Þaó er að vísu nokk-
uð fátt hér í kvöld en ég veit að
hér verður húsfyllir um helgina,“
sagði Baldvin.
I tengslum við sýninguna og
reióina aó noróan var efnt til söfn-
unar fjár til kaupa á húsnæöi fyrir
krabbameinssjúklinga af lands-
byggðinni sem leita þurfa lækn-
inga í Reykjavík. Hægt er að láta
gott af sér leiða og styrkja þetta
góða málefni í síma 91-674012 og
985-28174.
Með dótturinni
Aslaug Kristjánsdóttir, formaður
íþróttadeildar Léttis á Akureyri, er
meöal þátttakenda á sýningunni.
Hún sagðist vera þarna með níu
ára gamalli dóttur sinnni sem ver-
ið hefur viðloóandi hestamensku
frá 6 mánaða aldri. Aslaug á tvö
hross á sýningunni.
„Við Dagný Björg tökum báðar
þátt í sýningunni og eyðum mikl-
um tíma saman í hestamennsk-
unni. Stelpan hefur líklega byrjaö
6 mánaða á hnakknefinu hjá mér.
Ég á sjálf tíu hross og hesturinn
hefur ætíó verið minn sterkasti fé-
lagi. Ég fæ meira út úr félags-
skapnum við hann en mannskepn-
una, eyði enda 6-8 klukkustundum
í tamningar og hirðingu hrossanna
á degi hverjum. Sýningin er ákaf-
lega vel heppnuö, mikill tími hef-
ur farió í undirbúning og ég er
sannfæró um aó fólk á eftir aó
fjölmenna hingað og sjá þessi fal-
legu og vel tömdu hross,“ sagói
Aslaug Kristjánsdóttir, formaður
íþróttadeildar Léttis. SV
Áslaug Krisjánsdóttir og Maístjarna taka þátt í sýningu Norðlenskra hesta-
daga. Mynd: SV
Samstarfsverkefni um stofnun fræðsluskrifstofu
Hver ferðamaður ígildi
eins þorskstonns
- auknar tekjur af sérstöðu náttúru landsins
Sjö stofnanir hafa sett á fót
samstarfsverkefni um að láta
kanna hvernig auka mætti vís-
indasamstarf, fjiilga heimsókn-
um til landsins og auka tekjur
landsmanna af sérstöðu íslands.
Erlendir vísindamenn, nemar
og erlendar vísindastofnanir Iíta
oft á landið sem gullnámu og
það hyggjast menn nýta sér í
auknum mæli. Óljóst er um
hversu mikinn fjölda menn eru
að tala en hann gæti skipt þús-
undum á ári. Þykjast menn sjá
hag landsbyggðarinnar af verk-
Veitingahúsið Greifinn
óskar eftir fólki til útkeyrslustarfa
Um er að ræða kvöld- og helgarvinnu. Þurfa að vera á
eigin bíium og ekki yngri en 20 ára. Uppl. veittar á
staðnum föstu-daginn 04.03.93 milli kl. lOog 11.
F.h. Greifans,
Sigmar Ólafsson.
K.A. heimilið
v/Dalsbraut, sími 23482.
Nýtt - Nýtt - Nýtt
Komdu og slakaðu á í nýja
vatnsgufubaðinu okkar.
Pottur + gufa aðeins kr. 200.
Munið ódýru Ijósatímana á morgnana.
Stórir og litlir salir fyrir veislur og árshátíðir.
efni sem þessu.
Þær stofnanir sem taka þátt í
verkefninu eru: Endurmenntunar-
stofnun Háskóla Islands, Tækni-
þróun h.f., Náttúruverndarráð,
Náttúrufræðistofnun Islands,
Landgræósla ríkisins, Skógrækt
ríkisins og Ráðstefnuskrifstofa Is-
lands. „Lagt er til að komið verði
á fót lítilli skrifstofu í tengslum
við Háskóla Islands svo vinna
megi aó tvíþættu átaki við að efla
samskipti vió erlenda vísinda-
menn, nema og vísindastofnanir,“
segir m.a. í greinargerð sem dreift
var á blaðamannafundi í gær.
Atakið felst í því að komið verói á
fót víðtæku námskeiðahaldi fyrir
áðurnefndan markhóp, námskeið
sem hægt væri að tengja skoóun-
arferóir af ýmsu tagi. I öðru lagi
er svo lagt til að endurnýjuð verði
eða stofnað til tengsla við erlenda
háskóla um feróir einstakra náms-
manna til landsins.
Margir ótvíræðir kostir eru
nefndir þessu samfara. Ljóst er að
störfum náttúrufræðinga myndi
fjölga talsvert, ferðamannatíma-
bilið kynni að lengjast, þar sem
áhersla yrði lögð á vor-, haust- og
vetrarferðir, og síðast en ekki síst
myndi þetta þýða aukna nýtingu
bændagistingarinnar og um leið
stuðla að eflingu landsbyggðar-
innar.
Lagt er til aó farið verði af stað
með ýmsar athuganir og ráðinn
verði einn starfsmaður í 6-8 mán-
uði, hann skili áliti að þeim tíma
liðnum og í framhaldinu verði tek-
in ákvörðun um stofnun áður-
nefndrar fræðsluskrifstofu. SV
Embætti veiðistjóra:
Eyþing fagnar flutningi
Össur Skarphéðinsson, um-
hverfisráðherra, hefur ákveðið
að flytja Embætti veiðistjóra til
Akureyrar og tengja það setri
Náttúrufræðistofnunar á staðn-
um. Stjórn Eyþings hefur álykt-
að um málið.
í ályktuninni segir: „Stjórn Ey-
þings fagnar þessari ákvörðun og
tekur undir nauösyn þess aö cfla
það akademíska umhverll sem
varð að veruleika meö stofnun
Háskólans á Akureyri. Stjórnin
leggur áherslu á að faglegt mat sé
lagt til grundvallar flutningi og
hafnar þeim rökum er byggja á
andstöðu einstakra starfsmanna
við að flytja búferlum. Með flutn-
ingi Embættis veiðistjóra til Akur-
eyrar er virt í verki sú stefna að
flytja stofnanir út á land, sem vel
eru til þess fallnar.
Stjórn Eyþings skorar á um-
hverfisráðherra að hraða fram-
kvæmd verksins cins og kostur
er,“ IM
Norðurlandsmótið í bridds:
Hefst á Siglu-
flrði á morgun
Norðurlandsmótið í sveita-
keppni fer fram á Siglufirði
dagana 4.-6. mars nk. Alls hafa
17 sveitir víðs vegar af Norður-
landi skráð sig til keppni.
Reiknað er með harðri baráttu
þar sem á mcóal keppenda eru nú-
vcrandi Isjandsmeistarar í svcita-
keppni, Islandsmeistarar yngri
spilara, bæði í sveitakeppni og tví-
menningi og bridgehátíðarmeist-
arar í tvímenningi.
Kcppnin hefst á morgun, föstu-
daginn 4. mars kl. 16.00 og gefur
íslandsbanki á Sigluflrði verðlaun
til mótsins.
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Við vinnslu Dags í gær féll
niður bróðurpartur síðustu
málsgreinar fréttar um umræð-
ur í bæjarstjórn Akureyrar sl.
þriðjudag í tilefni af greinar-
geró um fjárframlög til KA og
Þórs. Orórétt átti þessi klausa
að vera þannig: „Sigurður J.
Sigurðsson (D) sagði ástæðu-
laust fyrir fulltrúa meirihlutans
að taka bókun Kolbrúnar tii
sín. Henni væri fyrst og fremst
beint gegn fulltrúum minni-
hlutans.“
■ A fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar sl. þriðjudag var sam-
þykkt með 10 atkvæðum gegn
1 (Birna Sigurbjörnsdóttir (D)
var á móti) aó vísa aftur til
bæjarráós þeirri ákvöröun bæj-
arráðs 24. febrúar sl. að ganga
til samninga við Möl og sand
hf. um kaup á steinefni til
gatnageröar á árinu 1994.
Jakob Björnsson (B) opnaði
umræðu um þetta mál og taldi
að bæjarráðsmenn hafi ekki
haft nægilegar upplýsingar um
þaö á fundinum 24. febrúar.
Hann lagði því til að málinu
yrói aftur vísað til bæjarráðs.
Undir það tóku Úlfhildur
Rögnvaídsdóttir (B), Heimir
Ingimarsson (G) og Sigríður
Stefánsdóttir (G). Sigríóur
lagði til aó málinu yrði vísað
til bæjarráðs með heimild til
fullnaðarafgreióslu. Á það féil-
ust 10 bæjarfulltrúar í at-
kvæðagreióslu.
■ Bæjarstjóm Akureyrar til-
nefndi sl. þriðjudag Björn
Magnússon í fjögurra manna
bygginganefnd vegna væntan-
lcgrar legudeildarálmu við
FSA.
■ Töluverðar umræóur uróu á
bæjarstjórnarfundinum um þá
samþykkt félagsmálaráðs 9.
febrúar sl. að heimila leik-
skólastjórum aö loka leikskól-
um bæjarins einn dag annaó
hvort ár vegna námskeiða-
halds, enda tengist námskeiðs-
dagurinn páskaleyfi. Sigfríður
Þorsteinsdóttir (B) lét bóka aó
féiagsmálaráðs leiti allra leiða
til þcss að námskeiðsdagar
leiói ekki til lokunar leikskól-
anna. Undir það tóku ÚllTtildur
Rögnvaldsdóttir (B) og Val-
gerður Hrólfsdóttir (D). Sigríó-
ur Stefánsdóttir (G) sagöist
hins vegar ekki sjá að unnt
væri aö efna til námskeiðsdaga
fyrir allt starfslið leikskólanna
án þcss aó loka þeim á meðan.
Niðurstaða umræðanna var aó
vísa málinu aftur til félags-
málaráðs til frekari skoöunar.
■ Heimir Ingimarsson (G)
fagnaði samþykkt húsnæðis-
nefndar um áskorun til félags-
málaráðherra að lækka vcxti í
félagslega íbúóarkerfinu.
Heimir sagói óviðunandi að
vextir í félagslega kerfinu hafi
ekki lækkað á síðustu misser-
um eins og aórir vextir. Hall-
dór Jónsson, bæjarstjóri, benti
á að þrátt fyrir þetta væru vext-
ir á almennum markaði u.þ.b.
100% hærri en vextir í félags-
lega kerfinu.