Dagur - 03.03.1994, Side 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 3. mars 1994
DAGDVELJA
Stjörnuspá
eftlr Athenu Lee
Fimmtudagur S. mars
Vatnsberi ^
(£0. jan.-18. feb.) J
Ekki ganga út frá því sem vísu a&
spurning sem sett er fram, sé
lögð fram í sakleysi. Annað og
mikilvægara gæti legið að baki.
Q
d
Piskar '
(19. feb.-20. mars)
Upp kemur árekstur á milli þín og
fjölskyldunnar og þú ert í miklum
vafa um hvað eigi að hafa for-
gang. Þú verður að velja því
málamiðlun dugir ekki.
(*?
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
nT)
Fólk í kringum þig er óeðlilega
viðkvæmt og ábyrgðin hvílir því á
þér; þú verður að þræða gullna
meðalveginn eins og hrútum ein-
um er lagið.
(W
Naut
(20. apríl-20. maí)
Það er mikilvægt að vita hvar
mörkin liggja í ákvebnu sam
bandi. Þú vilt gjarnan þóknast
fólki en ættir samt ekki a& þurfa
að skuldbinda þig.
Tvíburar
(21. maí-20. júní)
3
Það léttir yfir þér vib óvænta vel-
gengni í ákveðnu máli. Vandinn
hefur legið í því ab þú ferð of lítib
út og ættir að bæta úr því hib
snarasta.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
3
Þetta lítur út fyrir að verba ágætur
dagur; sérstaklega hvað var&ar
fjölskylduna og nágrannana.
Hugsanlega leysist gamalt vanda-
mál.
(^MÉpIoón
\fv>Tv (23. júli-22. ágúst) J
Láttu orð ráða og bíddu með allar
aðgerðir í dag. Hreinskilnar um-
ræður eru oft árangursríkar og
leiða oftar en ekki til samkomu-
lags.
(£_
Meyja
(23. ágúst-22. sept.
0
Þú færð endurgoldinn greiba í
dag og einhver gefur þér góð ráb
sem sparar þér bæði tíma og pen-
inga. Fjölskyldulífið er gott þessa
dagana.
-Ur (23. sept.-22. okt.) J
jákvæbir straumar umlykja fjöl-
skylduna og heimilib þessa dag-
ana og hafa góð áhrif á öll sam-
skipti. Nýttu tækifærið og ræddu
vibkvæm mál.
(M
Sporðdreki
(23. okt.-21. nóv.
V
Ef þú ert að vinna að einhverju
með öðrum mun það ganga vel
nema þú notfærir þér abstöðu
þína í eigin þágu. Þú átt skemmti-
legt ferbalag framundan.
CArtv Bogmaður 'N
X (22. nóv.-21. des.) J
Fjármálin setja sterkan svip á dag-
inn og sennilega þarftu að taka
ákvörðun sem hefur áhrif til lang-
frama. Láttu þarfir annarra hafa
forgang í dag.
Steingeit
(22. des-19. jan.) y
Þú ert ef til vill óþarflega lokaður
og átt það til að vera alltaf upp á
kant við fólk sem er þér nákomið.
Reyndu að opna þig og vera sam-
starfsþýbur.
:0
13
40
Fyrirgefðu hvað ég kem seint en Hildur
tilkynnti rétt áður en við lögðum af stað
að hún færi í afmæli í dag eftir skóla.
Við þurftum að koma við á bensínstöð til
að kaupa gjöf. Það eina sem þeir áttu til
að pakka henni inn var brúnn bréfpoki
svo við þurftum að kaupa liti til að mála
á hann.
A léttu nótunum
Þetta þarftu
a& vita!
Bló&gjafar
Frúrnar í saumaklúbbnum voru sammála um ab eitthvað yrði að gera til að
Blóbbankinn fengi nóg blób, en ein þeirra hafbi lesið í blöbunum að alltaf
vantabi blóð. Þær urðu allar sammála um að gefa blóð - úr eiginmönnum
sínum.
Afmælisbam
dagsins
Or&takib
Mestu kaffiframlei&endur
Brasilía framleibir 2/3 af því kaffi
sem drukkið er. Kaffi sem hvorki
Grikkir né Rómverjar þekktu kom
upphaflega frá Eþíópíu. Kaffib
kom til Evrópu á 16. öld.
Nýtt ár mun væntanlega ekki
boða miklar breytingar. Notaðu
tækifærið og gerðu áætlanir fyrir
næstu næstu mánuði því um mitt
árib verður nokkuð mikið að gera
í vinnunni. Mestu líkur á árangri
verða í lok ársins.
Vera mikill á (í) orði en lítill á
borði
Orðtakið merkir „tala borgin-
mannlega en reynast lítilfjörleg-
ur".
Orðtak þetta er kunnugt frá 19.
öld. Frummerking orbanna „lítill
á borði" er „lélegur ræðari". Lík-
ingin er aubskilin.
Spakmælifr
Gullhamrar
Bestu gullhamrarnir sem unnt er
að slá skynsamri konu eru þeir ab
tala vib hana eins og hún sé þab.
(Bovee)
STOflT
• Enn um Ólym-
píuleika
Samkvæmt
venju fékk
það íslenska
íþróttafólk
sem keppti
fyrir okkar
hönd sinn
skammt frá
neikvæðum
röddum hér heima á Fróni sem
finna þátttöku okkar allt til for-
áttu. Svo vir&ist sem deilur hafi
staðið um þessa hluti allt frá
því að íslendingar tóku í fyrsta
skipti þátt í Vetrarólympíuleik-
um í St. Moritz í Sviss 1948.
Síðan þá hafa íslendingar alltaf
verið með nema árið 1972
þegar leikarnir fóru fram í
Sapporo í Japan. Sjálfsagt mál
er og eðlilegt að við höldum
áfram að senda keppendur á
Vetrarólympíuleika þó Ijóst sé
a& skíðaforystan verður a&
standa betur a& þeim málum
en veríð hefur.
• Frumherjarnir
Frumherjarnir
í St. Moritz
mættu ýmsum
hindrunum og
er sú
þrautaganga
rifjuð upp í
Ólympíublað-
inu sem kom
út á dögunum. Fyrsta vanda-
málið var að útvega gjaldeyri
til fararínnar sem ekki lá á
lausu á þessum árum og það
olli nokkurri úlfúð að ákveðið
var að taka þátt í stökki, bruni
og svigi, en ekki skíðagöngu.
Hermann Stefánsson, íþrótta-
kennari á Akureyri, sá um æf-
ingar fyrir leikana og þótti
sýna ódrepandi bjartsýni og
dugnað við stjórn þeirra við
vægast sagt frumstæ&ar að-
stæ&ur. Skíðalyftur þekktust
ekki hérlendis, hvað þá upp-
lýstar brautir. Hermanni er
framar ö&rum þakkað fyrir að
þátttaka okkar í fyrstu Vetrar-
ólympíuleikunum varb að veru-
leika.
• Þurftu flugvélar
Hafli&i Jó-
steinsson á
Húsavík er af-
burðaræbu-
maður og
vanur að tala
tæpitungu-
laust. Hann er
þeirrar
skoðunar að launþegum sé
ekki bjó&andi að búa við nú-
verandi aðstæbur og sí&ustu
misserin hefur hann lagt á það
áherslu kvölds og morgna og
um mi&jan dag a& skipta þurfi
um ríkisstjórn í landinu. Á
fundi svæ&isútvarpsins á Akur-
eyri sl. miðvikudag flutti Haf-
liði ræðu sem vakið hefur
mikia athygli um land allt, en
útvarpab var frá fundinum.
Hafliði sagði ríkisstjórnina
rá&alausa, duglausa og getu-
lausa, og kvað fast að. Svo
bætti hann vib að ráðherrar
hefðu litið upp úr leggjastríð-
inu fyrir sunnan og flogið
nor&ur, líklega hefbu þeir
þurft að nota flugvélar en ekki
getað flogið á kjúklingavængj-
um.
Umsjón: Halldór Arinbjarnason.