Dagur - 03.03.1994, Blaðsíða 6

Dagur - 03.03.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 3. mars 1994 Spurníng viktcnnar — spurt á Akureyri - Hvaða dagskrárlíðír í sjónvarpí njóta mestra vínsælda hjá þér? Már Magnússon: „Nánast hvað sem er þegar ég hef tíma, en hann er mjög naumur. Þaö eru helst fréttir, en ég sé þær þó kannski ekki nema tvísvar í mánuði vegna atvínnu minnar." Eyþór Jóhannsson: „Uss, þeir eru ekki margír, jú, helst fréttir og þáttur Hemma Gunn. Þaö er góð afþreyíng." Sveina Pálsdóttir: „Bart Simpson, því í þeim þætti er ákveðínn boðskapur. Þáttur- inn ,Já, forsætisráðherra" er einnig góður, því þar sér maður í raun og vem hvernig þetta allt er og hveijir raunvemlega ráða.“ Ragnheiður ÞórhaUsdóttir: „Nágrannar og Tíska á Stöð 2.“ Vilberg Alexandersson: „Ég horfi mest á fréttir og svo spennumyndir en ég hef mjög gaman af þeim. Mér þykír þátt- ur Hemma Gunn einnig mjög góður því hann er svo einlægur og skemmtilegur. Hann er sá eini sem hefur reynt að gera börnum skil og fyrir það fær hann marga punkta." Hver er maðurínn? Höfundur: Anders Palm Þýðandí: Sigurbjöm Krístínsson Hér á eftir veröur dregin upp svipmynd af heímskunnrí per- sónu, Iífs eöa liðinni, karlí eöa konu. Glöggur lesandi á smám saman að geta áttaö sig á hveijum/hverri er veriö að lýsa. Til dæmís gæti verið tílvalið fyrir alla Qölskylduna aö spreyta sig á aö finna svaríö sameigínlega. Ef þið gefist upp, er svaríð að finna á blaðsíöu 14! SKAK Úrslit í íjölteíli og mótum SA egar okkar maður yfirgaf þennan heim - fýrir margt löngu - var hann lítt þekktur. Fáum árum eftir dauða hans byrjaöi svo hinn eiginlegi frægöarferill. Fjöldi fólks lagði leíð sína að heimil hans til að hitta ekkjuna og eftirlifandi systur. Gestirnir vildu sjá heimilið og hlýða á frásagnir um átrúnaðargoðið. Hægt og bítandi varð okkar maður að stórstirni. Hann hefði þó betur notið hluta þessarar lotningar og frægðar meðan hann lifði. Sér- staklega hefðí það komið sér vel síðustu æviárín en þau lífði hann í hálfgerðrí örbirgð. Vel flestir kunnu að meta verk hans en enginn vildi greiða honum neitt fyrir þau. „Ég myndi ekkí óska versta óvini mínum að lenda í þessari aðstöðu," skrifaði hann í bréfi til vinar síns. Hann skuldaði vininum peninga sem hann ekki gat borgað. í staðinn þurfti hann að biðja um frekari Ián. Okkar maður var uppi á 18.öld. Á þeim tíma voru eng- ar sérstakar reglur um greiðsl- ur fyrir vinnu af því tagi sem okkar maður vann. Það litla sem hann þénaði á vinnu dugði ekki til, í raun dró hann fram Iífið á gjöfum, ölmusum og Iánum. Hann hefur orðið mörgum vísindamönnum rannsókna- efni og því hefur tekist að skapa nokkuð heillega mynd af honum, alltjént sem full- orðnum manni. Viö 35 ára aldur hafðí hann séö sitt feg- ursta. Flest allir finni vinir og kunningjar höfðu sagt skilið við hann. Honum var lýst sem veiklulegum fituklump með undirhökur. Húðin var gulleit og andlitið ellilegt. Nefið var af yfirstærð og reyndar höfuðið allt, miðað víö búkinn. Ámm saman hafði hann unnið mikið og borðað óreglulega, svo það var ekki skrýtið að eitthvað yrði undan að láta. Til að vega upp á móti kyrr- setum okkar manns við vinn- una, höfðu læknarnir fyrirskip- að hreyfingu. Okkar maður fékk sér hest og hóf daglegar útreiðar. Eftir Iýsingunni að dæma, hefur hann vart talist glæsilegur knapi. Önnur áhugamál okkar manns voru skylmingar og dans en sólgn- astur var hann þó í billjard. Þegar okkar maður kvaddi hið jarðneska líf, var hann blá- fátækur. Skuldirnar voru marg- falt hærri en eígnirnar. Það Iitla sem hann átti var selt á upp- boði. Billjardborðið var það næst eigulegasta í búínu en því fylgdu 12 kjuðar, 5 boltar og ljósakróna. Átján árum eftir dauöa okk- ar manns giftist ekkja hans dönskum díplómat, Georg Nissen að nafni. Þau fluttust til Kaupmannahafnar og þar bjuggu þau frá 1810-1820. Þegar Nissen fór á eftirlaun ákvað hann að skrifa bók um okkar mann. Slík bók myndi örugglega vekja eftírtekt, því áhuginn fyrir okkar manni óx stöðugt. Nissen-hjónin söfn- uðu saman öllu því sem okkar maður hafði skrífað en þaö var tímafrek iðja. Gerorg dó tveim árum áður en bókin kom út en margir þakka honum fyrír að hafa bjargað mikilvægum heimildum sem annars hefðu trúlega glatast. Okkar maður eignaðist sex börn en aðeins tvö þeirra komust upp. Sá eldri hét Cari. og bjó lengí í Mílano. Þegar verk föður hans fóru að ná vinsældum, gáfu þau verulega fjármuni af sér og þá gat hann lagt brauðstrítið á hilluna. Sem dæmi má nefna að aðeins þrennír hljómleikar í París dugöu fyrir þokkalegu sveita- setri. Sá yngri hét Franz, en hann fæddist hálfu ári eftir dauða okkar manns. Franz lagði tón- list fyrir sig eins og faðírinn. Því míður telst hann þó ekki nema miðlungsmaður í grein- ínni og það var ef til vill eins gott að okkar maður heyrði aldrei tónsmíðar sonarins. Hver er maðurinn? Hannes Hlífar Stefánsson, yngsti stórmeistarinn okkar, tefldi fjöltefli við 17 nemendur í Menntaskólanum á Akureyri 24. febrúar sl. og vann þá alla. Dag- inn eftir tefldi hann í Gagn- fræðaskóla Akureyrar við 16 grunnskólanemendur og allt fór á sömu leið. Sem sagt, Hannes Hlífar - norðlensk æska 33:0. Fjölteflið fór fram á vegum Skákskóla íslands. Skákfélag Akureyrar hélt hraó- Skákþing Akureyrar 1994 hefst sunnudaginn 6. mars næstkom- andi og lýkur væntanlega fimmtudaginn 24. mars. Tefldar verða þrjár umferðir fyrir Deildakeppni Skáksambands Is- lands, sem fram fer í Reykjavík 11.-13. mars. Hraðskákmót UMSE í ung- lingaflokki verður haldið í Hrís- ey laugardaginn 5. mars kl. 14.30. Hríseyjarferjan fer kl. 14. Umhugsunartími er 5 mínútur á skákmót 24. febrúar, en þá var frí- dagur á Islandsbankamótinu. Efstu menn urðu: 1. Guðmundur Daða- son ló'A v. af 19. 2. Rúnar Sigur- pálsson 15!4 v. 3. Þórleifur K. Karlsson 15 v. 4. Þór Valtýsson 1414 v. 5.-6. Jóri Björgvinsson og Sigurjón Sigurbjörnsson 1314 v. Þá skal getió hér úrslita úr 15 mínútna rnóti sem haldió var 13. febrúar: 1. Rúnar Sigurpálsson 5/4 v. 2. Þórleifur K. Karlsson 5'A v. 3. Sigurjón Sigurbjörnsson 5I4v. SS keppendum skipt í riðla eftir skák- stigum. Mótið hefst kl. 14 á sunnudaginn og er hægt aó skrá sig þá frá kl. 13.30-13.50, en æski- legt væri að væntanlegir keppend- ur skráðu sig föstudagskvöldið 4. mars. Það kvöld fer einmitt fram 10 mínútna mót í Skákheimilinu að Þingvallastræti 18 og hefst það kl. 20. SS keppanda og samkvæmt reglunum má drepa kónginn. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin og eru allir unglingar velkomnir á þetta hraöskákmót.SS Skákþing Akureyrar hefst á suimudaginn Ef næg þátttaka fæst verður Skáknefnd UMSE: Hraðskákmót í unglingaflokki ^ Félag íslenskra bókaútgefenda BOKWRKMIRII Þiisundir bókatitla BLOMAHUSINU Hafnarstræti 26-30 Akureyri HEFST A Verið velkomin

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.