Dagur - 22.03.1994, Blaðsíða 3
FRETTIR
Þriójudagur 22. mars 1994 - DAGUR - 3
Fjallaskálar Ferðafélags Akureyrar:
Verulegur samdráttur í fyrra
en bjartsýni á komandi sumri
- til skoðunar að hafa vörslu í Laugafelli um páskana
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjaryfirvöld hafa sam-
þykkt aö styrkja uppsctningu
Multer toglyftu í Siglufjaröar-
skarði. Jafnframt hafa bæjaryf-
irvöld samþykkt aó settar veröi
reglur um lyftunotkun á svæó-
inu. Hins vcgar hafa bæjaryfir-
völd ckki tckið afstööu til er-
indis Skíðafélagsins um aó
Siglufjarðarbær kaupi húseign-
ir félagsins í Siglufjarðar-
skarði.
■ Fulltrúar íþróttabandalags
Siglufjarðar hafa óskað eftir
því við bæjaryfirvöld að fá
styrk til endurbyggingar Hóls.
Erindið hefur ekki verið af-
greitt.
■ Björn Valdimarsson, bæjar-
stjöri, hcfur verið tilnefndur af
hálfu Siglufjarðarbæjar í stjóm
minjagripafyrirtækisins Glaön-
is hf. sem flytur þessa dagana
stárfsemi sína frá Hveragerði
til Siglufjarðar.
■ Bæjaryfirvöld hafa tilnefnt
Guðmund Skarphéðinsson í
vinnuhóp vegna undirbúnings
endurbyggingar vegarins yfir
Lágheiði.
■ Eins og fram hefur komió í
Degi vcrða sérstakir mcnning-
ardagar á Siglufirði um
páskana í tengslum við Skíða-
landsmótið sem þar fer fram.
Ýmislcgt veróur í boði, s.s.
málverkasýning, þjóðlaga- og
kóratönlcikar og flcira. Bæjar-
yfirvöld hafa samþykkt að
þessir menningardagar verói
tileinkaðir siglfirsku fmm-
kvöðlunum séra Bjarna Þor-
stcinssyni og Snorra Pálssyni.
■ Bygginga- og skipulags-
nefnd hcfur samþykkt erindi
Ingimundar hf. um byggingu
frystiklefa og hráefnismóttöku.
Hins vegar hefur nefndin bent
Ingimundi hf. á að á svipuðum
staó stóð gcymsluhús til
margra ára og rcyndist snjó-
þungi verulegur og margoft
brotnaói þakiö undan snjó-
þunga þrátt fyrir verulegar
endurbætur.
■ Ætlunin cr aö í júní nk. vcrði
ráðist i smíði bryggju og pláss
framan við Roaldsbrakka á
Sigjufirði.
■ Á fundi skólanefndar nýver-
ið var lögð fram tillaga að
námsframboði eins árs fram-
haldsdeildar. Einingar á haust-
önn yrðu 16 og 14 á vorönn.
Kennslustundir á viku yrðu 41
á fyrri önn en 37 á þeirri síóari.
Sigurður Jónsson, formaður
Ferðafélags Akureyrar, segist
bjartsýnn á komandi ferða-
mannasumar en félagið er nú
sem óðast að undirbúa sumar-
starfið. Síðastliðið sumar var
mjög óhagstætt varðandi rekst-
ur fjallaskála félagsins og varð
hjá þeim öllum samdráttur í
komum ferðamanna. Þetta er
óvenjulegt en undirstrikar
hversu lítil umferð ferðamanna
var á Norðurlandi, ekki hvað
síst á hálendinu.
Sigurður sagði í samtali við
blaðiö að síóastliðið sumar haíi
orðið 45% samdráttur í skálunum
í Oskju og Dreka. Veðurlagið hafi
mestu ráðið um þennan samdrátt
en einnig hitt hversu seint fjall-
vegir urðu færir. Samdrátturinn
hjá skálunum vegur þungt í af-
koniu Ferðafélags Akureyrar cnda
varó tap af hcildarrekstrinum, sem
ckki hefur verið undanfarin ár. Inn
í afkomu félagsins kemur einnig
nýr skáli félagsins við Dyngjufell,
sem þyrla varnarliðsins llutti
þangað síðastliðið sumar, cn skál-
inn kostaði fclagið yfír cina millj-
ón króna. Þessi skáli er stór liður í
gcrð vinnsællar göngulciðar í
Odáðahrauni, þ.e. frá Dreka yllr
Dyngjufjöll og í Suóurárbotna.
Á vcgum félagsins eru fyrir-
hugaóar ýmsar framkvæmdir í
sumar. Fyrst er að ncfna gcrð
göngubrúar á Glcrárdal. Um er aó
Hverfandi hætta
á ís í vor
Óvenju lítið er um ís um þessar
mundir og nánast enginn innan
íslenskrar landhelgi, en við
miðlínuna milli Islands og
Grænlænds er svolítill ís en
minna en oft áður á þessum árs-
tírna.
Utlit cr því gott fyrir þau
loðnuskip scm vitað cr um að cru
að gera klárt til að halda á rækju-
veiðar á Dohrnbanka á næstunni
cn mokveiði hcfur vcriö þar und-
anfarna daga.
I ískönnunarflugi Landhclgis-
gæslunnar sl. miðvikudag rcyndist
ísinn vcra næst landi um 80 sjó-
rnílur norðvcstur af Barða og var
þcttleikinn á þeim slóðuni 10/10,
cða samfrosta nýmyndun og miðl-
ungs þykkur vctrarís. GG
ræða brúun á Lambá aó vcstan-
verðu þannig að mcð henni gæti
göngufólk komist þurrum fótum
hring á Glerárdal. Ferðafélagið
hcfur nú gefió út gönguleiðakort
af Glerárdal mcó öllum helstu
upplýsingum um dalinn og leiðir á
honum.
I Laugafelli er fyrirhugað að
ráóast í verulegar úrbætur á hrein-
lætisaðstöðunni og gæti sú fram-
kvænid orðió á árinu en Sigurður
segir ljóst að staðurinn muni á
næstu árum koma æ meira inn í
myndina sem viðkomustaður á há-
lendinu. Vaxandi áhugi sé hjá
hópferðaaðilum sem koma í Nýja-
dal að l'ara í Laugafell, þar sem
umferð er minni, enda hafi staður-
inn upp á margt að bjóða.
Þá sagði Siguröur að Ferðaíc-
lag Akurcyrar hafí kostað lagl'ær-
ingu á veginum frcmst á Eyja-
ljarðardal síðastlióið sumar sem
'bætti Iciðina nokkuð þó tnun
ntcira þurfi að gcra til að hún
verði góð.
Að undanförnu helur vcrið
mikil umræða milli aðila sem ciga
og nota fjallaskálana að þrýsta á
betri umgengni í þeim. Sigurður
segir að dálítið beri á að fólk
gangi illa um, greiði ckki fyrir af-
not og stofni til samkvæma í skál-
unum. Um leið og skálaverðir séu
farnir á haustin fari að bera á
versnandi umgengni og ætlunin sé
aó stöðva þcssa þróun. Liður í
átakinu cr aó hafa vörslu í Lauga-
felli um páskana og er það mál nú
til skoðunar. Sigurður sagði hugs-
unina einnig þá að þcir aóilar sem
aó átakinu standi hafi mcð sér
samvinnu þannig aö verói einstak-
lingar eða hópar uppvísir að
slæmri umgengni hjá einum aðila
þá verði þeim einnig úthýst í öðr-
um fjallaskálum fyrir vikió. JÓH
BSA hfm
Sölu- og þjónustuumboð fyrir:
Merccdes-Benz
Bílaverhstæbi
Bílarétting
Bílasprautun
Bílavarahlutir
Laufásgötu 9 • Akureyri
Símar 96-26300 & 96-23809
Unglingarúm
Thereea 105 cm kr. 31,540 stgr.
Theresa náttborð kr. 6,550
Theresa járnrúm
Margar breiddir: 90 cm, 105 cm, 120 cm,
Lengd: 200 cm
Litir: Króm, hvítt og svart
Góðar dýnur á hagstasðu verði
Einnig fáanlegar rörahillur í stíl
STARFSMANNAFELAG
AKUREYRARBÆJAR
AÐALFUNDUR
STARFSMANNAFÉLAGS AKUREYRARBÆJAR
Staður: Hótel KEA.
Tími: Þriðjudaginn 22. mars 1994 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Kosning fulltrúa á þing BSRB.
4. Önnur mál.
Kaffiveitingar veróa á fundinum.
Félagar eru hvattir til að mæta vel.
Stjórn STAK.
Cs\/0'FpI dÁ'Pd K* ^er<^ ^r' 43,600 stgr.
r/öC/iði KJikk-klakk svefnsófarnir vínsælu í
tveimur litum með rúmfatageymslu
Var\áað áklasði og fjaðradýnur
i/örubæi
1_Vhúsgagnaverslun
Tryggvabraut B4
BOB Akuregrl
Síml 9B-BI4IO
Opia laugardaga firá kl. 10-13