Dagur - 31.03.1994, Blaðsíða 19
Aðalverðlaunin í páskakrossgátunni er þctta eigulega ferðatæki af gerðinni
SHARP QT-CD44. Það skartar gcislaspilara auk útvarps og scgulbands.
Tækið kostar kr. 22.111 (19.900 staðgr.) í Metró á Akureyri en einhver fær
það að launum fyrir það eitt að ráða krossgátuna rétt. Mynd: Robyn.
Páskakrossgáta Dags:
Glæsilegt ferðatæki
og mánaðarkort í bíó
- í boði fyrir rétta lausn
Fimmtudagur 31. mars 1994 - DAGUR - 19
SAÚNABRUNNUR
BJORN DUASON
Bæklað bara borið í kirkju
Fyrir rétta lausn paskakrossgat-
unnar verða veitt fern verðlaun.
Skilafrestur er til 25. apríl næst-
komandi, sem er síðasti póst-
lagningardagur lausna.
Þann 27. apríl nk. munum við
draga fjögur umslög úr bunkan-
um. Handhafi þess seðils, sem
fyrst kemur úr „pottinum“ hlýtur
að launum SHARP QT-CD44
ferðatæki með segulbandi, útvarpi
og gcislaspilara frá versluninni
Metró, Furuvöllum 1, Akureyri.
Þctta glæsilega ferðatæki kostar
22.111 krónur í Metró eða 19.900
Leikritið Skilaboðaskjóðan eftir
Þorvald Þorsteinsson, er ævin-
týraleikur með söngvum sem
var frumsýndur í Þjóðleikhús-
inu sl. haust og hefur verið
sýndur síðan við niiklar vin-
sældir.
Þetta er lcikrit fyrir börn á öll-
um aldri, mcð tilhcyrandi ævin-
týrablæ og skrautlcgum söguper-
sónum. Lcikstjóri er Kolbrún
Halldórsdóttir. Höfundur tónlistar
er Jóhann G. Jóhannsson, tónlist-
arstjóri Þjóðleikhússins, en söng-
textarnir eru eftir Þorvald Þor-
steinsson.
Mörg lög úr leikritinu eru þeg-
ar orðin þekkt mcðal þeirra barna
sem hafa scð lcikritið, auk þess
krónur gegn staðgreiðslu.
Handhafar þriggja annarra
lausnarseðla fá að launum mánað-
arkort í Borgarbíó á Akureyri.
Þeir geta því séð allar myndir
bíósins í heilan mánuð og má full-
yrða að þar verður af nógu að
taka. Erfitt er að segja til um verð-
mæti þessara vinninga, enda fara
þau eftir því hve duglegir vinn-
ingshafarnir veróa að sækja sýn-
ingar kvikmyndahússins.
Gcfendur vinninga eru verslun-
in Mctró og Borgarbíó og kunnum
við þcim bestu þakkir l'yrir.
sem ævintýrið um Skilaboða-
skjóöuna hefur komið út á prenti.
Söguhetjurnar eru börnum því all-
vcl kunnar.
Flytjendur tónlistarinnar eru
leikarar og hljóöfæraleikarar úr
uppfærslu Þjóðleikhússins. Upp-
töku stjórnaði Jóhann G. Jóhanns-
son en hljóðvinnsla var í höndum
Sveins Karlssonar og Tómasar M.
Tómassonar. Upptökur fóru fram í
Þjóðleikhúsinu.
Tónlistin úr Skilaboðaskjóð-
unni cr fáanleg á geisladiski og
snældu, sem eru til sölu í
hljómplötuverslunum um land allt
og í Þjóðlcikhúsinu. Utgefandi er
Þjóóleikhúsið en Skífan annast
dreifingu.
Fastan stcndur yfir. Föstudagurinn
langi ber á þessu ári 1994 upp á 1.
apríl.
Er við llettum sálmabókinni
okkar á föstunni og hugleiðum
jafnframt þá atburði, sem gáfu
deginum nafn og merkingu, þá
finnum við, að máttur boóskapar-
ins cr svo mikill, aó hann kallar á
okkur á öllum aldri til djúpra
hugsana.
Þegar við Islendingar lesum
þessa sálma með opnum huga,
sem helgaóir eru föstunni, cn þcir
eru 22 talsins - og hver öórum fal-
legri, þá fyllumst vió lotningu.
Gegnum aldanna rof rcnna
áhrifin, máttug og þung til allra
hugsandi manna. Um stund verður
öldungurinn hljóður l'rammi fyrir
þeim harmræna atburói, sem dag-
urinn minnir á. Pílagrímurinn hall-
ast fram á stafshúninn og hugsar.
Jafnvel barnió er ekki ósnortið af
þýóingu dagsins. Næm sál þcss
greinir þaó ef til vill skýrar cn
hinn fullorðni maóur, hvað dimmt
var á Golgata þann dag, og það
gegnum hamarshöggin, sem það-
an bcrast, aö sá scm er aö dcyja er
„vinur barnanna" í altækari merk-
ingu en llcst allir aðrir.
„Mig langar í kirkju“
Það geröist á litlu hóteli í Lillc-
hammer í Noregi skammt frá
Osló. Komið er l'ast aó morgun-
vcrði. Hljómur boróklukkunnar
smýgur inn í herbergi hótelgest-
anna og gefur þeim til kynna að
nú sc árbítur fram reiddur. Innan
stundar cru allir sestir undir borð.
Meðal gcstanna cr móðir með
bæklað barn, sem ckki gat gengið.
Eftir árbítinn fcr barnið að biðja
mömmu sína að lofa sér að fara í
kirkju þcnnan dag. Þcgar móðirin
tekur bæn barnsins heldur fálega,
scgir barnið: „Mamma - hcyrirðu
ekki hlukknahljóminn, það cr
föstudagurinn langi í dag, og mig
langar í kirkju."
A meóal gestanna var að
minnsta kosti einn maður, scm
veitti þcssu kvaki barnsins nána
alhygli og það var útlcndingur.
Það snerti hann djúpt, hvað bæn
barnsins var innileg en þaö hjálp-
arlaust, og jafnframt hvað honum
virtist móðirin vera lítið snortin af
bæn barnsins. Þegar hann sá, aö
hún ætlaði ckkert að sinna barninu
í þessu efni, fann hann mjög til
meö því. Hann stóð upp og gekk
til móóurinnar og bauð henni að
bera barnið til kirkjunnar í borg-
inni, heldur en þaó gæti ekki feng-
ið ósk sína uppíyllta.
Móðurinni þótti ákafiega vænt
um þessa nærgætni þessa ókunna
og útlcnda manns. Jafnframt skildi
maðurinn, að ástæðan fyrir því að
konan hafði ekki sinnt barninu
bctur í þessu efni, mundi fremur
hafa stafaó af úrræðaleysi en vönt-
un á kærleika.
Utlendingurinn tók barnið
í fang sér
Þessi óþekkti útlendingur tók nú
barnið í fang sér og bar það í
kirkjuna og naut guðsþjónustunn-
ar með því af heilum huga. Skyldi
vera fjarri að álykta, að maður
þessi hafi verið betur undirbúinn
iýrir þessa guðsjónustu en flestir
aðrir, þegar bæklaða barnió er frá-
skilið, vegna þess að hann var
genginn inn í þann fórnaranda,
sem einkcnnir boðskap dagsins?
Boöskapur kenniniannsins var
skýr og sannfærandi. Hann benti á
Krist krossfestan fyrir syndir
manna og hið mikla gjald fyrir
sekt mannkynsins. Bent var líka á,
hver viðbrögö allra manna ættu
með réttu að vera gagnvart óum-
ræðanlegum kærlcika Guós sonar,
sem deyr saklaus fyrir seka. Eóli-
Ieg viðbrögð væru þau, að „hvert
barn, hvert ljóð sem lifir, skal lúta
krossins mynd“.
Eftir guðsþjónustuna bar út-
lendingurinn barnið heim aftur frá
kirkjunni og færði það móður þess
á hótelinu. Þegar hann hafði lokið
þessari kærleiks þjónustu, vék
hann einn til herbergja sinna og
var þar lengi dags, án þess að
blanda geði við nokkurn mann.
Þetta var Davíð Stefánsson
Þegar hann kom aftur til gestanna
á hótelinu hafði hann lokið annarri
guósþjónustu og henni ekki síöri
en presturinn hafði fiutt í kirkj-
unni um morguninn, því að þessi
guðsþjónusta, sem þarna fór fram
í hótelherbcrginu mun um ómuna-
tíð varpa ljóma á nafn hans.
Utlendingurinn, sem þarna var
að verki, var Islendingur. Þaö var
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Og guósþjónustan, sem hann hafði
lokið, var að yrkja hinn gull-
fallega sálm: „Ég kveiki á kertum
mínum".
Þegar kristnir nicnn lesa og
syngja þcnnan fagra sálm, þá
mættu þcir minnast þess, að orsök
þess að hann varð til, var - að
skáldió fann sárt til með ósjálf-
bjarga barni, og gerði byrðar þess
að sínum og bar þaó í helgidóm
Guðs á föstudagirm langa, til þcss
að það fengi að heyra söguna um
Hann, sem dó fyrir það. Slík kær-
leiksþjónusta fer ekki fram hjá
Guói, því að Kristur sagði: „Hver
sem gefur yður bikar vatns að
drekka í nafiú þess að þér eruð
Krists, sannlega segi ég yður,
hann mun alls ekki fara á niis við
laun sín". (Mark. 9, 41.)
Þarna koniu launin, meö því að
skáldinu var gefinn andans inn-
blástur til þess aó hann gæti gefið
íslenskum bókmenntum þcssa
ódauðlcgu perlu, sem varpa mun
ljóma á nafn hans meö öldnum og
óbornum um ómuna tíð.
Heimildir: Séra Pétur Sigur-
geirsson í bókinni: Skáldið frá
Fagraskógi og Árni Kristjánsson,
Píanóleikari.
Ásm. Eiríksson: Gimsteinar á
götuslóð.
Ég kveiki á kertum mínuni
Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
I öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Eg vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á hausaskeljastað.
I gegnum móðu' og mistur
ég mikil undur sé.
Eg sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Afenni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
A klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.
Þín þraut er þyrnum þakin,
hyer þyrnir falskur koss.
Eg sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Eg sé þig hœddan hanga
á Hausaskeljastað. -
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.
Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn áferð.
Þú grœtur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist, er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú érð og elskar alla,
þó allir svíki þig.
Eg "ell aðfótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástarcldi
fá allir heimar Ijós.
(Sb. 1945 - D. Stefúnsson frá Fagraskógi.)
Heilsuvakning
Rafiðnaðarsambands íslands og
Rafvirkjafélags Norðurlands á Akureyri
Föstudaginn 8. apríl næstkomandi gangast RSÍ og
RFN í samvinnu vió forvarnar- og líkamsræktarstöðina
Mátt, fyrir heilsuvakningu á skrifstofu rafiðnaðarmanna
í Alþýðuhúsinu á Akureyri.
Dagskrá:
Kl. 13.00 - 18.30 Mælingar og ráðgjöf.
Þolmæling, blóðþrýstingsmæling og blóðfitumæling ásamt
einkaráðgjöf um þjálfun og bættan lífsstíl.
Tímapantanir fara fram á skrifstofu RSÍ á Akureyri í Alþýðu-
húsinu, Skipagötu 14, sími 22119. Mælingin og ráðgjöfin tek-
ur u.þ.b. 20 mín og kostar kr. 1.500,- Ef þessir tímar fyllast
verða að auki þókaðir tímar á laugardagsmorgun.
Kl. 18.30 Fundur í Alþýðuhúsinu.
1. Fyrirlestur og ráðgjöf um atvinnutengda sjúk-
dóma.
Magnús Ólafsson vinnuvistfræðingur.
Kl. 20.30 Áframhald fundar eftir matarhlé.
Makar rafiðnaðarmanna eru velkomnir.
2. „Barið á bumbur".
Fyrirlestur og ráðgjöf um áhrif mataræðis og líkamsþjálfunar
á þyngdar- og fitutap.
Ólafur Sæmundsson næringarfræðingur.
3. Er aukin líkamsþjálfun raunhæfur kostur í fyrir-
byggjandi heilsuvernd?
Hilmar Björnsson íþróttafræðingur.
4. Létt spjall um starfsemi RSÍ og RFN.
Guðmundur Gunnarsson, Helgi R. Gunnarsson og Pétur
Pétursson.
Boóið verður upp á léttar veitingar.
Lausnarseðill páskakrossgátu
Lausn:
Nafn:
Heimilisfang:
Póstnúmer:
Sími:
Utanáskriftin er: Dagur - (páskakrossgáta) • Strandgötu 31
Pósthólf 58 ■ 602 Akureyri
Skilafrestur er til 25. apríl nk.
Tónlistin úr Skilaboða-
skjóðunni komin út