Dagur - 21.04.1994, Page 1
Aðalfundur Útgerðarfélags Akureyringa hf. haldinn í gær:
Eigið fé nálgast 2 milljarða króna
- nýtt skip ÚA kemur til Akureyrar á morgun - almenningi til sýnis á laugardag
Gunnar Ragnars, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfé-
lags Akureyringa hf., segir að
áætlanir geri ráð fyrir hagnaði
af rekstri félagsins í ár, en hins
vegar sé nokkuð ljóst að afkom-
an verði lakari en á síðasta ári.
Þar komi m.a. til skerðingar
aflaheimilda á undanförnum ár-
um og sjómannaverkfallið í árs-
byrjun.
A aðalfundi Útgerðarfélags
Akureyringa hf. í gær kom fram
að hagnaður af reglulegri starf-
semi félagsins var 202 milljónir
króna á síðsta ári en var 146 millj-
ónir árið 1992. Að teknu tilliti til
tekna af eignarhlut í SH og ýmissa
gjalda s.s. skatta nam hagnaður
ársins 112 milljónum króna á móti
10 milljónum króna á árinu 1992.
Eignastaða ÚA er sem fyrr afar
sterk. Heildareignir í árslok voru
bókfærðar á rúma 4 milljarða
króna. Skuldir námu um 2,2 millj-
örðum. Eigið fé í árslok var því
1,8 milljarður og jókst um 257
milljónir frá árinu 1992.
Aflinn
Heildarafli skipa ÚA á síðasta ári
var tæplega 20.800 tonn á móti
21.600 tonnum árið 1992. Afli á
úthaldsdag dróst saman um 0,7
tonn á síðasta ári samanborið við
1992. Athyglisvert er að frá árinu
1988 hefur afli á úthaldsdag dreg-
ist saman um 15,5 tonn sem er
tæplega 32%. Fram kemur í árs-
skýrslu ÚA að niðurskurður afla-
heimilda í þorski sl. þrjú ár hafi
verið um 50% og nú sé útlit í
karfa og grálúðuveiðum tvísýnt
vegna minnkandi afla á úthalds-
dag og smækkandi karfa og grá-
lúðu.
Ekki út úr Mecklenburger
Mikið hefur verið að undanfömu
rætt um málefni dótturfyrirtækis
ÚA í Þýskalandi, Mecklenburger
Hochseefisherei. Fram kemur í
ársskýrslunni að unnið hafi verið
að breyttum áherslum innan fé-
lagsins, sérstaklega í framleiðslu
um borð í skipunum. Þá hafi vinna
að markaðsmálum verið mikil og
skilað árangri. Síðan segir orðrétt:
„Samkvæmt samkomulagi milli
hluthafa í MHF getur hver ein-
stakur hluthafi óskað eftir slitum á
félaginu ef eigið fé lækkar um 8
millj. DM. Ljóst er að sú staða er
nú komin upp. Það er hins vegar
mat stjómenda ÚA að ekki sé ráð-
legt að nýta þennan rétt á þessari
stundu. Rökin fyrir því eru þau
helst að nýr framkvæmdastjóri er
nú rétt byrjaður að stjóma í félag-
inu og svo hitt að besti veiðitími á
úthafsveiðum fer nú í hönd. Þann-
ig gefst tími til að meta stöðuna
frá grunni og taka ákvarðanir þeg-
ar líða tekur á sumarið. Möguleik-
amir liggja einkum í því að lækka
framleiðslukostnað og vinna frek-
ari markaði sem gætu gefið hærra
verð.“
Greiddur 10% arður
Á aðalfundinum í gær var sam-
þykkt að greiða hluthöfum, sem
voru 1.801 í árslok, 10% arð.
Jafnframt var samþykkt tillaga
stjómar um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa (10%). Einnig var samþykkt
að veita stjóm heimild til að bjóða
út nýtt hlutafé - 150 miljónir
króna.
Bæjarbúum boðið að skoða
nýja skipið
Eins og fram hefur komið bætist
nýtt skip í flota ÚA síðar í þessari
viku. Skipið, sem ber nafnið Sval-
bakur EA-2, mun leggjast að
bryggju um hádegisbil á morgun,
föstudag, og verður móttökuat-
höfn kl. 12.30. Forráðamenn ÚA
bjóða bæjarbúa velkomna til þess
að taka á móti skipinu. Gunnar
Ragnars sagði að skipið yrði al-
menningi til sýnis nk. laugardag
kl. 13-18 og vildi hann hvetja fólk
til þess að koma og skoða það.
Magnús Magnússon, útgerðar-
stjóri ÚA, sagði að í byrjun maí
færi nýi Svalbakur á úthafskarfa-
veiðar á Reykjaneshrygg og væri
við það miðað að þeim túr yrði
lokið fyrir sjómannadaginn. Krist-
ján Halldórsson verður skipstjóri
Svalbaks, Sæmundur Friðriksson
fyrsti stýrimaður og Bergur
Bergsson 1. vélstjóri. óþh
Nýi Svalbakur EA-2 er ekkert meðalskip og víst er að Akureyringum á eftir
að bregða í brún þegar hann leggst að bryggju á Akureyri á inorgun. Þessi
mynd var tekin á dögunum úti í Kanada. Eins og sjá má er nafn skipsins
komið á sinn stað.